Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 14.12.1988, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 49 Kortið sem Björgvin Frederiksen hefur gefið út í tilefni leiðtoga- fúndarins í Reykjavík. Hann smíðaði einnig fána- borgina. LEIÐTOGAFUNDURINN Fánaborg í minningarskyni Þeir Ronald Reagan, Bandarilq'a- forseti, og Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtogi, hittust í fimmta og líklega síðasta sinn í New York á dögunum. Sagan á eftir að segja síðasta orðið um það, hver þessara funda hafi verið merkastur. í hug- um íslendinga hlýtur Reykjavíkur- fundinn haustið 1986 að bera hæst. Minnast menn hans enn með ýms- um hætti og nú hefur Björgvin Frederiksen smíðað fánaborg þar sem fána Reyiq'avíkur ber hæst en til hliðar við hann eru fánar Sov- étríkjanna og Bandaríkjanna. Jafn- framt hefur Björgvin látið prenta litkort af fánaborginni með mynd af Höfða í baksýn. Björgvin Frederiksen sagði að með leyfi réttra yfirvalda hefði hann ráðist í að gera þennan minningar- grip um Reykjavíkurfundinn. Það væri aldrei of seint að minnast jafn merkilegs atburðar, þar sem mikil- vægt skref hefði verið stigið í friðar- átt. Aftan á kortinu er leiðtogafund- arins getið í texta sem birtur er á íslensku, dönsku, ensku, þýsku og rússnesku. Björgvin sagði, að kortið hefði verið gert í takmörkuðu upplagi og væri aðeins til sölu í versluninni Bristol í Bankastræti. I rúmlega hálfa öld hefur gullsmíðastofa Kjartans Ásmundssonar haft mikið úrval gull og demantsskartgripa á boðstólum. Aldrei fyrr hefur úrvalið verið meira og allt eru það gæðademantar sem fluttir eru inn frá Antwerpen, miðstöð demantsviðskipta í heiminum. Ef þú leitar að fallegri gjöf sem gleður ástvin, - þá líttu við hjá okkur. 'em/wfar JARTAN ASMUNDSSON GULLSMIÐUR Aðalstræti 7 101 Reykjavík PÉTUR ZOPMONÍASSON VKINGS LEKJARÆTT !V FANGINN OG DÓMARINN Þáttur af Siguröi skurdi og Skúla sýslumanni Ásgeir Jakobsson Svonefnd Skurðsmál hófust með því, að 22. des. 1891 fannst lík manns á skafli á Klofningsdal í Önundarfirði. Mönnum þótti ekki einleikið um dauða mannsins og féll grunur á Sigurð Jóhannsson, sem kallaður var skurdur, en hann hafði verið á ferð með þeim látna daginn áður á Klofningsheiði. Skúla sýslu- manni fórst rannsókn málsins með þeim hætti, að af hlauzt 5 ára rimma, svo nefnd Skúla- mál, og Sigurður skurður, sak- laus, hefur verið talinn morð- ingi í nær 100 ár. Skurðsmál hafa aldrei verið rannsökuð sérstaklega eftir frumgögnum og aðstæðum á vettvangi fyrr en hér. VIKINGSLÆKJARÆTTIV Pétur Zophoníasson Þetta er fjórða bindið af niðja- tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hrepp- stjóra á Víkingslæk. Pétur Zophoníasson tók niðjatalið saman, en aðeins hluti þess kom út á sínum tíma. í þessu bindi eru i-, k: og 1-liðir ættar- innar, niðjar Ólafs og Gizurar Bjarnasona og Kristínar Bjarna- dóttur. í þessari nýju útgáfu Víkingslækjarættar hefur tals- verðu verið bætt við þau drög Péturs, sem til voru í vélriti, og auk þess er mikill fengur að hinum mörgu myndum, sem fylgja niðjatalinu. í næsta bindi kemur svo h-liður, niðjar Stefáns Bjarnasonar. ÞÓRÐUR KAKALI Ásgeir Jakobsson Þórður kakali Sighvatsson var stórbrotin persóna, vitur maður, viljafastur og mikill hermaður, en um leið mannlegur og vinsæll. Ásgeir Jakobsson hefur hér ritað sögu Þórðar kakala, eins mesta foringja Sturlunga á Sturlungaöld. Ásgeir rekur söguna eftir þeim sögubrotum, sem til eru bókfest af honum hér og þar í Sturlungusafninu, í Þórðar sögu, í Islendinga sögu, í Arons sögu Hjörleifssonar og Þorgils sögu skarða og einnig í Hákonar sögu. Gísli Sigurðsson myndskreytti bókina. ANDSTÆÐUR Sveinn frá Elivogum Ándstæður hefur að geyma safn ljóða og vísna Sveins frá Elivogum (1889-1945). Þessi ljóð og vísur gefa glögga mynd af Sveini og viðhorfum hans til lífs, listar og sam- ferðamanna. Sveinn var bjarg- álna bóndi í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta þessarar aldar. Hann var eitt minnisstæðasta alþýðuskáld þessa lands og þótti mjög minna á Bólu-Hjálmar í kveð- skap sínum. Báðir bjuggu þeir við óblíð ævikjör og fóru síst varhluta af misskilningi sam- tíðarmanna sinna. SKVGGSJA - BOKABÚÐ OIIVERS STEDfS SE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.