Morgunblaðið - 19.11.1988, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988
57
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hamlet:
Mikið lista-
verk
Góður Velvakandi.
Þegar ég lauk við að lesa grein
Guðmundar G. Þórarinssonar „Hér
er ég Hamlet prins Dana“. Þá
minntist ég þess að ég og vinur
minn fórum að sjá Jeppa á fjalli sem
var leikinn um þær mundir. Alla
sýninguna út hló ég eins og mér
væri borgað fyrir það, ekki batnaði
það þegar vinur minn var farinn
að hlæja líka, en það var þegar
Jeppi var hengdur upp í snöruna,
þá lá við að ég sturlaðist af hlátri.
Seinna hlotnaðist mér að fá leik-
ritið og lesa það, og að sjá leikinn
aftur. Þá kvað við annan tón. Ég
var eins og negldur niður í sætið í
Iðnó þegar ég rankaði við mér og
varð þess var að ég hafði vatnað
músum. Þvílíkri samúð fylltist ég
fyrir hönd Jeppa á fjalli, að ég gat
ekki tárum haldið. Hamlet eftir
Shakespeare er annað listaverkið
sem á víða hægt með að koma
mönnum, sem þannig eru gerðir, í
stemmningu. Hamlet ber eldheitar
tilfinningar í btjósti til móður
sinnar, og þolir ekki samveru henn-
ar og konungsins, samband þeirra
gerir hann sinnisveikan, sem orsak-
ar það að hann hatar föðurbróður
sinn, en faðir hans birtist honum
sem er kominn til feðra sinna, og
mætti undir vissum kringumstæð-
um segja, að Hamlet hafi verið far-
inn að sjá ofsjónir. Hamlet er lam-
aður af hroðalegri innri baráttu sem
hann á í vegna móður sinnar, þess-
vegna dregst hefndin á langinn, svo
alvarlegt er þetta að hann fer að
hata kvenfólk, með öðrum orðum,
hann úrkynjast. Þetta kemur á dag-
inn þegar hann segir við Ófelíu. „Eg
elskaði yður einu sinni.“ Og hún
svarar: „Já, þér tölduð mér trú um
það, herra prins.“
Leikritið Hamlet er mikið lista-
verk og um leið mikill boðskapur
til allra mæðra, um að fara gæti-
lega í þessar sakir viðvíkjandi til-
finningaríkum börnum. Dæmi eru
til um það, að mörg börn á íslandi
hafa orðið að bíta í sama súra eplið
og Hamlet, þau eru til hér allt í
kringum okkur, og hver hafa orðið
örlög þeirra? Það er erfitt að tjá
sig um það, svo hroðalegt getur það
orðið.
Ef einhver efast um að Hamlet
beri að skilja eins og hér er gert,
þá skal hinum sama bent á, að
snúa sér til enskra leikhúsmanna,
þeir vita hvaða skilning ber að
leggja í Hamlet eftir Shakespeare.
Guðmundi G. Þórarinssyni þakka
ég fyrir vel skrifaða grein í Morgun-
blaðinu 10.11.1988. Sökum þess
að G.Þ. staldrar á stöku stað við
það í greininni, hvort Hamlet hafi
verið vitskertur, þá dró mig löngun
til þess að benda á það sem skráð
er hér að framan. Því að allt það,
sem maður skilur, það getur maður
skýrt.
Bjarni G. Tómasson
ERT ÞÚ í VANDA
VEGNA VÍMU ANNARRA?
Afleiðingarnar geta komið fram með ýmsum hætti í
líðan þinni:
• Erfitt að tjá tilfinningar
• Erfitt að taka sjálfstæðar ákvarðanir
• Skortur á sjálfstrausti
• Skömmustutilfinning og sektarkennd
• Kvíði og ótti
Nánari upplýsingar í fjölskyldudeild Krýsuvíkursam-
takanna, Þverholti 20, sími 623550.
Námskeið í gangi. Viðtalstímar á fimmtudögum.
JLkrýsuvíi
KURSAMTOKIN
Komdu
með á flísakynninguna
Þessir hringdu . .
Breytið áletruninni
F.B. hringdi:
„Ég kann því mjög illa að í
mörgum verslunum fær maður
kassakvittanir á ensku sem á
stendur „YOUR RECEIPT -
THANK YOU“. Það getur ekki
verið mikið mál fyrir verslunareig-
endur að koma þessu í lag. Ef
ekki er hægt að breyta áletrun-
inni hlýtur að vera hægt að taka
hana alveg burt.“
Leiðinlegar
framhaldssögur
Konar að austan hringdi:
„Ég hef lengi hlustað á fram-
haldssögur útvarpsins en er alveg
að gefast upp á því núna því fram-
haldssögumar hafa verið svo leið-
inlegar að undanfömu. Væri ekki
hægt að fínna skemmtilegri sög-
ur. Þá sakna ég þess mikið að
ekki em lengur framhaldsmyndir
í sjónvarpinu á síðdegis sunnudög-
um. A sínum tíma var sýndi sjón-
varpið Húsbændur og hjú og fleiri
framhaldsmyndir síðdegis á
sunnudögum og var það góður
tími til að horfa á sjónvarp.
