Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Ný ljóðabók
eftir Matthías
Johannessen
ÚT ER komin ný ljóðabók eftir Matthías Johannessen — þrett-
ánda ljóðabók skáldsins. Fjögnr ár eru nú liðin frá hans síðustu
Ijóðabók og mun mörgum ljóðaunnandanum finnast það lang-
ur tími miðað við það sem algengast er hér nú. En Matthías
hefur vissulega ekki setið auðum höndum — sent frá sér smá-
sagnasafn og skáldsögu.
Hver ný ljóðabók eftir Matt-
hías Johannessen er bókmennta-
viðburður — enginn neitar því
víst lengur, og ekki þarf að kvíða
því að hin nýja bók, Dagur af
degi, valdi vonbrigðum. Matt-
hías er skáld ftjálsræðis í stíl
og framsetningu, leitar í ýmsar
áttir, og orkar því nýr og fersk-
ur með hverri nýrri bók —
„... góðskáld sem andar öðru
og meira endumærandi lofti“,
eins og breskt skáld og gagnrýn-
andi kemst að orði í ritdómi um
ljóðaúrval eftir Matthías, sem
er nýlega komið út á ensku. Og
um leið stendur hann traustum
fótum í íslenskri bókmenntaarf-
leifð, eins og reyndar flest eða
öll íslensk skáld sem lengst hafa
komist og gera vissulega enn.
Dagur af degi er 133 blaðsíð-
Matthías Johannessen
ur að stærð. Útgefandi er Al-
menna bókafélagið. Félagar í
Ljóðaklúbbi AB fá bókina á sér-
stökum kjörum. Prentvinnslu
annaðist Prentsmiðja Hafnar-
ijarðar hf. Mynd á kápu: Ragna
Ingimundardóttir.
(Úr fréttatilkynningu)
VEÐURHORFUR í DAG, 14. DESEMBER
1988
YFIRLIT I GÆR: Við suðvestur-Grænland er 980 mb lægö sem
hreyfist norður. Um 800 km austur af Nýfundnalandi er vaxandi
lægð sem hreyfist norður. Heldur hlýnar í veðri.
SPÁ: Fram eftir degi verður sunnan hvassviðri og rigning með allt
að 10 stiga hita á landinu. Undir kvöld gengur í suðvestan storm
eða rok með slydduéljum og kólnandi veðri suðvestari lands.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðan- og norðvestanátt og fremur
kalt, einkum fyrir norðan. Víða léttskýjað á suðaustur landi og
Austfjörðum sunnan til en annars él.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og fremur kalt. Víða
léttskýjað.
TÁKN:
Heiðskírt
Alskýjað
S, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# * *
* * * * Snjókoma
* * #
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
tfT Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma htti voúur Akureyri 2 aiskýjað RAvkiavík 2 rinnina
Bergen 4 hágléf
Helsinki 0 snjókoma
Kaupmannah. 6 súld
Narssarssuaq +3 skafrenningur
Nuuk +1 snjókoma
Osló 7 iéttskýjað
Stokkhólmur 0 frostrigning
bnrshnfn 5 fikýjaA
Algarve 16 heiðskírt
Amsterdam 9 alskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Berlín 3 súld
Chicago +1 snjéél
Feneyjar 9 heiðskfrt
Frankfurt 7 skýjað
Glasgow 11 hétfskýjað
Hamborg 6 súld
Las Palmas 20 skýjað
London 9 þokumóða
Los Angeles 11 heiðskirt
Lúxemborg 5 skýjað
Madríd 10 heiðskírt
Malaga 16 skýjað
Mallorca 1» skýjað
Montreal vantar
New York +7 snjókoma
Orlando 6 alskýjað
París 7 skýjað
Róm 13 þokumóða
San Diego 10 mistur
Vin 4 skýjað
Washington +7 alskýjað
Winnipeg +5 skýjað
Lífeyrissj óðirnir:
Ræða óskir Húsnæð-
isstofnunar í dag
FULLTRÚAR hinna tveggja
sambanda lífeyrissjóða hittast á
fundi í dag til að móta afstöðu
sina til óska Húsnæðisstofnunar
um lækkun vaxta á skuldabréf-
um sem stofnunin selur sjóðun-
um.
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sambands almennra
lífeyrissjóða, sagði að ekki hefði
verið boðað til fundar með tals-
mönnum ríkisvaldsins, en hann yrði
væntanlega haldinn síðar í vikunni.
Samböndin hafa skipað menn í und-
imefndir til að ræða vaxtamál og
samband lífeyrissjóðanna og Hús-
næðisstofnunar, en stefnt er að því
að ná samkomulagi fyrir áramót.
