Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
41
Stefnum ekki á skyndisölu
Taktursegir
poppsoguna og
gefur útjass
Útgáfufyrirtœkift Taktur hefur
ekki verift umsvifamikið seinni
ár, a.m.k. ekki ef miftaft er vift
hina hefftbundnu poppútgáfu.
Taktur sendir þó alltaf frá sér
eitthvaft af plötum, en fyrir þessi
jól er útgáfan nœr eingöngu
geisladiskar, sem Taktsmenn
segja vísa til þess sem verftur.
Tónlistin á þeim fimm geisla-
diskum sem Taktur gefur út að
þessu sinni spannar allt frá popi
í framsækinn jass og nær yfir rúm
þrjátíu ár. Diskarnir eru safn bestu
laga Hauks Morthens, safn bestu
laga Hljóma, platan Get ég tekið
cjéns frá 1984 með Grafík, Þjóð-
legur fróðleikur með Tríói Guð-
mundar Ingólfssonar og Quintet
með Kvintett Björns Thorodd-
sens. Útgáfustjóri Takts er Gunn-
ar Hrafnsson og Rokksíðan leitaði
til hans til að afla frekari upplýs-
inga um útgáfuna.
Þið gefift út Hauk Morthens
og Hljóma í útgáfuröðinni Gulln-
ar glæftur, er þetta bara byrjun-
in?
Við eigum allar upptökur Fálk-
ans og SG-hljómplatna sem
spanna alla dægurlagasögu ís-
lands frá því á fimmta áratugnum
og fram undir 1980. Við ákváðum
að gera þessu rækileg skil með
því í fyrsta lagi að gefa út það
besta með ákveönum listamönn-
um og hljómsveitum og síðan að
gefa út vinsælustu lög hvers árs
þar sem minni spámenn fá að
komast að, auk þess sem við
munum gefa út safndiska með
hljómsveitum ákveðins tímabils. í
þeirri útgáfuröð sem við köllum
Gullnar glæður geta rúmast plöt-
ur með einstökum listamönnum
og hljómsveitum eins og diskurinn
með Hauki og Hljómum, en inn í
þá röð kæmu einnig diskar eins
og vinsælustu lög hvers ár, þá
kannski saga þriggja ára á 25 laga
dlski.
Eru elstu segulböndin með
upptökunum ekki orftin léleg?
Það þarf ekki að vera. Tökum
sem dæmi böndin með Hauki
Morthens. Þau voru á sínum tíma
tekin upp í Danmörku á 30 tommu
hraða, en á þeim árum var algeng-
ast að upptökuhraöinn væri 15
tommur fyrir tónlist og 7 tommur
fyrir tal. Böndin verpast með
tímanum, en vegna þessa mikla
upptökuhraða, sem var þá nánast
óþekktur, er ekki merkjanleg bjög-
un eða suð. Menn ætiuðu reyndar
ekki að trúa sínum eigin eyrum
þegar þeir heyrðu hvað böndin
hljómuðu vel.
Hvaða markaftur heldur þú aft
sé fyrir svona „poppminjaút-
gáfu“, eins og t.a.m. Hljómadisk-
inn?
Það er tvennt sem styrkir
þessa útgáfu; fyrir það fyrsta er
þetta ódýr útgáfa, þar sem búið
er að taka tónlistina upp og það
þarf í flestum tilfellum ekki að
kosta miklu til til að ná fram góð-
um hljóm og svo er það hitt að
tónlistin er þess eðlis að þetta
eru diskar' sem eiga eftir að selj-
ast á löngum tíma. Við erum ekici
að stefna á skyndisölu, en eftir
því sem tíminn líður og diskarnir
verða fleiri í útgáfuröðinni verða
þeir allir eigulegri.
í vor fréttu menn aft það væri
mikill áhugi fyrir Birni Thorodd-
sen í Noregi og í Danmörku og
geisladisknum, sem þift gefift út
meft honum nú, er dreift af
danska fyrirtækinu Stunt Rec-
ords.
Þessi plata varð til í framhaldi
af samstarfi Björns með Uffe
Markussen í Stórsveit Ríkisút-
varpsins, sem kom saman þess-
ari hljómsveit til að gera þessa
plötu. Þessi plata og þeir menn
S IÐ AN
sem spila með honum á plötunni,
menn eins og Alex Riel, sýnir
hvaða burði Björn hefur til að ná
langt á jasssviðinu. Það að þessir
menn skuli leika með honum hans
eigin lög inn á plötu og á tónleik-
um í Danmörku sýnir að þeir hafa
trú á honum og það að Stunt
Records, sem gefur aöeins út
hágæðajass, skuli hafa viljað
dreifa plötunni eru mikil með-
mæli með Birni.
Af hverju gáfuð þift út diskinn
meft Grafík?
Mér skilst að á sínum tíma
hafi misfarist útgáfan á þessari
plötu. Platan varð óhemju vinsæl,
t.a.m. voru þrjú lög af henni
samtímis á vinsældalista rásar
tvö, en hún kom seint á markað
og þegar upplagið kláraðist var
ekki pressað meira og vinsældun-
um því ekki fylgt eftir. Við ákvað-
um að gefa þennan disk út vegna
þess að við höfðum trú á því að
það væri unnt að selja upp í kostn-
að og vegna þess að það var
Rúnari og Rafni metnaðarmál að
sjá þessa plötu á geisladisk.
Að lokum er þaft platan með
Guðmundi Ingóifssyni.
Guðmundur er sennilega vin-
sælasti íslenski jassleikarinn og
mér finnst þessi plata vera það
lang besta sem hann hefur sent
frá sér. Á henni er hann að gera
það sem hann gerir best; hann
er að leika sér að gömlum þjóð-
lögum og hann er í klassískri
sveiflu allan tímann. Þessi plata
rótsvingar, enda er hann með
Guðmund Steingrímsson, „papa
jazz“ með sér.
- 1
|/ v|
I bókinni „Ævintýri
barnanna“, eru
24 sígild ævintýri prýdd
fallegum myndum.
Þettaeru ævintýrin um
sætabrauðsdrenginn,
þrjá birni, Rauðhettu,
kiðlingana sjö, þrjá litia
grísi og fleiri
góðkunnar ævintýra-
hetjur.
Þetta eru ævintýrin
sem börnin vilja lesa
aftur og aftur.
UJLi
'•K1'
Aldrei glæsilegra úrval
smekklegra jólagjafa
Innisett
Náttföt
Inniskór
Skyrtur
Bindí
Peysur
Frakkar
Hattar
Treflar
Hanskar
Lodhúfur
Jakkar
Buxur
Teppamottur
Baðmottusett
Baövogir
Olíulampar
Ferðabarir
Herrasloppar
JJ
GEísIP
H
Mrt m>-ndum .-ftú Pélur Dehrens
HAMINGJU-
BLÓMIN
eftir Guðjón Sveinsson
Þetta litla ævintýrl er fullt af lífi, lit
og söng islenskrar náttúru. Þar
segir frá lítilli stúlku, sem er á ferð
með undarlegan blómavönd, við-
brögð fólks við heimsókn hennar og
óvæntum endi.
Bókin er prýdd litmyndum eftir Pétur
Behrens.
siÉmammm
■
■ ■
Verð kr. 1.250,00.
OÍSU HÖQjtóON 1
Sii
raCHARDT RYEL
Snæbjörg
I k, Sólgörðum ,