Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVUOTOAGUR 14. DESEMBER 1988
maconde
formen
UADE IN RpRTUGAL
Glæsiieg herraföt
Vörumerkið tryggir
gæðiogbestu snið
Macondeverksmiðjurnar eru meðal stærstu
karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í
Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð.
Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,-
Jakkar kr. 4.995,-
Terelynefrakkar kuldafóðraðir kr. 4.760,-
Úlpur kr. 2.240,- og 3.400,-
Terelynebuxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,- 1.795,-
og 1.995,-
Skyrtur nýkomnar, mikið úrval.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
NÝJAR GERÐIR KOMNAR
BETRILÍÐAN í BETRISKÓM
Ertu þreytt í vinnunni? Betri skór gætu hjálpað. Við höfum fengið nýja sendingu
af amerískum hjjkrunarskóm sem eru sérstaklega lagaðir fyrír þær sem þurfa
mikið að ganga eða standa í vinnunnLSkórnír eru níðsterkir, handsaumaðir úr
mjúku leðri og fást í mörgum litum. SendtlKI í póslkröfu
i Remedía hf. j
BORGARTÚNI 20, SÍMI 27511.
l■■■■■■■■■■l™■5■■■■■^■“■■■■■■l
Símar 641443-41238.
Birkigrund 31, Kópavogi.
Þekking-
gυi -
reynsla.
K.B. PELSADEILD
Stórglæsilegt úrval pelsa á verði, sem eng-
inn getur neitað sér um.
Pelsarog
pelsjakkar,
minkur, refur,
þvottabjörn,
húfurogbönd.
Verslunarsaga íslands 1774-1807 komin út:
Hóf heimildasöfiiun
fyrir þrem áratugum
— segir Sigfus Haukur Andrésson, sagnfræðingur
VERSLUNARSAGA ísiands 1774-1807 er komin út á vegum Fjölsýn-
ar forlags og Verslunarráðs íslands. Verk þetta er mikið að vöxtum,
860 síður í tveimur bindum með Qölda mynda. Tile&ii þess að nú
er ráðist í að gefa verslunarsöguna út, er 200 ára afmæli fríhöndlun-
ar á Islandi. Sigfus Haukur Andrésson, sagnfræðingur og höfundur
verksins, hóf að safna heimildum um þetta timabil í íslenskri verslun-
arsögu ánð 1959.
„Það var upphaflega Þorkell Jó-
hannesson prófessor sem dreif mig
í þetta verk,“ sagði Sigfús í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég hafði
lagt stund á sagnfræði í París og
Kaupmannahöfn, en kom svo heim
og lauk námi hér. Ég starfaði við
kennslustörf, en langaði til að halda
áfram sagnfræðirannsóknum og
Þorkell benti mér á að það væri
mikilvægt að kanna verslunarsög-
una. Ég hóf svo verkið árið 1959
og fékk þá til þess styrk úr Vísinda-
sjóði."
Sigfus fór fyrst til Kaupmanna-
hafnar að safna dönskum heimild-
um um verslunina á íslandi. „Þegar
ég kom í danska þjóðskjalasafnið
bað ég um að fá að sjá skjöl um
konungsverslunina síðari, og það
var komið með tvo stóra vagna
fulla af skjölum. Mér varð litið út
í sólskinið og ég velti því fyrir mér
hvort ég ætti ekki bara að slá þessu
upp í kæruleysi og nota tímann í
eitthvað annað.á meðan ég væri
ennþá ungur,“ sagði Sigfús. Svo fór
þó að hann hélt verkinu áfram, og
fékk meðal annars til þess styrk
Verslunarráðs. Ætlunin var að
koma bókinni út árið 1967, á hálfr-
ar aldar afmæli Verslunarráðsins,
en af því gat ekki orðið, enda segir
Sigfús að úr gífurlega mörgum
heimildum hafi verið að vinna og
hann hafí ekki tímt að kasta á glæ
miklu efni, sem aldrei hafí áður
komið fyrir almennings sjónir.
Það liðu því 29 ár frá því að
hann hóf verkið og fram að útkomu
þess. Við samningu verslunarsög-
unnar vann Sigfús mikið í hjáverk-
um, en hann hefur nú um árabil
verið skjalavörður á Þjóðskjalasafn-
inu.
