Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Fundur sjávarútvegsráðherra Evrópubandalagsins:
Miklar takmarkanir
á fiskveiðiheimildum
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
ÁKVEÐIÐ hefiir verið að takmarka verulega heimildir til fiskveiða í
lögsögu aðildarríkja Evrópubandalagsins á næsta ári og á fiskislóð
skipa bandalagsins. Var þetta niðurstaða erfiðs fiindar sjávarútvegsráð-
herra ríkjanna, sem lauk um helgina. Talið er að þessar takmarkanir
leiði til aukinnar eftirspurnar eftir innfluttum fiski.
Klukkan hálf átta á sunnudags-
morguninn lauk árlegum maraþon-
fundi sjávarútvegsráðherra Evrópu-
bandalagsins um skiptingu veiði-
heimilda næsta árs. Þegar fundinum
lauk höfðu ráðherrarnir verið meira
og minna að frá því klukkan fimm
á föstudag. Fyrir fundinum lágu til-
lögur frá framkvæmdastjóminni um
umtalsverðan niðurskurð á aflaheim-
ildum á nánast öllum fiskislóðum
EB-flotans.
Tillögumar voru lagðar fyrir fund-
inn sem heild og eftir árangurslausar
tilraunir til að ná samhljóða niður-
stöðu vom þær bomar undir atkvæði
og samþykktar með atkvæðum allra
nema Spánveija, Dana og íra. Spán-
veijar mótmæltu almennt niður-
skurði á veiðiheimildum en þó sér-
Sakharov heim á ný
París. Reuter.
ANDREI Sakharov, kjarneðlis-
fræðingur og mannréttindabar-
áttumaður, flaug heim til Moskvu
í gær úr fyrstu for sinni til Vest-
urlanda. Sakharov dvaldist i
næstum mánuð í Bandaríkjunum.
Þá dvaldi hann í fjóra daga í
París ásamt eiginkonu sinni, Je-
lenu Bonner.
í förinni lýsti Sakharov yfir
stuðningi við umbótatilraunir
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga
en hvatti jafnframt til þess að
mannréttindi yrðu virt í löndum
Austur-Evrópu.
Skömmu eftir að Gorbatsjov tók
við völdum í Sovétríkjunum sagði
hann að Sakharov yrði ekki leyft
að ferðast út fyrir landsteinana því
að hann byggi yfir ríkisleyndarmál-
um. En síðan hefur Sakharov hald-
ið opinberar ræður í Moskvu og átt
persónulegan fund með Sovétleið-
toganum.
I París hitti Sakharov Lech Wa-
lesa, leiðtoga hinna bönnuðu pólsku
verkalýðssamtaka Samstöðu.
HVERVANN?
5.301 .823 kr.
Vinningsröðin 10. desember:
X12-X1X-X1X- 1X1
12 réttir = 4.413.379 kr.
Enn var enginn með 12 rétta-og því erfjórfaldur pottur núna!
11 réttir = 888.444 kr.
33 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 26.913,-
Tilhamingju!
-ekkibaraheppni
staklega við Svalbarða. Danir eru
andvígir aðgerðum framkvæmda-
stjómarinnar vegna flökkustofna
makríls við Bretland. Ráðherramir
staðfestu á fundinum nýgerða samn-
inga við Norðmenn og Færeyinga
og úthlutuðu þessum þjóðum afla-
heimildum í samræmi við samning-
ana, Færeyingum m.a. við Grænland.
Á fundinum samþykktu ráðherrarnir
einhliða veiðiheimildir fyrir EB-flot-
ann við Svalbarða, 11.500 tonn, sem
er helmingsniðurskurður frá þeim
heimildum, sem EB ákvað einhliða
fyrir þetta ár.
Samkvæmt heimildum í Bmssel
er talið líklegt að þessi mikli niður-
skurður á afla muni leiða til aukins
innflutnings og verði til að afla því
viðhorfi fylgi í ráðherranefndinni, að
fyrir aðgang að mörkuðum EB komi
aðgangur að fiskimiðum. Þessi af-
staða hefur lengi verið helsti þrösk-
uldurinn í samskiptum íslands og
EB. Það er ljóst, að sjávarútvegsráð-
herrar Portúgals og Frakklands
styðja þessa afstöðu en Spánveijar
eru sagðir tvístígandi. Fiskkaupa-
þjóðirnar í Norður-Evrópu hafa látið
sig þetta litlu skipta.
Winnie Mandela
Mandela líður illa
í nýja fangelsinu
Höfðaborg. Reuter.
WINNIE Mandela heimsótti eig-
inmann sinn, Nelson Mandela,
leiðtoga blökkumanna í Suður-
Afríku, sem setið hefur í fang-
elsi í 26 ár, í fyrsta sinn í gær í
nýtt stofiifangelsi, skammt frá
Höfðaborg.
Frú Mandela ásamt dóttur þeirra
hjóna, Zindzi, og þremur barna-
bömum þeirra, var hjá eiginmanni
sínum í tvo og hálfan tíma í fangels-
inu sem er einbýlishús í Paarl.
