Morgunblaðið - 14.12.1988, Síða 32
KÓr MA á æfingu í kirkjunni. Morgunbladið/SverrirPáll
Kór Menntaskólans á Akureyri:
Jólatónleikar í kirkjunni
Jólatónleikar verða í Akur-
eyrarkirkju í kvöld, miðviku-
dagskvöld. Kór Menntaskólans
á Akureyri flytur þar dagskrá
sína, meðal annars nokkur jóla-
lög frá ýmsum löndum. Söng-
stjóri kórsins er Óskar Einars-
son.
Söngur hefur lengi verið mikið
stundaður í Menntaskólanum á
Akureyri og Söngsalur er einhver
elsta hefðin í skólanum, þegar
nemendur syngja á gangi gamla
skólahússins og biðja um leyfí til
að syngja á Sal. og ef þar er veitt
er jafnan sungið þar saman í eina
kennslustund eða svo. En kórstarf
hefur líka lengi verið viðhaft í
skólanum, eða allt frá árinu 1931,
þegar Björgvin Guðmundsson
stofnaði blandaðan kór Mennta-
skólans. Dálítið hefur kórstarf þó
verið óreglulegt síðustu árin eða
þar til núverandi kór hóf starf
síðla vetrar 1987. Á síðasta ári
voru kórfélagar um fjörutíu en
nú eru í kórnum sjötíu og fjórir
nemendur.
Á efnisskrá kórsins eru lög frá
ýmsum löndum. Fyrri hluti söng-
skrárinnar eru veraldleg sönglög
en í seinnihlutanum eru jólalög,
íslensk og erlend.
Tónleikar Kórs Menntaskólans
á Akureyri hefjast í Akureyrar-
kirkju í kvöld klukkan hálfníu.
Skemmdarvarg-
ar á ferðinni
SKEMMDARVARGAR voru á
ferð á Akureyri aðfaranótt
sunnudagsins. Talið er að þeir
hafi verið tveir og skemmdu þeir
nokkra bíla á leið sinni frá sunn-
anverðri Brekkunni og niður á
Gleráreyrar.
„Slóð þeirra lá frá Hamarsstíg,
norður Munkaþverárstræti og niður
á Eyri, norður Hvannavelli og út að
smurstöð Þórshamars við Tryggva-
braut," sagði Gunnar Jóhannsson,
rannsóknarlögreglumaður í samtali
við Morgunblaðið.
Skemmdarvargarnir skemmdu
fjóra bíla í Munkaþverárstrætinu,
sneru upp á rúðuþurrkur og spegla,
einn var skemmdur á bílasölu Höld-
urs við Hvannavelli og „hamast í
flestum bílum sem stóðu þar utan-
dyra og síðan var bíll við smurstöð
Þórshamars mest skemmdur. Rúða
brotin í honum og einnig ljósin,"
sagði Gunnar. Þá hafa skemmdar-
vargarnir farið inn í allmarga bíla á
leið sinni og kveikt ljósin á þeim til
að fullkomna „skemmtigöngu" sína
en eigendunum væntanlega til ar-
mæðu og erfiðleika morguninn eftir.
Rannsóknarlögreglan hefur enn
ekki haft hendur í hári sökudólganna
en biður þá sem upplýsingar kunna
að geta gefið að hafa samband.
Svartfugl hf.:
Fógeti varð við beiðni
um gjaldþrotaskipti
Svartfiigl hf. hefur verið tek-
inn til gjaldþrotaskipta að beiðni
stjórnar fyrirtækisins. Stjórnin
lagði inn beiðni þar um á föstu-
daginn var, eins og greint var
frá í Morgunblaðinu á laugardag,
og varð fógetaembættið við
bciðninni á mánudag.
Nú verður gefin út innköllun til
kröfuhafa og hafa þeir tvo mánuði
til að lýsa kröfum sínum í búið.
Arnar Sigfússon, fulltrúi hjá bæjar-
fógetaembættinu, hefur verið skip-
aður skiptaráðandi. Hann sagði
eignir fyrirtækisins vera tækjabún-
að, innréttingar, húsgögn, borð-
búnað og sendibifreið. Ekki liggur
ljóst fyrir hvert verðmæti eignanna
er.
Fjölmenni á nemendasýn-
ingu dansstúdíós Alice
DANSSTÚDÍÓ Alice hélt nem-
endasýningu í íþróttaskemmunni
á laugardaginn eins og venjulega
„ fyrir jólin. Rúmlega 200 manns, á
aldrinum fjögurra ára til þrítugs,
tóku þátt í sýningunni og var mik-
ill fjöldi áhorfenda á sýningunni
— troðfullt út úr dyrum og urðu
margir að standa að sögn Helgu
Alice Jóhanns, eiganda dansstú-
díósins.
