Morgunblaðið - 19.11.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988
Hafrannsókna-
stofnun — Opið hús
í tilefhi af Norrænu tækniári
1988 verður Hafrannsóknastofn-
un með Opið hús í aðalstöðvum
sínum á Skúlagötu 4; um borð í
’ rannsóknaskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni í Reykjavíkurhöfh; í
nýrri tilraunaeldisstöð á Stað í
Grindavík og útibúum stofhunar-
innar á ísafirði, Húsavík, Höfn í
Hornafirði og í Vestmannaeyjum.
Fólki er boðið að koma að skoða
þessa vinnustaði og kynnast
starfseminni, sunnudaginn 20.
nóvember kl. 13—17.
Fortíð
Upphaf hafrannsókna við Island
má rekja til ársins 1878 er Danir
sendu eftirlitsskipið Fyllu til sjórann-
sókna við vestur- og norðurströnd-
ina. Þá var sýnt fram á að grein
úr hinum hlýja Norðuratlantshafs-
straumi leitar upp að suðurströnd
íslands og þaðan vestur og norður
fyrir land. Það er reyndar þessum
hlýja straumi að þakka að landið er
svo byggilegt sem raun ber vitni og
innan áhrifasvæðis þessa straum-
kerfis klekjast flestar tegundir
Unnið við sjómælingar um borð
í Bjarna Sæmundssyni.
íslenskra nytjastofna og vaxa upp.
Bjami Sæmundsson kom til lands-
ins vorið 1894 að loknu náttúrufræð-
inámi við Hafnarháskóla. Hann vann
ótrúlega mikið starf á sviði haf- og
fískirannsókna og er þar óumdeildur
frumkvöðull meðal landsmanna.
Árið 1931 hófust fiskirannsóknir
á vegum Fiskifélags fslands undir
stjóm Áma Friðrikssonar, og 6 ámm
seinna tók Fiskideild atvinnudeilar
Háskólans til starfa, einnig undir
stjóm Áma. Hann varð víðfrægur
af síldarrannsóknum sínum sem
leiddu til þess að mönnum varð ljóst
að Norðurlandssíldin hrygndi við
vesturströnd Noregs en ekki hér við
land. Árið 1947 hófust kerfísbundn-
ar sjó- og áturannsóknir á fsland-
smiðum og nálægum hafsvæðum og
leitast var við að tengja niðurstöð-
umar fískigöngum og ýmsum
líffræðilegum atriðum svo sem fæðu,
_vaxtarhraða, kynþroska, _ hrygningu
og fleiru. Straumkerfí íslandshafs
var sérstaklega rannsakað 1948—
1960.
Að öðru leyti einkenndust íslensk-
ar hafrannsóknir frá lokum seinni
heimsstyijaldarinnar allt fram yfir
miðjan áratuginn af þeirri miklu
áherslu sem þá var lögð á leit að
nýjum fískimiðum. Á árunum
1954—1962 vom famir margir leið-
angrar til þess að leita að nýjum
karfamiðum og fundust þá m.a. Jón-
smið og Fylkismið við Austur-
Grænland og karfamiðin við Ný-
fundnaland. Þetta varð mikill bú-
hnykkur fyrir togaraútgerðina.
Síldarleitin átti mikinn þátt í ört
vaxandi síldveiðum fram á miðjan
sjöunda áratuginn. Sama má raunar
segja um loðnuleitina.
Nútíð
Á áttunda áratugnum verða
þáttaskil í íslenskum fiskirannsókn-
um. Sívaxandi skipastóll og örar
tækniframfarir við veiðarnar olli því
að flestir nytjastofnar uðm brátt
fullnýttir og sumir ofveiddir. Árið
1975 birti Hafrannsóknastofnunin
skýrslu um ástand fiskistofna á ís-
landsmiðum. Var þar dregin upp
nokkuð dökk mynd af ástandinu.
Þessi skýrsla olli miklum umræðum
um stjóm fiskveiða og hagkvæmustu
nýtingu fískstofna. Og til þess að
renna styrkari stoðum undir ráðgjöf
um nýtingu fískimiðanna sneri Ha-
frannsóknastofnun sér í vaxandi
mæli að rannsóknum sem höfðu það
að markmiði að meta stærð og af-
kastagetu nytjastofna.