Lögfræðingur Mandela, Ismail
Ayob, sagði í gær á blaðamanna-
fundi að líðan Mandela væri nú
verri en áður en hann var fluttur í
stofufangelsið. „Það er grimmdar-
legt að hafa hann í algerri einangr-
un,“ sagði Ayob. Ayob sagði að
Mandela fyndist hann einangraður
vegna þess að honum væri meinað
að hafa samband við félaga sína
sem hann hefur átt samleið með í
meira en aldarfjórðung í fangaklef-
um í suður-afrískum fangelsum.
„Það hefur engin breyting orðið
á högum Mandela, hann er ennþá
fangi,“ sagði Ayob.
Sovét-Armenía:
Hveijar verða afleið-
ingar hamfaranna?
Daily Telegraph.
VIÐ veginn frá flugvellinum
og inn í Jerevan, höfuðborg
Armeniu, er nýreist en ákaf-
lega ljótt borgarhverfi. Heitir
það einhveiju nafni, sem flestir
útlendingar eiga erfitt með að
bera fram, en í Jerevan er það
jafnan kallað „Bangladesh"
vegna þess hve það er fram-
andi og langt frá miðborginni.
Þessi nafngift hefur öðlast al-
veg nýja merkingu á síðustu dög-
um. Ármenar minna nú á, að ein
af afleiðingum fellibylsins á Beng-
al-flóa 1970 hafi verið að svipta
hulunni af spillingu og skeyting-
arleysi yfirvaldanna, sem þá voru
í vesturhluta landsins, núverandi
Pakistan, og hrinda af stað stytj-
öld, sem leiddi til stofnunar
Bangladesh. Það fer heldur ekki
á milli mála, að sumir þjóðemis-
sinnaðir Armenar vonast til, að
Rússar klúðri björgunarstarfinu á
jarðskjálftasvæðunum í þeirri von,
að það verði til að auka sjálfstæð-
iskröfur þjóðarinnar.
Vaxandi hatur milli
Armena og Azera
Á því virðist heldur enginn vafi
þótt ótrúlegt sé, að deilumar við
Azera eru mörgum Armenum of-
arlegar í huga en hörmungamar
á jarðskjálftasvæðunum. Sumir
virðast beinlínis telja landskjálf-
tann vera samsæri Rússa, Azera
og guðs almáttugs, sem sé haldinn
þeim óviðráðanlega kæk að gera
píslarvotta úr Armenum.
Til að bæta gráu ofan á svart
og grafa enn frekar undan tiltrú
manna á kommúnistaflokknum
hafa sovéskir fjölmiðlar skýrt frá
því, að flokksbroddamir í Arm-
eníu hafi ekki tekið neitt mark á
þeim viðvörunum, sem þó mátti
lesa af jarðskjálftamælum, og
ennfremur, að slíkir mælar hafi
víðast hvar ekki verið fyrir hendi.
Raunar hefur komið fram, að jarð-
skjálftamælar em alls ekki fram-
leiddir í Sovétríkjunum. Þá hefur
verið sagt frá því, sem allir vissu,
Reuter
Björgunarmenn með hunda leita að fólki, sem kann að vera lif-
andi í rústum Lenínakan-borgar.
að hinar dæmigerðu sovésku
blokkir em hrákasmíð, bæði að
hönnun og gerð.
Flokkurinn trausti rúinn
Það sýnir vel taugaóstyrkinn,
sem einkennir ráðamennina í
Kreml, að um síðustu helgi létu
þeir handtaka helming Karabak-
h-nefndarinnar, sem barist hefur
fyrir sameiningu héraðsins Nag-
omo-Karabakhs og Armeníu.
Höfðu þeir unnið sér það til saka
að hafa skipulagt hjálparstarf án
samráðs við kommúnistaflokkinn.
Það gerðist líka fyrir nokkmm
mánuðum þegar efnt var til auka-
kosningar um sæti í armenska
Æðsta ráðinu, að einn nefndar-
manna, Ashot Manucharian, skor-
aði á fólk að skrifa sitt nafn á
kjörseðilinn. Hann fékk rússneska
kosningu gegn armenskum ráð-
herra.
Armenski kommúnistaflokkur-
inn lýsti því fyrst yfir, að kosning-
in væri ólögmæt en neyddist síðan
til þess í nafni „glasnosts" að við-
urkenna hana. Þessi niðurstaða
er þó ráðamönnunum í Kreml
vafalaust mikið áhyggjuefni því
að þeir ætla að efna til kosninga
á vori komanda þar sem fleiri en
einn frambjóðandi verður um
hvert sæti. Ef Karabakh-nefndin
fengi að bjóða fram í Armeníu
myndi hún mola kommúnista-
flokkinn undir sér.
Hættan sem fylgir opnum
landamærum
Það fylgir því viss áhætta fyrir
sovéska ráðamenn að opna landa-
mærin fyrir vestrænni hjálp. Opn-
um iandamærum fylgir opinn
hugur. Hvað gerðist ef landamær-
in yrðu alveg opnuð, ef ótruflað-
ar, erlendar útvarpsstöðvar yrðu
of vinsælar, ef alihenningur, sem
fyrirlítur kommúnistaflokkinn,
setti sig gegn herþjónustunni og
tæki að fjandskapast við valda-
stofnanirnar?
Hörmungamar í Armeníu geta
haft alvarlegar, pólitískar afleið-
ingar fyrir Míkhaíl Gorbatsjov
sovétleiðtoga. Armenía er ekki
Bangladesh en sjálfstæðisþrá
þjóðarinnar mun líklega láta æ
meira til sín taka.