Morgunblaðið - 01.12.1988, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
Unnið fímm daga vik-
unnar hjá Alafossi
FIMM daga vinnuvika hefst að nýju hjá Álafossi á mánudag, en
vinnuvikan hefur verið þrír dagar síðan um miðjan nóvember
vegna verkefiiaskorts. Aðalsteinn Helgason aðstoðarforsljóri Ála-
foss sagði í samtali við Morgunblaðið að tekist hefði viðbótarsamn-
ingur við Sovéska samvinnusambandið sem uppfylla þyrfti og því
hefði verið ákveðið að setja starfsfólk á fulla vinnuviku að nýju.
Sovéska samvinnusambandið pantaði 13.000 peysur til viðbótar
við það magn sem það áður hafði samið um.
Aðalsteinn.
Að öllum líkindum helst vinna
fimm daga vikunnar fram að ára-
mótum og má þá búast við að
farið verði að framleiða upp í
samninga næsta árs.
Nýbygging Dags við Strandgötu.
Þeir Jón Sigurðarson forstjóri
Álafoss og Valur Arnþórsson
stjómarformaður SÍS og kaup-
félagsstjóri KEA erú nú staddir í
Moskvu. Þeir koma heim um helg-
ina án þess að samið hafi verið
um viðskipti næsta árs við Sovét-
menn. „Samningaviðræðurnar
byija ekki af alvöru fyrr en í fyrsta
lagi í desember og venjulega hafa
viðræður dregist fram í janúar.
Þeir Valur og Jón eru að kanna
ýmsa nýja möguleika í Sovétríkj-
unum og einnig er Valur að kveðja
Sovéska samvinnusambandið, sem
hann hefur átt mjög vinsamleg
samskipti við í sinni tíð sem stjórn-
arformaður Sambandsins,“ sagði
Starfsmönnum feekkað
á Degi og Dagsprenti
Híbýli lif,;
Ný pússning á markað
HIBYLI hf. hefiir gerst umboðs-
aðili fyrir svokallaða Knauf-
gipspússningu. Pússningin
verður kynnt í einni af þeim
íbúðum, sem Híbýli byggir fyrir
aldraða við Víðilund, í dag og
á morgun.
Að sögn Harðar Túliníusar hef-
ur nýja pússningin töluverðan
vinnuspamað í för með sér auk
þess sem vinnan er léttari en
tíðkast hefur. Pússningin hentar á
loft og veggi innandyra hvort sem
er í íbúðum eða stærri byggingum,
í nýbyggingum og til endurnýjun-
ar, en þó ekki í herbergi sem eru
stöðugt rök. Pússningin er dönsk
og hefur verið á markaði í
Reykjavík í þijú ár á vegum
BYKO. Híbýli verður umboðsaðili
norðanlands. Tveir fulltrúar frá
danska framleiðandanum kynna
pússninguna í íbúðinni við Víði-
lund.
ALLT starfsfólk Dags og Dagsprents hefúr verið endurráðið nema
Qórir, þar af tveir starfsmenn ritstjórnar Dags og tveir starfs-
menn Dagsprents, sem láta munu af störfúm. Að sögn Jóhanns
Karls Sigurðssonar framkvæmdastjóra er þetta liður í aðhaldsað-
gerðum fyrirtækjanna, en samkvæmt tíu mánaða uppgjöri þeirra
er milljóna króna halli á þeim báðum.
Hjá fyrirtækjunum samanlagt yrði síðum fækkað niður í tólf að
unnu 56 starfsmenn í sumar með
sumarafleysingafólki og eftir
fækkunina fara starfsmenn niður
í 42. Alls hefur níu manns verið
sagt upp störfum hjá fyrirtækjun-
um tveimur síðan í haust. í bígerð
er jafnframt að minnka dagblaðið
Dag, upp úr áramótunum. Venju-
lega er Dagur 16 blaðsíður og
hefur fjöldi síðna farið upp í 20.
Jóhann Karl sagði að væntanlega
staðaldri.
Jóhann sagði að óvíst væri um
frekari uppsagnir starfsfólks. „Við
vonum að þær aðgerðir, sem þeg-
ar hafa verið gerðar, dugi til þess
að fyrirtækin verði rekin á núllinu,
svo framarlega sem tekjur rýrna
ekki miklu meira en þegar er orð-
ið. Samhliða uppsögnum höfum
við tekið upp hert aðhald á öllum
sviðum og breytt vaktafyrirkomu-
lagi,“ sagði Jóhann Karl.
