Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 28

Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 28
28 MORGUNBLAÐH) MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Minning: Haraldur Jóns- son frá Görðum Fæddur 30. september 1924 Dáinn 20. október 1988 Heyrið morgunsöng á sænum, sjáið bruna fley. Undan hægum byijarblænum, burt frá strönd og ey; Sólin skreytir skiparaðir, skín hver þanin voð. Söngljóð kveða sjómenn glaðir, snjallt á hverri gnoð. (Steingr. Thorsteinsson) Kær vinur og frændi er dáinn. Haraldur frændi minn varð bráð- kvaddur á heimili sínu á Flateyri 20. október sl., hann var nýorðinn sextíu og fjögurra ára, sem nú til dags telst ekki hár aldur og átti ég ekki von á öðru en hann lifði lengi enn. Nú er það svo, að við vitum ekki alltaf, hvers biðja ber, og margan góðan mann leikur hár aldur illa, og þeim sem staðið hefur keikur af sér alla storma lífsins, er það máske gott hlutskipti að falla áður en hann bognar. Haraldur heitinn fæddist á ísafirði 30. september 1924 og for- eldrar hans voru hjónin Jona Guðrún Jónsdóttir ljósmóðir frá Ytri-Veðr- ará og Jón Guðmundur Guðmunds- son frá Görðum, bóndi Ytri-Veðr- ará, síðar bókavörður og oddviti á Flateyri. Viku gömlum var Haraldi komið í fóstur hjá föðurbróður sínum, Hinriki, og konu hans, Guð- rún Eiríksdóttur, miklum sæmdar- hjónum á Flateyri, en móðir hans var þá orðin veik af þeim sjúkdómi sem ieiddi til dauða hennar sex árum síðar, frá stórum bamahópi. Harald- ur var Qórða bam foreldra sinna en systkinin urðu sjö og einn hálf- »bróðir sem Jóna átti með fyrri manni sínum, Guðmundi Franklín. A heim- ili þeirra Guðrúnar og Hinriks ólst hann upp við mikla ástúð og um- hyggju ásamt fóstursystkinum sínum, Guðfinnu Hinriksdóttur og Benjamín Oddssyni. Hann saknaði fósturforeldra sinna mjög og taldi sig vart hafa getað eignast betri móður og föður. Eflaust hefur Haraldur hneigst að sjónum strax á bamsaldri og trúlega róið fram á fjörðinn til fiskj- ar um leið og hann hefur valdið árinni. Hjá Jóni Franklín bróður sínum hefst raunvemleg sjó- mennska Haraldar sumarið 1939 á mb. Ivari, 15 tonna bát, var hann þá 14 ára að aldri, en Jón gerði þá út á dragnót í Húnaflóa. Veturinn eftir í janúarbyijun ræðst hann aftur til Jóns og þá á mb. Vestra, til línuveiða og útilegu frá Reykjavík. í marsmánuði skall á ofsaveður sem laskaði Vestra það mikið, hér í höfninni, að skipið var frá veiðum það sem eftir var vertíð- ar. Réðst þá Haraldur, ásamt þrem- ur öðrum skipsfélögum sínum, þar á meðal frænda hans, Garðari Finn- syni, til Einars í Garðshúsum, út- vegsbónda í Grindavík, og var þar til vors. Síðan liggur leiðin aftur heim til Fiateyrar og þar stundaði hann sjó- inn á ýmsum bátum, þar á meðal á mb. Gnoð, með Magnúsi Jónssyni skipstjóra. Haraldur var stórhuga ungur maður, frískur vel með mikla líkamsburði. Fljótlega vildi hann víkka sinn sjóndeildarhring, eins og ungum sjómannsefnum er tamt. Síðari heimsstyrjöldin hafði ekki varað lengi þ.egar Haraldur ræður sig á bv. Helgafell hjá Þórði Hjör- leifssyni, kunnum aflamanni, og þar er hann til stríðsloka. Fyrsti stýri- maður á Helgafellinu var þá og lengst af hinn vel þekkti togarsjó- maður Georg Guðmundsson. frá Görðum, föðurbróðir Haraldar. Þessi hættusömu ár sigldi hann oft- sinnis með frænda sínum, með fisk til Englands, en fullvíst er talið að Georg hafi nær alltaf siglt Helgafell- inu sem skipstjóri öll stríðsárin. Næsta víst er, að af Georg hafi Haraldur numið vel togarasjó- mennskuna. Þegar