Morgunblaðið - 14.12.1988, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
_________Brids____________
Arnór Ragnarsson
Úrslit Reykjavíkurmótsins
í tvímenningi
Úrslitakeppni Reykjavíkurmóts-
Ins í tvímenningi fór fram í Sigtúni
9 um síðustu helgi (10.-11. des.).
Gylfi Baldursson..og Sigurður B.
Þorsteinsson sigruðu hana með
nokkrum yfirburðum. Þeir tóku for-
ystuna þegar mótið var tæplega
hálfnað, og höfðu þegar upp var
staðið 109 stiga forskot á næsta
par. Sigurinn er athyglisverður fyr-
ir þær sakir að þeir Sigurður og
Gylfi voru fyrsta varaparið í úrslit-
unum, en komust inn vegna for-
falla hjá einu pari. Eftirtalin pör
enduðu í plús af þeim 24 pörum sem
Jf þátt tóku:
Gylfi Baldursson —
Sigurður B. Þorsteinsson 229
Ólafur Lárusson —
Hermann Lárusson 120
Guðlaugur R. Jóhannsson —
Orn Arnþórsson 119
ísak Örn Sigurðsson —
Sigurður Vilhjálmsson 97
Jón Þorvarðarson —
Guðni Sigurbjarnason 90
Karl Sigurhjartarson —
Guðmundur P. Arnarson 83
Jón Baldursson —
ValurSigurðsson 81
Ásgeir Ásbjörnsson —
Hrólfur Hjaltason 41
Aðalsteinn Jörgensen —
Ragnar Magnússon 22
Rúnar Magnússon —
Páll Valdimarsson 19
Bragi Hauksson —
Sigtryggur Sigurðsson 11
Bridsdeild Rang-
æingafélagsins
--w,-------- ^
Sveit Rafns Kristjánssonar hefir
örugga forystu í Hraðsveitakeppn-
inni þegar spilaðar hafa verið fjórar
umferðir af fimm.
Staðan:
Rafn Kristjánsson 1971
Daníel Halldórsson 1908
Ingólfur Böðvarsson 1834
AmórÓlafsson 1810
Lilja Halldórsdóttir 1789
Baldur Guðmundsson 1769
Hæsta skor í 4. umferð:
Daníel Halldórsson 483
Rafn Kristj ánsson 471
Lilja Halldórsdóttir 459
Ingólfur Böðvarsson 454
Síðasta umferðin verður spiluð
miðvikudagskvöld kl. 19.30 í Ár-
múla 40.
Hreyfíll — Bæjarleiðir
Sveit Daníels Halldórssonar sigr-
aði í aðalsveitakeppni bílstjóranna
sem nýléga er lokið. Með Daníel
spiluðu í sveitinni: Sigurður Ólafs-
son, Jón Sigtryggsson, Skafti
Bjömsson, Kristinn Lund og Sig-
mundur Stefánsson.
Lokastaðan:
Daníel Halldórsson 221
Cyrus Hjartarson 214
Birgir Sigurðsson 198
Jón Sigurðsson 197
Skjöldur Eyfjörð 184
Gunnar Guðmundsson 147
Keppnin hefst á ný 9. janúar
með barómeterkeppni sem trúlega
mun standa í fimm kvöld. Spilað er
í Hreyfilshúsinu kl. 19.30. Keppnis-
stjóri er Ingvar Sigurðsson.
Sveit Kristjáns
Guðjónssonar
Akureyrarmeistari
Sveit Kristjáns Guðjónssonar er
Akureyrarmeistari í sveitakeppni í
brids 1988, en sveitin sigraði á
Akureyrarmóti Bridsfélags Akur-
eyrar, sem lauk sl. þriðjudag.
Sveit Kristjáns er vel að sigrinum
komin, en hún tók forystuna í mót-
inu strax eftir fyrstu tvær umferð-
irnar. Árangur sveitarinnar er
glæsilegur, því hún gerði einungis
eitt jafntefli, í 1. umferð, og tapaði
einum leik naumlega. Aðra leiki
vann sveitin og flesta með nokkmm
yfirburðum.
Lokastaða efstu sveita varð
þessi:
Sv. Kristjáns Guðjónssonar 260
Sv. Amars Einarssonar 249
Sv. Grettis Frímannssonar 232
Sv. Ólafs Ágústssonar 218
Sv. Gylfa Pálssonar 217
Sv. Stefáns Vilhjálmssonar 215
Sv. Páls H. Jónssonar 203
14 sveitir tóku þátt í mótinu.
Keppnisstjóri var Álbert Sigurðs-
son. Sigursveitina skipa þeir Krist-
ján Guðjónsson, Anton Haraldsson,
Pétur Guðjónsson og Stefán Ragn-
arsson.
