Morgunblaðið - 14.12.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Gallerí Guðmundar frá Miðdal:
Esjan er ótæmandi viðfangseftii
Afinælissýning Jörundar Pálssonar
JÖRUNDUR Pálsson opnaði
málverkasýningu í Galleríi Guð-
mundar frá Miðdal laugardag-
inn 10. desember. Á sýningunni
eru bæði vatnslitamyndir og
olíumálverk og hafa þau öll Esj-
una að viðfangsefni. Jörundur
verður 75 ára þann 20. desem-
ber og er sýningin haldin í til-
efhi af því. Hún verður opin frá
14.00—19.00 alla daga til 20.
desember.
Þetta er áttunda einkasýning
Jörundar, en hann hefur einnig
tekið þátt í nokkrum samsýning-
um, m.a. sýningu Vestur-Islend-
inga í Kanada. Jörundur sagði í
samtali við Morgunblaðið, að Esjan
hefði verið sér hugleikin allt frá
því að hann sá fyrst málverk sem
hreif hann, þá 15 ára gamall, en
það var mynd af Esjunni eftir Jón
Stefánsson.
„Esjan er ótæmandi viðfangs-
efni. Maður veit minna og minna
um hana eftir því sem maður kynn-
ist henni meira. Það eru í henni
ótrúleg litbrigði og hún tekur
stakkaskiptum eftir því frá hvaða
sjónarhomi hún er skoðuð. Örlygur
Sigurðsson, sendi mér skeyti í til-
efni af sýningu minni þegar ég
varð sjötugur og í því var þessi
vísa:
Ólafsvík:
Gróður-
hýsi og
þak fjúka
Ólafsvík
NÚ HEFUR brugðið til
rosatíðar eftir hæglátt veð-
ur haustsins. Á mánudag
gerði hér ofsaveður af
vestri og varð nokkurt tjón
af. Tvö gróðurhýsi áfost
húsum við Stekkjarholt
eyðilögðust og olli fok
þeirra tjóni á húsum í
grenndinni.
Þá fauk bílskúrsþak í heilu
lagi af þriðja húsinu við þessa
sömu götu. Stærri línubátamir
voru á sjó og fengu afar
slæmt. Ekkert varð þó að hjá
þeim. Þessu slæmu veður setja
strik í reikninginn hvað varðar
veiðar og vinnslu en að und-
anfömu hafa róðrar gengið
vel og þokkalega fiskast á
línuna. Atvinna hefur þvi verið
næg hér síðustu vikur þar til
nú kippir úr vegna veðra.
Helgi
Morgunblaðið/Júlíus
Jörundur Pálsson
Hangið hefur sjötíu jól
hákarlsbitinn besti.
Esja kelling skiptir um kjól
á klukkutíma fresti.
En Esjan þarf ekki einu sinni
klukkutíma til að skipta um lit-
brigði, fara í alveg nýjan kjól. Svo
kom hér einn kollega minna á sýn-
inguna um daginn og sagði að það
færu að verða síðustu forvöð fýrir
mig að mála Esjuna, því sam-
kvæmt skipulagi ætti að rífa
hana.“
Hvenær hélstu þína fyrstu sýn-
ingu?
„Fyrsta einkasýning mín var
fyrir tuttugu árum, en ég hafði
áður tekið þátt í samsýningum.
Ég lauk raunar aldrei nema undir-
búningsdeildinni við Akademíuna
í Kaupmannahöfn, fór eftir það á
reiðhjóli í gegnum Evrópu, til
Parísar þar sem ég dvaldi í tvo
mánuði. Þetta var rétt fyrir stríð
og París upp á sitt besta og var
geysigaman. Svo kom ég heim og
starfaði sem auglýsingateiknari í
15 ár en hélt þá aftur utan til
náms í arkitektúr og lauk því 45
ára gamall. Starfaði síðan sem
arkitekt þar til ég var 69 ára og
fór á eftirlaun."
