Morgunblaðið - 10.01.1989, Side 22
22
MORGUNBLABIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
Hinn nýi keisari Japana, Akihitó, ávarpar þjóðina á mánudag. Eigin-
kona hans, Michíkó, er honum á hægri hönd. Akihító lofaði friðarvið-
leitni föður síns i ávarpinu og sagði að markmið sín væru þau sömu.
TímabH „áunnins iriðar“
gengið í garð í Japan
^ Tókíó. Wellington. Havana. Sameinuðu þjóðunum. Daily Telegraph. Reuter.
Á SLAGINU tólf á miðnætti sunnudags hófst árið 1 í nýju tímatali
Japana, Heisei, tíma hins „áunna friðar". Japanar mættu til vinnu á
mánudegi og eftir einnar minútu bæn tileinkaða Híróhító keisara sem
lést á laugardag, brettu iðjusamir Japanar upp ermarnar og tóku til
við verðmætasköpun þjóðfélaginu til þrifa og hagsbóta. Sérfræðingar
í málefnum Japans telja að við valdatöku Akihítós krónprins heflist
nýtt timabil í Japan.
Frá og með miðnætti sunnudags
heyra sögulegir atburðir, svo sem
ósgurinn í Kyrrahafsstríðinu, sem
Japanir eru ekki stoltir af sögunni
til, Showa tímabili hins upplýsta
friðar er lokið. „Hér eftir þurfa Jap-
anar ekki að blygðast sín fyrir keis-
ara sem var stríðsglæpamaður,"
sagði Kyo Otomo, ungur japanskur
ljósmyndari. Hins vegar lýstu marg-
ir eldri borgarar yfir miklum harmi
vegna fráfalls Híróhítós. Um
300.000 manns stóðu í rigningu og
kalsa á torgi keisarahallarinnar til
að votta hinum brottkallaða keisara
virðingu sína og fregnir hafa borist
af þremur eldri mönnum sem hafa
svipt sig lífi í þeim tilgangi að vera
nærri heittelskuðum yfirboðara
sínum.
Nýji keisari Japana, Akihító, þyk-
ir nútímalegur í háttum og hefur
sagt að hann vilji að margra alda
gamlar hefðir keisaraembættisins
breytist með nýjum tímum. Akihító,
sem er 55 ára, var fyrsti keisaraarf-
takinn í sögu Japans til að giftast
stúlku af alþýðustigum og hann vill
að böm sín þijú lifi sem eðlilegustu
lífí. Hann áhugamaður um sjávarlíf-
fræði og sérfræðingur í smáfískum.
Tveir sona hans eru nú við nám í
Oxford-háskóla í Englandi.
Akihító kom fram í fyrsta sinn
opinberlega eftir lát Híróhítós á
laugardag. Viðstaddir voru fulltrúar
ríkisstjómarinnar og varð það til
þess að kommúnistaflokkurinn og
ýmsir kirkjuleiðtogar kristinna
manna hófu upp raust sína. Þeir
segja að samkundan hafí verið ský-
laust brot á stjómarskrá Japana,
sem gerð var að tilhlutan Banda-
ríkjamanna árið 1945 í kjölfar upp-
gjafar Japana. í stjómarskránni er
kveðið á um að keisarinn gegni
ekki pólitísku hlutverki og sé ein-
ungis þjóðartákn Japana. Þingmað-
ur kommúnistaflokksins, Zenmei
Matsumoto, sagði á blaðamanna-
fundi að ríkisstjóm landsins liti nú
þegar á Akihító sem keisaralegan
einvald og leiðtogi mótmælendatrú-
armanna, Kazuke Noge, sagði að
kirkjusamtök myndu efna til mót-
mæla sem beint yrði gegn keisara-
embættinu 24. febrúar næstkom-
andi, sama dag og útför Híróhítós
fer fram.
Tveir rosknir menn sviptu sig lífi
um helgina í þeim tilgangi að
„fylgja" Híróhító til grafar. Sjálfs-
morð af þessu tagi kallast ,junshi“
(sjálfsmorð í kjölfar dauða yfirboð-
ara og húsbónda) og bera þessir
atburðir vott um hversu mjög andlát
Híróhítós fékk á marga Japana sem
háðu styijaldir í nafni hans. í gær
barst frétt um að þriðji maðurinn
hefði framið sjálfsmorð í miðborg
Nagoya. Mennimir þrír hengdu sig
allir.
Vamarmálaráðherra Nýja Sjá-
lands, Bob Tizard, sagði á sunnudag
að það hefði átt að skjóta Híróhító
Eftiavopnaráðstefíian í París:
Afstaða arabaríkja talin geta
hindrað raunhæfan árangur
Israelar segja Líbýumenn reisa eina stærstu efhavopnaverksmiðjum í heimi
París, Tripoli, Nikósíu. Reuter og Daily Telejjraph.
