Morgunblaðið - 19.11.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988
Júgóslavía:
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐJÓN GUÐMUNDSSON ,
Mesta kreppa frá lokum
seínni heimsstynaldar
„HVE MÖRG verða ríki Evrópu
árið 2000? Svar: Tíu. Vestur-
Evrópa, Austur-Evrópa og átta
rfld f Júgóslavíu.“ Þannig
hljómar júgóslavneskur brand-
ari sem lýsir kannski betur hug
Júgóslava til stjórnskipunar í
landinu en hann spái til um
ríkjaskipan Evrópu í framtí-
ðinni. Sex iýðveidi og tvö sjálf-
stjórnarhéruð í Júgóslavíu eiga
í harðvítugum deilum. Serbar,
sem eru 8,1 milijón talsins og
eru Qölmennasta þjóðarbrotið
í Júgóslavíu, vilja aukin ítök í
sjálfsijórnarhéruðunum
Kosovo og Vojvodina sem form-
lega iúta sfjórn Serbíu.
Frá mótmælafundi í Vojvodina.
Um 20 þjóðarbrot byggja
landið og þar eru þrjú tungu-
mál ráðandi: Serbó-króatíska, sló-
venska og makedóníska. Efna-
hagur landsins er afar bágborinn.
Erlendar skuldir nema um 920
milljörðum ísl. króna, verðbólga í
landinu er um 236% á ári og at-
vinnuleysi um 15% sem er það
mesta sem þekkist í kommúnist-
aríki. í kjölfar strangra aðhalds-
aðgerða í efnahagsmálum hefur
langlundargeð almennings brostið
og mótmælendur hafa flykkst út
á götur borganna og mótmælt
kjaraskerðingum sem auk þess
hafa kynt undir þjóðemisvakn-
ingu í landinu. Sem dæmi um
kjaraskerðingar má nefna að
síðastliðið sumar voru laun verka-
manna í dráttarvélaverksmiðju í
Belgrað lækkuð á einum degi um
30%.
Vikið af leið Titos
Júgóslavar eru smám saman
að víkja af leið Josips Broz Titos,
sem var við völd í Júgóslavíu 35
ár. Með stjómarskránni 1974
tókst honum að sameina þegna
þessa stóra og margslungna ríkis
í eitt alríki í krafti skapgerðar
sinnar og ástar á föðurlandinu.
En nú eru átta ár liðin frá dauða
Titos og áhrifa hans gætir í æ
minna mæli.
Stjómarskráin, sem nú þykir
um flest úrelt og flestir Júgósla-
var telja nauðsynlegt að breyta,
kveður meðal annars á um að
formaður júgóslavneska Komm-
únistaflokksins skuli ekki vera
lengur í embætti en eitt ár í senn
og gegna formenn flokkanna í
lýðveldunum sex því til skiptis.
Með því vildi Tito dreifa völdum
milli lýðveldanna. Sjálfsforræði
lýðveldanna hefur hins vegar leitt
af sér spillingu meðal embættis-
manna og kynt undir þjóðemis-
vakningu í landinu eins og fréttir
undanfamar vikur bera með sér.
Ríkisstjóm landsins gegnir frem-
ur því hlutverki að draga úr völd-
um hinna einstöku lýðvelda en að
sameina landið í eina heild. Vest-
rænir fréttaskýrendur hafa bent
á að stjómmálamenn í Júgóslavíu
hafa ekki hiotið undirbúnings-
þjálfun til að takast á við þau
vandamál sem nú blasa við,
þ.e.a.s. grasrótarhreyfíngu sem
krefst umbóta og breytinga á
stjómskipun landsins. 100.000
Serbar flykktust til höfuðstöðva
kommúnistaflokksins í Vojvodina
og kröfðust þess að háttsettir
menn í flokknum segðu af sér.
Það undarlega var að héraðstjórn-
in varð við óskum þeirra og sagði
af sér. Stjómmálamenn eiga eng-
in svör við kröfum borgaranna
sem em drifnir áfram af eldmóði
þjóðemiskenndar.
Á mörkum tveggja heima
Júgóslavía er á mörkum
tveggja heima. Norðvesturhluti
landsins, Slóvenía og Króatía, er
undir vestrænum menningar-
áhrifum. Þar er latneskt letur
notað og efnahags- og stjóm-
málalíf er vestrænna og fijálsara
í sniðum _ en í suðausturhluta
landsins. íbúar í suðausturhluta
landsins em af ólíkum þjóðemum
og þar heyrast mörg tungumál.