í verslunarsögunni er rakið upp-
haf fríhöndlunar á íslandi, en þá
var einokuninni aflétt og verslun
gefín frjáls við þegna Danakon-
ungs. Fríhöndlunin reyndist hins
vegar ekki vel, og þótti mönnum
fljótlega, sem hún væri að snúast
aftur upp í hina verstu einokun.
Því varð það úr að fyrirmenn lands-
ins ákváðu að senda Danakonungi
bænaskrá, þar sem farið væri fram
á algert verslunarfrelsi á íslandi.
Hefur hún síðan gengið undir nafn-
inu almenna bænaskráin.
Áhrifúm frönsku
byltingarinnar gerð skil
í riti Sigfúsar eru almennu bæna-
skránni gerð góð skií. Þar er, í
fyrsta sinn að sögn Sigfúsar, gerð
ýtarleg grein fyrir áhrifum frönsku
byltingarinnar 1789 og mannrétt-
indayfirlýsinga Frakka og Banda-
rílq'amanna á þróun mála á íslandi.
„Menn hafa ævinlega viljað setja
dýrkun þjóðveldisins í samband við
rómantísku stefnuna, en Almenna
bænaskráin hefst einmitt á lofgjörð
um þjóðveldið. Þar gætir mikillar
þjóðemiskenndar og mannréttindi
og þjóðarréttindi eru .notuð sem rök
fyrir verslunarfrelsi. Þarna virðist
gæta mikilla áhrifa frá mannrétt-
indayfírlýsingum Frakka og Banda-
ríkjamanna og það er einnig athygl-
isvert hvað hin nýstofnuðu Banda-
ríki voru ofarlega í huga ýmissa
íslendinga á þessum tíma; Stefán
Þórarinsson amtmaður veltir því til
dæmis fyrir sér hvort hægt væri
að stofna til verslunar við Banda-
ISLENZKIR STEINAR
________Baekur_______________
Davíð Ólafsson
Á mínum skólaárum var okkur
kennt það, að land okkar væri fá-
tækt af verðmætum jarðefnum svo
sem málmum og steinum. Ein
markverð undantekning var þó
brennisteinn, sem hafði verið unn-
inn og fluttur út fyrr á öldum og
jafnvel fram á fyrrihluta þessarar
aldar. Ekki höfðu verið fram-
kvæmdar neinar meiriháttar rann-
sóknir á þessu sviði enda tæpast
hægt að telja neina möguleika til
slíks. Þegar kom fram um miðja
öldina voru fengnir erlendir sér-
fræðingar til mélmleitar, en ef ég
man rétt var niðurstaða þeirra, að
enga málma væri hér að fínna í
vinnanlegu magni og hefur síðan
verið hljótt um það.
Á skólaárunum fór maður stund-
um á náttúrugripasafnið, sem
Bjami Sæmundsson hafði byggt
upp af mikilli elju en við lítil fjár-
ráð, og þar gat maður m.a. skoðað
ýmsa fallega steina. Sérstaklega
man ég eftir steinum frá Teigar-
homi við Berufjörð og einhvem
veginn er svo, að það er sá staður,
sem ég man bezt eftir af þeim, sem
tengdust fögrum steinum og minnzt
var á í jarðfræðitímum og svo
skeljalögin í Hallbjamarstaðakambi
á Tjömesi. Þetta er mjög einfölduð
mynd af þeirri þekkingu í steina-
frasði, sem maður fór með út í heim-
inn á þeim ámm.
Síðan hefur maður lært margt
af náttúrunni og fróðum mönnum.
Sérstaklega minnist ég í því sam-
bandi hversu gaman var að ganga
í Hallbjamarstaðakambinn með
Áma Kárasyni, bónda á Hallbjam-
arstöðum, og láta hann segja sér
frá kambinum og umhverfinu og
því, sem þar hefur fundizt eða þar
er fólgið af steingerðum skeljum
og kuðungum og segir betur en
nokkur orð fá lýst um tiltekinn tíma
í jarðsögunni, þegar sjór stóð miklu
hærra en nú. Eða reika með Krist-
jáni Jónssyni, bónda á Teigarhomi,
um ijöruna undir klettunum og
heyra um þær gersemar, sem hafa
fundizt þar, geislasteinar margvís-
legir og aðrir fagrir steinar.