Aðalverkefni Hafrannsóknastofn-
unar er rannsóknir á stærð og af-
rakstursgetu helstu nytjastofna á
Islandsmiðum. Við þessar rannsókn-
ir em bæði notaðar beinar mælingar
á stofnstærð og/eða óbeinar að-
ferðir sem byggjast á aldursgrein-
ingu í afla.
í TILEFNI af Norrænu tækniári
1988 verður Rannsóknastofhun
fiskiðnaðarins með Opið hús
sunnudaginn 20. nóvember kl.
13 til 17. Opið verður í höfuð-
stöðvum stofiiunarinnar á Skúla-
götu 4 í Reykjavik og auk þess
í útibúum Rf. á ísafirði, Akur-
eyri, Neskaupstað og í Vest-
mannaeyjum. Fólki er boðið að
koma, skoða stofhanirnar og
kynnast starfseminni.
Hvað er að sjá?
Sýndar verða rannsóknastofur
með tækjum í gangi. Starfsmenn
munu svara spumingum gesta og
einnig verður upplýsingum komið á
framfæri í myndum og rituðu máli.
Tækifæri gefst til að kynnast því
hvemig gerlar í matvælum em
ræktaðir og taldir, hvemig hægt
er að mæla hvort fískur sé ferskur,
hvemig hin margumtalaða líftækni
hefur verið nýtt við lausn verkefna,
hvernig auka má nýtingu sjávarafl-
ans og margt fleira. Gestir fá að
smakka á ýmsum fágætum afurð-
um og veitingar verða á boðstólum.
Stofnmælingar botnfisktegunda
með 5 togurum hafa orðið til þess
að gera úttekt á þessum tegundum
miklum mun ömggari og nákvæm-
ari. Þá hefur úrvinnsla gagna verið
tölvuvædd. Úrvinnsla gagna er því
miklu ítarlegri og fljótvirkari en áður
var.
Af sama toga em umfangsmiklar
hvalrannsóknir sem byijað var á
1986. Hér er á ferðinni rannsókna-
áætlun til 4 ára og með framkvæmd
hennar hefur Hafrannsóknastofnun-
in tekið forystu í hvalrannsóknum á
norðanverðu Atlantshafi.
Ný rannsóknastöð í eldi sjávar-
dýra var tekin í notkun fyrr í þessum
mánuði. Þar verður aðstaða til
margs konar rannsókna sem áður
var ekki hægt að stunda hér á landi.
Framtíð
Aðalverkefni Hafrannsóknastofn-
unar mun áfram verða rannsóknir á
stærð og afrakstursgetu helstu
nytjastofna á íslandsmiðum.
Með vaxandi þekkingu á nytja-
stofnum hefur komið sífellt betur í
ljós hversu náin tengsl em milli
þeirra og annarra lífvera hafsins svo
og ólífrænna umhverfisþátta. Því
munu rannsóknir beinast í vaxandi
mæli að tengslum af þessu tagi svo
að á þeim fáist aukinn skilningur.
Lagt verður kapp á að tengja vist-
fræði og fiskifræðileg gögn og vinna
þannig að gerð líkana af vistkerfum
íslenskra hafsvæða og afraksturs-
getu þeirra.
Fortíðin
Stofnunin á rætur sínar að rekja
til ársins 1934, þegar Fiskifélag
Islands kom á fót rannsóknastofu
og réð einn starfsmann. Var þetta
fyrsti vísir að rannókna- og leið-
beiningastarfi í þágu fískiðnaðarins
hérlendis.
Rannsóknastofan starfaði í 31
ár til ársins 1965 en þá var Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins (RF)
stofnuð með lögum.
Stofnanir þessar hafa skilið eftir
sig djúp spor í atvinnusögu lands-
manna.
Markmið
Aðalmarkmið er að leita leiða til
að auka verðmætasköpun úr lífríki
sjávar. Það er gert með því áð afla
hagnýtrar þekkingar fyrir fiskiðnað
og tengdar greinar matvælaiðnað-
ar, bæði með rannsóknum og upp-
lýsingaöflun. Jafnframt er það hlut-
verk stofnunarinnar að sinna þjón-
ustumælingum og ráðgjöf fyrir fyr-
irtæki og miðla upplýsingum um
niðurstöður rannsókna og nýjungar
í fískiðnaði til fyrirtækja og almenn-
ings.
