Morgunblaðið - 01.12.1988, Qupperneq 55
55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
neitt veður út af þessu. Sama sagði
svo ein dætra Oddgeirs við Gunnar.
Ætli þær hafi þarna talað þvert um
hug sinn? Ég veit nefnilega að á
sínum tíma tóku þær mjög nærri
sér hvernig Ólafur Gaukur mis-
þyrmdi laginu.
Vegna þessara nýju viðbragða
þeirra mæðgna fannst mér að ég
hefði verið hafður að fífli og að í
rauninni væri ég að skipta mér af
hlutum sem mér kæmu ekki við.
Það skrýtna er, að fáum dögum
áður hafði þessi dóttir Oddgeirs
sagt mér að hún væri mér innilega
þakklát fyrir að halda uppi vörnum
fyrir lagið. En það er nú einmitt
það, mér finnst mér koma þetta lag
alveg heilmikið við. Ég lærði það
beint af höfundinum og ég veit að
honum var ákaflega annt um lögin
sín og mislíkaði þegar illa var með
þau farið.
Nú er slysið orðið, lagið er kom-
ið út skrumskælt og forljótt og
reyndar furðulegt að það skuli valið
á sjómannalagaplötu. Þetta er ekki
sjómannalag, það var samið fyrir
þjóðhátíðina 1962 og textinn er
ástarljóð. Því miður verð ég að
gefa Gunnari Þórðarsyni þá ein-
kunn að hann sé óvandvirkur útsetj-
ari, hann á að hafa vit og kunnáttu
til að leita beint í smiðju höfundar
en ekki misgóðra útsetjara. Hvernig
skyldi honum líka ef einhver tæki
sig til og breytti einhverri af hans
gullfallegu laglínum á þann veg sem
þeim og hinum sama þætti fara
betur?
Þáttur Ólafs Gauks er og mikill
í þessu máli. Hann gerir sér ekki
grein fyrir að eitt er að útsetja og
annað er að breyta lagi látins
manns. Ólafur Gaukur er að mínu
viti skemmdarvargur í íslenskri
tónlist og þyrfti algerrar endur-
hæfíngar við hvað útsetningar og
meðferð á hugverkum annarra
áhrærir.
Ég tek mjög nærri mér að hafa
þurft að skrifa þessa grein, en nú
er ekki aftur snúið. Sorglegt er að
Sjómannadagsráð og Gunnar
skyldu ekki verða til þess að lagið
fengi þá uppreisn æru sem því ber.
Steinum hf. sendi ég mína samúðar-
kveðju fyrir það að álpast til að
gefa þetta út.
Ellý Vilhjálms, söngkona, er eini
flytjandinn sem farið hefur rétt með
lag þetta á hljómplötu. Hljómplötu-
útgáfan Taktur á þessa hljóðritun.
Eina von mín nú fýrir hönd lagsins
er að það verði endurútgefið í flutn-
ingi Ellýjar.
Höfundur er forstöðumaður og
blokkílautuleikari.
Fyrstu eitt-
hundrað orðin
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu litmyndabókin 100 fyrstu
orðin eftir Edwina Riddell.
Bókin sýnir lítil börn í daglegu
lífi og í kringum þau eru allir
helstu hlutir sem þau þurfa að
læra að þekkja fyrstu árin. Bókin
er bendibók sem ætluð er til að
skoða með bömunum um leið og
þeim er kennt að ná valdi á fyrstu
orðunum.
Bókin er 28 blaðsíður í litum,
prentuð í Hong Kong.
(Fréttatilkynning)
DIM
Starfsmannafélag Kópavogs:
„Nauðungarlögin“
verði aftiumin
„FUNDUR stjórnar og trúnaðar-
manna Starfsmannafélags Kópa-
vogs mótmælir harðlega því
svívirðilega mannréttindabroti
islenskra stjórnvalda að svipta
launafólk samningsrétti sínum og
skerða með því iaunakjör meðal
annars opinberra starfsmanna,“
segir í ályktun sem Morgunblað-
inu hefúr borist.
Ennfremur segir: „Fundarmenn
lýsa furðu sinni og hneykslun á því
að slíkt gerræði sem í þokkabót er
í mikilli andstöðu við lýðræði og al-
menna mannasiði skuli gerast á ís-
landi á árinu 1988. Launafólk í
landinu hefur sýnt stjórnvöldum
ótrúlega þolinmæði og fært fórnir
til að stuðla að lækkun verðbólgu
og stöðugleika í íslensku efna-
hagslífi og það væri einstakur dóna-
skapur að kenna því um hvernig
komið er.
Því skora fundarmenn á stjórn-
völd að koma þegar í stað út úr villu-
þokunni, afnema þessi nauðungarlög
og bæta launafólki það sem svo
ranglega hefur af því verið tekið.“
maconde
/ formen
MAOE m npRTUGAL
Glæsileg herraföt
Vörumerkið tryggir
gæði og bestu snið
Macondeverksmiðjurnar eru meðal stærstu
karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í
Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð.
Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,-
Jakkar kr. 4.995,-
Terelynefrakkar kuldafóðraðir kr. 4.760,-
Úlpur kr. 2.240,- og 3.400,-
Terelynebuxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,- 1.795,-
og 1.995,-
Skyrtur nýkomnar, mikið úrval.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
MHilretti
ai stiqa llfðinu
MEÐHÆLOGSAUMI
Ef þú ert meðal þeirra, sem óttast áhrif vaxandi verðbólgu en veist
ekki hvað þú átt að gera, er mál til komið að fá ráðleggingar og
aðstoð hjá Fjárfestingarfélaginu. Það er óráðlegt að stinga höfðinu
í sandinn og bíða eftir betri tíð.
Þetta á sérstaklega við þá, sem þurfa að geyma peninga í
skemmri tíma, peninga sem ættu að bera háa vexti, en það gera
Skyndibréf Fjárfestingarfélagsins. -
Skyndibréfin bera nafn sitt með rentu! Þeim er ætlað að leysa
vanda þeirra, sem þurfa að ávaxta fé til skamms tíma með
hæstu mögulegum vöxtum. Þessi bréf henta því bæði fyrir-
tækjum og einstaklingum. .—
Skyndibréf eru tilvalin fyrir þá sem þurfa t.d. að geyma og
ávaxta peninga á milli sölu og kaupa á fasteignum.
Skyndibréfin eru sem sagt ætluð til skammtíma fjármála-
lausna. Ávöxtun þeirra er á bilinu 7-9% umfram verð-
bólgu. Skyndibréf eru að jafnaði innleyst samdægurs, -
án innlausnargjalds. Kostir þeirra eru óumdeilanlegir.
FjÁRFESriNGARFÉlAGÐ
Hafnarstræti - Kringlunni- Akureyri
Aðili að Verðbréfaþingi íslands
Hluthafar: Verslunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstððin,
Lífeyrissjóður Verslunarmanna
auk rúmlega 400 fyrirtækja og einstaklinga.
Fjármál þín — sérgrein okkar
. * i txsm mm i s ? w | % wm
"•=. '-'■■3'V„• - . • > <-'•• >"
V1SÍ7RSO