Morgunblaðið - 01.12.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
Endurminningar
Huldu Jakobsdóttur
HJÁ Almenna bókaféiaginu er
komin út bókin Við byggðum
nýjan bæ, endurminningar Huidu
Jakobsdóttur skráðar af Gylfa
Gröndai.
I fréttatilkynningu AB segir
m.a.: „Bók þessi er mikilvægt inn-
legg í kvenréttindabaráttuna. Hún
segir sögu konu sem gengur fram
fyrir skjöldu — ekki til þess að verða
mikil í augum fólksins heldur voru
það málefni og verkefnin sem
knúðu hana áfram. Hulda Jakobs-
dóttir er nú öldruð kona, en það
er ekki lítið, sem eftir hana liggur
á opinberum vettvangi.
Hulda var, ásamt eiginmanni
sínum, Finnboga Rút Valdemars-
syni, í forystu fyrir Framfarafélag-
inu í Kópavogi, en þessi þrenning
er höfundur Kópavogs. Þau hjónin
tóku á leigu spildu í Digranesinu,
komu þar upp skúr, svo að Hulda
gæti sinnt sinni garðrækt. Eitt
leiddi af öðru og nú er þessi skúr
eldhús í myndarlegu húsi. Þetta
sama eldhús varð einnig fyrsta
bæjarskrifstofa Kópavogs, þar varð
Finnbogi fyrsti bæjarstjóri og Hulda
tók við af honum og varð þar með
fyrst íslenskra kvenna til að gegna
slíku starfi."
Bókin er 213 blaðsíður að stærð.
Filmuvinnu, prentun og bókband
annaðist Prentsmiðjan Oddi hf.
Guðjón Ingi Hauksson hannaði
kápu.
Anna í Grænuhlíð
í flórða sinn
BÓKIN Anna í Grænuhlíð eftir
Lucy Maud Montgomery er kom-
in út í fjórða sinn hjá Máli og
menningu í þýðingu Axels Guð-
mundssonar.
I kynningu Máls og menningar
segir: „Anna er munaðarlaus stúlka
sem er tekin í fóstur í Grænuhlíð
af gömlum systkinum. Hún er full
uppátektarsöm og hugmyndarík að
þeirra áliti en ekki líður á löngu
uns þau g'á ekki sólina fyrir fjör-
kálfinum Onnu því jafnframt er hún
skynsöm og hjartahlý.
Bókin er 190 síður og gefin út
bæði innbundin og í kiljuformi í
flokknum MM UNG. Brian Pilking-
ton teiknaði og hannaði kápu.
Land minna mæðra
Ljóðabók eftir Gunnar Dal
VÍKÚRÚTGÁFAN hefiir gefið
út Ijóðabókina „Land minna
mæðra“ eftir Gunnar Dal. Gunn-
ar hefúr gefið út 40 bækur á
skáldskaparferli sinum; ljóð,
skáldsögur og heimspekirit með-
al annars.
„Það er í raun og veru ekkert
eitt viðfangsefni í þessari bók,“
sagði Gunnar Dal í samtali við
Morgunblaðið. „Ljóð eru verk út
af fyrir sig, eitt ljóð tengist ekki
öðrum ljóðum, þau eru öll sérstakt
verk fyrir sig. Nafn bókarinnar er
dregið af fyrsta ljóðinu, sem er um
stöðu íslenzku konunnar í gegnum
tíðina. Það er skoðun mín að konan
hafi bjargað þjóðinni, saga íslands
er miklu ljótari en komið hefur
fram. Saga íslenzku þjóðarinnar
hefur aldrei verið skrifuð, heldur
bara biskupa og oddvita hins ver-
aldlega valds, sem lifðu ekki eins
og þjóðin. í raun hefur aldrei verið
skrifað neitt af viti um Islandssögu
sem sagnfræði, líklega er það ekki
hægt,“ sagði Gunnar Dal.