Svo málverkið hefur verið auka-
geta?
„Já, það má segja það. Annars
hef ég málað frá því ég var í
menntaskóla og alltaf haldið því
við. Síðan ég fór á eftirlaun hefur
það verið mitt aðalstarf og mér
leiðist ekki á meðan.“
Og þetta er ekki kveðjusýning?
„Nei, ég ætla að halda áfram
að mála. Núna er ég að snúa mér
meira að olíulitum, en hef hingað
til mest haldið mig við vatnslitina.
Ég ætla að mála a.m.k. þar til ég
verð áttræður ef mér endist aldur.
í það minnsta á meðan ég get
haldið á pensli."
Eitthvað að lokum?
„Skilaðu kveðju til allra Esju-
unnenda, sem eru fjölmargir. Það
var einu sinni maður í bæjarstjóm
sem sagði að Esjan væri fjós-
haugur. Hann féll í næstu kosning-
um. Esjan er heilagt fjall í augum
Reykvíkinga og allir sem skynja
fegurðina í litbrigðum hennar
ánetjast henni um aldur og ævi.“
„erigin wníulcg jtiuunma'
Hi'Uia Thvrím'ii >yiiv*' Hitgu’. snixitn'
fannur Gatfamu Bteidíji>c$
Lífssaga Guð-
fínnu Breiðflörð
Bræla á
loðnumiðum
BRÆLA var á loðnumiðunum
aðfaranótt þriðjudagsins og
engin veiði.
Þessi skip tilkynntu um afla
síðdegis á mánudag: Sjávarborg
550 tonn til Seyðisfjarðar, Beit-
ir 700 tonn til Neskaupstaðar,
Grindvíkingur 800 tonn til Seyð-
isfjarðar, Hólmaborg 870 tonn
til Eskifjarðar og Súlan 350
tonn til Þórshafnar.
ÍSAFOLD hefúr gefið út bókina
Minna „Engin venjuleg
mamma“ eftir Helgu Thorberg.
Á bókarkápu er birt eftirfarandi
brot úr inngangskafla bókarinnar:
„Elsku mamma. Þú ert farin og
hér sit ég með minningabrotin sem
þú skildir eftir. Þú varst að skrifa
ævisögu þína, sögu konu sem
komst út í lífið aftur eftir að hafa
verið lokuð inni á stofnun í mörg
ár.
„Oft velti ég fyrir mér hvað
hefði komið fyrir mig. Hvað gerð-
ist eiginlega sem olli þessari löngu
dvöl minni inni á stofnunum? Af
hvetju gátu engin lyf hjálpað mér?
Af hverju reyndi enginn að hjálpa
mér út í lífið aftur? Skapaði ég
sjálf þessa vanlíðan með hugsun-
um mínum sem ég réði ekkert við?
Allt þetta böl, öll þessi löngu ár.
Af hveiju skipti enginn sér af
mér? Af hveiju?"
Þú varst að skrifa um það
hvemig var að brjótast til baka,
ná tökum á þunglyndinu, sinnu-
leysinu og uppgjöfinni. Og ná loks
hinu langþráða frelsi, að komast
út og lifa lífinu aftur á meðal okk-
ar hinna, þessara „heilbrigðu“.
En nú er komið að mér að fylla
í eyðumar. Ég vel þá leið að tala
til þín í gegnum bókina. Kannski
þarf ég að spyrja þig einhvers.
Þannig hef ég þig líka hjá mér á
meðan ég skrifa. Það er bæði ljúft
og sárt, eins og lífið sjálft.“
Þetta er lífssaga móður Helgu,
Guðfinnu Breiðíjörð eða Minnu
eins og hún var ævinlega kölluð.
Bókin er 173 blaðsíður.
