Morgunblaðið - 19.11.1988, Side 59
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988
59
KNATTSPYRNA
Guðni Bergsson hjá
Tottenham til reynslu
GUÐNI Bergsson, landsliðs-
maður úr Val, fer til Englands
á morgun—til reynsluœfinga
hjá Tottenham Hotspur. Forr-
áðamenn félagsins, sem er eitt
það frœgasta á Englandi, vildu
fá Guðna til æfinga, en „það
er langt í að einhver samningur
verði gerður. Við verðum að
sjá hvað setur," sagði Guðni í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Terry Venbles, stjóri Tottenham,
hefur ekki verið ánægður með
vamarmenn sína í vetur. Liðið hef-
ur fengiö á sig 24 mörk í 11 leikj-
um, mörg hver afar klaufaleg, og
Ijóst er að hann gerir einhveijar
breytingar á liðinu fljótlega. Liðið
er í neðri hluta deildarinnar — og
það eru forráðamenn þessa ríka
félags ekki ánægðir með.
„Þetta kom snöggt upp. Það er
ekki nema þrír dagar síðan. Þeir
vilja að ég komi og æfi með þeim
um tfma og þá hafa þeir óskað eft-
ir því að sjá upptökur frá leikjum
með Val,“ sagði Guðni. Það var
umboðsmaður í Englandi sem sá
Guðna í landsleik í haust og mælti
með honum við forráðamenn Tott-
enham.
GuAnl Bsrgsson, vamarmaðurinn sterki hjá Val. Hér er hann f baráttu við einn leikmanna Mónakó f Evrópu-
leik félaganna á Laugardalsvelli f haust.
Alvara
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Guðni fer til æfinga hjá ensku liði.
Fyrir þremur árum fór hann til
Aston Villa, en ekkert varð úr
samningi. „Þá held ég satt að segja
að enginn áhugi hafi verið hjá fram-
kvæmdastjóranum að fá mig. Hann
heilsaði ekki upp á mig fyrr en eft-
ir þijá eða Ijjóra daga og ekkert
varð úr að ég færi til liðsins. Þess
vegna færi ég ekki nú nema ég
vissi að einhver alvara væri á bak
við þetta boð,“ sagði hannn. „Með
það í huga fer ég þama út og vona
að það reynist rétt. En þrátt fyrir
það veit ég að ég er þama til reynslu
og það er langt í að einhver samn-
ingur verði gerður. Reglan er meira
að segja sú að yfirleitt fá menn
ekki samning þegar þeir fara til
æfinga hjá liðum.“
Spennandl
Guðni sagði þetta ekki besta
tímann til að standa f svona löguðu
— „ég hef ekki hreyft mig síðan f
landsleikjunum f haust. En þetta
er spennandi og verður gaman að
reyna þetta. Félagið er þekkt og
ég læt slag standa og sé til. Það
verður svo að koma í ljós hvað ger-
ist."
Guðni er 23 ára, og er einn allra
besti vamannaður íslands. Hann á
28 landsleiki að baki.
Ih&iir
FOLK
■ PAM Shriver komst f undan-
úrslit stórmóts í tennis í New York
í gær með því að sigra Chris Evert
7:5, 6:4. Shriver mætir Steffi
Graf næst. Graf sigraði Manuela
Maleeva frá Búlgarlu 6:1, 6:3.
I BOBBY Robson, landsliðsein-
valdur Englands í knattspymu,
sagðist í gær ætla að mæla með
þvf við forráðamenn enska knatt-
spyrnusambandsins að England
leiki á næstunni nokkra B-lands-
leiki. Hann sagði að eitthvað yrði
að gera til að brúa bilið sem mynd-
ast hefur milli enskra knattspymu-
manna og starfsbræðra þeirra á
meginlandinu, vegna bannsins á
ensk félagslið frá leikjum í Evrópu-
keppninni.
■ PATRIK Sjöberg, hástökk-
varinn kunni frá Svíþjóð, er meidd-
ur og verður hugsanlega ekki með
á innanhússmótum f vetur. Hann
getur a. m. k. ekkert æft næstu sex
vikumar. Það em bakmeiðsli sem
hrjá Sviann.
■ ARTHUR Jorge, sem þjálfaði
Portó árið 1987 er liðið varð Evr-
ópumeistari í knattspymu, hefur
verið ráðinn þjálfari liðsins á ný.
Hann hefur starfað um tíma í
Frakklandi, sem þjálfari Matra
Racing í París, en hætti þar á
dögunum af fjölskylduástæðum.
Jorge skrifaði í gær undir samning
við Portó til tveggja og hálfs árs.
I OXFORD hefúr samið við
Aston Villa um kaup á Garry
Thompson fyrir 300 þúsund pund.
Thompson, sem er 29 ára fram-
heiji, á eftir að samþykkja kaupin.
I NORDUR írski landsliðsmað-
urinn fyrrverandi Tommy Cassidy
var í gær rekinn úr starfí þjálfara
Apoel Nicosia á Kýpur.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI
Xamax og Gala-
tasary verða að
mætast aftur
Stórsigurtyrkneska liðsins þurrkaður
út vegna óláta á leiknum
Llnda Pétursdóttlr.
