Morgunblaðið - 29.11.1988, Blaðsíða 76
Rynkeby
HREINN
APPELSÍNUSAFI
ÁN ALLRA
AUKAEFNA
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
GrundarQ örður:
Bami bjarg--
að úr tjörn
ÞYRLA Landhelgísgæslunnar
fór í sjúkraflug til GrundarQarð-
ar um miðjan dag í gær. Þangað
sótti hún eins og hálfs árs gaml-
an dreng sem naumlega hafði
verið bjargað frá drukknun.
Skammt frá heimili drengsins er
lítil tjöm sem notuð er sem skauta-
svell á vetrum. Hafði hann dottið
ofan í tjömina en hún mun vera
mjög grann. Er þyrlan kom á stað-
inn hafði tekist að blása lífi f bam-
ið og var það fiutt á Landspítalann
í Reykjavík.
Drengurinn liggur nú á gjör-
gæsludeild og var líðan hans óljós
síðast er fréttist.
Ólafur Ragnar
Grímsson Qármála-
ráðherra
Vextir af
ríkisskulda-
bréfum
skattfijálsir
ÓLAFUR Ragnar Grímsson
Qármálaráðherra sagði á mið-
stjórnarfúndi Alþýðubanda-
lagsins, að hann legði til að
vextir af ríkisskuldabréfúm
yrðu undanþegnir tekjuskatti,
en aðrar vaxtatekjur ekki.
Ríkisstjómin hefur lýst þvi yfir
að skattleggja beri fjármagnstekj-
ur eins og aðrar tekjur. Ummæli
fjármálaráðherra komu fram er
hann svaraði fyrirspumum um
aðgerðir gegn gráa markaðnum
svonefnda.
Frá vettvangi á Breiðholtsbraut.
Reykjavík:
Morgunblaðið/Júlíus
148 ölvaðir ökumenn hafa
lent í umferðaróhöppum í ár
ÖLVAÐUR ökumaður velti stolnum Bronco-jeppa á Breiðholts-
braut um miðjan sunnudag. Maðurinn hafði nóttina áður brotist
inn á bílasölu og stolið þar lyklum að bílnum. Hann slapp ómeidd-
ur en verulegt tjón varð á jeppanum. Þetta var 21. ökumaður-
inn, grunaður um ölvun, sem ienti í umferðaróhappi í nóvember-
mánuði og hafa 148 slíkir lent í umferðaróhöppum í borginni á
þessu ári.
Lögreglan í Reykjavík kærði
19 ökumenn fyrir ölvunarakstur
um helgina. 5 þeirra lentu í óhöpp-
um og einn féll í hendur lögreglu
þegar hann var stöðvaður og
kærður fyrir að aka bíl sínum
með 112 kílómetra hraða.
Fyrstu 10 mánuði ársins kærði
lögregian í Reykjavík 794 öku-
menn fyrir ölvun við akstur. Árið
1987 höfðu 927 verið kærðir eftir
10 mánuði. Hins vegar hefur þeim
sem lenda ölvaðir í óhöppum fjölg-
að. Fyrstu ellefu mánuði ársins í
fyrra vora þeir 141 en era nú
148, eins og áður sagði. með
Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn kvaðst
telja að þótt kærðum ökumönnum
hefði fækkað þýddi það ekki endi-
lega að minna væri um ölvuna-
rakstur en áður. Mismuninn milli
ára mætti til dæmis skýra
því að fjárveitingum til lögregl-
unnar hefði verið sniðinn þröngur
stakkur og yfírvinna hefði verið
skorin niður. Útköllum og hjálpar-
beiðnum hafi hins vegar ekki
fækkað og því sé óhjákvæmilegt
að skerðingin bitni að hluta á
umferðareftirliti lögreglunnar.
Ómar sagðist hins vegar vona að
hluti skýringarinnar væri að áróð-
ur gegn ölvunarakstri undanfama
mánuði hefði borið einhvem
árangur.
Unnið að hreinsun dilkakjöts.
