Morgunblaðið - 29.11.1988, Blaðsíða 59
ser flflHMavcM .gs íruoAn/n.fíiH4 cnaAjaviuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
59
Skáldsaga eftir
Mary Higgins Clark
ÚTI REGNIÐ grætur heitir bók
eftir Mary Higgins Clark, sem
„Ungog
ástfangin“
Ný bók effcir
Erling Poulsen
ÚT ER komin hjá Hörpuútgáfunni
ástarsagan Ung og ástfangin eftir
danska rithöfundinn Erling Pouls-
en. Þetta er 13. bókin í bóka-
flokknum Rauðu ástarsögurnar.
Á bókakápu segir m.a. „Elfsa
Holm var 16 ára þegar hún missti
föður sinn. Móðir hennar giftist aft-
ur. Nýi maðurinn reyndi að koma
fram vilja sínum við Elísu með valdi.
Hún ákvað að flýja að heiman og
kynntist þá Tom Tanning, sem var
afbrotaunglingur.
Þetta er spennandi bókk um ung-
menni með gjörólíkan uppruna. Hér
er lýst baráttu þeirra við fordóma
og slúður og samskiptum við eldri
kynslóðina sem álítur þau of ung til
að elska."
„Ung og ástfangin" er 174 blaðsíð-
ur. Þýðandi Skúli Jensson. Prentverk
Akraness hf. prentaði.
ERUNÖPOULSEN
UNG OG
ÁSTFANGIN
Sígild ævin-
týri fyrir
yngstubörnin
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér þrjár bækur í nýjum
bókaflokki fyrir yngstu börnin
og nefhist hann Ævintýri barn-
anna. Þetta eru sögurnar um
Rauðhettu, Pétur Pan og Hans
hugprúða.
I kynningu útgefanda segir m.a.:
„Hér eru sögð sígild ævintýri sem
böm hafa skemmt sér við kynslóð
fram af kynslóð. Hver hefur ekki
tekið þátt í raunum Rauðhettu litlu
og baráttu hennar við úlfínn ógur-
l.ega eða dáðst að stráknum honum
Han, sem ekki kunni að hræðast
og hlaut að lokum prinsessu sem
allir vildu eiga?“
Ævintýrin eru myndskreytt. Þor-
steinn skáld frá Hamri þýðir sög-
umar. Þær em prentaðar á Spáni.
Skjaldborg hefur gefíð út í þýð-
ingu Jóhanns G. Erlingssonar.
Á bókarkápu segir svo um sögu-
efnið: „Á hressingarhælinu Cypress
Point í Kalifomíu, þar sem hinir
frægu og ríku reyna að bæta útlit
sitt og heilsu, dvelur ung stúlka,
Elísabeth Lange. Hún er þar í öðr-
um erindagjörðum og hún reynir
að komast til botns í því hvers vegna
systur hennar, frægri leikkonu, var
varpað fram af svölum íbúðar
sinnar. Hún kemst að því að örlög
hins glæsilega viðskiptajöfurs, Ted
Winters, sem er ákærður fyrir
morðið, ráðast af eftirgrennslan
hennar.
Andspænis bakgmnni Monter-
CHHISTINE NÖSTUNGER
Bók um Jóa
og ungl-
ingaveikina
MÁL og menning hefur gefið út
bókina „Jói og unglingaveikin"
eftir austurriska höfúndinn
Christine Nöstlinger.
_ í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í bókinni segir frá strák sem er
alinn upp af eintómum konum og
óttast afleiðingar þess fyrir sálarlíf-
ið eftir að heyra um kenningu slíku
uppeldi í óhag. Þetta er unglinga-
saga sem fjallar á gamansaman
hátt um vangaveltur og umbrot
þessa viðkvæma æviskeiðs."
Bókin er þýdd af Jóranni Sigurð-
ardóttur. Sagan er gefin út í flokkn-
um MM UNG bæði innbundin og
sem kilja og er hún 185 blaðsíður.
Brian Pilkington gerði káputeikn-
ingu.
