Morgunblaðið - 14.12.1988, Side 43
(
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
43
mitt á því tímabili sem Hollywood
var alltaf troðfullt allar helgar og
maður rasaði ansi vel út á þessu
tímabili. Þó ég sé nú ungur þá
ætla ég að fara að taka það rólega
og sinna komandi verkefnum af
krafti. Maður skemmti sér ansi
mikið hérna í gamla daga, segir Jón
og hlær.
Hefúrðu ferðast víða?
Já, ég hef ferðast töluvert. Mér
fínnst alltaf skemmtilegast að koma
til Bandaríkjanna. New York er
algjör draumaborg. Þar er allt sem
hugurinn girnist og mikið af mögu-
leikum. Síðan hef ég farið í þessar
hefðbundnu sólarlandaferðir. Nú,
þegar ég var í innflutningnum þá
ferðaðist maður mikið en stoppaði
stutt í hverju landi. Þessar ferðir
voru skemmtilegar fyrst en síðan
fór manni að leiðast þessi eilífu
ferðalög.
Verðið þið með einhverjar nýj-
unga á nýja skemmtistaðnum?
Já, við breyttum staðnum tölu-
vert og síðan verðum við með pizzu-
stað á efstu hæðinni. Nú, við ætlum
að vera með lifandi tónlist á
fímmtudögum og sunnudögum. Það
er á stefnuskránni að fá hingað
norður hina vinsælu hljómsveit
Hljóma og endurvekja þá skemmti-
legu stemmningu sem var í kringum
þá hljómsveit,
Hvernig var að byija svona
ungur að flytja inn vörur. Háði
það þér hvað þú varst ungur?
Nei, veistu það að ef maður hef-
ur virkilegan áhuga á því sem mað-
ur er að gera þá á dæmið að ganga
upp. Þetta er ekki eins áhættusamt
og fólk heldur en það er alveg
makalaust hvað margir eru í inn-
flutningi hér á íslandi. Maður hefur
stundum á tilfinningunni að annar
hver maður sé að flytja inn ein-
hvetja vöru. Ég held að við íslend-
ingar séum með hæsta hlutfall í
heildverslun í heiminum.
Ertu farinn að búa?
Nei, ekki ennþá. Að vísu hef ég
búið hjá kærustunni minni síðasta
mánuðinn en ég er annars ekki
fluttur að heiman. A.m.k. ekki bú-
inn að pakka dótinu niðrí kassa.
Draumurinn er sá að fjárfesta í
íbúð en maður er dálítið smeykur
við það. Maður má ekki ana að
neinu í því sambandi.
Þú ætlar ekki að flytjast norð-
ur?
Nei, ekki til að byrja með, en
hver veit hvað verður. Eg flýg bara
á milli um helgar fyrst um sinn.
Maður er svo sem ekki í neinu
vafstri núna fyrir sunnan. Ætli það
væri ekki bara sniðugt að flytjast
hingað. Hver veit hvað verður segir
Jón að lokum og rekur upp hrossa-
hlátur.
Eru miklir atvinnumöguleikar
hér á Selfossi?
Það eru töluverðir möguleikar en
Selfoss er láglaunasvæði.
Af hveiju?
Ja það er ekki eins mikil þensla
í atvinnulífinu hérna og t.d. fyrir
sunnan og ekki höfum við fiskinn
eins og svo margir bæir. Og það
er eitt í þessu sambandi sem ég vil
minnast á og það er í sambandi við
Mjólkurbúið en það er alltaf meir
og meir farið að vinna mjólkina
fyrir sunnan. En ef maður er dug-
legur er alltaf nóga vinnu að fá.
Ef það er kraftur í manni. Nú síðan
eru margir sem búa hérna á Sel-
fossi og keyra á morgnana suður
og koma síðan heim á kvöldin. Ég
veit um iðnaðarmenn sem tóku sig
til og keyptu bíl saman sem þeir
keyra á fram óg til baka.
Hvað gerir unga fólkið hér á
Selfossi sér til dægrastyttingar?
Nú í haust var tekin í notkun
félagsmiðstöjð hérna í kjallara
gagnfræðaskólans. Fyrir ofan
ATVR er biljardstofa sem er tals-
vert stunduð skilst mér. Svo er
nýkomin heilsurækt en það sem
vantar áþreifanlega hérna er kvik-
myndahús. Til að fara í bíó er allt-
af keyrt suður.
Segðu mér að lokum Guðbjörg
hvað leggurðu áherslu á í
íþróttakennslunni?
Ég reyni að kenna krökkunum
að umgangast líkama sinn Það
skiptir ekki máli hvort þau eru lítil
eða feit. Þau þurfa að læra að virða
líkama sinn og sjálf sig. Það dásam-
legast í starfinu er þegar maður sér
árangur erfiðis síns. Það er dásam-
legt að upplifa það.
VELKOMIN í TESS
Falleg jólagjöf
á góðu verði.
Einnig yfirstærðir.
TESS
NEÐSTVIÐ
DUNHAGA,
Sími622230.
X'
-/§5
MlfíMI
KOSTUR FYRIR ÞIG
NOR1T1INOX
U * \
f *
H^GÆÐAFL0KÍ
, 1.0LTR.
, ,4 ltb- kr-1-507"
B kr-1-696-'
2,25 LTR-
R KR-1-449''
) 2,0 LTR-
c|TB kr.1-866-'
3,75 L.TR-
R KR.2A54-’
6,5 LTH.
KR 1.349-'
:| 24 CM
KR. 2-429*'
a i ifí 28 CM
i ALLT!
Augnoblik/LP