Morgunblaðið - 19.11.1988, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988
19
Svolítið
eftir Valgeir
Guðjónsson
Fyrir tilstilli góðra manna og
nútíma tækni barst undirrituðum
blaðagrein eftir Atla Heimi Sveins-
son, tónskáld og tónlistarkennara,
alla leið til Buenos Aires suður í
Argentínu. Hér sitjum við Atli Heim-
ir saman á þingi Cisac, alþjóðasam-
taka um hðfundarétt, ásamt Eiríki
Tómassyni framkvæmdastjóra
STEFs.
Það hefur farið vel á með íslensku
sendinefndinni, enda tók Atli Heimir
ekki með í ferðina fílabeinstum þann
sem hann skrifaði grein sína í og
er fílabeinstuminn þar með úr sög-
unni.
Tilefni skrifa Atla Heimis er við-
tal Vilhelms G. Kristinssonar við
undirritaðan á Stöð 2 þann 8. nóv-
ember, en þar bar höfundarétt á
góma.
Atla Heimi er mikið niðri fyrir í
grein sinni eins og okkur er oft þeg-
ar við ræðum um mikilvæg málefni.
Slík mál tölum við Atli reyndar um
mánaðarlega, yfir kaffísopa og
smurðu brauði, á stjómarfundum
STEFs; Atli er núverandi varaform-
aður samtakanna en undirritaður er
formaður FTT (Félags tónskálda og
textahöfunda) og situr jafnframt í
stjóm STEFs.
Samstarf okkar FTT-manna við
meðlimi Tónskáldafélags ísland hef-
ur verið með ágætum þau 2V2 ár
sem FTT_hefur átt fulltrúa í stjóm
STEFs. I sameiningu höfum við
hnikað ýmsum málum áfram veginn
til góðs fyrir jslensk tónskáld og
textahöfunda. í grein sinni kemur
Atli Heimir nokkuð inn á mál, sem
oft hefur borið á góma og ýmsir
hafa misjafna skoðun á, eða aðferð
þá sem notuð er til að „verðleggja“
um mannleg samskipti
hin ýmsu tónverk. Svokölluðum
„léttum" höfundum hefur lengi þótt
mega gera þar á ýmsar lagfæring-
ar, ekki síst þegar haft er í huga
að íslenskt dægurlag getur ekki
komist uppúr lægsta flokki ('A),
sama hver metnaður, kunnátta,
vinna o.s.frv. liggur að baki. Svo
dæmi séu tekin þýðir þetta að metn-
aðarfyllstu verk Gunnars Þórðarson-
ar lenda í sama verðflokki og smálög
Atla Heimis Sveinssonar úr Ofvitan-
um og að lag undirritaðs „Hægt og
hljótt", sem Atli Heimir minnist á í
grein sinni máli sínu til stuðnings,
er metið til hálfs eða minna á við
sönglög með píanóundirleik eftir
meðlimi Tónskáldafélagsins.
Innan höfundaréttar er slíkt mat
á tónverkum ekkert sjálfsagt mál
og félagar FTT líta til ýmissa ná-
grannaþjóða okkar þar sem þessi
flokkun hefur verið færð til sann-
gimisáttar. Sérstök nefnd innan
STEFs fjallar um málið og hillir
undir breytingar.
Atla Heimi verður mjög tíðrætt í
grein sinni um vankunnáttu undirrit-
aðs í höfundarétti, sem hann segir
alvarlega og býður upp á kennslu í
faginu meðan á ferð okkar stendur.
Hann hefur að vísu ekki orðað
þetta við mig hér syðra frekar en
annað sem fram kom í sjónvarpsvið-
talinu á Stöð 2, nema hvað hann
sagði mér að hann hefði ekki séð
eða heyrt viðtalið sjálfur.
Atli Heimir tekur það sérstaklega
fram að hann sé aðalfulltrúi íslensku
sendinefndarinnar hér í Buenos Air-
es. Hið rétta er að hann kallast form-
aður sendinefndarinnar og er það í
fjarveru formanns STEFs, Magnús-
ar Eiríkssonar, sem ekki átti heim-
angengt, enda er Atli Heimir vara-
formaður. Undirritaður sér ekki
ástæðu til að eltast við fleiri brauð-
mola af borði meistara Atla Heimis.
