Morgunblaðið - 10.01.1989, Side 4
4
MÓkGUNÖIAÐÍÐ ÞRIÍ)JUDAGlÍR 10. .ÍÁNÚAR Í989
Forsætisrádherra í Hollandi:
Ræddi við forstjóra
KLM um Arnarflug
Amstcrdam. Frá blaðamanni Morgunblaðsins, Bimi Vigni Sigurpálssyni.
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætísráðherra, átti í gær fund
með J. deSoet, forstjóra hollenska ríkisQugfélagsins KLM, þar sem
málefni ArnarQugs báru meðal annars á góma. Steingrímur og eigin-
kona hans, Edda Guðmundsdóttir, héldu síðan til Haag til fundar
við Ruud Lubbers, forsætisráðherra Hollands. Búist var við að fund-
ur þeirra myndi einkum snúast um málefhi Evrópu, en Lubbers
bauð síðan islensku forsætisráðherrahjónunum til kvöldverðar á
heimili sínu.
Steingrímur Hermannsson sagði
eftir fundinn með deSoet að þær
viðræður hefðu verið mjög opinská-
ar og fundurinn í alla staði ágæt-
ur. DeSoet hefði þar farið almennt
yfir stöðu flugmála á alþjóðlegum
vettvangi, en einnig hefði hann vik-
ið að þeirri staðreynd að Amster-
dam væri í vaxandi mæli orðinn
fastur áfangastaður íslenskra flug-
farþega og hinum mikla vexti sem
átt hefði sér stað á þeirri flugleið
á undanfömum árum.
Steingrímur kvað þá hafa rætt
og skipst á skoðunum um stöðu
Amarflugs um þessar mundir, en
kvaðst ekki vilja skýra efnislega frá
þeim viðræðum fyrr en hann hefði
gert sámgönguráðherra og stjóm-
endum Amarflugs grein fyrir við-
ræðunum. Hann vildi því ekki svara
þeirri spumingu hvort deSoet teldi
þátttöku KLM í Amarflugi vera
kost sem kæmi til álita fyrir félag-
ið. Steingrímur kvað þá deSoet
hafa verið eina á fundinum að öðm
leyti en því að öðm leyti að því að
hollenski forstjórinn hefði kallað inn
forsvarsmann þeirrar deildar fé-
lagsins sem annast alþjóðleg sam-
skipti þess.
Talsmaður KLM sagði í samtali
að viðræðumar hefðu verið mjög
gagnlegar og fyrst og fremst snúist
almennt um flugmál.
íslensku forsætisráðherrahjónin
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, og kona hans, Edda Guðmundsdóttir, fyrir framan eitt
af ísjensku myndverkunum sem hanga uppi á Hótel Pulitzer I Amsterdam, sem nú stendur fyrir sérstök-
um Islandsdögum.
em í Hollandi í tengslum við ís-
iandsdaga sem Pulitzer hótelið í
Amsterdam hefur gengist fyrir í
samvinnu við Amarflug og Amar-
hól. Steingrímur Hermannsson opn-
aði þessa kynningu í hófi á sunnu-
dag, en íslandsdagamir munu
standa fram til 23. febrúar næst-
komandi. Veitingamenn Amarhóls
sjá um matseldina á hótelinu þessa
daga og á veggjum hótelsins hanga
verk eftir íslenska myndlistarmenn.
VEÐUR
V
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa l'slands
(Byggt á veðurspá kl 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 10. JANÚAR
YFIRLIT í GÆR: Um 300 km suður af Homafirði er minnkandi 988
mb lægð á hreyfingu aust-suð-austur, en yfir Grænlandi er 1.015
mb hæð. Milli Labrador og suður-Grænlands er víðáttumikil og
vaxandi 965 mb lægð á leið aust-norð-austur. Heldur kólnar í bili
en fer að hiýna á morgun, fyrst vestan til.
SPÁ: Sunnan og suðaustan-hvassviðri eða rok suðvestan- og vest-
anlands en hægir sunnan á austanverðu landinu. Sunnan og vestan-
lands verður slydda, en úrkomulaust í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAGUR: Suð-vestan átt með slydduéljum um
sunnan- og vestanvert landið en léttir til norðaustantil. Hiti um eða
rétt yfir frostmarki.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestanátt og vægt frost víðast hvar.
Él suðvestantil á landinu er bjart veður á Norður- og Austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Aiskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ # / * Slydda
/ * /
* * *
* * # * Snjókoma
* * *
•j o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
*
V
5 ?
5
oo
4
K
I(EÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyrf Reykjavík htti +6 3 veður alskýjað skýjað
Bergen 7 rigning
Helslnkl 1 lóttskýjað
Kaupmannah. 7 þokumóða
Narssarssuaq vantar
Nuuk +10 alskýjað
Oski 5 léttskýjað
Stokkhólmur S skýjað
Þórshöfn 3 skúr á síð.klst.
