Morgunblaðið - 17.11.1988, Qupperneq 53
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
53,
Frá keppni hjá Bridsdeild Skagfirðingafélagsins,
Brids
Arnór Ragnarsson
Suðurlandsmót
á Hvolsvelli
Suðurlandsmótið í tvímenningi,
barómeter, verður haldið á Hvols-
velli 3. desember nk. og hefst
keppnin kl. 10.
Keppnisstjóri verður Jakob Krist-
insson. Skráning er hafin hjá Kjart-
ani Jóhannssyni í síma 98-78222
eða Óskari Pálssyni í síma
98-78402 (vinnus. 78400). Skrán-
ingu lýkur 29. nóvember.
Guðmundarmót á
Hvammstanga
Árlegt Guðmundarmót var haldið
á Hvammstanga 5. nóvember sl.
Reynir Helgason og Tryggvi Gunn-
arsson frá Akureyri sigruðu eftir
hörkukeppni en aðeins 7 stig skildu
að 1. og 5. par.
Lokastaðan:
Reynir Helgason —
Tryggvi Gunnársson AK. 128
Jón Sigurbjörnsson -
Ásgrímur Sigurbj.son Sigluf. 125
Karl Sigurðsson -
Bragi Arason Hvammst. 124
Pétur Guðjónsson -
Anton Haraldsson Ak. 122
Rúnar Ragnarsson -
Unnsteinn Arason Borgarn. 121
Aðalbjöm Benediktsson —
Kristján Bjömss. Hvammst. 100
Unnar Guðmundsson —
Erlingur Sverriss. Hvammst. 96
Anton Sigurbjörnsson -
Bogi Sigurbjörnsson Sigluf. 90
Eggert Levy —
Ragnar Ingason Hvammst. 52
Gunnar Berg —
Stefán Sveinbjömsson AK. 36
Guðjón Jónsson -
Karl Bjömsson Hólmav. 34
Mótið fór mjög vel fram. Keppn-
isstjóri var ísak Sigurðsson.
Bridsfélag kvenna
Bridsfélag kvenna á 40 ára af-
mæli um þessar mundir. I því til-
efni verður opið tvímenningsmót í
Sigtúni laugardaginn 26. nóvem-
ber. Veitt verða peningaverðlaun
og silfurstig. Mótið hefst kl. 10
árdegis. Þetta er kjörið tækifæri til
að samfagna Bridsfélaginu á merk-
um tímamótum og vonandi sjá sem
flestir spilarar sér færi á að óska
félaginu til hamingju með afmælið
með því að taka þátt í mótinu.
Þátttaka óskast tilkynnt sem allra
fyrst, annaðhvort hjá Bridssam-
bandinu í síma 689360 eða hjá
Aldísi í síma 15043.
Bridsfélag kvenna var upphaf-
lega stofnað sem sérstök kvenna-
deild innan Bridsfélags Reykjavíkur
þ. 10. mars 1949. Stofnfélagar voru
64 konur. Svo segir í fyrstu fundar-
gerð félagsins: „Formaður“ (þ.e.
formaður Bridsfélags Reykjavíkur,
sem þá var Zóphónías Pétursson)
„kvað konur erlendis ekki standa
karlmönnum að baki í brids og
tækju þær þátt í keppnum engu
síður en þeir, og með öllum þeim
nútíma þægindum, þvottavélum,
hrærivélum o.s.frv. sem konur hér
yfirleitt hefðu nú til hjálpar við
heimilisstörfin, ættu þær ekki að
hafa minni tíma til að iðka brids
en karlmenn." Þá minntist formað-
urinn þess, að tvær konur hefðu
komist í meistaraflokk, þær Kristín
Norðmann og Magnea Kjartans-
dóttir, og gat þess, að frumkvæðið
að stofnun sérstakrar kvennadeild-
ar væri komið frá Lúllu Nóadóttur.
Þá var á þessum fundi samþykkt
tillaga formannsins þess efnis, „að
heppilegra myndi til bráðabirgða,
að kvennadeildin hlýddi sömu lög-
um og reglum og Bridsfélag
Reykjavíkur." í fyrstu stjóm voru
kjömar þær Margrét Jensdóttir,
formaður, Halldóra Rútsdóttir, rit-
ari, Laufey Arnalds, gjaldkeri, og
SIEMENS
Hljcmtækjasam-
stæða RS 260
Kraftmikill búnaður: 2x45
W hátalarar, hálfsjálfvirk-
ur plötuspilari, 2x30 W
magnari, útvarp með
sjálfvirkri stöðvaleit og 15
stöðva minni, 2x5 banda
tónjafnari, tvöfalt segul-
bandstæki, fjarstýring.
Verð 33.740,-
Geislaspilari
RW730
Þægilegir snertihnappar,
Ijósstafaskjár,
15 laga minni, tengi
fyrirheyrnartól, passar
m.a. við samstæðuna
RS 260.
Verð 15.580,-
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
meðstjórnendur voru kjörnar þær
Lúlla Nóadóttir og Ingibjörg Odds-
dóttir.
Það var svo í september árið
1951, sem ákveðið var að stofna
sjálfstætt Bridsfélag kvenna í
Reykjavík. Núverandi stjórn félags-
ins skipa Aldís Schram, formaður,
Véný Viðarsdóttir, gjaldkeri,
Sigríður Möller, ritari, og með-
stjórnandi er Freyja Sveinsdóttir.
Skráðir félagar eru um 80.
Bikarkeppni Norðurlands
Tólf sveitir taka þátt í bikar-
keppni Norðurlands og sitja fjórar
sveitir hjá í fyrstu umferð. Búið er
að draga fyrir fyrstu tvær umferð-
irnar og á sveitin heimaleik sem
talin er upp á undan:
Gunnar Berg Akureyri —
Ásgrímur Sigurbjörnsson Sigluf.
Öm Einarsson Akureyri —
Björgvin Leifsson Húsavík
Kristján Guðjónsson Akureyri —
Ormar Snæbjörnsson Akureyri
Ásgeir Valdimarsson Eyjafirði —
Hellusteypan Akureyri.
Hjá sitja:
Eðvarð Hallgrímsson Skagaströnd
Grettir Frímannsson Akureyri
Ólafur Ágústsson Akureyri
Valtýr Jónasson Siglufirði
2. umferð:
Kristján Guðj./Ormar Snæbj.son —
Valtýr Jónasson
Örn Einars./Björgvin Leifsson —
Eðvarð Hallgrímsson
Ásgeir Vald./Hellusteypan —
Gunnar Berg/Ásgrímur Sigurbj.
Ólafur Ágústsson —
Grettir Frímannsson
Fyrstu umferð þarf að vera lokið
fyrir áramót og þeirri annarri fyrir
lok janúarmánaðar á næsta ári.
Bridssamband Vesturlands
Vesturlandsmót í tvímenningi
verður haldið í Borgamesi laugar-
daginn 26. nóvember nk. Spilaður
verður Barómeter tvímenningur.
Þátttökutilkynningar þurfa að hafa
borist í síðasta lagi 20. nóv., í síma
11080 (Einar).
Þá er hafm skráning í Bikar-
keppni sveita á Vesturlandi. Spilað-
ir em 40 spila leikir með útsláttar-
fyrirkomulagi. Dregið verður í
fyrstu umferð 26. nóvember.
Núverandi bikarmeistari er sveit
Ellerts Kristinssonar, Stykkishólmi.
í sveitinni spiluðu auk Ellerts,
Kristinn Friðriksson, Guðni Frið-
riksson og Viggó Þorvarðarson.
handa þér, ef þú hittir
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
/