Morgunblaðið - 01.12.1988, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
Hestunum att
Á Filippseyjum tíðkast það enn í afskekktum byggðum að etja hestum
en annars staðar hefur það verið lagt af og þykir ekki fínt. Hér á
landi var hestaat mikil íþrótt alveg fram á 13. öld og jafnvel lengur
og eitt það síðasta var þegar þeir öttu saman hestum sínum Sveinn ríki
á Ulugastöðum og Sigmundur á Garðsá árið 1623. Gátu hestavígin
stundum dregið mikinn dilk á eftir sér eins og kunnugt er af íslend-
inga sögum. Myndin er frá hestavígi í þorpi ekki alllangt frá Manila,
höfuðborg Filippseyja.
Yasser Arafat neitað um vegabréfsáritim til Bandaríkjanna:
Bandaríkjamenn hafiia
áskorun lagane&dar SÞ
Málefiai Palestínumanna að líkindum rædd í Genf
Samcinuðu þjóðunum, London. Reuter.
LAGANEFD allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær
ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld í Bandaríkjunum að veita
Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu (PLO), vegabréfsá-
ritun til Bandaríkjanna. George Shiiltz lýsti yfír því í gær að af-
staða bandarískra stjórnvalda væri óbreytt. Þegar er tekið að vinna
að því að umræður um málefhi Palestinumanna verði fluttar til
Genfar í Sviss til að Arafat geti ávarpað allsheijarþingið.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kunngerði á laugar-
dag að Arafat yrði ekki veitt vega-
bréfsáritun til Bandaríkjanna til að
ávarpa allsherjarþingið í New York
en stjómvöld í Bandaríkjunum telja
PLO til hryðjuverkasamtaka.
Laganefndin samþykkti ályktun-
ina í gær með 121 atkvæði gegn
atkvæðum Bandaríkjamanna og
ísraela en Bretar sátu hjá. í henni
segir að afstaða bandarískra ráða-
manna brjóti í bága við stofnskrá
Sameinuðu þjóðanna þar sem skýrt
sé kveðið á um gestgjafaskyldur
Bandaríkjamanna. Minnt er á að
Frelsissamtökum Palestínu hafí
verið boðið að senda áheyrnarfull-
trúa til að taka þátt í störfum alls-
herjarþingsins og vitnað til ályktun-
ar númer 3237 frá því í nóvember
árið 1974. Eru Bandaríkjamenn
hvattir til að virða ákvæði þessi og
falla frá fyrri ákvörðunum. Þá er
þess farið á leit við framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna að hann
skili skýrslu um málið "í þessum
mánuði.
Fulltrúar Arabaríkja, sem lögðu
fram ályktunina, sögðu í gær að
stjómvöldum í Bandaríkjunum yrði
gefínn eins til tveggja daga frestur
til að svara ákalli þessu en síðan
yrði lagt til að viðræður um mál-
efni Palestínumanna yrðu fluttar
til Genfar. Töldu heimildarmenn
Eeuters-fréttastofunnar víst að til-
lagan yrði samþykkt með þorra
atkvæða. Síðdegis í gær sagði Ge-
orge Shultz að stjómvöld hefðu
ekki í hyggju að breyta um skoðun
í málinu þrátt fyrir að ákvörðun
þeirra hefði sætt mikilli gagnrýni
víða um heim. Kvaðst ráðherrann
hafa tekið ákvörðun þessa fyrir
hönd Bandaríkjastjómar og sagði
viðbrögðin sýna að fólki hætti til
að gleyma hryllingsverkum hryðju-
verkamanna.
Yfírvöld í Sviss hafa fram til
þessa aldrei neitað Arafat um leyfí
til að koma inn í landið en Evrópu-
skrifstofur Sameinuðu þjóðanna eru
í Genf. Verði umræður fluttar þang-
að er talið líklegt að Arafat flytji
ávarp sitt þann 13. til 15. þessa
mánaðar. Hyggst hann skýra frá
niðurstöðum fundar Þjóðarráðs Pal-
estínu sem haldinn var í Alsír í
síðasta mánuði en þar var sam-
þykkt að lýsa yfir stofnun sjálf-
stæðs ríkis Palestínumanna á
hemámssvæðum ísraels.
Sameiginlegar varnir NATO:
Leysist deila um
kostnaðarskiptingu?
Brussel. Reuter.
Mmi i 1
Metsölublað á hvetjum degi! I
Kraftmikill smábíll
með ótrúlegt rými
• 1000 cc4ra strokka
vél.
• Beinskiptur4ra -
5 gíra.
i Framhjóladrifinn
að sjálfsögðu.
i Eyðslugrannur mcð
afbrigðum.
