Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst IngiJónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið.
Kreppa eða ekki
kreppa?
Frumvarp um tekju- og eignaskatt einstaklinga og fyrirtækja:
Tekjuskatturinn á að
hækka úr 28,5% í 30,5%
Skilar ríkissjóði alls um 2,3-2,4 milljörðum í aukatekjur
Menn greinir mjög á um
það, hvort þjóðin er að
sigla inn í alvarlega kreppu
eða ekki. Skoðanamunur um
þetta kemur mjög fram í
umræðum. Sumir halda því
fram, að við séum að sigla
inn í alvarlegustu kreppu,
sem að okkur hefur steðjað
í tvo áratugi. Steingrímur
Hermannsson, forsætisráð-
herra, er augljóslega í þeim
hópi, en hann hefur jafnvel
talað um þjóðargjaldþrot,
eins og frægt er orðið.
Aðrir eru þeirrar skoðun-
ar, að samdrátturinn, sem
nú setur svip á þjóðlífið, sé
heimatilbúinn af stjórnniála-
mönnum og fjölmiðlum.
Þessir aðilar hafi búið til
kreppuandrúm, sem nærist
af sjálfu sér. Talsmenn þess-
arar skoðunar benda á, að
afli er mikill og verðlag er
hátt, þótt það sé ekki eins
hátt og á síðasta ári og fari
nú hækkandi. Þeir hinir
sömu segja, að á íslandi
geti ekki orðið raunveruleg
kreppa nema aflabrestur
verði eða verðhrun á mörk-
uðum erlendis og hvorugt
hafi gerzt.
Það er auðvitað ljóst, að
grundvöllur þjóðarbúsins
hefur ekki haggast. Afli er
mikill og verðlag fer hækk-
andi. Hitt fer ekki á milli
mála, að mjög hefur þrengt
að sjávarútvegi og fisk-
vinnslu á síðustu misserum
en hægt er að færa rök fyr-
ir því, að ástæðan sé fyrst
og fremst hátt gengi krón-
unnar.
Það skiptir auðvitað
miklu, að grundvöllur undir-
stöðuatvinnuveganna hefur
ekki brostið. Og þótt mikið
hafí verið rætt um erfiða
stöðu sjávarútvegsins kann
að vera rétt, að erfiðleikar
og samdráttur séu ekki síður
á ferðinni í viðskiptum og
þjónustu. Mikil fjárfesting
hefur verið í þeim atvinnu-
greinum á undanfömum
árum, einmitt á sama tíma
og vextir hafa hækkað mjög.
Vaxandi samkeppni í smá-
söluverzlun á höfuðborgar-
svæðinu hefur augljóslega
þrengt mjög að verzluninni.
Stór fyrirtæki í matvöru-
verzlun hafa orðið gjaldþrota
og staða annarra er erfið.
Þá hafa miklir erfiðleikar
komið upp í þjónustugrein-
um eins og hótelrekstri og
gjaldþrot orðið á þeim vett-
vangi. Raunar er það athygl-
isvert, að gjaldþrot verða í
verzlun og þjónustu en þau
hafa ekki orðið að nokkru
marki í sjávarútvegi — þrátt
fyrir allt.
Þess vegna er hægt að
færa rök fyrir því, að raun-
veruleg kreppa sé ekki að
skella á, þar sem hún geti
ekkrorðið nema aflabrestur
verði eða verðhrun á mörk-
uðum. Hins vegar er mikill
efnahagslegur samdráttur
augljóslega á ferðinni vegna
margvíslegra erfiðleika í við-
skiptum og þjónustu. Þessi
samdráttur kemur líka fram
í byggingariðnaði. Afleiðing-
in af þessum samdrætti í
viðskiptum og þjónustu get-
ur vel orðið umtalsvert at-
vinnuleysi á næsta ári, þótt
ekki sé hægt að tala um
nokkurt atvinnuleysi, sem
máli skiptir enn sem komið
er.
Það er mikilvægt, að fjöl-
miðlar og stjórnmálamenn
geri ekki of mikið úr þessum
vanda í opinberum umræð-
um um leið og nauðsynlegt
er, að við gerum okkur grein
fyrir hver vandinn er og
hversu mikill hann er. Allir
voru sammála um það fyrri
hluta þessa árs, að þenslan
í efnahagslífinu væri of mik-
il. Samdráttur frá því háa
þenslustigi var því æskileg-
ur. Aðlögun að þeim sam-
drætti getur hins vegar orðið
erfíð fyrir mörg fyrirtæki,
sem eru því ekki vön að
þurfa að draga saman seglin.
