Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 31

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 31 Brúöhjónin Ólafur Kristmanns- son og Rut Baldvins- dóttir. Ljósmyndastofan/Nærmynd BRUÐHJON VIKUNNAR Var alltaf að gjóa á mig augunum Ólafur Kristmannsson og Rut Baldvinsdóttir voru gefin saman í Breiðholtskirkju þann 24. september af séra Gísla Jónassyni. Þau nýgiftu voru spurð ýmissa spuminga varðandi kynni þeirra og hjónabandið. Við erum auðvitað ástfangin upp fyrir haus. Svo eigum við tvö böm og okkur þótti eðli- legt að stofna til hjónabands" seg- ir Rut. Og Ólafur bætir við: „Er það ekki svo, að þegar maður er ánægður með félaga sinn, að vilja staðfesta ástina og vinskapinn á þennan hátt. Þetta var engin spa- rimerkjagifting!“ bætir hann við í spaugi. —Hvers vegna völduð þið ein- mitt þennan dag? Rut: „Dagsetningin var búin blunda í mér talsvert lengi. Faðir minn hefði orðið 59 ára þennan dag, og þetta var brúðkaupsdagur foreldra minna. Svo skírðum við son okkar í leiðinni. Þetta var yndislegur dagur, rólegur og stresslaus. Það er mjög hátíðlegt að gifta sig í kirkju. Eftir vígsluna vorum við með kaffíveislu í Lækj- arbrekku". Ólafur viðurkennir að það hafi borið eilítið á skrekknum, þessum giftingarskrekk sem margir kannast víst við. Sem bet- ur fer hafi þó enginn misstigið sig en hann segist örugglega vera sá eini sem tók eftir því að Rut steig óvart á kjólinn! —En hvemig kynntust þið? Rut: „Ég er lyfjatæknir og vann í apóteki og hann er húsasmiíða- meistari og var þar við endur- byggingu á húsinu. Við sáumst í kaffitímum og hann var alltaf að gjóa á mig augunum yfir kaffiboll- ann sinn. Svo hittumst við óvænt á dansleik í Þórskaffi í ágúst ’86 og eftir það varð andrúmsloftið ansi rafmagnað í kaffitímum, því enginn mátti vita neitt. En síðan þá höfum við verið óaðskiljanleg". —Og hvað sáu þau svo við hvort annað? Jú, þau vom sammála um að „jjetta innra" skipti öllu máli, og Olafur bætir við að hann hafi strax heillast af henni. —Hvað með bameignir? Rut: „Við eigum tvo drengi, Baldvin Mar og Kristján og kannski eignumst við fleiri ef Guð lofar". Þau giftu sig Blólafur Kristmannsson og Rut Baldvinsdóttir BÍAxel Eyjólfsson og Margr- ét Rósa Bergmann BGarðar Guðmundsson og Aagot Vigdís Óskarsdóttir ■Ólafur Pétursson og Elín Bima Kristinsdóttir ■Sigurður Haraldsson og Anna F. Karlsdóttir ■Óskar Knudsen og Guðrún Þóra Magnúsdóttir ■Margeir Jóhannesson og Gunnþórann Gunnarsdóttir Ætlunin er að á sunnu- dögum verði hér i dálknum birtur listi með nöfiium brúðhjóna og stutt spjall við ein hjón af þeim lista. Hér með er óskað eftir innsend- um nöfnum þeirra sem gengið hafa í hjónaband nýuverið. Sendið upplýsing- ar um nöfii brúðþjóna, brúðkaupsdag og hvar at- höfiiin fór firam, í lokuðu umslagi, merkt: „Fólk i fréttum“, Tryggvagötu 26, 101 Reykjavik. FÆREYJAR Limósína til leigii BWtriöKan „Bilfriðkan" er fyrirtæki eitt sem starfrækt er af frændum okkar Færeyingum. Eigandi þess, Ludvig Pedersen, þjónar löndum sínum og erlendum gestum á sérstakan hátt. Hann á sjálfur Rolls Royce, árgerð 1973, sem hann leigir út við ýmis tækifæri, og fylgir að sjálfssögðu einkabílstjóri í búning með í kaupbæti. En hverjir eru það helst sem taka þessa limósínu á leigu? Að sögn Ludvigs eru það yfírleitt brúðhjón sem leigja bifreiðina á brúðkaupsdaginn og væru það ofitast vinir og vandamenn sem kæmu brúðhjónunum á óvart á þennan hátt. Rolls Royce, árgerð 1973 tll leigu! Fyrir skömmu hafði hann ekki ómerkari viðskiptavin en Harald prins Noregs sem var þar á ferðalagi og leigði hann bílinn ásamt bílstjóra í heila þijá daga á sérstöku tilboði. Það kostar nefnilega ekkert smáræði að aka um á svo glæsilegum bíl, tæpar 7000 krónur á klukkutímann, með bílstjóra. Hinsvegar ef menn vilja hafa bílinn í heilan dag kostar það 28.000 íslenskar krónur og fer verðið aldrei upp fyrir það. Að sögn Ludvigs er eftirspumin ekki mikil enn sem komið er, að jafnaði er hann leigður út einu sinni til tvisvar í mánuði. Hinsvegar er önnur bílaleiga í Þórshöfn og þar er m.a. bíll sem danski ferðakóngurinn, Simon Spies heitinn.átti um árabil. Sú bifreið er hinsvegar ekki slíkur tækifærisbíll sem Rolls Roycinn, heldur er það forláta sendibifreið. Hvort slíkar bflaleigur borguðu sig hér á landi, er aftur stór spuming. Pantið jólagjafirnar núna Þú þarft ekki að fara til London. Verslið fyrirfarseðilinn (sambærilegtverð). Full búð af vörum Opið frá kl. 9-6, laugardag kl. 10-12. Síðasti móttökudagurjólapantana er21. nóvember. pöntunarlistinn, Hólshrauni 2, Hafnarfirði. Sími 52866. 011,5 feeLLB UOSASTILLITÆKI FRÁ HELLATILAFGREIÐSLU AF LAGER. ALLAR BÍLAPERUR. KYNNIDYKKURVERÐIÐ. PANTIB PERULISTANN. BÍLAPERUR 6,12&24V. HÚSAPERUR220V.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.