Morgunblaðið - 19.11.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988
Annasamur fyrsti dagnr-
inn hjá ungfrú heimi
Lundúnum, frá Andrési Magnússyni, fr éttaritara Morgunblaðsins.
ANNASAMT hefur verið.hjá Lindu Pétursdóttur, nýkrýndri ungfrú
heimi, frá því að tilkynnt var um sigur hennar í Ungfrú alheims-
keppninni í The Royal Albert Hail i Lundúnum á Smmtudagskvöld.
Þegar eftir að krýningarathöfiiinni lauk hélt Linda til Grosvenor
House Hotel þar sem krýningardansleikur var haldinn henni til heið
Linda hélt þaðan heim á hótel
um tvöleytið um nóttina en þegar
morguninn eftir hófst leikurinn að
nýju. Þá snæddi Linda morgunverð
að viðstöddum fulltrúum fjölmiðla
og voru fersk jarðarber meðal ann-
ars á matseðlinum, eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd.
Eftir hádegi í gær kom Linda
fram í versluninni Top Shop við
Linda byrjaði fyrsta daginn sem
ungfrú heimur með því að snæða
morgunverð að viðstöddum fúll-
trúum fjölmiðla og voru fersk
jarðarber meðal annars á mat-
seðlinum.
Oxford Circus og veitti aðdáendum
sínum þar eiginhandaráritanir. Auk
þess sem að nokkrir heppnir í hópi
þeirra fengu ýmsar gjafir frá að-
standendum keppninnar.
Þegar þetta stóð sem hæst kom
nánasta fjölskylda Lindu þar að og
urðu að vonum fagnaðarfundir.
Kunnu ljósmyndarar blaðanna jafn-
framt vel að meta þessa óvæntu
heimsókn.
í gærkvöldi kom Linda svo fram
í sjónvarpsþættinum Locals hjá
sjónvarpsstöðinni ITV, sem er einn
vinsælasti spjallþáttur í sjónvarpi
hér á Bretlandi.
Linda mun dveljast hér í Lundún-
um fram á mánudag, en þá heldur
hún heim ásamt fjölskyldu sinni.
Auglýsingasljóri Top Shop sannspár:
Ef til vill er önn-
ur Hófí á leiðinni
- sagði hann í maí um Lindu
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær)
1/EÐURHORFUR í DAG, 19. NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Yfir Grænlandi er 1035 mb hæð og frá henni
hæðarhryggur til suöausturs yfir austanvert Island. Við Vestfirði
er hægðardrag sem þokast austnorðaustur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Norðaustanátt, víðast kaldi. Él austanlands og á annesjum
fyrir norðan, en léttir til sunnanlands og vestan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestan- og suðvestanátt, víða smá
slydduél suðvestan- og vestanlands en úrkomulaust annars stað-
ar. Hiti 0—3 stig..
HORFUR Á MÁNUDA6: Sunnan- og suðvestanátt, súld eða rigning
suðypstan- og vestanlands, en að mestu úrkomulaust í öðrum
landshlutum. Hiti 2—5 stig.
TAKN:
•O ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
||. Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ ' y
r f f
f Rigning
f f f
* f *
f * ' * Slydda
' * f
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akurayri Reykjavfk hitl +4 1 veður skýjaó úrkoma
Bergen 3 léttskýjað
Helsinki 0 alskýjað
Kaupmannah. 8 rigning
Narssarssuaq 6 skýjað
Nuuk 0 alskýjað
Osló 2 léttskýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Þórshöfn 1 snjóél
Algarve 21 Skýjað
Amsterdam 11 skúr
Barcelona 16 mistur
Chicago 3 alskýjað
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 9 rlgnlng
Glasgow 7 hálfskýjað
Hamborg 10 súld /
Las Palmas 23 léttskýjað
London 11 rigning
Los Angeles 13 léttskýjað
Luxemborg 9 skúr
Madnd 12 mistur
Malaga 20 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Montreal 2 hálfskýjað
New York 6 léttskýjað
Parla 12 skýjað
Róm 13 rigning
San Diego 13 heiðsklrt
Winnipeg 11 snjókoma
„EF til vill er þama önnur Hófi
á leiðinni,“ sagði Richard Birc-
henell, auglýsingarsfjóri Top
Shop, við Morunblaðið eftir að
Linda Pétursdóttir var kjörin
ungfiú ísland í maílok. Og hann
reyndist sannspár, því Linda var
í gær kjörin ungfiú heimur eins
og Hólmfríður Karlsdóttir þrem-
ur árum áður.