Kýrillískt letur er þar enn notað.
Formaður kommúnistaflokks-
ins í Slóveníu, Milan Kucan, er
talsmaður fijálsræðis. Hann vill
auka völd lýðveldanna, fijálsari
efnahags- og viðskiptahætti og
hann er einnig talsmaður aukins
umburðarlyndis gagnvart stjóm-
málaskoðunum sem ekki em sam-
kvæmt kennisetningum kommún-
ismans. Undir hans stjóm hefur
frelsi flölmiðla í Slóveníu aukist á
undraverðan hátt og upp hafa
sprottið stjómmálahreyfíngar á
borð við græningja.
Slóvenar em aðeins 8% íbúa
landsins en engu að síður skilar
lýðveldi þeirra 21% af gjaldeyris-
tekjum landsins og þriðjungi þjóð-
arframleiðslunnar. Hugmyndir
Kucans um aukið sjálfræði hinna
átta hluta Júgóslavíu njóta mikil
fylgis í Króatíu, Bosníu, Vojvodina
og Kosova. En aðeins Króatar
taka einhuga undir hugmyndir
hans um fijálsan markaðsbúskap
og skoðanafrelsi.
Serbar, sem tilheyra grísk-
kaþólsku réttrúnaðarkirkjunni,
hafa áratugum saman eldað grátt
silfur við kaþólikka í Króatíu og
múslíma af albönskum uppmna í
suðurhluta Kosovo. Leiðtogi
Serba, harðlínumaðurinn Slobod-
an Milosevic, varð mjög vinsæll
meðal Serba á síðasta ári þegar
hann boðaði harðar aðgerðir gegn
Albönum í Kosovo. Það tryggði
honum einnig vinsældir meðal
Makedóníumanna og Svartfell-
inga sem fínnst þeim stafa ógn
af Albönum en fæðingartlðni með-
Reuter
Slobodan Milesevic, formaður
kommúnistaflokksins i Serbíu,
og helsta von Serba um að ná
yfírráðum yfír sjálfstjórnar-
héraðinu Kosovo. Serbar í
Kosovo hóta nú að flytjast unn-
vörpum frá héraðinu segi hér-
aðsstjórnin ekki af sér.
al þeirra hefur aukist mjög hin
síðari ár.
Serbar, sem em þriðjungur
júgóslavnesku þjóðarinnar, em
ósáttir við að völd þeirra í stjóm
landsins skuli ekki vera í samræmi
við fjölda þeirra. Þá hefur orðið
mikil þjóðemisvakning meðal
Serba eftir að Milosevic tók við
stjómartaumum í Serbíu.
Tillögurum
stjórnarskrárbreytingar
A þingi miðstjómar Kommún-
istaflokksins þann 19. október sl.
í Belgrað ríkti óeining um breyt-
ingartillögur á stjómarskránni
sem lagðar vom fram. Þjóðþingið
samþykkti þær hins vegar fyrir
sitt leyti tveimur dögum síðar.
Ekki er þar með sagt að tillögum-
ar séu komnar f höfn því lýðveld-
in geta hindrað framgang þeirra
með því að greiða atkvæði gegn
breytingunum.
í breytingartillögunum, sem
yfírstjóm landsins vill að verði
samþykktar 29. nóvember á þjóð-
hátíðardegi Júgóslava, er meðal
annars gert ráð fyrir að lýðveldin
og sjálfstjómarhémðin standi
straum af kostnaði vegna hersins.
Tillagan myndi auka mjög völd
ríkisstjómarinnar og völd lýðveld-
anna að sama skapi minnka.
Kommúnistaflokkurinn í Slóveníu
hefur sagt að hann standi gegn
tillögunni.
Þjóðþingið samþykkti einnig
breytingartillögur f 34 liðum um
efnahagsmál. I þeim tillögum er
gert ráð fyrir að bændum verði
\
ýV'?
K Austurrfki
í Ungverja-
J land
/
/„.
,j Rúmenfa
ii':' /. .Króatía.’BelgraS ,
^áosnfá”,'. * '"X
^ JOGÓSLAVÍA SerbíaCc........
erpegovipa, N
íu,“
Trtogradx ^lakedonf
leyft að eiga allt að 30 hekturum
lands í stað 10 hektara áður. Þá
er í tillögunum gert ráð fyrir að
einkarekstur verði lögleiddur en
fjöldi starfsmanna einkafyrirtæk-
is er ekki tilgreindur en fram að
þessu hafa þau mest mátt hafa
fímm manns á launaskrá. Leyfí
til einkareksturs veitir ríkisstjóm
landsins og það fer að öllu leyti
eftir því hvort þörf sé talin á við-
komandi starfsemi hvort leyfí fá-
ist.
