Morgunblaðið - 14.12.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTHR MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988
55
Júlíus Ingólfsson
Júlíus
Ingólfs-
son til ÍA
Júlíus Ingólfsson hefur ákveðið
að leika með Skagamönnum í
1. deild næsta keppnistímabil. Jú-
líus er ekki ókunnugur á Akranesi
því hann lék með Skagamönnum á
árunum 1981 til 1986. Síðasta árið
vann hann sér fast sæti í liðinu og
kvaridi sem bikarmeistari.
Síðan hefur Júlíus þjálfað og leik-
ið með UMFG í 3. deild, en heldur
nú aftur á fomar slóðir að lokinni
vertíðinni á sjónum.
ÍÞfémR
FOLK
■ RINAT Dassajev, sem er tal-
inn einn besti knattspyrnumark-
vörður heims, skrifaði nýlega undir
samning við lið Sevilla á Spáni.
Konan hans er einnig þekkt í
íþróttaheiminum og hefur líkt og
hann verið talin best á sínu sviði.
Það er Nelli Kim sem vann gull-
verðlaun fyrir fimleika á Ólympíu-
leikunum í Montreal fyrir 12 árum.
Þegar Dassajev skrifaði undir
samninginn við Sevilla fylgdi með
í kaupunum fullkominn fímleikasal-
ur fyrir Nelli Kim.
HANDBOLTI
Valur
sigraði
Val
A-lið Vals sigraði B-lið Vals
næsta örugglega í bikar-
keppni HSI í gærkvöldi,
lokatölur urðu 38:25, eftir
að staðan í hálfleik var 17:7.
Það var aðeins í byijun að
jafnræði var með liðunum,
en síðan kafsigldi A-liðið B-liðið
með fjölbreytilegu markaregni.
Þegar skyldi á milli var leikurinn
Ieikinn átakalítið og menn spör-
uðu kraftana fyrir stóra slaginn
gegn KR í kvöld.
I 1. deild kvenna áttu ÍBV
og FH að leika í Eyjum, en leikn-
um var frestað þar sem FH-
stúlkumar komust ekki til Vest-
mannaeyja.
FÉLAGSMÁL
AðalfundurGR
Aðalfundur Golfklúbbs
Reykjavíkur verður haldinn í
kvöld, miðvikudaginn 14. desember,
og hefst hann klukkan 20 í golf-
skálanum í Grafarholti.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Guðmundur Valur í FH
„ÉG hef ákveðið að koma mér
og fjölskyldu minni fyrir í
Hafnarfirðinum, þar sem við
eigum íbúð, og FH stendur
mér næst i 1. deild,“ sagði
Guðmundur Valur Sigurðs-
son í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, en hann
hefur skipt úr Þór í FH.
Guðmundur Valur, sem verður
28 ára á næsta ári, Iék tvö
undanfarin tímabii með Þór, en
áður með UBK í eitt ár, UMFN í
3 ár og Haukum í 4 ár. „Mér
líkaði mjög vel fyrir norðan, en
Guðmundur Valur Sigurðsson
það er erfitt að standa í stöðugum
flutningum með þrjú böm. FH er.
efhilegt og á uppleið og það er
ánægjulegt að fá tækifæri til að
ljúka ferlinum með Ólafi Jóhann-
essyni, en við byijuðum saman í
IIaukum,“ sagði miðvallarleik-
maðurinn.
FH sígraði í 2. deild á síðasta
keppnistímabili og að sögn Þóris
Jónssonar, formanns knatt-
spymudeildar FH, eru Hafnfirð-
ingar mjög ánægðir með að hafa
fengið Guðmund Val í sínar raðir.
„Hann var einn jafnbesti maður
Þórs, er leíkmaður sem leggur sig
allan fram og kemur til með að
styrkja okkur mikið," sagði Þórir.
ISI / IÞROTTAMENN ARSINS 1988
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hinir útnefndu afreksmenn, þ.e.a.s. þeir sem mættir voru. Þama eru enn fremur fulltrúar þeirra sem fjarverandi voru
og nokkur böm sem fengu bókargjöf í tilefni dagsins.