Sveit Arnars Einarssonar, sem
varð í 2. sæti, skipa þau Öm Einars-
son, Hörður Steinbergsson, Soffía
Guðmundsdóttir og Hermann Tóm-
asson.
Óvenjulegtjólamót
Síðasta spilakvöld fyrir jól hjá
Bridsfélagi Ákureyrar var sl. þriðju-
dagskvöld. Var spilaður jólatví-
menningur með allnýstárlegu fyrir-
komulagi. Bmgðið var út af vanan-
um með ýmsum hætti. T.d. var
enginn keppnisstjóri og farið frjáls-
lega með stöngustu keppnisreglur.
Verðlaunin vom af óvenjulegra tag-
inu. Má þar nefna úrbeinað jóla-
hangikjöt, Lindu-konfekt, kerti og
spil, bridsbækur o.fl. o.fl.
Ágóðinn af jólatvímenningnum
rann óskiptur til landssöfnunar
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
UPPHAF GOÐRAR MALTIÐAR
MOULINEX RAFMAGNSHNÍFURINN ÞRÁÐLAUSI
MEÐ TVÍEGGJA SJÁLFBRÝNANDI STÁLBLAÐI.
JAFNVÍGUR Á ALLAN MATARSKURÐ.
/smwkíý' .. I
9BBMHBBHBBBBEBSHBBBBBHBBBB9BBUBB
ARFURINN
Erik Nerlöe
Hún er ung og fátæk og
ferðast til aldraðrar frænku
sinnar til að aðstoða hana í
veikindum hennar. Aiveg
síðan hún var barn hafði
hana dreymt um að fá
einhvern tíma tækifæri til þess
að búa á óðalssetri. Þessir
draumar hennar höfðu fengið
hana til að gleyma dapurlegri
og erfiðri bernsku sinni. Nú
virtust óskir hennar mjög
óvænt vera að rætast - en
ungi maðurinn í draumum
hennar elskar aðra...
GYLLTU SKORNIR
Else-Marie Nohr
Móðir hennar var kona, sem
var erfið í umgengni, og
hugsaði aðeins um sjálfa sig.
Og bróðir hennar var
eiturlyfjasmyglari, sem
eftirlýstur var af lögreglunni.
Eitt kvöldið fer hún frá
heimili sínu og eftir það
fréttist ekkert af henni. Þegar
hún sást síðast, var hún
klædd hvítum hlíralausum
kjól, með gula slá og var í
gylltum skóm. Lögreglan er á
þeirri skoðun, að henni hafi
verið rænt af samtökunum,
sem bróðir hennar cr í.
ASTOGATOK
Sigge Stark
Þær höfðu farið upp í selkofa,
sem var úr alfaraleið uppi í
skóginum. Þær voru dálítið
óttaslegnar, því að þær höfðu
frétt af því, að smyglarahópur
héldi til í nágrenninu. Þær
voru taugaóstyrkar, og enn
meir eftir að hundur þeirra
hafði fundið bakpoka falinn
bak við stóran stein í
skóginum. í bakpokanum var
samanvafinn frakki, fjórir
elgsfætur og bréfmiði, sem á
var skrifað „Miðvikudag kl.
11". En hvað átti að gerast á
miðvikudag klukkan ellefu?
SKVGGSJA - BOKABVÐ OUVERS STEINS SF
ORLAGAÞRÆÐIR
Barbara Cartland
Idona Overton hafði orðið
furðu lostin, þegar hún komst
að því, að faðir hennar hafði,
áður en hann var drepinn í
einvígi, tekið þátt í veðmáli.
Og það sem hann hafði lagt
undir var húseign hans, allt
sem í húsinu var — og þar
með talin dóttir hans. Þetta
hafði hann lagt undir í
veðmáli við markgreifann af
Wroxham. En vcgir örlaganna
eru órannsakanlegir, og þegar
heitar tilfinningar leysast úr
læðingi milli tveggja persóna,
getur hvað sem er gerst —
einnig það, sem síst af öllu
var hægt að láta sér detta í
hug . . .
AÐEINS UM EINA HELGI
Theresa Charles
Morna, eldri systir Margrétar
Milford, hafði tekið fyrstu ást
Margrétar frá henni og gifst
honum. Og síðan hafði Morna
sagt við Margréti: „Gleymdu
eiginmanni mínum — og
komdu ekki nálægt okkur!"
Þetta hafði sært Margréti
mikið. Nú var Morna sjúk af
einhverri dularfullri veiruveiki
og gat ekki hugsað um börnin
sín þrjú — og það var erfitt
fyrir Margréti að neita hinni
örvæntingarfullu beiðni um
hjálp. Það er aðeins yfir
helgina fullvissaði Margrét
hinn góða vin sinn, Hinrik,
um. Það getur nú ekki margt
gerst á einni helgi.