MOSHE Arens, utanríkisráðherra Israels, ávarpaði alþjóðlega ráð-
stefnu um efhavopn í París í gær og sagði Líbýumenn vera að reisa
eina af stærstu efhavopnaverksmiðjum heims. Fyrir ættu Sýrlending-
ar og Irakar birgðir af slíkum vopnum en ríkin þijú ættu það sam-
eiginlegt að styðja hryðjuverkahópa um allan heim af kappi. Ráð-
herrann lagði til bann við öllum efnavopnum í Mið-Austurlöndum.
Fulltrúar margra arabaríkja hafa sagt að þeir muni ekki sam-
þykkja slikt bann þar sem Israelar ráði þegar yfir efhavopnum og
séu að auki sjötta voldugasta kjarnorkuveldi heims. Á sunnudag
sögðu Sovétmenn, er eiga mestar birgðir af efiiavopnum allra þjóða,
að þeir hygðust byija að eyða efiiavopnum sínum á þessu ári en
tóku ekki fram hvort þeim yrði öllum eytt.
I ræðum utanríkisráðherra
ýmissa arabaríkja á ráðstefnunni
kom fram að ríkin myndu ekki
sætta sig við að skilið yrði milli
afvopnunar á sviði efnavopna, sem
eru tiltölulega ódýr í framleiðslu,
annars vegar og kjamavopna hins
vegar; þar með yrði aröbum meinað
að koma sér upp þeim ógnarvopnum
sem þeir hefðu efni á.
Vestrænn stjómarerindreki sagði
að svo gæti farið að í lokayfírlýs-
ingu ráðstefnunnar yrði aðeins
staðfest ummæli í Genfarsáttmá-
lanum frá 1925 þar sem notkun
efnavopna er bönnuð. Tæki Parísar-
ráðstefnan ekki af skarið og sam-
þykkti aðgerðir gegn framleiðslu
vopnanna án þess að gera eyðingu
kjamavopna að skilyrði fyrir fram-
leiðslubanni myndi ráðstefnan
fremur hvetja en letja þjóðir heims
til að koma sér upp efnavopnum
þar sem ljóst væri að kjamavopnum
yrði ekki eytt á næstunni. í Persa-
flóastríði írana og íraka sannaðist
á þá síðamefndu að þeir beittu efna-
vopnum og er jafnvel talið að þau
hafí komið í veg fyrir ósigur íraka
sem yfírvofandi var um hríð.
I stríði sínu við Chad hugðust
Líbýumenn fyrir nokkrum árum
nota eiturgas sem þeir keyptu af
írökum. Flogið var með gasið frá
Tripoli í Líbýu en á flugvellinum
misstu verkamenn nokkur gashylki
með þeim afleiðingum að fjöldi líbý-
skra hermanna týndi lífí eða veikt-
ist. Líbýustjóm ætlaði á laugardag
að leyfa hóp blaðamanna frá Vest-
urlöndum -að skoða umdeilda verk-
smiðju í Rabta, um 55 km sunnan
við Tripolis. Bandaríkjastjóm segir
Líbýumenn ætla að framleiða þar
efnavopn og hafa gefíð í skyn að
þeir myndu hugsanlega gera loftár-
ás á verksmiðjuna. Muammar
Gaddafí Líbýuleiðtogi segir að um
lyfjaverksmiðju sé að ræða og að
sögn heimildarmanna hefur hann
látið fjarlægja öll eiturefni, sem
nauðsynleg eru til framleiðslu efna-
vopna, frá Rabta.. Er til kastanna
kom fengu vestrænu fréttamenn-
imir aldrei að koma nær verksmiðj-
unni en 500 metra og á sunnudag
var öllum hópnum sagt að hafa sig
á brott frá landinu. Sama dag sagði
útvarpið í Tripoli að fréttamennim-
ir hefðu gengið um verksmiðjuna,
Reuter
George Shultz (t.v.), utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Eduard
Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, við undirritun
samnings rikjanna um samvinnu í baráttu gegn fíkniefhasölu og
samvinnu í vísindum. Athöfiiin fór. fram i París á sunnudag em ráða-
mennirnir sitja þar ráðstefiiu 140 ríkja á vegum Sameinuðu þjóð-
anna um bann við efnavopnum.
gengið úr skugga um að þar væru
aðeins framleidd lyf og einnig hefðu
þeir rætt við fólk á staðnum.
Líbýska fréttastofan JANA var hins
vegar harðorð í garð fréttamann-
anna í gær og sakaði þá um „hlut-
drægni og skort á nákvæmni."