þessum kafla á hans lífsvegi lauk var hann orðinn afburða slyngur togarasjómaður, vel þekktur og eftirsóttur, af þeim sökum. í nokkra mánuði var Harald- ur með þeim landskunna aflamanni Bjama Ingimarssyni frá Hnífsdal, á bv. Júpíter, eignaðist þar um borð góðan vin og félaga, Leif Pálsson, frá Hnífsdal og varaði sú vinátta æ síðan. Fljótlega eftir stríðsárin hóf Haraldur nám við Stýrimannaskól- t Eiginkona mín, systir okkar og mágkona, ÞÓRDÍS AÐALBJÖRNSDÓTTIR, Dalbraut 18, Reykjavfk, verður jarösungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 15. nóvember kl. 15.00. Kristjðn Theodórsson, Ingólfur Aöalbjarnarson, Sigrún Aðalbjarnardóttir, Jón Pálmason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur okkkar og tengdasonur, EYJÓLFUR EINAR EYFELLS ÞÓRSSON, bifvélavirki, Laugarnesvegi 83, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameins- félag (slands. Ingibjörg Jóhannsdóttir, Jóhann Eyjólfsson, Þór Jóhannsson, Elín R. Eyfells, Jóhann Eyjólfsson, SigríðurÁsgeirsdóttir og aðrir aðstandendur. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins mins, föður, tengdaföður og afa, EGILS GUÐJÓNSSONAR frá Súgandafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins á isafirði og deildar 11A Landspítalanum. Lovfsa Ibsen, Guðrún Egilsdóttir, Bjarni Kjartansson, Egill Ibsen Óskarsson, Karl Steinar Óskarsson, Kjartan Rafn Bjarnason, Lúövík Bjarnason. ann í Reykjavík og sat þar þann skóla í tvo vetur, útskrifaðist síðan með hið meira fiskimannapróf árið 1974. Á milli skólaáranna var hann á bv. Hafsteini sem þá var í eigu Jóns Franklíns og Jóns Kjartansson- ar. Þá var hann einnig með Mar- teini Jónassyni á bv. Þór, sem gerð- ur var út um tíma frá Flateyri af Ásgeiri Guðnasyni kaupmanni þar. Strax að loknu námi réðst Har- aldur á bv. íslending sem stýrimað- ur hjá aflamanninum Guðmundi Guðjónssyni, íslendingur var þá einnig gerður út af Jóni Franklín. Bv. íslendingur mun hafa verið ann- ar togarinn sem íslendingar eignuð- ust, næst á eftir bv. Jóni forseta. Þetta var lítill togari, en þar um borð hófu margir sína togarasjó- mennsku sem síðar urðu kunnir skipstjórar og stýrimenn. Arið 1948 réðst Haraldur til V atneyrarbræðra, Friðþjófs og Garðars Ólafssona, athafnamanna mikilla, á Patreksfirði og þá á bv. Vörð með Gísla Bjamasyni, ágætum aflamanni. Á Verði var þá 1. stýrimaður Ingvar Guðmundsson, sem síðar varð skipstjóri á bv. Gylfa og fleiri togurum. Þeir Haraldur urðu góðir vinir og mátar eftir það. Haraldur var háseti og 2. stýrimaður þar um borð. Þeir samtíðarmenn hans frá þessum árum muna hann sem einn mesta togarajötunn fyrr og síðar og sem afburða hraustan, velvirkan og feikna duglegan sjómann. Friðþjófur heitinn kvað eitt sinn hafa fullyrt að Haraldur hefði verið á þessum árum þriggja manna maki og víst er að fullan hug og löngun hafði Friðþjófur til að gera hann að skipstjóra hjá sér, þó af því hafi ekki orðið. Haraldur frændi hafði gaman af að skemmta sér og þö aðallega öðr- um í frítímuin sínum og lyfti þá gjaman glasi á góðra vina stundum og var þá hrókur alls fagnaðar. svo um munaði með sinni fádæma fyndni og leik og fékk viðstadda auðveldlega til að veltast um af hlátri, hann réð í raun yfir þeirri glettni sem kom innst innan frá og meiddi engan. Haraldur var sterkur sundmaður og lét oftsinnis eftir þeirri löngun sinni að dýfa sér í kaldan sjóinn og skipti þá ekki máli hvort heldur í höfn væri eða í djúpa Atlantsála á Halamiðum og alltaf kom piltur hlæjandi úr