Öllu starfsfólki Dags og Dags-
prents var sagt upp störfum frá
og með 1. nóvémber sl. vegna
hagræðingarátaks. Þá lét stjórn-
arformaðurinn Valur Arnþórsson
jafnframt hafa eftir sér að mein-
ingin væri að endurráða sem
flesta, en þó á breyttum forsend-
Leggja á Blönduósskrifstofu
Dags niður, en þar hefur blaða-
maður verið starfandi í nokkurn
tíma. Auk hans mun annar blaða-
maður af ritstjórn Dags á Akur-
eyri láta af störfum.
Afengiskaup Magnúsar Thoroddsen hæstaréttardómara:
Ovíst hvort höfðað verður
opinbert mál eða einkamál
TILLAGA Halldórs Ásgrímssonar, dómsmálaráðherra, um að
forseti íslands veiti Magnúsi Thoroddsen lausn frá embætti hæsta-
réttardómara um stundarsakir, verður kynnt á ríkisstjórnarfúndi
í dag. Síðan tekur forseti ákvörðun um hvort fallist verður á til-
lögu ráðherra. Ekki er Ijóst hvort farið verður með mál Magnús-
ar sem opinbert mál eða einkamál, að því er Þorsteinn Geirsson,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir. Magnús Thorodds-
en neitaði að tjá sig um hvorn kostinn hann teldi líklegri og
vísaði til ráðherra.
Ef forsetinn samþykkir tillögu
ráðherra ritar hann nafn sitt á
sérstakt lausnarbréf, sem dóms-
málaráðherra undirritar einnig.
Ekki hefur verið ákveðið hvemig
hugsanlegt mál verður rekið.
Möguleikamir em tveir, annars
vegar að dómsmálaráðherra höfði
einkamál á hendur Magnúsi til
embættismissis og yrði málið þá
rekið fyrir borgardómi. Þá er
málið að líkindum heimfært með
lögjöfnun undir 35. grein laga um
meðferð einkamála. Þar segir
m.a. að ef dómari hefur að áliti
ráðherra rýrt svo álit sitt siðferðis-
lega, að hann megi ekki lengur
gegna dómaraembætti, víki ráð-
herra honum úr embætti um
stundarsakir, en skuli síðan höfða
mál á hendur honum til embættis-
missis. Grein þessi á að vísu við
um dómara í héraði, en þar sem
engin sambærileg ákvæði er að
finna í lögum um hæstaréttar-
dómara er talið líklegt að lögjafn-
að verði út frá þessu ákvæði.
Bentu viðmælendur Morgunblaðs-
ins á, að ekki væri hægt að gera
minni kröfur til hæstaréttardóm-
ara en dómara í héraði. í þessu
tilviki er talið eðlilegt að ríkislög-
maður fari með málið fyrir hönd
ráðherra.
Víkja dómarar
Hæstaréttar sæti?
Annar möguleiki er sá, að ríkis-
saksóknari höfði opinbert mál á
hendur Magnúsi. Er í því sam-
bandi vísað til 139. greinar al-
mennra hegningarlaga, sem fjall-
ar um misnotkun opinbers starfs-
manns á stöðu sinni sér eða öðrum
til ávinnings eða lil þess að gera
nokkuð það, sem halli réttindum
einstakra manna eða hins opin-
bera.
En hvort sem höfðað verður
einkamál eða opinbert mál er sá
möguleiki fyrir hendi að héraðs-
dómi verði áfrýjað til Hæstarétt-
ar. Þá kemur upp sú spurning
hvort núverandi starfsfélagar
Magnúsar í Hæstarétti dæmi í
málinu þar. Það þykir ekki líklegt,
enda eru fordæmi fyrir því að
dómarar í Hæstarétti hafi vikið
sæti þegar íjallað er um mál
starfsfélaga þeirra. Sú var a.m.k.
raunin í tveimur meiðyrðamálum,
sem hæstaréttardómarar höfð-
uðu. Annar þeirra hafði þá að
vísu látið af embætti, en hinn sat
í réttinum. í báðum tilvikum voru
aðrir menn kallaðir til dómara-
starfa.