Linda Pétursdóttir var valin
ungfrú ísland úr hópi 11 fegurð-
ardísa, á Hótel íslandi að kvöldi 22.
maí. Hún sagði við Morgunblaðið
eftir að úrslitin voru kunn, að henni
hefðu komið úrslitin mjög á óvart,
en hún bjóst þó við að lífið gengi
sinn vanagang, þrátt fyrir úrslitin:
hún ætlaði sér að ljúka menntaskól-
anum og vildi síðan vinna þar sem
tungumálakunnátta hennar kæmi
að gagni.
Nokkra athygli vakti að Linda
þurfti að léttast um 8 kíló fyrir
keppnina. „Þetta var dálítið erfitt
en maður lét sig þó hafa það og
erfiðið var þess virði,“ sagði Linda
þá. í gærkvöldi uppskar hún enn
ríkulegar laun erfíðisins.
Borgardómur;
Reykvísk endurtrygg
ing sýknuð af kröfiim
þrotabús Hafskips
Agreiningur um kommu
DÓMAR í tveimur ágreiningsmál-
um þrotabús Hafskips h/f og
Reykvískrar endurtryggingar h/f
voru kveðnir upp í Borgardómi
Reykjavíkur hinn 3. ágúst síðast-
liðinn. Hvor aðila vann sitt málið
en báðum hefúr nú verið áfrýjað
til Hæstaréttar. í blaðinu í gær
var skýrt frá niðurstöðu í máli
þar sem deilt var um endur-
greiðslu ofgreiddra iðgjalda af
gámatrygginum, en í máli þar
sem deilt var um fjárhæð sjálfsá-
hættu í uppgerðu tryggingamáli,
var tryggingafélagið sýknað af
kröfú þrotabúsins.
Ágreiningurinn reis vegna mis-
munandi skilnings á þýðingu kommu
Jón Baldvin
ræðir við
Shultz
ÁKVEÐIÐ hefúr verið að Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra, eigi sérstakar viðræður
við George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, á meðan
fúndur utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsins stendur í
Brussel 8. og 9. desember næst-
komandi.
Sendiherra Bandaríkjanna á ís-
landi, Nicholas Ruwe,afhenti á
fímmtudag Jóni Baldvini Hannibals-
syni svarbréf Shultz varðandi hvala-
málið. í bréfínu er harmaður sá
misskilningur sem orðið hefur í
þessu máli, og lýst er þeirri von að
hægt sé að komast að samkomulagi
um framtíðarlausn þess.
(,) í ákvæði í vátryggingarsamningi
aðilanna, sem löggiltur skjalþýðandi
þýddi svo úr ensku máli:
„...frádráttur skv. 12. gr. US $
23.500,-, hækkar í US $
50.000,-
við vélartjón, gáleysi áhafnar.“
Forsaga málsins er sú að þann
16. febrúar 1985 varð vélarbilun í
m/s Selá. Skipið var þá í hafi, á
leið milli Póllands og Reykjavíkur.
Tryggingafélagið bætti tjónið í sam-
ræmi við skýrslu niðuijöfnunar-
manns en dregið frá hærri upphæð-
ina í framangreindu ákvæði. Þrota-
búið taldi niðuijöfnun rétta en skildi
ofangreint ákvæði þannig að einung-
is ætti að hækka frádrátt við vélar-
tjón, sem stafaði af gáleysi áhafnar.
Niðuijöfnunarmaður sjótjónsins
hafði lagt sama skilning í ákvæðið.
Þá taldi þrotabúið að þar sem trygg-
ingafélagið hefði ráðið orðalaginu,
ætti að túlka vafann því í óhag.
Tryggingafélagið túlkaði ákvæðið
þannig að sjálfsáhætta væri $ jj
23.500-, nema við vélartjón eða tjón,
sem rekja mætti til gáleysis áhafnar.
Væri hins vegar fallist á túlkun \
þrotabúsins, bæri að líta svo á að
tjónið hefði orðið af gáleysi áhafnar,
þar sem skipafélagið hafí látið undir
höfuð leggjast að kanna það sérstak-
lega með sjóprófí.
Dómarinn, Allan Vagn Magnús-
son, komst að þeirri niðurstöðu að
komma hefði verið sett á milli orð-
ana „vélartjón" og „gáleysi" til að
aðgreina vélartjón frá tjóni vegna
vanrækslu áhafnar. Því taldi hann
hærri frádráttinn eiga við í málinu
og sýknaði Reykvíska endurtrygg-
ingu h/f af kröfum þrotabúsins og
dæmdi það til að greiða tryggingafé-
daginu 150 þúsund krónur í máls-
kostnað.