Algarvo 17 léttskýjað
Amsterdam 9 súld
Barcelona 10 alskýjað
Berlín 10 alskýjað
Chicago -1« heiðskírt
Feneyjar 0 þoka
Frankfurt 8 þokumóða
Glasgow 8 akúr
Hamborg 9 súld
Las Palmas 20 skýjað
London 10 súld
Los Angsles 8 helðsklrt
Lúxemborg 6 þoka
Madríd 4 lóttskýjað
Malaga 15 féttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal vantar
New York 4 alskýjað
Orlando 17 þokumóða
Parfs 6 þoka
Róm 14 þokumóða
San Dlego 4 heiðskfrt
Vín 10 skýjað
Washlngton 5 slydda
Winnipeg +27 alskýjað
Bruninn á Réttarhálsi 2:
Ráðherra vill
fa greinargerð
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefúr sent
brunamálastjóra ríkisins bréf
þar sem óskað er eftir greinar-
gerð hans um brunann að Réftar-
hálsi 2. í greinargerðinni á m.a.
að koma fram hvort brunavörn-
um hafi verið áfátt, með hvaða
hættí bruninn varð og upplýsing-
ar um framgang slökkvistarfs-
ins.
Bergsteinn Gizurarson bruna-
málastjóri segir að flestar þær upp-
lýsingar sem beðið er um hafi þeg-
ar komið fram og muni hann því
fljótlega skila greinargerðinni.
Hinsvegar er nú að fara í gang á
vegum embættisins ítarleg rann-
sókn á brunanum og tildrögum
hans og reiknar Bregsteinn með að
það verk taki töluverðan tíma.
„Með greinargerðinni er beðið
um álit á bruna þessum út frá
mínum sjónarhóli og mat á því
hveiju var áfátt,“ segir Bergsteinn.
„Það liggur ljóst fyrir að bygging
sem þessi á Réttarhálsi 2 átti að
fá brunahönnun þar sem um veru-
lega eldhættu var að ræða í henni
en slíkt varð ekki. Ef hún hefði
fengið þessa hönnun hefði eldvam-
arkerfí verið sett upp í henni."
í máli Bergsteins kemur fram
að ekkert er við slökkvistarfið sjálft
að athuga. Framganga slökkviliðs-
ins var með eðlilegum hætti en elds-
voðinn einfaldlega of mikill til að
það fengi ráðið við hann.
Oli Þ. Guðbjartsson:
Tilhæfulaust að ég fari
fram fyrir Alþýðuflokk
„ÞETTA er með öllu tilhæfú-
laust,“ sagði Óli Þ. Guðbjartsson,
þingmaður BorgaraQokks, þegar
borin var undir hann frétt Morg-
unblaðsins frá því á sunnudag
um að AlþýðuQokkurinn á Suð-
urlandi hefði boðið honum fyrsta
sæti á framboðslista sínum í
næstu kosningum. Óli gagnrýndi
það að fréttin skyldi birt án þess
að reynt væri að bera hana und-
ir hann.
Óli sagði aðspurður að ekki hefði
verið ýjað að sér að þessi möguleiki
stæði til boða, hvað þá að hann
hefði tekið ákvörðum um slíkt boð.
Framboðsmál hjá grónum flokkum
gengju enda ekki þannig fyrir sig
að sæti á framboðslistum væru til
úthlutunar löngu áður en þing-
kosningar væru í sjónmáli. Uppstill-
ing færi fram eftir ákveðið forspil
innan flokkanna og það væru tugir
ára síðan forystumenn flokkanna
hefðu ráðstafað framboðssætum.
Sex sækja um sakadóm
SEX umsækjendur eru um emb-
ætti dómara við Sakadóm
Reykjavíkur, í stað Haraldar
Henryssonar, sem var skipaður
hæstaréttardómari frá áramót-
um. Þá var Arnljótur Björnsson,
prófessor, settur hæstaréttar-
dómari frá áramótum.
Umsóknarfrestur rann út á
föstudag. Umsækjendurnir sex eru
Guðjón Magnússon, fulltrúi ríkis-
saksóknara, Guðjón St. Marteins-
son, deildarlögfræðingur lögreglu-
stjórans f Reykjavík, Hjörtur O.
Aðalsteinsson, fulltrúi yfirsaka-
dómara í Reykjavík, Jón R. Þor-
steinsson, héraðsdómari í Vest-
mannaeyjum, Júlíus Georgsson,
fulltrúi yfirsakadómara í Reykjavík
og Stefán Hirst, skrifstofustjóri lög-
reglustjórans í Reykjavík.
Forseti íslands skipar í embætt-
ið, að fenginni tillögu dómsmálaráð-
herra, og er búist við að það verði
á næstu dögum.
_________________________________í