Reyndar finnst mér dagskrá sjón-
varpsins á sunnudögum alltof lé-
leg. Það hlýtur að vera hægt að
gera betur.“
Góðir útvarpsþættir frá
Akureyri
Ragnar Halldórsson hringdi:
„Það er mál margra að útvarps-
þættir frá Akureyri hafi í menn-
ingarlegu tilliti orðið ríkisútvarp-
inu notadtjúgir og verið í farar-
broddi. Frábær var þáttur Arnars
Inga sem fluttur var laugardaginn
12. þ. m. Þar komu við sögu tveir
aldnir heiðursmenn og ekki kom
á óvart að þeir skiluðu vel sínum
hlut. Meiri athygli og aðdáun
vakti þó frammístaða ungmenna
sem ekki ræddu ómerkari mál en
tilveruna og sjálfa lífsgátuna af
meiri skynsemi og meiri þroska
en títt er á þessu aldurskeiði.
Athyglistverðast og lofsamlegast
var þó hið látlausa og prýðilega
málfar þeirra, hnökralaust og
listilega fram borið, móðurmálið
svo sem best mátti verða. Hér
sannaðist gildi heimila, skóla og
næmi einstaklinga þegar málið
er klárt og kvitt framborið svo
sem best má verða. Þátt þennan
ætti að hljóðrita og ijölfalda til
mm yöu
16-11-88
#002
1 X59.10
1 X94.50
2X121 .'50
1 -0.10VD
dreifingar í öllum skólum lands-
ins, jafnvel Háskólinn ekki undan-
skilinn."
Spillt þjóðfélag
Birna hringdi:
„Það gengur alveg framaf mér
að kvikmyndin Síðasta freisting
Krists sé sýnd hér á landi. Þetta
er orðið álvarlegt, þetta þjóðfélag-
ið er orðið svo spillt að manni
verður hugsað til Sódómu og Gó-
móru sem Guð eyddi. Sá tími kem-
ur að Guð tekur í taumana og ef
við höldum uppteknum hætti er
voðinn vís fyrir hina óguðlegu."
Sýnum mótmæli í verki
Haukur Haraldsson hringdi:
„Ég skora á alla kristna menn
að sjá ekki þessa óhæfu, kvik-
myndina Síðasta freisting Krists.
í öðru lagi ættu kristnir menn
ekki að skipta við kvikmyndahú-
sið sem sýnir myndina ? framtí-
ðinni og einnig að sjá til þess að
böm þeirra fari ekki í þetta kvik-
myndahús."
Svört skjalataska
Bryndís hringdi:
„Þú hinn skilvísi finnandi
svörtu skjalatöskunnar minnar,
loksins færðu tækifæri til að skila
henni en þarft ekki að kveljast
lengur yfir að hafa ómerkta tösku
í fórum þínum. Samtímis léttirðu
af mér áhyggjum yfir að hafa
tapað glósunum mínum, frönsku-
bókunum mínum og öðru sem í
töskunni var. Vinsamlegast hafðu
samband í síma 21649 eða
40346.“
Kettlingur
Óskað er eftir fresskettlingi
helst svörtum eða svörtum og
hvítum eða svörtum, hvítum og
gulbrúnum. Sími 30018 e. kl. 17.
Giftingarhringxir
Giftingarhringur týndist fyrir
síðustu helgi. í hringinn er greypt
“Þinn Jón Ami“. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 77144.
Týnd læða
Tapast hefur 14 ára gömul læða
frá Bergstaðastræti 28B. Hún
gegnir nafninu Lóra og er hvít og
grábröndótt alveg fram yfir augun
og myndast eins og strik sitthvoru
megin við þau. Annað eyrað á henni
lafir og hún hefur dökka rönd á
baki niður á skott sem er líka gráb-
röndótt. Hún lokaðist inni í sumar
í 14 daga rétt hjá og ef fólk vildi
vera svo vænt að athuga í skúra
og kjallara hjá sér væri það vel
þegið. Lóra er gjörn á að pota sér
alls staðar inn en er stygg og heyr-
ir illa. Ef einhver veit um hana vin-
samlegast hringið í síma 10539,
32877 eða Dýraspítalann í síma
674020. Fundarlaun.
Opið laugardag og sunnudag kl. 10-16
KÁRSNESBR AUT 106 - KÓP AVOGI - SÍMI46044
RÝMINGARSALA
Tekið til í kjallaranum
30-70% AFSLÁTTUR
ÚTLITSGALLAÐ EÐA HÆTT í FRAMLEIÐSLU
Bútar-gluggatjaldaefni
bútar-áklæði
værðarvoðir
50%-70% AFSLÁTTUR
Borð, stólar,
Ijós, lampar,
blómapottar, leirvara,
30%-50% AFSLÁTTUR
16.-19. NÓVEMBER
epcil
FAXAFENI 7-Sími 687733