Morgunblaðið - 29.11.1988, Blaðsíða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
Sjálfetæðisfélag Mosfellinga:
Lýsir andstöðu við forsjár-
stefiiu ríkissljórnarinnar
Almennur fundur í Sjálfstæðisfélagi Mosfellinga var haldinn í
Mosfellsbæ 22. nóvember sl.
Svala Árnadóttir formaður félagsins setti fundinn og bauð fund-
armenn velkomna og þá sérstaklega Davíð Oddsson borgarstjóra,
en þetta var i fyrsta skipti sem borgarstjóri Reykjavíkur kemur á
almennan fimd í Mosfellsbæ.
25 ára afmælis Reykhólakirkju var minnst á allrasálnainessu.
Reykhólakirkja:
Tuttugu og fimm
ára afmælis minnst
Miöhúsum.
MESSAÐ var í Reykhólakirkju
á allrasálnamessu, 6. nóvember.
Séra Flosi Magnússon prófastur
■ á Patreksfirði ávarpaði söfiiuð-
inn og vísiteraði. Sóknarprest-
urinn, séra Bragi Benediktsson,
predikaði og þjónaði fyrir altari.
Reykhólakirkja var vígð 8. nóv-
ember árið 1963 og var þá séra
Þórarinn Þór prestur hér. Við þá
athöfn voru mættir á fjórðahundr-
að gestir.
Kirkjan er helguð minningu
mæðginanna Þóru Einarsdóttur í
Skógum í Þorskafirði og séra Matt-
híasar Jochumssonar.
Kirkjan er teiknuð af þýskum
manni sem starfaði á vegum húsa-
meistara ríkisins, en að innan er
hún teiknuð af Sveini Kjarval arki-
tekt, en hann teiknaði predikunar-
stól, altari og ljós.
Bekkir eru teiknaðir* 1 af Jóni
Ólafssjmi arkitekt og kennara við
Reykhólaskóla og kvenfélagið Lilj-
an hafði forgöngu um smíði þeirra.
Predikunarstóller gefinn af Breið-
firðingafélaginu í Reykjavík og
hörpulagið á stólnum á að minna
á ljóðahörpu Matthíasar.
Ljósakross var gefinn kirkjunni
af afkomendum Sesselju Odd-
mundsdóttur og Sveins Sæmunds-
sonar á Hofsstöðum.
Tveir myndskreyttir gluggar
voru gefnir kirkju og hafði Hjörtur
Hjálmarsson skólastjóri á Flateyri
forgöngu þar um. Gluggamir eru
hannaðir og unnir af Leifi Breið-
fjörð.
Altaristaflan var gefin af móður
Jóns Thoroddsen skálds en hún hét
Þórey Gunnlaugsdóttir og er keypt
fyrir afgangsfé, þegar Jón var
leystur frá herþjónustu í Dan-
mörku árið 1848, en Jón kom heim
til íslands 1850 og það ár má
ætla að altaristaflan hafí komið til
Reykhóla. Gunnar Thoroddsen
ásamt öðrum ættingjum Jóns
beittu sér fyrir að gera upp töfluna
og koma henni fyrir í nýju kirkj-
unni.
Um gripi kirkjunnar mætti
skrifa langt mál, en kirkjan á
margt góðra gripa sem bera gef-
endum sínum fagfurt vitni.
10 ARA ABYRGÐ
ALSTIGAR
ALLAR GERÐIR
SÉRSMÍÐUM
BRUNASTIGA O.FL.
Kaplahrauni 7, S 651960
Að lokinni messu bauð sóknar-
nefnd safnaðarfólki til veislu í fé-
lagsheimilinu.
- Sveinn
Framsöguræðu á fundinum hélt
Davíð Oddsson borgarstjóri og
fjallaði hann um stjómmálaástand-
ið í dag. í máli Davíðs kom fram
að hann hefði ekki verið hlynntur
stjómarmyndun með þátttöku
Sjálfstæðisflokksins eftir síðustu
alþingiskosningar, þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi ekki verða
nógu öflugur í þriggja flokka sam-
starfí, eins og komið hefði á dag-
inn. Það ætti aldrei að ganga á
móti vilja kjósenda og í síðustu
kosningum hefðu kjósendur ekki
veitt Sjálfstæðisflokknum brautar-
gengi.
Davíð taldi að lífdagar núver-
andi stjómar yrðu ekki langir þar
sem þeir myndu ekki ráða við verk-
efnin framundan og að búast
mætti við kosningum næsta vor.