Öll athygli núverandi
ríkisstjómar hefur beinzt að
því að ná tökum á fjármálum
ríkisins og það liggur engan
veginn ljóst fyrir hvort það
tekst. Hingað til hefur mál-
efnum atvinnuveganna lítið
verið sinnt, en óhjákvæmi-
legt að það verði gert þegar
á næstu vikum. Þá er nauð-
synlegt að menn skilgreini
vandann rétt.
TEKJUSKATTUR hækkar úr
28,5% í 30,5% á næsta ári, verði
frumvarp sem lagt var fram á
Alþingi í gær að lögum. Hins
vegar mun skattbyrði lægri
tekna haldast óbreytt vegna þess
að persónuafsláttur og barna-
bætur hækka nokkuð umfram
áætlaða launa- og verðlagsþróun
á næsta ári. Fallið hefur verið
frá því að taka upp sérstakt há-
tekjuskattþrep að þessu sinni.
Tekjuskattur fyrirtækja hækkar
einnig um 2%, og eignarskattur
hækkar um 0,25% eða úr 0,95%
í 1,2%, auk þess sem tekið verður
upp 1,5% stóreignaskattþrep.
Samkvæmt frumvarpinu eiga
tekjuskattar einstaklinga að skila
ríkissjóði um 900 milljónum í aukn-
ar tekjur. Vegna hækkunar per-
sónuafláttar munu skattar einstakl-
inga standa í stað eða minnka af
60 þúsund króna mánaðartekjum
eða minna. Þá munu skattar hjóna
með tvö böm og allt að 130 þúsund
króna tekjur standa í stað eða
lækka og skattar einstæðra foreldra
með allt að 110 þúsund króna mán-
aðarlaun munu standa í stað eða
lækka. Á fréttamannafundi með
ijármálaráðherra og fulltrúum fjár-
málaráðuneytisins kom fram að
þegar allir einstæðir foreldrar eru
teknir saman, fá þeir samanlagt
greiddar út 25 milljónir króna í
bamabætur og bamabótaauka þeg-
ar búið væri að gera upp tekju-
skatta og útsvör þeirra.
Tekjuskattur hækkar hins vegar
nokkuð hjá öllum hópum þegar tekj-
umar hækka, sérstaklega þegar
komið er upp fyrir 100 þúsund
króna mánaðarlaun hjá einstakling-
um og 200 þúsund króna laun á
hjón. Er þá miðað við óbreytta
skattbyrði frá þessu ári og þær
launa- og verðlagsforsendur sem
fjárlagafrumvarp næsta árs miðar
við.
Persónuafsláttur
17.700 krónur
í tekjuskattsfrumvarpinu er gert
ráð fyrir að persónuafsláttur verði
212.100 krónur eða um 17.700
krónur á mánuði. í gildandi lögum
er þessi afsláttur 158.820 krónur
og hefur hann tvívegis verið upp-
færður miðað við lánskjaravísitölu,
fyrst um síðustu áramót og síðan
um mitt árið eins og lögin gera ráð
ENDURSKOÐUN reglna um inn-
heimtu söluskatts er hafin í fjár-
málaráðuneytinu og er þar m.a.
skoðað hvort setja eigi tryggingu
fyrir söluskattgreiðslum áður en
fyrirtæki eru stofnuð. Einnig er
kannað hvernig eigi að koma í
veg fyrir að hægt sé að stofna
ný fyrirtæki til að sleppa við að
greiða söluskatt, eða selja fyrir-
tæki áður en kemur að sölu-
skattsuppgjöri.
Á ríkisstjómarfundi í gær var
ákveðið að skipa nefnd fulltrúa fjár-
málaráðherra, viðskiptaráðherra og
dómsmálaráðherra, sem komi með
tillögur um breytta framkvæmd á
innheimtu söluskatts, eða laga-
breytingar ef þurfa þykir.
Að sögn Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra er al-
veg Ijóst að fjölmargir aðilar em
famir að nota sér smugur í núver-
andi söluskattskerfi, til að skjótast
fyrir. Ef núverandi persónuafslátt-
ur, sem er 16.092 krónur á mán-
uði, væri uppreiknaður um áramót
samkvæmt lánskjaravísitölu, yrði
hann um 17.800 krónur.