Og svo að sitja í stofunni að
Hoffelli í Nesjum með Helga bónda
Guðmundssyni og fræðast af hon-
um um þá gersemissteina, sem er
að fínna í landi hans og heyra hann
segja frá sögulegum ferðum til
steinaleitar, þar sem ekkert erfíði
var sparað til að fínna það allra
áhugaverðasta.
Hér vantar þó þann í hópinn, sem
kenndi mér mest um útbreiðslu fag-
urra steina á landinu. Það var vinur
minn Birgir Kjaran, hagfræðingur,
sem árum saman ferðaðist um
landið vítt og breitt og leitaði steina
og átti að lokum hið fegursta safn.
Þessar ljúfu endurminningar
tengdar íslenzkum steinum renna í
gegnum huga minn þegar ég nú les
og skoða nýútkomna bók, sem ber
titilinn íslenzkir steinar, með ljós-
myndum eftir Grétar Eiríksson og
texta eftir Axel Kaaber, Einar
Gunnlaugsson og Kristján Sæ-
mundsson.
Bókin hefur að geyma ljósmynd-
ir af nær eitt hundrað íslenzkum
steinum og steingervingum og hef-
ur Grétar tekið þær allar. Það kem-
ur mér ekki á óvart, að myndimar
eru þannig gerðar, að mín leik-
mannsaugu hljóta að dást að þeim.
Mér hefur verið tjáð af kunnáttu-
mönnum,_ að ljósmyndun steina sé
mikið vandaverk og fæ ég ekki
betur séð en vel hafí hér til tekizt.
Finnst mér unun að skoða myndim-
ar. Grétar er löngu landskunnur
fyrir ljósmyndir sínar, en hann hef-
ur um áratuga skeið fengizt við
töku Iandslags- og náttúrulífs-
mynda, sem m.a. hafa birzt í Árbók-
um Ferðafélags íslands og þannig
aukið gildi þeirra merku bóka. Hér
er um annars konar myndir að
ræða og auka þær enn á hróður
Grétars. Myndunum fylgja skýring-
ar um steinana, heiti, stærð, Ifund-
arstað o.fl., sem máli skiptir að vita
um. Fundarstaða er þó ekki getið
nákvæmlega nema um sé að ræða
friðlýsta staði. Er það með ráði
gert og af skiljanlegum ástæðum,
eða eins og segir í formála: „Engum
er láandi þótt hann aulýsi ekki um
allar jarðir hvar skemmtilegur safn-
gripur hans hefur fundist. Að kynna
fundarstað getur leitt til átroðnings
og valdið landeigendum óþægindum
og ama.“
Nokkur texti, almenns eðlis, er
í bókinni, um jarðfræði, greiningu
steintegunda, ummjmdun og holu-
fyllingu bergs og helztu holufylling-
ar, svo það helzta sé nefnt. Fyrir
þá, sem gaman hafa af að safna
steinum, er kafli um það efni svo
og greiningartafla til að auðvelda
mönnum að þekkja þá steina, sem
þeir fínna í náttúrunni.
Textinn er þannig, að reynt er
„að forðast langar fræðilegar út-
skýringar" en þó fullnægjandi til
þess, að áhugamenn og byijendur
í steinasöfnun fái fræðslu um þau
helztu grundvallaratriði, sem nauð-
synleg eru til að fá ánægju af slíku
tómstundastarfí.
Þetta hefúr textahöfundum tek-
ist vél en þeir eru jarðfræðingamir
Kristján Sæmundsson og Einar
Gunnlaugsson, og Axel Kaaber,
sem er kunnur fyrir áhuga á steina-
söfnun og á gott safn. Nokkrar
teikningar eru í bókinni til skýring-
ar og hefur Helga B. Sveinbjöms-
dóttir gert þær. I heild er bók þessi
mikill fengur þeim, sem áhuga hafa
á steinaskoðun og söfnun, en þeir
eru ótrúlega margir og fer fjölg-
andi eftir því, sem mönnum verður
ljós fjölbreytni steinaríkis hér á
landi gagnstætt því, sem áður var
haldið Málfar á bókinni er með
ágætum og prentvillur sá ég engar,
enda hafa þar um vélað tveir traust-
ir menn, Ámi Böðvarsson cand.
mag. og Haraldur Sigurðsson, fyrr-
um bókavörður. Frágangur bókar-
innar er með prýði og hefur Bókaút-
gáfan Bjallan gefíð hana út.
Höfundur er fyrrverandi Seðla■
bankastjóri.