Nýtt búvöruverð á fimmtudag:
V er ðlagsgrundvöll-
ur hækkar um 2-3%
NYTT verð búvara á að taka gildi á fimmtudag. Sexmannanefiid
hefúr iokið verðlagningu til bænda og hafa ákvarðanir nefndarinnar
í fór með sér 2,2 til 3,2% hækkun á verði mjólkur og kjöts til bænda.
Aðalástæða hækkunar til bænda
nú um mánaðamótin er 15% hækk-
un innflutts kjamfóðurs. Verðlags-
grundvöllur sauðflárbús hækkar
um 1,9% sem hefur í för með sér
um 2,2% hækkun á því verði sem
bændur fá fyrir kjötið. Grandvöllur
kúabús hækkar um rúmlega 3,2%
-og kemur sú hækkun fram í mjólk-
inni.
Fimmmannanefnd á eftir að
ákvarða heildsöluverð búvara. Þá
liggur ekki endanlega fyrir hvort
ríkissjóður greiðir þessar hækkanir
niður að fullu þannig að útsöluverð
búvaranna haldist óbreytt þrátt fyr-
ir þessar hækkanir á framleiðslu-
kostnaði.
Loðnuveiðarnar:
Skipin fá stórhveli í
nótina á hverri nóttu
„ÞAÐ er óhætt að segja það, að
hvalagengdin á loðnumiðunum
hefiir gert okkur mjög erfitt fyrir
og valdið umtalsverðum skaða.
Það líður varla sú nótt að eitt-
hvert skipið fái ekki hvali í nótina
og oftast nær rífa þeir hana, þeg-
ar þeir bijótast út. Mikið er af
hnúfúbak svo og öðrum tegundum
og hefúr þeim greinilega Qöfgað
mikið síðustu árin,“ sagði Hinrik
Þórarinsson, skipstjóri á loðnu-
skipinu Dagfara, í samtali við
Morgunblaðið.
„Við höfum þrívegis orðið fyrir
þessum óskunda. Einu sinni fengum
við einn hval í nótina og hann komst
ekki út. Við urðum að þurrka að
honum og hleypa honum síðan út
við síðuna. Það var hnúfubakur og
eitthvað var hann slapþur eftir þess:
ar æfíngar, en kom sér þó á burt. f
tvö önnur skipti fengum við tvo hvali
í nótina og þeir rifu í bæði skiptin.
í öðru tilfellinu var þetta miklu
stærri hvalur en hnúfubakurinn og
rann hann alveg fyrirhafnarlaust í
gegnum nótina. Það hefur líklega
verið búrhvalur. Við köstum bara f
myrkri og því er erfítt að sjá hvalina
fyrr en þeir eru komnir inn í nótina,
en á daginn, þegar loðnan dýpkar á
sér, hverfur hvalurinn," sagði Hinrik.
Hann sagði, að fyrir tæpum fímm
árum hefði varla sézt hvalur við
loðnuveiðamar nema alveg norður
undir miðlínu. Nú væri hann kominn
í miklum mæli upp undir land að
segja mætti og á þeim slóðum hefðu
stórhvelin ekki sézt lengi. Hvalnum
hefði því greinilega fjölgað og sam-
keppnin við loðnuna um átuna væri
greinilega mikil. Að auki virtist það
augljóst að hvalurinn æti loðnuna
með átunni. „Við eigum í vaxandi
samkeppni við stórhvelin," sagði Hin-
rik.
Borgames:
Fyrsti spírínn
Borgarnesi.
Mjólkursamlagið í Borgar-
nesi fékk í gærdag fyrstu send-
inguna af spíra sem nota á við
átöppun á Icy-vodka. Um var
að ræða tæplega 20:000 lítra.
Komu þeir með tankgám til
Borgarnes og var hellt yfir á
geymslutank.
Nú er allt tilbúið til átöppunar
á vodkanu. I vikunni verður gerð
tilraunaátöppun með vatni og ef
hún gengur að óskum fer fram-
leiðslan í fullan gang. Reiknað er
með að þegar framleiðslan verður
komin á fullt muni um 14.000
lítrar af spíra verða notaðir á viku.
T.D.K.