Á fréttamannafundinum kom
hins vegar fram, að forsendur pers-
ónuafsláttar og bamabóta em að
jafnaði endurskoðaðar árlega við
gerð Qárlaga, og ef miðað er við
óbreytta skattbyrði á næsta ári og
óbreytta skattprósentu ætti per-
sónuafsláttur að vera í kringum
16.800 krónur. Ekki verða send út
Eftirfarandi töflur eru byggðar
á upplýsingum frá hagdeild fjár-
málaráðuneytisins. Dæmin sýna
mánaðarlega tekjuskatta ýms-
issa hópa, fyrir og eftir breyt-
ingu, en ekki er reiknað með
útsvari, sem er að jafnaði 6,7%
undan því að greiða opinber gjöld.
„Mér er sagt m.a. að hér í Reykjavík
leiki sömu aðilamir þann leik að
stofna ný og ný fyrirtæki en greiði
ekkert til hins opinbera af gömlu
fyrirtækjunum. Og ég las það fyrir
SÉRSTÖK nefnd fúlltrúa forsæt-
isráðuneytis, Qármálaráðuneyt-
is, viðskiptaráðuneytis, og Seðla-
banka, verður skipuð til að semja
drög að frumvarpi um skattlagn-
ingu Qármagnstekna.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra segir að unnin hafi
verið talsverð undirbúningsvinna í
Qármálaráðuneytinu fyrir samn-
ný skattkort þótt upphæð persónu-
afsláttar breytist heldur verður við-
miðunartalan auglýst.
Í fmmvarpinu er gert ráð fyrir
að barnabætur með fyrsta barni séu
20.900 krónur á ári en 31.300 með
hveiju bami umfram eitt. Þá em
barnabætur fyrir böm yngri en sjö
ára 20.900 krónum hærri en fram-
angreindar upphæðir og bamabæt-
ur með börnum einstæðra foreldra
em tvöfalt hærri, að lágmarki
62.600 krónur. Húsnæðisbætur
verða 47.400 samkvæmt fmm-
varpinu.
af tekjum til viðbótar í stað-
greiðslu. Tölur eru á meðalverð-
lagi ársins 1989 og eru barnabæt-
ur og persónuafsláttur innifalin.
I fjárhæðum með neikvæðu for-
merki felst endurgreiðsla barna-
bóta og barnabótaauka.
stuttu í Morgunblaðinu að þegar
loka átti yfir 100 fyrirtækjum
vegna söluskattsvanskila vom
komnir að þeim nýir eigendur. Þetta
verður að stöðva,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson.
ingu þessa frumvarps, m.a. hafí
verið ráðuneytið kynnt sér slíka
lagasetningu í Bretlandi, Banda-
ríkjunum, á Norðurlöndunum og
víðar. Þá muni nefndin ræða við
fjölmarga aðila í þjóðfélaginu um
efnisþætti og form slíkra laga. Fjár-
málaráðherra sagði þó ekki Ijóst
hvenær slíkt frumvarp geti orðið
að lögum.
Skattar hjóna með 2 börn, annað yngra en 7 ára, þar sem
bæði hjón hafa sömu tekjur
Áhrif skattbr.
Tekjuskattur Tekjuskattur á mánaðargreiðslur
Mánaðarlaun f. breytingu e. breytingu tekjuskatts
kr. kr. kr.
80.000 -s-13.200 + 13.800 +600
90.000 h-12.000 + 12.600 +600
100.000 -s-10.800 +11.400 +600
120.000 +7.700 +8.300 +600
150.000 3.400 3.700 300
200.000 17.600 18.900 1.300
250.000 31.900 34.200 2.300
300.000 46.100 49.400 3.300
Skattar hjóna með tvö börn, annað yngra en 7 ára, þar
sem annað hjónanna aflar tekna
Áhrif skattbreytinga
tekjuskattur Telguskattur á mánaðargreiðslur
Mánaðar- laun lyrir breytingu eftir breytingu tekjuskatts
kr. kr. kr.
80.000 + 13.200 + 13.800 +600
90.00 +12.000 + 12.600 +600
100.000 +10.800 +11.400 +600
120.000 +4.300 +4.700 +400
150.000 6.700 7.300 600
200.000 21.000 22.500 1.500
250.000 35.200 37.800 2.600
300.000 49.500 53.000 3.500
Endurskoðun reglna um inn
heimtu söluskatts er hafín
Dæmi um tekjuskatta
samkvæmt frumvarpinu
Skattlagning raun-
vaxta undirbúin