Húsnæðisstofnun hefur óskað
eftir því að vextir af skuldabréfun-
um lækki niður í 5%, en þeir eru
nú 7% og eiga að óbreyttu að vera
6,5-6,9% á næsta ári. Hrafn Magn-
ússon sagði að kaup lífeyrissjóð-
anna fyrstu þijá ársfjórðunga þessa
árs næmu rúmum 4,7 milljörðum
króna og stefndu í að verða mikið
yfir 5 milljarða króna á árinu.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Missa ftdltrúa úr þing-
kjörnum stjórnum
Sjálfstæðisflokkurinn missir annan fulltrúa sinn af tveimur í
stjómum Sementsverksmiðju ríkisins og Síldarverksmiðja ríkisins
sem Alþingi kýs á þessu þingi. Flokkurinn hefur haft a.m.k. tvo
menn af flmm í stjórnum þessara fyrirtækja i áratugi. Framsóknar-
flokkurinn missti einnig mann úr sljórn Sildarverksmiðjunnar.
Stjómarandstaðan fær tvo menn
í stjómir þessara fyrirtækja að
þessu sinni. Þar af fær Sjálfstæðis-
flokkurinn annan en Kvennalisti
fékk mann í stjóm Sfldarverksmiðj-
anna, sem kosin er á 3 ára fresti,
og Borgaraflokkurinn fær mann í
stjóm Sementsverksmiðjunnar, sem
kosin er á 4 ára fresti.
Ekki hefur enn verið kosið í
stjóm Sementsverksmiðju ríkisins,
en kosningunni hefur tvívegis verið
frestað undanfama daga. I stjórn-
inni sitja Ásgeir Pétursson og Frið-
jón Þórðarson, sem báðir em full-
trúar Sjálfstæðisflokksins, Daníel
Ágústínusson fyrir Framsóknar-
flokk, Skúli Alexandersson fyrir
Alþýðubandalag og Siguijón Hann-
esson fyrir Alþýðuflokk.
Kosið var í stjóm Síldarverk-
smiðjanna á mánudag og vom þar
kosnir í aðalstjóm Bogi Sigur-
bjömsson fyrir Framsóknarflokk,
Kristján Möller fyrir Alþýðuflokk
og Hannes Baldvinsson fyrir Al-
þýðubandalag og Þorsteinn Gísla-
son fyrir Sjálfstæðisflokk og Kristín
Karlsdóttir fyrir Kvennalista.
Kristján og Kristín komu í stað
Einars Ingvarssonar fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks og Björgvins Jónsson-
ar fulltrúa Framsóknarflokks sem
áður sátu í aðalstjóm.
Minna um fíkni-
efni en oftast áður
- segir Arnar Jensson, lögreglufulltrúi
„ÞAÐ virðist vera minna um
fiknicfni á markaðnum nú en oft
áður og á því eru sjálfsagt marg-
ar skýringar. Við hjá fikniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík
teljum eina skýringu vera þá, að
okkur hefúr orðið vel ágengt
undanfarin tvö ár við að taka
virkustu sölumenn fikniefna úr
umferð. Það munar um minna í
svona litlu samfélagi," sagði Arn-
ar Jensson, lögreglufulltrúi.
Arnar sagði að sömu efni væm
á markaðnum nú og undanfarin ár,
en í mun minna mæli. „Þetta er svo
sem ekkert varanlegt ástand, en
með því að að kippa út þeim sem
em virkir í að koma frá sér efnun-
um þá dettur að minnsta kosti sú
lína út í bili. Það tekur svo ákveð-
inn tíma fyrir markaðinn að ná því
upp aftur, en menn halda að sér
höndum í bili.“
Amar sagði að fíkniefnadeild
Nefnd kanni
tannlækna-
kostnað
BORGARRÁÐ samþykkti á fiindi
sínum í gær að skipuð skuli nefiid
til að kanna tannlæknakostnað
skólabarna.
Heilbrigðisráð lagði tillögu þessa
efnis fyrir borgarráð, sem kýs full-
trúa í nefndina á næsta ári, auk
þess sem borgarstjóri tilnefnir emb-
ættismenn til starfa með nefndinni.
lögreglunnar hefði haft virkt eftirlit
með „smásölumönnum" undanfam-
ar vikur. „Við höfum verið með
götueftirlit, fylgst með fólki á veit-
ingahúsum og einnig kannað mál í
heimahúsum," sagði hann. „Það
hafa mjög mörg en smá mál komið
upp þessar vikur. Við heyrum á því
fólki sem við höfum afskipti af
þessa dagana að það virðist vera
fremur erfitt að útvega sér efni.
Það verður hins vegar að hafa í
huga að það þýðir ekki að slaka á
klónni, því þessi markaður breytist
frá degi tii dags og við verðum að
fylgjast vel með þeirri þróun," sagði
Ámar Jensson.
Lindu fagn-
að á Hót-
el Islandi
LINDU Pétursdóttur, ungfi-ú
heimi, verður fagnað við
heimkomuna til íslands nieð
sigurhátíð á • Hótel íslandi
laugardaginn 17. desember.
Þar verður jólaglögg 0g
óvæntir gestir koma í heim-
sókn.
Linda hefur verið á ferð um
Bretland og Evrópu síðan hún
vann sigur í Miss World-keppn-
inni í Lundúnum fyrir um mán-
uði. Hún kemur heim í þriggja
vikna jóialeyfi, en á nýja árinu
taka við ferðalög um allan heim
sem fylgja titlinum._