Aðrar mikilvægar breytingart-
illögur fela í sér beina valdatil-
færslu frá lýðveldunum til ríkis-
stjómarinnar, heildarskattkerfí
og nýjar reglur um kosningu á
forsætisnefnd landsins.
Þessar breytingartillögur hafa
valdið talsmönnum efnahagsum-
bóta miklum vonbrigðum. Einkum
eru Slóvenar og Króatar, sem eru
einörðustu talsmenn frjáls mark-
aðsbúskaps og aukinna valda lýð-
veldanna, vonsviknir. Hins vegar
er andstaðan gegn þeim mest í
Serbíu, Makedóníu og Svartfjalla-
landi, þar sem efnahagsástandið
er hvað verst. Þar óttast menn
að fyrstu afleiðingar efnahagsum-
bótanna verði aukið atvinnuleysi
sem þegar þjakar lýðveldin.
Slóvenar og Króatar vilja breyt-
ingar sem myndu auka efnahags-
legt sjálfstaeði lýðveldanna og
gera þau óháðari tilskipunum frá
Kommúnistaflokknum. Forseti
slóvenska lýðveldisins, Janez
Stanovnik, sagði nýlega á frétta-
mannafundi í Bandaríkjunum að
í Júgóslavíu ætti að koma á lýð-
ræði með fijálsum markaðsbú-
skap. Það væri eina leiðin til að
takast á við efnahagsþrengingar
landsins.
Flótti Serba frá Kosovo
Serbar, með Milosevic í broddi
fylkingar, vilja aukin völd yfír-
stjórnar landsins og innlimun
Kosovo og Vojvodina. Því er harð-
lega mótmælt af öðrum lýðveldum
Júgóslavíu sem óttast að Serbar
verði á ný sterkasta stjómmála-
aflið í landinu og það var einmitt
af þeirri ástæðu að Tito skipti
Serbíu niður Vojvodino og Kosovo
á sínum tíma. Talið er víst að
Serbar samþykki ekki efnahags-
breytingar, sem stjómarskrártil-
lögumar gera ráð fyrir, nema því
aðeins að Kosovo verði óaðskilinn
hluti af Serbíu.
Mikil þjóðemisvakning hefur
orðið í lýðveldunum, og þá einkum
í sjálfsstjómarhémðunum Kosovo
og Vojvodina, þar sem minni-
hlutahópar Serba telja sér mis-
boðið. Serbar í Kosovo segja að
íbúar héraðsins, 90% þeirra eru
af albönskum uppruna, reyni að
flæma þá frá héraðinu. Forseti
Serbíu, Petar Gracanin, hótar því
nú að segi héraðsstjómin í Kosovo
ekki af sér innan nokkurra daga
megi búast við því að Serbar flytj-
ist unnvörpum frá héraðinu.
Uppreisn þjóðarbrotanna í
Júgóslavíu er alvarlegasta kreppa
sem skollið hefur á í landinu frá
lokum seinni heimsstyijaldar.
Forseti landsins, Raif Dizdarevic,
kom fyrir skömmu fram í ríkis-
sjónvarpinu og varaði almenning
við því að ríkisstjómin myndi
grípa til „alvarlegra aðgerða" til
að kveða niður mótmæli. Stjóm-
málaskýrendur telja víst að hann
hafí átt við að lýst yrði yfír neyð-
arástandi en þeir telja jafnframt
óvíst hvort þær aðgerðir dugi til
að bæla niður þjóðemisvakningu
í landinu.
Það er því hver höndin upp á
móti annarri í þessu víðlenda ríki
og hugmyndafræðin ekki allstað-
ar sú sama.
Ef til vill er þess ekki langt að
bíða að júgóslavneska ríkið riðlist
upp í átta sjálfstæðar eindir, eins
og spádómurinn í upphafí greinar-
innar gerir ráð fyrir. Alltént er
júgóslavneski andófsmaðurinn
Milovan Djilas þeirrar skoðunar.
Hann segir jafnframt að átökin í
Júgóslavíu eigi sér samsvörun í
öðrum sósíalískum þjóðfélögum
sem öll, hvert með sínum hætti,
stefni að vestrænni stjómarhátt-
um en hingað til hefur tíðkast.