Bandaríska tímaritið Newsweek
hefur eftir erlendum embættis-
manni að upplýsingar Bandaríkja-
stjómar um verksmiðjuna séu afar
nákvæmar. George Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, ræddi
málið við hinn sovéska starfsbróður
sinn Shevardnadze á sunnudag og
sagði Shultz að Sovétmaðurinn
hefði heitið því „að kanna málið.“
Bandaríkjamenn saka vestur-
þýskt fyrirtæki um að hafa aðstoð-
að Gaddafi við að koma efnavopna-
framleiðslu á laggimar og segja
bandarískir og breskir embættis-
menn að fyrir þessu séu ótvíræðar
sannanir, þótt Helmut Kohl, kansl-
ari Vestur-Þýskalands hafi dregið
þær í efa. Enn fremur hefur Banda-
rikjastjóm fundið að sölu Frakka á
Mirage-herþotum til Líbýu.
TOFRAR
HELGARNÁMSKEIÐ í
SAMSKIPTASTJÓRNUN
Holiday Inn
14. jan. kl. 9.00.
Námskeiðið byggir á NLP (Neuro Lingu-
istic Programming) samskiptatækninni.
Með samskiptastjórnun getur þú:
A Aukið áhrifavald þitt, sannfæringar-
kraft og persónutöfra.
A AukiÖ fjölbreytni í eigin hegðun,
atferli og framkomu.
A Greint, skilið og mótað hegðun annarra.
A Auðveldað ákvarðanatöku og úrlausn
vandamála.
A Margfaldað eigin árangur og annarra.
Námskeiðið nýtist best aðilum sem vinna við
stjórnun, ráðgjöf, fjölmiðlun, kennslu eða
störf þar sem hæfni í mannlegum samskiptum
er forsenda fyrir velgengni og árangri.
Leiðb. er Garðar Garðarsson. Hann útskrifaðist
í ágúst 1988 með Practitioners gráðu í NLP
samskiptastjómun hjá Grinder, DeLozier &
Associates í Bandaríkjunum.
Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Gulu
Línunni í síma: 62 33 88.
eða rista hann á hol á almannafæri
í lok styijaldarinnar. Tizard kvaðst
vera andvígur því að fulltrúi Nýja
Sjálands yrði viðstaddur útför
Híróhítós. „Við áttum að senda ein-
hvern fyrir 40 árum til að vera við-
staddur aftöku hans,“ sagði vamar-
málaráðherrann. Talsmaður Davids
Lange, forsætisráðherra Nýja Sjá-
lands, sagði að ummæli Tizards
væru ekki sjónarmið ríkisstjómar-
innar.
Ríkisstjóm Kúbu lýsti í gær yfir
þriggja daga opinberri sorg vegna
andláts Híróhítós. Kommúnista-
stjómin á Kúbu hefur þann sið að
lýsa yfír opinberri sorg við fráfall
þjóðhöfðingja þeirra landa sem
Kúba hefur stjórnmálasamband við.
I gær stóðu fulltrúar öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna upp á fundi
sínum og þögðu í eina mínútu til
að votta Híróhító virðingu sína og
fánar voru dregnir í hálfa stöng við
bækistöðvar öryggisráðsins.
Vegabréf
Amíns
reyndist
falsað
Kinshasa. Reuter.
YFIRVÖLD í Zaire hafa veitt Idi
Amín, fyrrum Úgandaleiðtoga,
frest til þess að hygpja sig úr
landi þar sem hann skortir
skilríki, að sögn háttsetts emb-
ættismanns.
Amín kom til Zaire í síðustu viku
undir fölsku nafni og reyndist vega-
bréf það sem hann sýndi vera fals-
að. Mobutu Sese Seko, forseti Za-
ire, sagði á föstudag að Amín yrði
fljótlega rekinn úr landi. Embættis-
menn sögðu í gær að beðið væri
sérstakra skilríkja frá flóttamanna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna.
Stjómarerindrekar í Kinshasa,
höfuðborg Zaire, sagði að koma
Amíns til Zaire hefði getað komið
sér illa fyrir Mobutu, sem er sagður
vilja komast hjá því að særa yfir-
völd í Úganda. Embættismenn í
Úganda sögðu um helgina að yfir-
völd þar í landi hygðust óska eftir
því að þau fái Amín framseldann.
Sendiherra Úganda í Kinshasa
sagðist hins vegar þeirrar skoðunar
í gær að Amín yrði ekki framseld-
ur, heldur yrði hann beðinn um að
koma sér aftur til Sádi Arabíu. Þar
hefur hann búipð í útlegð.
Amín er sakaður um að hafa lát-
ið myrða og pynta þúsundir lands-
manna sinna áður en honum var
steypt af stóli árið 1979.