Á Rannsóknastofiiun fiskiðnaðarins á Skúlagötu 4, verður m.a.
kynnt:
— Mælingar á mengunarefnum.
— Mælingar á próteinum og fitu.
— Lagmetiseftirlit.
— Laxafóðurgerð.
— Matargerð úr sjaldséðum fiskum.
— Seigjumælingar.
— Skynmat.
— Smásjárrannsóknir.
— Skrápfletting skötu með ensímum.
— Tilraunaverksmiðja í gangi.
— Vinnsla ensíma úr fiski.
— Vinnsla fitusýra úr lýsi.
— Orverurannsóknir.
Rannsóknastofii-
un fiskiðnaðarins
SIGURÐUR H. RICHTER
Á Rannsóknastofiiun fiskiðnaðarins er nú verið að rannsaka fitusýr-
ur í íslensku sjávarfangi, með tilliti til veiðistaða, árstíma, tegunda
og líffærahluta. Hér er verið að taka sýni til fitusýrumælinganna.
Starfsemin
Höfuðstöðvar Hafrannsókna-
stofnunar eru á Skúlagötu 4 á 3.
og 4. hæð. Starfsmenn þar eru um
70, þar af um 40 háskólamenntaðir
sérfræðingar í hinum ýmsu greinum
fiski- og haffræði. Þá rekur stofnun-
in 5 útibú, á ísafirði, Húsavík,
Homafirði, Ólafsvík og í Vest-
mannaeyjum, aðeins einn starfsmað-
ur starfar í hveiju útibúi. Ný til-
raunaeldisstöð hefur tekið til starfa
á Stað á Reykjanesi. Gert er ráð
fyrir að þar vinni íjórir menn við
tilraunir í eldi sjávardýra. Að lokum
skal þess getið að rannsóknaskipin
eru þijú: Bjami Sæmundsson 777
rúmlestir, smíðaður 1970, Árni Frið-
riksson 449 rúmlestir, smíðaður
1967 ogDröfn 150 rúmlestir, smíðuð
1982. Skipveijar eru alls um 30 og
á rannsóknaskipunum er einnig
starfsaðstaða fyrir 20-25 vísinda-
menn.
Sjávarútvegshúsið, Skúlagötu 4. í því er Rannsóknastofiiun fiskiðnað-
arins (1.—3. hæð), Hafrannsóknastofnun (3.-4. hæð) og Sjávarútvegs-
ráðuneytið (6. hæð).
r
meti þ. á m. mengunarefna og rot-
vamarefna. Vinnslu- og vömþróun-
ardeild, þar er m.a. unnið að þróun
vinnslu- og geymsluaðferða, vöm-
þróun og gæðamati þ. á m. skyn-
mati. Tæknideild sér m.a. um
vinnslutækni, þróun vinnsluferla og
tækjabúnaðar. Örvemdeild hefur
með höndum úttekt á örvemgróðri
í fískafurðum, geymsluþolsprófanir,
mat á hreinlæti og rotvarnaraðferð-
ir. RF starfrækir útibú í hvetjum
landsíjórðungi og tóku þau til starfa
á ámnum 1972-’79.
Verkefiiaval
Það hefur einmitt einkennt verk-
efnaval á stofnuninni að verkefnin
em fyrst og fremst hagnýt og unn-
in í samvinnu við fyrirtæki og sam-
tök þeirra.
Fróðlegt er að flokka rannsókna-
verkefni sem nú em í gangi eftir
sviðum:
Nýjarafurðirogtækni 9
Líftækni 9
Úrvinnsla og verkun 7
Mengun, heilnærhi o.fl. 5
Fóður og fóðurgerð 3
Nýting hráefnis 2
Alls 35
Niðurstöður rannsókna Rann-
sóknastofiiunarinnar eru settar
fram I skýrslum og ritum RF.
Þær eru einnig kynntar í RF-
tíðindum sem koma út 3—4 sinn-
um á ári. Þar að auki er handbók
fiskvinnslunnar gefin út á stofii-
uninni.
Skipulag
Á Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins í Reykjavík em fimm deildir:
Almenn efnafræðideild, þar sem
starfsemin snýst einkum um efna-
samsetningu fisks og fiskafurða.
Snefilefnadeild, en á henni fer fram
greining ýmissa snefilefna í fisk-