„Nótt
refsins“
— Nýjasta bók
Jack Higgins
„Nótt refsins" nefnist ný skáld-
saga eftir Jack Higgins, sem kom
út hjá Hörpuútgáfunni. „Hún kom
fyrst út í Bretlandi 1987 og var
mánuðum saman í efstu sætum
metsölulistans þar í iandi," segir í
frétt frá útgefanda. Þá segir enn-
fremur: „Innrás bandamanna í
Normandí var vandlega undirbúin.
Á meðan heræfingar stóðu sem
hæst var innrásarprammi með
hundruðum hermanna skotinn nið-
ur af þýskum kafbáti. Flestir
dmkknuðu samstundis. Hugh
Keslo ofursti, einn af lykilmönnum
herstjómarinnar, bjargaðist á land
á eynni Jersey f Ermasundi, sem
var undir yfírráðum Þjóðveija.
Bandamenn áttu tvo kosti, annan
að freista þess að ræna Keslo frá
Jersey, hinn að láta taka hann af
lífi.“
ey-ættarinnar, þessarar glæsilegu
ættar, greinir hún ógn og hættu
sem getur hlotist af því að afhjúpa
yfirþyrmandi sannleika um systur
hennar og hana sjálfa."
Fjórða
bókín um
Goðheima
ÚT ER komin hjá Iðunni (jórða
bókin í flokknum Goðheimar, og
nefiiist hún Sagan um Kark.
Fyrri bækurnar í þessum bóka-
flokki komu út fyrir nokkrum
árum. Sögurnar eru byggðar á
frásögn Eddukvæða og Snorra-
Eddu.
í fréttatilkynningu útgefenda
segir m.a.: „í þessari bók segir frá
því að Loki álpast til að taka að
sér uppeldið á mesta óþekktarorm-
inum í Jötunheimi. Ekki er hann
fyrr kominn heim með Kark í Ás-
garð en allt fer þar á annan end-
ann. Meira að segja Þór, sjálfur
þmmuguðinn, hrökklast að heiman
þegar hrekkjusvínið hann Karkur
lætur til sín taka.
Bjarni Fr. Karlsson býddi.
GOPHEIMAI? 4
„Higgins fær hárin til að rísa á
höfði lesandans," segir Publishers
Weekly og „Harðsoðin spennubók,
eins og þær gerast bestar,“ segir
í The New York Times.
„Nótt refsins" er 203 bls. Þýð-
inguna gerði Gissur Ó. Erlingsson.
Setning og prentun: Prentstofa G.
Benediktssonar. Bókband: Arnar-
fell hf. Káputeikning: Kristján Jó-
hannsson.
Saga eftir
Stephen King
FRJÁLST framtak hefúr sent
frá sér bókina -Umsátur eftir
bandaríska rithöfundinn Step-
hen King í íslenskri þýðingu
Karls Birgissonar.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Umsátur, sem heitir Cujo á
fmmmálinu, fjallar um örlög fjöl-
skyldu í litlum bandarískum bæ.
Allt gengur sinn vanagang þar til
forlögin grípa í taumatta og hver
tilviljunin af annarri leiðir til mag-
naðrar atburðarásar. Þungamiðjan
í sögunni er St. Bemhardshundur-
inn Cujo. Ósköp venjulegur og
gæfur heimilishundur sem gerir
ekki flugu mein uns leðurblaka
bítur hann og hann sýkist af
hundaæði. Og þá gengur allt af
göflunum. Bilaður bíll verður til
þess að ung kona og bamungur
sonur hennar verða að þola ótrú-
legar raunir. Setið er um líf þeirra
og tiiviljanir vefa sinn vef þannig
að enginn kemur þeim til hjálpar.
Umsátrið stendur daga og nætur
og ekki er séð fyrr en í bókarlok
hver endalokin verða."
Umsátur er prentuð og bundin
í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápu-
hönnun annaðist Einar Pálmi
Ámason.
HORNSÓFAR
Margar gerðir, smíðum eftir máli.
Einnig sófasett og hvíldarstólar
í miklu úrvali.
Opið virka daga kl. 9-18 og
laugardagakl. 10-17.
Bíldshöfða 8, símar 674080 og 686675
KULDASKÓR
Stœrðir:
Litir:Svart, dökkgrænt,
dökkbrúnt, dökkblátt.
kPINAMN Skinn. m,
KWMeNM staðgreiðsluafsláttur.
s. 689212 Postsendum samdægurs. ^
Verð kr.
2490,-
*