kafinu. Sumum fannst þá að hann hefði gert þeim slæman grikk en fyrirgáfu það fljótt. Hann var um árabil talinn; ómissandi í stakkasundkeppni sjómannadagsins og vann þá oft til verðlauna. í febrúar 1949 fórst Vörður í hafinu á milli íslands og Englands en Haraldur var ekki með í þeirri verð, vegna fíngurmeins. Fimm menn fórust af Verði þama en öðr- um af áhöfninni var bjargað um borð í bv. Bjama Ólafsson frá Akra- nesi við slæmar aðstæður og mun Bjami Guðmundsson heitinn, föður- bróðir okkar, sem um árabil var 1. stýrimaður og skipstjóri á Bjama Ólafssyni, gengið vasklega fram með harðfylgi sinni við björgunina. Eftir þetta fer Haraldur með Ingvari vini sínum á bv. Kaldbak frá Akureyri og er með honum fram yfír mitt ár 1951 að þeir hætta báðir. Þá um svipað leyti kom nýr togari til ísafjaðar, bv. SÓlborg. Páll Pálsson yngri frá Hnífsdal var skipstjóri á Solborgu, þekktur tog- arasjómaður og mikill aflamaður öll árin sem hann stýrði því skipi. Á þessum tíma var nær öll bátaútgerð í molum á ísafírði og réðust því margir bátasjómenn á Sólborgu, harðduglegir en lítt kunnugir tog- arasjómennsku. Því þótti það fengur góður, daginn sem siglt var, þegar Haraldur kom um borð og bættist við þá fáu sem fyrir vom og þekk- ingu höfðu. Þama um borð var ég undirritaður að hefja mína fyrstu togarasjómennsku, komungur og allsóvanur þeirri vinnu. Fullvíst má telja að margir þeir sem þá byrjuðu óvanir og enn lifa minnast einurðar Haraldar og þolinmæði þessa fyrstu mánuði, við að kenna og leiðbeina okkur, en það lét Haraldi einkar vel að kenna mönnum réttu handtökin og þá var ekki farið að manni með illu, annars krafðist hann mikils af sjálfum sér og öðmm en fyrst og fremst af sjálfum sér. Eg á margs að minnast og þakka frá þeim ámm og fannst mikið koma til frænda míns. Athygli vakti hversu djarfur hann var og fljótur, því þegar allt var undir brot og slit, bæði trollin rifín og þá oft í vitlausu veðri, virt- ist hann tvíeflast, var fljótur að hífa trollið klárt og raða mönnum í við- gerðina og sópaði þá aldeilis af karli, fími hans með netanálina var einstæð og ekki mátti á milli sjá hvort léki betur í hendi hans netaná- lin eða saumnálin hennar Gunnu Eiríks, þegar hann saumaði sér ös- kupoka fyrir öskudaginn, en hvað um það í þá daga eins og nú gilti að veiðarfærið væri í sjónum. Þetta kunnu togaraskipstjóramir að meta og því ekki að undra að slíkir menn væm eftirsóttir. Þeir sem hafa verið með Haraldi gleyma seint hans t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNS FRIÐRIKS MATTHÍASSONAR Jónfna Jóhannesdóttir, Jóhannes Helgi Jónsson Björg Sigríður Jónsdóttir, Helga Elsa Jónsdóttir, Hrönn Jónsdóttir, Matthildur Jónsdóttir, Marsibil Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, Elfn Jónsdóttir, Matthfas Jón Jónsson, barnabörn og Margrót Guttormsdóttir, Jón Guðmundsson, Björn St. Bjartmarz, Grfmur Magnússon, Bolli Gústavsson, Ferdinand Ferdinandsson, Jóhanna S. Einarsdóttir, Ingólfur Hjartarson, Elías B. Jónsson, Marfa Erlingsdóttir. barnabarnabörn. / Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og raðgjfjf úm gerð og val legsteina/ . S.HELGASONHF STEINSMKHÍta - ,1 4c. ■■ "VI, sterku rödd og hver man ekki eftir þegar hann úr hólnum hrópaði: Hífopp og laggó. Vorið 1952 fá Vatneyrarbræður nýtt skip, bv. Gylfa, og með hann var Ingvar Guðmundsson. Til Ingv- ars fer Haraldur sem 2. stýrimaður en það hafði verið löngu ákveðið. Svo óheppilega vildi til í öðmm túr skipsins að það kviknaði í skipinu og brann