• 3ja ára ábyrgð.
Betri smábíll finnst
varla. Greiðslukjör við
allra hœfi. -25% útb.
eftirstöðvar á 2 U2 ári.
REYNT verður að eyða ágreiningi, sem verið hefúr milli Banda-
rikjanna annars vegar og NATO-ríkja í Evrópu hins vegar, um þátt-
töku í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins á haustfundi
varnaráætlananefndar bandalagsins í dag og á morgun.
Á fundinum munu vamarmála-
ráðherrar NATO ræða um skýrslu
um hlutdeild hvers aðildarríkis í
sameiginlegum vömum bandalags-
ins. Þar er því haldið fram að ekki
sé réttlætanlegt að mæla hlutdeild
Evrópuríkjanna með því einu að líta
á fjárframlög þeirra. Einnig verði
að meta ómælanlegt framlag og
félagslegan kostnað sem af því
hljótist að hafa hersveitir í Evrópu-
löndunum og heræfingar þar.
Vonast er til að ágreiningur um
kostnaðarskiptinguna verði jafnað-
ur á fundinum. Talið er að ákvörð-
un aðildarríkjanna um að taka þátt
í kostnaði Bandaríkjamanna við
flutning 72 bandarískra F-16 orr-
ustu- og sprengjuflugvéla frá Spáni
til Ítalíu muni stuðla að sáttum.
Evrópuríkin hafa samþykkt að
leggja fram 320 milljónir dollara
vegna flutnings flugvélanna frá
Torrejon-flugstöðinni við Madríd til
Ítalíu.
Á fundi varnaráætlunamefndar-
innar mun Frank Carlucci, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
draga saman þann árangur, sem
orðið hefur af framkvæmd varnar-
stefnu stjómar Ronalds Reagans,
forseta, en átta ára valdatíma for-
setans lýkur í janúar.
Einnig verður ákveðið hver þátt-
taka Spánveija verður í varnarsam-
vinnu NATO-ríkjanna og loks verða
framlög í mannvirkjasjóð NATO
vegna framkvæmda á ámnum 1991
og 1992 ákveðin.
Sjávarútvegsráðherrar EB-ríkja:
Akvörðunum um
veiðiheimildir frestað
Brussel. Frá Kristófer M. Knstmssym, fréttantara Morgunblaðsins.
Sjávarúvegsráðherrar Evrópubandalagsins samþykktu á fundi á
mánudag viðmiðunarverð á fisld fyrir árið 1989. Ákvörðunum um veiði-
heimildir og skiptingu þeirra á milli aðildarríkjanna var hins vegar
frestað til ráðherrafundar sem verður haldinn 9.-11. desember nk.
Viðmiðunarverðið er næsta lítið
breytt frá verði þessa árs, mestar
eru breytingamar á síldarverði sem
lækkar um 11% í ágúst og septem-
ber, en aðra mánuði ársins um 2%
frá verðlagi þessa árs. Sömuleiðis
var ákveðin umtalsverð lækkun á
smokkfiski eða 14% að meðaltali.
Ágreiningur varð um 2% verðlækkun
á sardínum og verðið var afgreitt
með atkvæðagreiðslu, Grikkir og
Frakkar greiddu atkvæði á móti.
Tillögur framkvæmdastjómarinn-
ar um veiðiheimildir fyrir næsta ár
lágu ekki fyrir í byijun fundarins
utan aflamörk við Grænland og á
Norðvestur-Atlantshafssvæðinu, en
á því hefur EB ákveðið einhliða veiði-
heimildir fískiskipa sinna. Veiði-
heimildir innan lögsögu aðildarríkj-
anna hafa ekki verið ákveðnar og
sama gildir um heimildir í Norð-
ursjó. Reiknað er með því að veiði-
heimildir breytist lítið frá þessu ári
með þeirri undantekningu að búist
er við umtalsverðum niðurskurði í
Norðursjó og almennt á þorskfisk-
um. Ráðherramir samþykktu á
fundinum að bjóða Stanley Clinton
Davis, sem fer með umhverfismál í
framkvæmdastjóminni, á næsta
fund til að ljalla ítarlega um áhrif
mengunar í Norðursjó og Eystra-
salti á fiskveiðar á þeim slóðum.
Ráðherramir veittu framkvæmda-
stjóminni umboð til að halda áfram
samningaviðræðum við Sovétríkin
vegna mögulegra samskipta á sviði
fiskveiða, EB hefur áhuga á veiði-
heimildum í Eystrasalti en ljóst er
að Sovétmenn láta ekki þar við sitja
en munu vilja fá eitthvað fyrir snúð
sinn.