Ekkí hugsuð sem leiðrétt-
ing á Islandssögunni
-segir Bríet Héöinsdóttir um bók sína „Strá í hreiðrið“
QnrP A 1 nnlViíof KAlr nm Dnínfí DínnnlinAInnJAff... „ T 1 1 1 • y 1
„STRÁ I hreiðrið" nelnist bók um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, sem
nafiia hennar og sonardóttir Bríet Héðinsdóttir hefúr skráð og
komin er út hjá Svörtu á hvítu. Bókin er að mestu byggð á bréf-
um Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, með stuttum brotum úr bréfiim
manns hennar Valdimars Ásmundssonar og barna þeirra Héðins
og Laufeyjar. Flest eru bréfin skrifúð á námsárum barna Bríetar
en bókin rekur ævi hennar frá upphafi til loka.
Bríet Héðinsdóttir sagðist í og svarbréfin frá þeim inn á milli,
samtali við Morgunblaðið hafa til að gefa þessu samhengi."
verið að grúska í þessu í fjögur
ár og þegar Bjöm Jónasson, for-
stjóri Svarts á hvítu, hefði komist
á snoðir um grúsk hennar hefði
hann boðið henni útgáfusamning
og vinnuaðstöðu.
Hvað geturðu sagt mér um bók-
ina?
„Uppistaðan er bréf Bríetar til
bama sinna á háskólaárum þeirra
Er þetta fyrsta bókin sem skrif-
uð er um ömmu þína?
„Já, það hefur aldrei verið skrif-
uð bók um hana áður, en það
hafa birst um hana nokkrar grein-
ar í blöðum og tímaritum og einn-
ig er til sjálfsævisögubrot hennar
sem hún skrifaði á efri árum og
birtist m.a. í Merkum íslending-
um.“
I lok bókarinnar greinir þú frá
því að í námsbók um sögu
Reykjavíkur útgefinni 1987 sé frá-
sögnin af valtaranum Bríeti fyrir-
ferðarmest af frásögnum af störf-
um kvenna, hugsaðir þú bókina
sem leiðréttingu á íslandssögunni
að þessu leyti?
„Það er lýsandi dæmi um það
hvemig fjallað er um störf kvenna
í sögunni að valtarabrandarinn
skuli vera aðalmálið um störf
kvenna í þessari kennslubók, þrátt
fyrir að konur hafi lengi verið virk-
ar í ýmis konar baráttu. Þegar
maður fer að horfa á það þessum
augum kemur í ljós hversu furðu-
leg skrif um karla og konur em
ENGIN JOL AN MÖMMUSULTU!
Það er ekki sama
hvaða sultu
þú berð á borð með
jólamatnum.
Þess vegna skaltu velja
jólasultuna vandlega,
þegar þú kaupir inn.
Láttu ekki lélega
sultu eyðileggja
fyrir þér jólasteikina.
Fáðu þér Mömmusultu -
og nóg af henni!
^ ri
^Ppels ínu
— \ BÍfoI'/,
Mömmusulta er vægast
sagt frábær bæði með
hátíðamatnum, í
baksturinn í
pönnukökurnar eða beint
á brauðsneiðina. Þú getur
valið um Mömmu
Rabarbarasultu, Mömmu
Jarðarberjasultu - og svo
má ekki gleyma hinu
vinsæla Mömmu
Appelsínumarmelaði.
Bríet Héðinsdóttir þriggja mán-
aða í fangi ömmu sinnar Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur.
yfirleitt. í öldinni okkar fer það
t.d. ekki í fyrirsögn þegar íslensk-
ar konur öðlast kosningarétt, það
er sagt frá því inni í miðri grein.
En ég hugsaði bókina ekki sem
leiðréttingu á sögunni. Ég er ekki
sagnfræðingur og þetta er ekki
sagnfræðirit."
Hefur vinnan að bókinni gert
þig að meiri kvenréttindakonu?
„Nei, þess þurfti ekki. Ég hef
raunar aldrei verið virk í kvenrétt-
indabaráttu, en allar viljum við jú
okkar hlut sem mestan, og ég er
engin undantekning þar á.“
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!