Enginn tekjuskattur af
launum handhafa
forsetavalds
Handhafar forsetavalds, þ.e.
forseti Hæstaréttar, forsætisráð-
herra og forseti sameinaðs Al-
þingis, fá samanlagt sömu laun
og forsetinn, meðan þeir gegna
starfanum. Launin skiptast að
jöfnu milli þeirra. Auk þess fá
þeir greiddan útlagðan kostnað
vegna starfans. Forseti Islands
greiðir engan tekjuskatt eða
eignaskatt. En hvernig er því
háttað með handhafa forseta-
valds? í grein, sem Jónatan Þór-
mundsson, prófessor, ritaði í tíma-
rit lögfræðinga í júní 1982 segir:
„Handhafar forsetavalds eru
hvergi í lögum beinlínis undan-
þegnir skattskyldu. Verður því að
skýra ákvæðin um skattfrelsi for-
setans þröngt varðandi þá. Þeir
munu vera framtalsskyldir eftir
venjulegum reglum, en litið hefur
verið svo á í framkvæmd að laun
þeirra vegna forsetastarfans séu
skattfijáls með sama hætti og
laun forseta. Hins vegar njóta
þeir vart skattfrelsis að öðru
leyti." I Stjórnskipum íslands eft-
ir Ólaf Jóhannesson er aðeins
minnst á, að laun handhafa for-
setavalds séu undanþegin skött-
um með sama hætti og forsetans,
en ekki er fjallað um skattleysi
að öðru leyti.
Varðandi kaup á áfengi á
kostnaðarverði hefur þvi' verið
haldið fram að um viss fríðindi
sé að ræða. Samkvæmt upplýs-
ingum Gests Steinþórssonar,
skattstjóra í Reykjavík, gilda tvær
meginreglur um slík fríðindi.
„Önnur reglan er sú að öll hlunn-
indi eru skattskyld," sagði Gest-
ur. „Hin er sú að risna, dagpen-
ingar og fleira í þeim dúr er ekki
skattskylt ef um er að ræða end-
urgreiðslu á kostnaði sem lagður
er út fyrir vinnuveitanda."
Gestur var inntur eftir því hvort
honum væri kunnugt um að kaup
á áfengi á kostnaðarverði hefðu
verið talin fram til skatts. „Ég
þekki það ekki,“ svaraði hann.
„Það er í hendi ríkisskattstjóra
að meta slík hlunnindi og setja
reglur um þau.“
Garðar Valdimarsson, ríkis-
skattstjóri, sagði að ekki hefði
reynt á það hvemig kaup á áfengi
á kostnaðarverði væru afgreidd
skattalega og engar sérstakar
reglur væru það. „Ég tel ótíma-
bært að tjá mig um þetta ákveðna
mál hæstaréttardómarans, þar
sem það fer væntanlega fyrir
dómstóla," sagði hann. Þá sagði
Garðar einnig að það hvort önnur
fríðindi forseta ættu við um hand-
hafa forsetavalds kæmi ekki til
kasta ríkisskattstjóra. „Það sem
að mínu embætti snýr er fram-
kvæmd á þeim ákvæðum sem eru
í tekjuskattslögum og tekjustofns-
lögum. Fjármálaráðuneytið hefur
hins vegar með óbeina skatta að
gera,“ sagði Garðar.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, sagði í gærkvöldi
að hann hefði fengið í hendur
yfirlit um kaup handhafa forseta-
valds á áfengi á kostnaðarverði
undanfarin ár. Ráðherra sagðist
ekki hafa haft tíma til að kynna
sér skýrsluna, en sér virtist fljótt
á litið sem enginn hefði keypt
áfengi í líkingu við það magn sem
forseti Hæstaréttar festi kaup á.
Röskun á störfúm
Hæstaréttar
Störf Hæstaréttar röskuðust
lítillega þegar mál Magnúsar
Thoroddsen kom upp. Þannig féll
niður málflutningur á mánudag,
þegar dómarar funduðu um málið.
Hins vegar getur bað haft frekari
röskun í för með sér, verði Magn-
ús leystur frá embætti. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins verður til dæmis að endurtaka
málflutning í þeim málum, sem
Magnús sat sem dómari í og
ódæmd eru. Þá er líklegt að sett-
ur verði dómari í hans stað. Þeir
sem Morgunblaðið leituðu til
vegna þessa í gær færðust þó
undan því að ræða mál Hæstarétt-
ar, þar sem Magnúsi hefur ekki
verið vikið úr embætti.