Bjami Friðriksson júdó-
maður ársins í 10. sinn
ÍÞRÓTTASAMBAND íslands
útnefndi í gærkvöldi íþrótta-
menn ársins í hinum ýmsu
greinum innan sambandsins,
en það er árlegur viðburður á
þeim bæ. Bar einna hæst, að
Bjarni Á. Friðriksson júdómað-
ur var sæmdur titlinum júdó-
maður ársins í tíunda sinn.
Badmintonmaður ársins var
lg'örinn Broddi Kristjánsson úr
TBR. Blakmaður ársins var kjörinn
Haukur Valtýsson úr KA og fim-
leikamaður ársins var kjörin Fjóla
Ólafsdóttir úr Ármanni. Einar Vil-
hjálmsson spjótkastari úr ÚÍA var
kjörinn fijáls íþróttamaður ársins
og Bjami Friðriksson júdómaður
ársins eins og fram hefur komið.
Glímumaður ársins var kjörinn
Ólafur Haukur Ólafsson og Harald-
ur Ólafsson lyftingarmaður ársins.
Haukur Gunnarsson var kjörinn
íþróttamaður ársins hjá íþróttasam-
bandi Fatlaðra og Sævar Jónsson
knattspymumaður ársins. Skot-
maður ársins var útnefndur
Víglundur Jónsson og þeir Gunn-
laugur Jónasson og Isleifur Frið-
riksson deildu útnefningunni sigl-
ingarmaður ársins. Eðvarð Þór Eð-
varðsson var kjörinn sundmaður
ársins, ekki í fyrsta sinn, og Úlfar
Jónsson golfmaður ársins. Tennis-
samband íslands útnefndi Úlfar
Þorbjömsson sinn mann ársins og
Skíðasambandið Guðrúnu H. Kristj-
ánsdóttur. KKÍ kaus Val Ingimund-
arson körfuknattleiksmann ársins
og Siguijón Gunnsteinsson var kjör-
inn karatemaður ársins. Valsmað-
urinn sterki, Geir Sveinsson var
kjörinn handknattleiksmaður ársins
og síðast en ekki síst var Kjartan
Briem kjörinn borðtennismaður árs-
ins.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Thorstvedt til Spurs
NORSKI landsliðsmarkvörður-
inn Erik Thorstvedt hefur skrif-
að undir samning við Totten-
ham. Thorstvedt, sem hefur
leikið með sænska liðinu IFK
Gautaborg, tók tilboði Totten-
ham í fyrrakvöld sem var um
350.000 pund.
Gunnar Larsson, formaður IFK,
sagði í gær að Terry Venables
hafi farið aftur til Englands frá
Svíþjóð með samninginn. Nú þurfi
hann aðeins að leggja hann fyrir
stjómina og það sé aðeins formsat-
riði.
Thorstvedt lék áður með Mönc-
hengladbach í V-Þýskalandi áður
en hann fór til Gautaborgar.
Thorstvedt, sem er 26 ára og
hefur leikið hefur 51 landsleik fyrir
Noreg, mun koma í stað Bobby
Mimms sem hefur fengið á sig 27
mörk í 15 deildarleikjum Tottenham
í vetur.
Erik Thorstvedt horfir á eftir knettinum í netið, er Pétur Pétursson jafnaði
1:1 fyrir Ísland gegn Noregi í fyrra, en íslenska liðið vann 2:1. Thorstvedt
hefur nú gengið til liðs við Tottenham og mun ef að líkum lætur leika þar
með Guðna Bergssyni á næstunni.
ÍHémR
FOLK
■ MANCHESTER United hef-
ur tapað rúmum tveimur milljónum
punda (um 170 millj. ísi. kr.) á
síðustu 12 mánuðum. Þetta kom
fram í ' ársskýrslu
FráBob félagsins sem var
Hennessy kynnt í gær. Mestur
.England! h,utj þessara
tveggja milljóna er
tilkominn vegna keyptra leik- —
manna, en United keypti leikmenn
fyrir rúmar fimm milljónir punda á
þessum tíma. Þá kom í ljós að fjór-
ir leikmenn liðsins voru með 75-85
þúsund pund í árslaun (6,4-7,2
millj. ísL kr.) en ekki var gefið upp
hvaða leikmann það voru. Einn leik-
maður var þó með langhæstu laun-
in, um 170.000 pund (14,5 millj.).
