Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
f
fclk í
fréttum
Meðal gesta á kynningu Álafoss
hf. voru talið frá vinstri:
Víglundur Þorsteinsson formað-
ur Félags íslenskra iðnrekenda,
Gerður Hjörleifsdóttir lyá ís-
lenskum heimilisiðnaði, Ólafur
Daviðsson framkvæmdastjóri
Félags íslenskra iðnrekenda og
Jón Ogmundur Þormóðsson
deildarstjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu.
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
Greipur Guðbjartsson og Guðfínna Hinriksdóttir.
FLATEYRI
Leikfélaginu gefíð hús
Aaðalfundi Leikfélags Flateyrar
sem haldinn var fyrir skömmu
var félaginu afhent húseignin við
Túngötu 4, sem er tveggja hæða
einbýlishús. Guðfínna Hinriksdóttir
og Greipur Guðbjartsson gáfu þessa
höfðinglegu gjöf sem metin er á
rúmlega 3,5 milljónir skv. bruna-
bótamati.
Eftir áramótin verður fært upp
íslenskt fjölskylduleikrit í léttum
dúr á vegum félagsins. Oktavía
Stefánsdóttir leikstýrir verkinu og
er það fjórða árið í röð sem hún
setur upp leikrit fyrir Leikfélag
Flateyrar.
ULLARVÖRUR
Alafoss kynnir nýjungar
Alafoss hf. kynnti nýlega ýmsar
nýjungar í fatnaði, værðarvoð-
um og handptjónabandi, sem settar
verða á markað á næstu mánuðum
bæði hér á landi og erlendis. Um
þessar mundir er að ljúka fyrsta
starfsári fyrirtækisins eftir samein-
ingu gamla Álafoss og ullariðnaðar
Sambandsins, og er sú vara sem
nú kemur á markað alfarið hönnuð
og þróuð eftir að nýja fyrirtækið
tók til starfa. í byijun næsta árs
er væntanleg á markað ný fatalína
frá Álafossi, en með henni er farið
nær framleiðslu hefðbundins tísku-
fatnaðar en verið hefur hjá fyrir-
tækinu til þessa. _
Frá fatadeild Álafoss hf. er nú
kynnt ný lfna í Icewool, sem er hinn
hefðbundni íslenski ullarfatnaður,
og er einkum framleiddur fyrir rót-
gróna markaði í Evrópu og Banda-
ríkjunum, auk Japans. Þar er um
að ræða vörur í íslenskum sauðalit-
um og pastellitum, en til viðbótar
kemur ný litalína, sem fellur nær
þeim tískustraumum sem ríkjandi
eru um þessar mundir. Hönnuðir
eru þær Hulda Kristín Magnús-
dóttir og Gunnhildur Ásgeirsdóttir,
sem nutu ráðgjafar bæði í Banda-
ríkjunum og Evrópu.
Nú þegar er komin á markað
framleiðsla banddeildarinnar í Mos-
fellsbæ, en þar er um að ræða nýja
liti í lopa og flosi, en einnig er vand-
að til uppskriftagerðar. Það var
breski hönnuðurinn Christian de
Falbe sem hafði veg og vanda af
hönnun og uppskriftagerð að þessu
sinni, ásamt tveimur íslenskum
hönnuðum. Byijað er að dreifa upp-
skriftunum, sem eru 55 talsins, í
Bretlandi og Kanada, þar sem þær
hafa fengið góðar viðtökur. í undir-
búningi er að dreifa þeim einnig á
viðkomandi tungumálum á Norður-
löndunum og í Þýskalandi. Hluti
þeirra var gefínn út á íslensku.
Værðarvoðirnar, sem nú eru
kynntar, eru hannaðar af Guðrúnu
Gunnarsdóttur, textílhönnuði. Þar
er að fínna ýmsar nýjungar, til
dæmis svokallaða lundalínu; einlit
teppi í fjölmörgum litum sem bera
nýtískulegt yfírbragð, og er fyrst
og fremst ætlað að höfða til yngra
fólks.
Helga Möller sýningarstúlka
klædd peysu frá fatadeild Ála-
foss hf.
Morgunblaðið/Sverrir
Jólagleði
og íþróttir
Isíðustu viku lauk í Garðabæ
íþróttanámskeiði fyrir yngstu
bömin. Voru það fjörutíu 5-7 ára
böm sem í allt haust hafa notið
þjálfunar hjá íþróttafélaginu
Stjömunni og Iþrótta- og tómstund-
aráði Garðabæjar. íþróttakennarar
við Fjölbrautaskóla Garðabæjar
hafa stýrt kennslunni en til aðstoð-
ar vom nemendur þeirra á íþrótta-
sviði. Er skólanum var slitið var
haldin hátíð í Ásbúð í Garðabæ.
Kátt var á hjalla og jólasveininum
var að vonum vel fagnað er hann
birtist þar með epli og trópídrykk.
Öll fengu bömin viðurkenningar-
skjal fyrir þátttöku í skólanum, eins
og sjá má á myndinni, sem tekin
var stuttu eftir að jólasveinninn brá
sér af bæ.