Þetta er fertugasta bók Gunnars
og tíunda ljóðabókin fyrir utan þijú
ljóðasöfn og tvær þýðingar. Þekkt-
asta bók hans er Spámaðurinn, sem
hefur verið gefinn út átta sinnum
og er þýðing eftir bandaríska skáld-
ið Khalil Gibran. Þessi bók, Land
minna mæðra, geymir 22 ljóð af
ýmsum toga spunnin. Bókin er 62
Gunnar Dal
blaðsíður, unnin í Prentsmiðju Árna
Valdemarssonar hf. Kápu teiknaði
Kristján Jóhannsson.
Gunnar Dal er 65 ára að aldri
og las heimspeki í þremur þjóðlönd-
um, Skotlandi, Bandaríkjunum og
Indlandi. Hann hefur stundað
kennslu samhliða ritstörfunum og
tekið mikinn þátt í félagsmálum.
TVEIR MilSTARAR ORÐSINS
Sigurður A. Magnússon
••
ÆVIOGSTARF
Trúarkraftur og orðsnilld séra Sigurbjöms
Einarssonar biskups hefur látíð fáa
íslendinga ósnortna. Að baki þessa meistara
orðsins liggur svipvindasamur og fjölþættur
æviferill, sem Sigurður A. Magnússon
bregður hér ljósi á.
Æviskeið séra Sigurbjöms hefur legið um
kröpp kjör bemskuára í Meðallandi, erfið
námsár í Reykjavík og Uppsölum,
prestskaparár á Skógarströnd og í
Reykjavík, kennsluár í Háskóla íslands og
langan embættisferil á biskupsstóli. Inn í þá
fjölskrúðugu sögu fléttast þættir úr
þjóðvamarbaráttunni og baráttunni fyrir
endurreisn Skálholtsstaðar.
Höfundur bregður upp sérlega ljósri og
blæbrigðaríkri mynd af séra Sigurbimi í þeim
margvíslegu hlutverkum, sem hann hefur
gegnt og bregður um leið birtu yfir marga
málsmetandi samferðamenn hans.
í bókinni em yfir 100 ljósmyndir.
0
TVEIR FULLTRÚAR HEIMSBÓKMENNTANNA
ÍSAAC
BASHEVIS
SINGER
IOFOR
SltTTUNFlAR
Nóbelsverðlaunahafinn
Isaac Bashevis Singer:
JÖFUR SIÉTTUNNAR
Sagan gerist á löngu liðnum tímum á söguslóðum
þar sem fólk er að feta sig út úr myrkviði hjátrúar,
fáfræði og fmmstæðra lifnaðarhátta. í heimi þess
togast á lágar hvatir og háleit markmið. Þessi nýja
saga Singers ersjöunda bók hans, sem Hjörtur
Pálsson hefur þýtt. JÖFUR SLÍTrUNNAR
staðfestir eftirfarandi ummæli bandaríska
stórblaðsins NEW YORK TIMES: „Singer er
höfundur, sem skrifar í anda hinnar miklu
frásagnarhefðar. Þar er mitt á meðal vor ósvikinn
listamaður, sem á erindi að gegna í bókmenntununú.
Verðlaunahafi Norðurlandaráðs
AnttiTuuri:
VETRARSTRÍÐID
Bókin segir frá því hvernig óbreyttur hermaður upp-
lifir hinn skelfilega hildarleik þegar finnska þjóðin
þurfti að verjast innrás sovétmanna veturinn 1939-40.
Vetrarstríðið stóð einungis í 105 sólarhringa, en er ein-
hver mannskæðasta og grimmilegasta orrahríð, sem háð
hefur verið. Sagan sýnir á áhrifamikinn hátt æðruleysi
þess manns, er leysir af hendi það hlutverk, sem
honum er ætlað áð gegna í þágu föðurlandsins, en að
vísu er ekki laust við að kaldhæðni og beiskju gæti
stundum frammi fyrir yfirþyrmandi ofurefli.
Þýðandi sögunnar er Njörður P. Njarðvík.
SETBERG