Þó er rétt að benda á, að fyrir utan
að minna okkur öll á mikilvægi réttl-
átrar varðveislu höfundaréttarins,
eru þessi blaðaskrif okkar Atla
Heimis vel til þess fallin að undir-
strika hina víðfeðmu möguleika í
„Við sitjum saman löng'-
um stundum, ræðum
um heima og geima og
hlustum á argentínskan
tangó en skiptumst á
skoðunum um höfiinda-
réttarmál á Islandi á
blöðunum heima.“
mannlegum samskiptum á okkar
tæknivæddu tímum.
Við Atli Heimir leggjum á okkur
30 klukkustunda ferðalag um hálfan
hnöttinn til að fræðast um og
glöggva okkur á höfundaréttarmál-
efnum heismbyggðarinnar. Við sitj-
um löngum stundum, ræðum um
heima og geima og hlustum á argen-
tínskan tangó en skiptumst á skoð-
unum um höfundaréttarmál í blöð-
unum heima.
Valgeir Guðjónsson
Ég kann einfaldari og fljótlegri
aðferð í tjáskiptum og ég veit að
Alta Heimi Sveinssyni er kunnugt
um hana líka.
Buenos Aires þann 15. nóvember.
Höfundur er tónlistarmaðw og
formaður FTT.
Háskóli íslands:
Námskeið um fí skveiðistj órnun og fiskihagfræði
NÁMSKEIÐ um fiskveiðistjórn-
un og fiskihagfræði verður hald-
ið 21.-23. nóvember á vegum
endurmenntunarnefhdar Há-
skóla íslands. Það er einkum
ætlað starfsmönnum hins opin-
bera og hagsmunasamtaka, sem
fást við málefni sjávarútvegs eða
hafa á þeim áhuga.
í frétt frá endurmenntunamefnd
segir, að stefnt sé að því að fólk,
sem ekki hafi undirstöðumenntun í
hagfræði eða viðskiptafræði geti
haft gagn af námskeiðinu, en slík
undirstöðumenntun muni þó auð-
velda þátttakendum að fylgjast með
námskeiðinu. Farið verður t.d. yfir
hve mikið eigi að veiða úr fiskistofn-
unum á hveijum tíma og hvemig
þetta ráðist af hagrænum þáttum
eins og vöxtum, aflakostnaði og
áhrifum stofnstærðar á hann, hvert
sé hlutverk hins opinbera í að ná
besta veiðimagni á hveijum tíma
og hvaða aðferðum megi beita til
að ná sem hagkvæmustum fískveið-
um. Fjallað verður um hömlur á
stærð og notkun skipa og veiðar-
færa, veiðileyfi, aflakvóta og skatt-
lagningu veiða og/eða landaðs afla.
Þá verða bornar saman stjómunar-
aðferðir í ýmsum löndum.
Framsetning námskeiðsins er í
formi fyrirlestra, en þátttakendur
verða hvattir til að setja fram
spumingar um efnið jafnóðum og
það er kynnt. Lítil áhersla verður
lögð á stærðfræðilega framsetn-
ingu, en notast verður við skýring-
armyndir og línurit. Leiðbeinendur
verða Rögnvaldur Hannesson, próf-
essor við Norges Handelshöjskole í
Bergen og Ragnar Arnason, dósent
við Háskóla Islands.
Sem fyrr segir verður námskeiðið
21-23. nóvember, eða frá mánudegi
til miðvikudags, frá kl. 13-18.
Skráning fer fram á aðalskrifstofu
Háskólans, en nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu endur-
menntunarstjóra.
400 ný bflastæði
Það er óþarfi að óttast skort á bílastæðum
í KRINGLUNNI, því nú tökum við í notkun 400
í KRINGLUNNI eru nú 1600
ný bílastæði
ókeypis bílastæði, flest undir þaki. Taktu lífinu
létt og njóttu þess að versla í rólegheitum, óháður
veðri og stöðumælum.
Opið: Mánud.-föstud. til kl. 19:00, laugard. til kl. 16:00. Veitingastaðir, alla daga til kl. 21:00 og 23:30.
lijíiUiS
ik-