Sérstaklega gerði hann að umtals-
efni stöðu Alþýðuflokksins í þessu
stjómarsamstarfi, sem ekki væri
aðeins kominn inn í Framsóknar-
fjósið, heldur kominn á kaf í fjós-
hauginn, enda væru ekki allir
kratar ánægðir í sambúðinni við
framsóknarmaddömuna. Aðspurð-
ur hvort hann ætlaði að gefa kost
á sér í næstu alþingiskosningum
svaraði hann að það stæði ekki
til, en hins vegar gat hann þess
að Bjami Benediktsson hefði talið
að borgarstjóri Reykvíkinga yrði
að vera á Alþingi, til að gæta þess
að ekki væri gengið þar á hlut
Reykvíkinga, en hann tók fram að
þó að Bjami hafí getað gegnt þess-
um tveim hlutverkum væri ekki
Búðardalur:
Rekstrarstöðvun hefur
ófyrirsjáanlegar afleiðingar
- segir Olafiir Sveinsson kaupfélagsstjóri
Búðardal.
KAUPFÉLAG HvammsQarðar {
Búðardal hefúr átt við töluverðan
rekstrarvanda að etja. Ólafúr
1 Sveinsson kaupfélagsstjóri segir
að ástæður vandans séu ef til vill
ekki einhlítar, en tvö atriði skýri
þó verulegan hluta núverandi
vanda. „í fyrsta lagi er það vaxta-
kostnaður og í öðru lagi búvöru-
lögin frá 1985. Þessi atriði hafa
sfðan leitt hvort af öðru til stig-
vaxandi erfíðleika með því að þær
greiðsluskyldur sem hvila á slátur-
leyfishöfiun til framleiðenda skv.
lögum hafa vegna ónógrar Qár-
mögnunar orsakað greiðsluerfið-
leika á öllum sviðum hjá slátur-
leyfíshöfúm, sem flestir reka
margvíslegan annan rekstur. Svo
virðist sem erfiðleikar sláturleyf-
ishafa séu mismunandi og fer það
m.a. eftir samsetningu rekstrar
þeirra. Þeir sem eru með hlut-
fallslega stóran afúrðarekstur í
sauðfé virðast lenda í meiri erfið-
leikum en aðrir,“ segir Ólafúr.
„Þegar fyrirtæki eins og Kaup-
félag Hvammsfjarðar lendir í erfíð-
leikum getur það haft mjög alvarleg-
ar afleiðingar fyrir byggð eins og
Dalasýslu, sem átt hefur undir högg
að sækja undanfarin misseri. Fyrir-
tækið er burðarás atvinnulífsins í
héraðinu og stærsti viðskiptavinur
og þjónustuneytandi margra fyrir-
tækja í héraðinu, fyrir utan að vera
stærsti þjónustuveitandinn. Þegar
atvinnuöryggi 50 manns er ógnað á
þennan hátt er augljóst, að það hef-
ur víða áhrif í svo litlu héraði sem
Dalasýsla er.
Síðastliðið ár hefur markvisst ver-
ið unnið að því að reyna að leysa
vandamál Kaupfélags Hvammsíjarð-
ar. Má þar nefna að rekstri tré-
smiðju var hætt og verið er að selja
slátur- og kjötfrystihús félagsins og
dregið hefur verið úr rekstri á ýmsum
öðrum sviðum. í upphafi gerðu menn
sér vonir um að þetta myndi duga
til þess að rétta við hag fyrirtækisins
og stendur sú von enn. Fyrirtækið á
miklar eignir sem undir eðlilegum
kringumstæðum hefðu átt að geta
leyst vandamál þess, en erfítt er að
nota þessar eignir sem gjaldmiðil,
því markaðsverð þeirra er lágt, ef
þær þá yfír höfuð eru seljanlegar.
Það er von heimamanna að takast
megi að bjarga fyrirtækinu því af-
leiðingar rekstrarstöðvunar geta haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
Dalabyggð," segir Ólafur.
Öllum sagt upp hjá Tak hf
í framhaldi af þessar upplýsingar
um stöðu Kaupfélags HvammsQarð-
ar sækja að hugsanir um hvað taka
muni við í atvinnumálum hér um
slóðir. Verktakafélagið TAK hf., sem
hefur verið með 10 til 15 manns á
launaskrá, hefur sagt öllum starfs-
mönnum upp störfum frá næstu ára-
mótum að telja.
Hjá Dalverki hf., bifreiðaverk-
stæði staðarins, vinna 5 manns. Þar
eru miklir erfíðleikar vegna stórfellds
samdráttar síðastliðið ár og ríkir
óvissa um reksturinn.