Unda vinsæl!
Linda Pétursdóttir, nýkiýnd
Ungfrú heimur, er vinsæl
meðal þeirra sem taka þátt í
hópleik íslenskra getrauna.
Mörg ný lið bættust í gær í
hópleikinn og vildu forsvars-
menn þriggja þeirra nefna lið
sitt f höfuðið á Lindu. En þar
sem fleiri en einn geta ekki not-
að sama nafna, varð það úr að
fyrsti hópurinn kallast Linda,
annar Linda P. og sá þriðji Linda
Pé...
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, ákvað í gœr að
leikur Galatasary frá Tyrklandi
og Neuchatel Xamax frá Sviss
fœri fram að nýju á hlutlausum
velli. Síðari leik liðanna lauk
með sigri Galatasary, 5:0.
Ólæti áhorfenda settu strik f
reikninginn og þvf fer leikurinn
fram að nýju á hlutlausum velli.
amax, sem sigraði í fyrri leikn-
um, 3:0, kærði leikinn til
UEFA. Flugeldum var kastað inn
á völlinn og einn þeir endaði flug
sitt á varamanninum Adrian Kunz.
Þá var brotið mjög illa á markverði
liðsins og eftir það fékk hann á sig
þijú mörk á tólf mfnútum.
Talsmaður UEFA sagði í gær að
leikurinn yrði leikinn að nýju á velli
í a.m.k. 300 km fjarlægð frá heima-
velli Galatasary. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær leikurinn fer fram.
Upphaflega var tyrkneska liðið
dæmt til að greiða háa sekt en
Xamax áfrýjaði. Nú hefur Galatas-
ary hinsvegar áfrýjað. „Það er ekki
nokkur leið að réttlæta þennan
dóm,“ sagði Halim Corbali, formað-
ur tyrkneska knattspyrnusam-
bandsins. Þjálfari liðsins, Mustafa
Denizli, sagði: „Þessi nefiid UEFA
er full af óvinum Tyrklands. Þeir
geta kannski breytt úrslitum á
pappírunum en ekki f hjörtum okk-
ar,“ sagði Denizli.
BADMINTON
Islendingará NM um helgina
ÍSLENSKA landsliftið f bad-
minton tekur þátt í Norftur-
landamótinu sem fram fer f
Helsinki f Finnlandi um helg-
ina.
andsliðið hélt utan á fímmtu-
dag ásamt þjálfara sfnum,
Kínveijanum Huang Weicheng
frá. Þeir sem leika fyrir íslands
hönd eni: Broddi Kristjánsson,
Þorsteinn P. Hængsson, Þórdís
Edwald og Kristín Magnúsdóttir.
Einnig mun Ármann Þorvaldsson,
sem æft hefur með besta félagi
Noregs í vetur, koma til móts við
liðið í Helsinki. Árni Þór Hallgr-
ímsson, sem einnig leikur í Noregi
var einnig valinn, en hann er
meiddur og kemst því ekki.
Keppt verður í öllum greinum,
einliðaleik, tvíliðaleik og tvennd-
arleik. í einliðaleik verður keppt
í riðlum og eru góðar vonir bundn-
ar við gengi íslendinganna þar. í
tvíliðaleik mæta Broddi og Þor-
steinn finnsku pari í 1. umferð.
Þórdís og Kristín mæta einnig
finnsku pari f 1. umferð. í tvennd-
arleik mæta Þórdís og Broddi
sænsku pari. Loks mæta Þor-
steinn og Kristín finnsku pari í
tvenndarleik.
Fararstjóri verður Magnús
Jónsson, formaður BSÍ, og mun
hann einnig sitja ársþing Norræna
Badmintonsambandsins. Auk
þess mun Rafn Viggósson dæma
í mótinu.
StefAn Haraldsson
ÍÞféfíR
FOLK
■ STEFÁN Haraldsson var
kjörinn formaður knattspymudeild-
ar KR á aðalfundi deildarinnar í
fyrrakvöld. Hann tekur við af
Gunnari Guðmundssyni, sem hef-
ur verið formaður deildarinnar und-
anfarin sjö ár, en hann gaf ekki
kost á sér. Geir Þorsteinsson var
kosinn varaformaður, en Stefán
gegndi því embætti undanfarin
Sögur ár.
I JÓNAS Egilsson var kjörinn
formaður fijálsíþróttadeildar ÍR 'a
aðalfundi deildarinnar' í vikunni í
stað Jóhanns Björgvinssonar, sem
gaf ekki kost á sér áfram, en hann
var formaður í fimm af síðustu sex
árum. Varaformaður var kosinn
Valdimar Guðmundur Valdi-
marsson.
■ FRWRIK Þór Óskarsson
hlaut sérstaka viðurkenningu á að-
alfundi fijálsfþróttadeildar IR fyrir
að hafa keppt síðastliðinn 20 fyrir
félagið f bikarkeppni FRÍ. Gunn-
Emsdóttir voru valin fijálsíþróttt
menn ársins í karla og kvenn;
flokki fyrir afrek sín í hástökki og
3.000 metra hlaupi.