Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR, 5. JANÚAR 1989 fclk í fréttum Ný bæjarstjórn í Þórshöfii. Aftari röð frá vinstri: Leivur Hansen, Ingi Mohr, Páll Petersen, Katrin Dahl, Leivur Johannesen, Heðin Mortensen, Jan Christiansen, Arnstein Niclasen. — Yst til hægTÍ: Hogni Mohr, bæjarritari. Eremri röð frá vinstri: Svend Áge Andersen, Kristianna Rein, 2. varabæjarstjóri (Þjóðveldisflokki), Poul Michelsen, bæjarstjóri (Fólkaflokki), Lisbeth L. Petersen, 1. varabæjarstjóri (Sambandsflokki), Petur í Gong. FÆREYJAR Ný bæjarstjórn í Þórshöfii Kosið var til bæjarstjómar í Þórhöfn í Færeyjum hinn 8. desember síðastliðinn og komu nýju bæjarfulltrúamir saman til fyrsta fundar 20. desember. Fékk Morg- unblaðið senda mynd sem af þeim var tekin og birtist hún hér með. Flest atkvæði hlaut Fólkaflokk- urinn eða 2329 (5 bæjarfulltrúar), en hann er hægra megin við miðju stjómmálanna. Þar er í forystu Poul Michelsen, sem verið hefur bæjarstjóri og bæjarfulltrúi síðan 1980. Hann fékk lang flést persónu- leg atkvæði í kosningunni eða 1169, næst honum með 507 persónuleg atkvæði var Lisbeth L. Petersen úr Sambandsflokknum, en hann fékk alls 952 atkvæði (2 fulltrúar). Borgaraflokkurinn fékk næst- flest atkvæði eða 1317 (2 fulltrú- ar). Jafnaðarflokkurinn fékk 1112 atkvæði (2 fulltrúar) og Þjóðveldis- flokkurinn 1018 (2 fulltrúar). DRAUMUR RÆTIST Montand loks faðir nær sjötugur Franski leikarinn Yves Montand, sem er orðinn 67 ára, eignaðist sinn fyrsta afkomanda á gamlárs- dag. Unnusta Montands, Carole Amiel, sem er 28 ára gömul, eða 39 árum yngri en leikarinn, ól hon- um þá son. Frumburðurinn reyndist 4,2 kíló við fæðingu. Hann verður skírður Valentin Giovanni Jacques. Faðir Montands hét Giovanni og faðir unnustu hans Jacques. Bamið mun bera hið raunverulega ættar- nafn leikarans, Livi. Yves Montand og Carole Amiel. Montand er einn kunnasti og vin- sælasti leikari Frakka. Hann var giftur leikkonunni Simone Signoret í 33 ár. Hún lézt fyrir nokkmm árum, en þau áttu engin böm. „Það er undarleg tilfínning að vera orðinn faðir á þessum aldri þó mér finnist ég ennþá' vera eins og unglamb,“ sagði Montand er hann skýrði blaðamönnum frá fæðingunni. Son- urinn kom í heiminn á einkasjúkra- húsi skammt frá borginni Nice á Miðjarðarhafsströnd Frakklands. ÍTALÍA Hraustur öldungur ÆT Italinn Spartaco Bandini lætur sér fátt fyrir bijósti brenna þótt orð- inn sé 76 ára. Hann hikar ekki við að stinga sér til sunds í ískaldar ár um hávetur. Myndin var tekin er hann stakk sér til sunds í Tíber í Rómaborg á nýársdag. Hefur hann fagnað nýju ári undanfarin 16 ár með þeim hætti. Það er kannski ekki tilviljun að þetta aldna hraust- menni er skírt í höfuðið á Spörtu? ÍTALÍA 28ára amma Kona að nafni Concetta Costa er orðin amma, aðeins 28 ára gömul. Dóttir hennar, Ida, sem er 14 ára, eignaðist stúlkubam um daginn. Ennþá er lífshlaup Idu líkt og hjá móður hennar, báðar stmku að heiman 13 ára gamlar og eignuð- ust fyrsta bamið 14 ára að aldri. „Ég er hreykin yfir því að vera yngsta amma á Ítalíu og ég er líka hamingjusamasta amma í heimi," segir Concetta og bætir við: „Ég grét heil ósköp þegar Ida fór að heiman, aðeins þrettán ára gömul, og fór að búa með strák. Mér fannst ég bera ábyrgð á því vegna þess að ég sagði henni frá því þegar ég hljóp að heiman með pabba hennar. En ég hef sagt kærastanum hennar að gæta litlu stúlkunnar vel þegar þar að kemur, ég hef svo sem eng- an áhuga á að vera yngsta lang- amma á Ítalíu." COSPER Geturðu ekki aðgætt hvar þú stendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.