Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 19
Sjónvarpstæki ogönniir
rafeindatæki
Brunar frá sjónvarpstækjum og
öðrum rafeindatækjum fara í vöxt
með auknum fjölda þessara tælq'a á
heimilum. Ráðlegt er að rjúfa straum
að slíkum tælq'um, annað hvort við
tengil eða jafnvel í töflu, ef íbúðin
er skilin eftir mannlaus helgarlangt
eða lengur.
Leikföng
Vemdið bömin. Gefið þeim ekki —
og sjáið til þess að þau leiki sér ekki
með hluti, sem tengjast hærri raf-
spennu en 24 voltum. Um síðustu
áramót kviknaði í rúmi drengs, sem
fengið hafði klemmulampa í jólagjöf.
Drengurinn festi lampann á rúmgafl-
inn hjá sér í 10-15 sm fjarlægð frá
kqddanum. Vísast hér einnig til þess
sem áður var sagt um kastara.
Lokaorð
Sýnið aðgát í umgengni við raf-
magn. Slökkvið á ljósasamstæðum og
öðrum skrautljósum á nóttunni, og
eins ef íbúðin er skilin eftir mannlaus.
Gleðileer iól.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
'‘rfritTr.:vi t ru■■tsvnrm .uiu.v]gurJDriCH
é£
Nú geturðu fengið uppáhalds
sultuna þína í sérstökum
umbúðum með spraututappa.
Þá geturðu fengið þér
mátulega af Mömmusultu og
sprautað henni beint á
vöffluna eða við hliðina á
stórsteikinni!
SULTAN HENNAR
MÖMMU ÞESSI
GÓÐA MEÐ
SPRAUTUNNI!
WBWKXXX&BMHRBMMtKUM
SÖNG- OG PÍANÓBÓK
BARNANNA
Árni Elfar útsetti og valdi lögin.
í þessari sérstæðu bók eru tólf þekkt íslensk lög,
sem allir geta spilað og sungið. Bókin er með
hljómborði, sem hægt er að leika á. Sérstæð og
skemmtilegbók.
LIFANDI
HEIMUR DÝRANNA
Hvernig líta þau út? Hvar eiga þau heima? Bókin
svarar þessum og fjölmörgum öðrum spurningum
á einfaldan og skemmtilegan hátt, með fjörlegum,
fræðandi texta og glæsilegum litmyndum í
hundraðatali.
Þýðing: Óskar Ingimarsson
KIUKKUBÓKIN
Þessi vinsæla bók, sem nú er endurútgefin, á eftir
að auðvelda mörgum ungum lesendum að læra á
klukku. Bókina prýða fallegar myndir, textinn er
einfaldur og síðast en ekki síst eru í bókinni
hreyfanlegir klukkuvísar, sem gera lesturinn enn
skemmtilegri.
^ RobertLudlum:
OVÆNT ENDALOK
Frammi fyrir byssukjöftum ofstækisfullra
hermdarverkamanna bíða 236 konur, karlar og böm
dauðasíns.
Friðsamur öldungadeildarþingmaður bíður fram aðstoð
sína við að leysa þetta skelfilega mál með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum. ÓVÆNT ENDALOK
er bók magnþrungin spennu sem gagntekur lesendur um
heim allan eins og önnur verk ROBERT LUDLUMS.
M Danielle Steel:
ORLAGAÞRÆÐIR
ÁSTARINNAR
Þegar ástin og hamingjan em allsráðandi í lífi
söguhetjunnar Bemie, taka örlögin í taumana. Hann
þarf nú að horfast í augu við nístandi sorg en um leið
heyja baráttu til að halda fjölskyldunni saman. En tekst
honum að sigra?
Að hætti DANIELLE STEEL em ÖRLAG AÞRÆÐIR
ÁSTARINNAR saga mikilla átaka og tilfinninga. Sá
sem les þessa bók, finnur skjótt hvers vegna höfundur
hefur skipað sér á bekk metsöluhöfunda Evrópu og
Ameríku.