Við höldum alltaf svona nemenda-
sýninga þegar önninni lýkur fyrir
jólin og einnig á vorin. Við viljum
leyfa fólki að sjá hvað við erum að
gera — og líka gefa krökkunum
tækifæri til að koma fram og sýna
djassdans," sagði Helga Alice. Þess
má geta að með krökkunum dansaði
Danny Clark, sem starfað hefur hjá
Helgu Alice síðan í september og er
nú farinn aftur til New York þar sem
hann starfar sem einn af aðaldönsur-
um Alvin Aily dansflokksins. Rúnar
Þór ljósmyndari Morgunblaðsins á
Akureyri var á sýningunni og tók
meðfylgjandi myndir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
M(»rgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson
Jólakort sem aðgangs-
miði á Emil í Kattholti
LEIKFÉLAG Akureyrar hefur
látið útbúa jólakort sem gildir
sem aðgöngumiði á sýningu fé-
lagsins á barnaleikritinu Emil í
Kattholti.
Það er Emil sjálfur og ída vin-
kona hans sem prýða kortið, sem
kostar 600 krónur — eða sama og
venjulegur aðgöngumiði á sýning-
una.
Jólakort Lrikfélagsins eru til sölu
í leikhúsinu og í versluninni Punkt-
inum í göngugötunni. Að sögn Am-
órs Benónýssonar, leikhússtjóra,
ganga æfingar á verkinu vel en
frumsýnt verður 26. desember.
Atvimiuleysi á Akur-
eyrinú 1,1-1>2%
1.768 heilir atvmnuleysisdagar í nóvember
UM SÍÐUSTU mánaðamót voru
112 á atvinnuleysisskrá á Akur;
eyri, 46 konur og 66 karlar.I
nóvember voru alls 1.768 heilir
atvinnuleysisdagar, sem sam-
svarar þvi að 80 manns hafi ver-
ið atvinnulausir allan mánuðinn.
Að sögn Þorleifs Þórs Jónssonar,
starfsmanns atvinnumálanefhd-
ar bæjarins, er hér um að ræða
um 1,1-1,2% atvinnuleysi af
mannafla í bænum.
Þorleifur sagði þetta umtalsverða
aukningu frá því á sama tíma í
fyrra, „en það verður að skoðast
með tilliti til þess að í tvær vikur
voru atvinnuleysisbætur greiddar
þeim starfsmönnum Álafoss hf. sem
aðeins unnu þijá daga í viku vegna
verkefnaskorts. Þeir voru því tvo
daga á bótum í hverri viku þennan
tíma. Það er ein skýring á því hve
atvinnuleysið er mikið nú,“ sagði
Þorleifur.
Af þeim sem voru skráðir at-
vinnulausir um síðustu mánaðamót
voru 35 félagar í Einingu, 24 frá
Iðju, félagi verksmiðjufólks, og 22
frá félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks.
Þorleifur sagði atvinnuleysi alltaf
aukast á þessum árstíma, og aukn-
ingin frá því í fyrra væri ekki óeðli-
leg. „Það var mikil þensla í fyrra,
mikill uppgangur, og fólk vantaði
í vinnu. Þá voru 30 á atvinnuleysis-
skrá hér í bænum, því það er alltaf
þannig að ákveðinn hluti atvinnu-
aflsins getur ekki unnið, einhverra
hluta vegna. í fyrra var um 0,3 til
0,4% atvinnuleysi í landinu og nú
er það talið um 0,9%. Vinnumiðlun-
W’ (Tinnoil ii-l i • i! j' i "'i l i (n ni,i,
armenn sem ég hef rætt við á hin-
um Norðurlöndunum telja 1% at-
vinnuleysi eðlilegt og þó atvinnu-
leysi hafi tvöfaldast síðan í fyrra
verða menn að skilja að heimurinn
er ekki að farast. Það er eðlilegt
að á einhveijum tíma komi atvinnu-
leysi. Menn verða að gera sér grein
fyrir því að fyrir fáum árum var
mun meira atvinnuleysi hér í bæn-
um,“ sagði Þorleifur.
Ársverk á Akureyri árið 1986
voru 6.546 — 80 manns atvinnu-
lausir í heilan mánuð, eins og var
í nóvember, miðað við þá tölu, þýð-
ir 1,2% atvinnuleysi. Að sögn Þor-
leifs voru ársverkin eitthvað fleiri
í fyrra en 1986 og sagði hann at-
vinnuleysið í bænum nú 1,1-1,2%
af mannafla sem fyrr greinir.