mikið, af þeim sökum var Gylfi frá veiðum í marga mánuði og kom þá Haraldur aftur yfír á Sólborgu og þar er hann til miðs vetrar 1953 er hann hættir og hverf- ur þá heim til Flateyrar og sest þar alfarið að. Um nokkum tíma á því ári var hann með Jóhanni Péturs- syni á bv. Gylli. Á Flateyri vom þá gerðir út, af Einari Sigurðssyni út- gerðarmanni í Reykjavík, tveir af gömlu síðutogurunum, þeir Gyllir og Guðmundur Júní, sem áður var Júpíter. Á þessu ári má segja að togarsjó- mennsku Haraldar ljúki en nokkmm sinnum skrapp hann einn og einn túr þegar kunningja hans vantaði mann. Haraldur gifti sig þetta sama ár. Hann þurfti ekki langt að fara eftir konuefninu, svona rétt sæmi- lega bæjarleið. Heimasætan á Mosvöllum í Ön- undarfirði og Haraldur felldu hugi saman og giftu sig 17. júní 1953. Gróa er dóttir Guðmundínu Jóns- dóttur og Bjöms Hjálmarssonar bónda á Mosvöllum en báðir foreldr- ar hennar em látnir. Hún ólst upp hjá ömmu sinni á Mosvöllum, Guð- björgu, móðir Bjöms. Gróa nam húsmæðrafræði við Húsmæðraskól- ann að Laugalandi í Eyjafirði. Har- aldur trúði vinum sínum gjaman fyrir því, að það hefði verið sín mesta gæfa í lífinu þegar hann eign- aðist Gróu sína fyrir eiginkonu, enda ekki að undra þar sem Gróa er mik- il fyrirmyndar húsmóðir, hlý kona og umburðarlynd, hún hefur verið góð móðir bamanna þeirra. Þannig var hreinskilni Haraldar jafnan. Alloft glettist Haraldur við vini sína eftir þetta og þóttist þá ekkert skilja hvemig í ósköpunum hefði staðið á því að hún Gróa hefði viljað hann fyrir mann, slík græskulaus kímni var honum meðfædd. Gróa og Haraldur eignuðust sex böm. Þau em: Guðmundur Bjöm, sjómaður, sambýliskona hans er Kristín Helgadóttir; Guðbjörg Kristín, gift Hjálmari Sigurðssyni skipstjóra; Jóna Guðrún, gift Bimi Inga Bjamasyni framkvæmda- stjóra; Gunnhildur Halla, gift Guð- mundi Thoroddsen vélstjóra; Gróa Guðmunda, gift Magnúsi Magnús- syni tæknifræðingi; Hinrik Rúnar, ógiftur. ÖIl em þau uppkomin og myndar fólk. Bamabömin em orðin tíu. Lífsvegur Haraldar tók nokkuð aðra stefnu árjð 1954 þegar hann eignaðist eigin útgerð, trillubátinn Ólöfu, og síðar aðra smábáta. í fyrstu gerði hann út á kola og hand- færaveiðar á sumrin og síðar einnig á grásleppu en þess á milli stundaði hann aðra vinnu bæði í landi og á stærri bátum. Vetrarvertíðina 1962 'var hann skipstjóri á mb. Víking sem þá var leigður til Flateyrar og næstu vertíð á eftir var hann með mb. Einar Þveræing. Á báðum þessum bátum famaðist Haraldi vel en hurð skall nærri hælum seinni vertíðina í norð-austan stórviðri á Bárðamið- um, þá glímu sigraði Haraldur. Með öðm hafði hann nokkuð skepnuhald og hafði auðsýnilega heilmikið yndi af að stússa í kring- um kindur og snurfusa fjárhúsin. Það sýnir kannski hvað best hans innri mann hversu innilega vænt honum þótti um málleysingja og í þeirra húsum er mér nær að halda að hann hafí komist næst guði sínum, þangað til nú. Það gleymist ekki þeim sem sáu hversu fallegan legstað hann bjó einum sínum tryggasta vini, eftir dauðann, hund- inum Kol. Hann var lagður til hvílu ofan við bæjarhúsið á Görðum und- ir stóram og fallegum blágiýtis- steini og vel girt í kring og um sama leyti dó kisa og hvílir nú við hlið Kols en á steininn er letrað með hvítum stöfum: Kolur og Kisa. Býlið Garða á Hviltarströnd eign- ast þau hjónin árið 1975 en þegar Haraldur átti kost á jörðinni hugs- aði hann sig ekki um tvisvar. Á Görðum byggðu amma og afi okkar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.