Það mun hafa verið Jesper Olsen.
Ástæðan fyrir því að laun hans
voni svo há er sú að þegar hann
var keyptur frá Ajax fékk hann
ekki hluta af upphæðinni, eins og
venjan er í Engiandi. Loks kom
það fram að síðsta vetur voru að-
eins 39.151 áhorfandi að meðaltali
á heimaleikjum liðsins, en sú talá
hefur ekki verið lægri í 23 ár.
Martin Edwards, stjómarformað-
ur Manchester United, sagði þó
að enn væri nóg af 'peningum á
Old Trafford og að hluthafar
þyrftu ekki að hafa neinar áhyggj-
ur.
■ TREVOR Francis verðúr að
öllum líkindum næsti framkvæmda-
stjóri Q.P.R. Hann mun líklega taka
við af Peter Shreeve eftir rúman
mánuð. Shreeve sem var þjálfari
liðsins, tók við framkvæmdastjórá- “
stöðunni fyrir skömmu og var þá
lofað mánuði til reynslu. Að þessum
mánuði loknum er reiknað með að
Francis taki við sem framkvæmda-
stjóri samhliða því að leika með lið-
inu.
B RON Atkinson, fram-
kvæmdastjóri Atletico Madrid, vill
fá Mark Lawrenson til Spánar
og láta hann leika með liðinu. Law-
renson hefur ekki leikið knatt-
spymu í rúmt ár vegna meiðsla, en
Atkinson sagðist hafa séð hann í
æfingaleik fyrir skömmu og þá
hafi hann leikið mjög vel. Liverpo-
ol, sem á samningsrétt Lawren-
sons, mun hinsvegar ekki sam-
þykkja að hann fari til Spánar o£- —
talið er líklegt að hann fari aftur
til Anfield sem einn af þjálfurum
Liverpool.
■ WIMBLEDON bauð fyrir
skömmu 650.000 pund í Niall Qu-
inn, leikmann Arsenal. Hann hefur
ekkert leikið með liðinu í vetur en
þrátt fyrir það hafnaði George
Graham, framkvæmdastjóri Arse-
nal, þessu tilboði. Wimbledon vill
fá Quinn í stað John Fashanu sem
líklega er á förum frá liðinu.
B ÞRJÚ ítölsk félög hafa áhuga
á skoska leikmanninum Mo Jo-
hnson sem leikur með Nantes í
Frakklandi. Það eru Fiorentina,
Inter Mílanó og Róma. Útsendarar
frá þessum liðum munu fyigjasí
með vináttulandsleik Itala gegn
Skotum síðar í þessum mánuði.
B HELSING0R tapaði 21:17 á
heimavelli fyrir TUSEM Essen um
helgina í fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppni bikarhafa. Aðeins 507
áhorfendur létu sjá sig, en leikurinn
var í beinni útsendingu sjónvarps.,
„Ég gat ekki hafnað peningunum,
sem í ,boði voru,“ sagði Henning
Riis, formaður Helsingor og Gert
Andersen, þjálfari, sagði að ekki
væri hægt að keppa við sjónvarpið
— Danir tækju beina útsendingu
fram yfir að vera á staðnum. Félag-
ið fékk 30 þúsund danskar krónur
(um 200 þús. ísl. kr.) fyrir réttinn
og um 200 þúsund danskar (tæp-
lega 1,4 milljónir ísl. kr.) fyrir aug-
Iýsingaspjöld í höllinni.
B RICARDO Serna, vamar-
maður hjá Barcelona, hefur verið
valinn í spænska landsliðshópinfl .
fyrir leik gegn Norður-írum í und-
ankeppni HM.