En það sem mestum kvíða veldur
er að ef engar breytingar verða hér
til batnaðar, mun ástandið hér verða
mjög bágborið. Ef ekkert verður
aðhafst af því opinbera og ekki stutt
við þær hugmyndir sem heimamenn
eru að vinna að, er fyrirsjáanlegt að
fólk heldur áfram að flýja byggðar-
lagið vegna minnkandi atvinnu.
- Kristjana
þar með sagt að hann gæti það.
Salóme Þorkelsdóttir alþingis-
maður flutti stutt ávarp á fíindin-
um og gat þess að það væri erfíð-
ara að stjóma í samvinnu við aðra
stjómmálaflokka heldur en að vera
einn í stjóm og yrði þá að gera
fleira en gott þætti.
Fundurinn var óvenju fjölsóttur
og var gerður góður rómur að
máli Davíðs.
Á fundinum var lögð fram eftir-
farandi stjómmálaályktun frá
stjóm Sjálfstæðisfélags Mosfell-
inga, sem samþykkt var samhljóða.
„Almennur fundur í Sjálfstæðis-
félagi Mosfellinga lýsir yfír and-
stöðu sinni við forsjárstefnu núver-
andi ríkisstjómar, sem hefur það
að yfirlýstu markmiði að hverfa
frá almennum vestrænum leikregl-
um við stjóm efnahagsmála.
Fundurinn leggur áherslu á að
framtak og áræði einstaklinganna
fái að njóta sín við uppbyggingu
atvinnulífs á íslandi, en ekki for-
sjárhyggja vinstri manna.
Á meðan heimilin í landinu og
atvinnufyrirtækin verða að grípa
til margs konar aðhaldsaðgerða og
spamaðar vegna lækkandi þjóðar-
tekna er það óviðunandi að ríkið
skuli ekki á sama hátt draga úr
útgjöldum sínum, því ætlun vinstri
stjómarinnar er að auka enn frek-
ar á útgjöld heimilanna með auk-
inni skattheimtu.
Sjálfstæðisflokkurinn er eina
stjómmálaaflið í landinu, sem get-
ur komið í veg fyrir að skatta- og
skömmtunarstefna vinstri flokk-
anna festi rætur. í stjómmálabar-
áttunni framundan er því mjög
brýnt að áhersluatriði í stefnu
Sjálfstæðisflokksins verði skýrt
mörkuð og að flokksforustan
standi saman um að framfylgja
þeirri stefnu.
Sjálfstæðismenn verða nú að
sameinast til nýrrar sóknar, til að
Sjálfstæðisflokkurinn verði sem
fyrr, órofa fylking fijálshuga fólks,
sem trúir á framtíð íslands."
(Fréttatilkynning)
Landsbókasafin:
Safii sænskra blaðagreina
um íslenskt eftii að gjöf
SENDIHERRA Svía á íslandi,
Per Olof Forshell, afhenti Lands-
bókasafni nýlega að gjöf frá
tryggingafélaginu Skandia í
Stokkhólmi safn sænskra blaða-
greina um íslenzk efiii, er það
lét draga saman um sex ára
skeið, 1931—1937, en félagið hét
þá Thule.
Elzt er viðtal í Stockholms Dag-
blad 21. febrúar 1930 við Guðjón
Samúelsson húsameistara ríkisins,
þá staddan í Svíþjóð í kynnisför.
En yngst er viðtal við Guðlaug
Rósenkranz í Svenska Dagbladet
31. ágúst 1937.
Búið er um blaðagreinarnar í
fimm vænum heftum. Einna ræki-
legasti kaflinn er um „íslenzku vik-
una“ í Stokkhólmi haustið 1932,
er félögin Norden og Samfundet
Sverige-Island stóðu fyrir til kynn-
ingar á íslandi og íslenzkri menn-
ingu. Var mjög vandað til þeirrar
kynningar og fengnir frá Islandi
og víðar að hinir helztu íslenzkir
fyrirlesarar, skáld og listamenn, en
forystu fyrir hópnum hafði Ásgeir
Ásgeirsson, þáverandi forsætisráð-
Frá afhendingu blaðagreinasafiisins. F.v. eru Per Olof Forshell sendi-
herra Svía, Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður og Grímur M.
Helgason deildarstjóri.
herra. Voru þarna alls viðstaddir
um 50 íslendingar.
Blaðagreinasafnið verður til sýn-
is næstu daga í anddyri Safnahúss-
ins við Hverfísgötu.
(Frétt frá Landsbéka&afhi íslands.)