Morgunblaðið - 10.01.1989, Qupperneq 30
30
acMORGJUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUJDAGUR 10. JANÚAR 1989
Mannleg mistök ollu strandi
Tec Venture á Hörgárgrunni
Tvö innbrot
TVO innbrot voru framin á Ak-
ureyri aðfaranótt mánudagfs og-
eru sökudólgarnir fiindnir.
Þrír drengir, 17 og 18 ára, hafa
viðurkennt innbrotin — í lager-
húsnæði Skjaldborgar og í verslun-
ina ísbúðina. Á fyrrnefnda staðnum
stálu þeir bókum og sígarettum á
þeim síðamefnda. Þá stálu þeir
einnig radarvara úr bíl umrædda
nótt.
Flugfélag
Norðurlands:
NýTwin
Otter 300
flugvél
NÝLEGA kom til landsins de
Havilland Canada DHC-6 Twin
Otter-flugvél sem Flugfélag
Norðurlands keypti frá Kanada.
Nýja vélin, sem hefur einkennis-
stafina TF—JMD, kemur í stað
eldri flugvélar sömu gerðar, sem
bar sömu einkennisstafí, en hún
var seld til Kanada sl. haust.
Flugvélin sem keypt var nú er
af svokallaðri Twin Otter 300-
seríu, sem er hraðfleygari og burð-
armeiri útgáfa af þessari flugvé-
lagerð en eldri vélin, sem var af
gerðinni Twin Otter 200. Vonast
er til að nýja vélin komist fljótlega
í gagnið en eftir er að skipta um
farþegainnréttingu og setja í hana
Loran C-siglingatæki.
Fyrir eru í flota Flugfélags
Norðurlands ein Twin Otter 300
og ein Twin Otter 200, en þessar
vélar taka um 19 farþega, tvær
Piper Chieftain sem taka 9 far-
þega, ein fimm farþega Piper
Aztec og tvær Piper Tomahawk-
. kennsluflugvélar.
Tec Venture á strandstað.
FLUTNIN GASKIPIÐ Tec Vent-
ure, sem strandaði við Gáseyri á
Hörgárgrunninu norðan Akur-
eyrar á laugardag, skemmdist
ekkert. Skipið er í eigu Saltsöl-
unnar í Færeyjum en Austfar hf.
á SeyðisSrði er með það á leigu.
Skipið var á leið til Akureyrar
hlaðið tómum gámum til að ná í
vörur. Skipið rak upp í sand-
fjöruna við Gáseyri á laugar-
dagsmorgun, en Sólbakur, einn
togara Útgerðarfélags Akur-
eyringa, náði að toga skipið út á
flóðinu um kvöldið.
Tec Venture er um 900 tonn að
stærð. Það hefur marg oft komið
til Akureyrar, 10-12 sinnum á ári
undanfarin ár, en að þessu sinni
voru allir skipverjar afleysinga-
menn, „frá skipstjóra og niðr’úr",
að sögn Jóns Samúelssonar um-
boðsmanns Austfars á Akureyri.
Talið er að ókunnugleiki á aðstæð-
um hafi valdið óhappinu — mannleg
mistök. Skipið kom inn undir
Krossanes snemma á laugardags-
morgun á leið sinni inn að togara-
bryggjunni á athafnasvæði Útgerð-
arfélags Akureyringa, en þar sem
vindur var mikill ákvað skipstjórinn,
sem að þessu sinni var Færeyringur
— reyndar í sínum fyrsta túr með
skipið — að leggjast ekki strax að
bryggju heldur fara utar í fjörðinn
á ný og láta reka. Bíða birtingar.
Skipið rak síðan upp á sandeyrina
fyrir neðan Gása. Sólbakur, sem
var á leið á veiðar, reyndi að toga
Tec Venture út, en það tókst ekki
strax og því var ákveðið að bíða
eftir kvöldflóðinu. Þegar flæddi
síðan undir skipið um kvöldið gekk
allt eins og í sögu.
Að sögn Jóns Samúelssonar fara
ekki fram nein sjópróf vegna þessa
óhapps. Samið var um það við Út-
gerðarfélag Akureyringa að hans
sögn og greidd verða laun fyrir
aðstoðina. „Það verður metið hve
Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson
miklum tíma Sólbakur eyddi í að
aðstoða skipið og það verður borgað
með glöðu geði,“ sagði Jón í sam-
tali við Morgunblaðið. Forráðamenn
skipsins segja að það hafi aldrei
verið í hættu.
Tec Venture var í gær á Siglu-
fírði að lesta vörur. Skipið setti
gáma á land á Akureyri á sunnudag
og kemur síðan aftur til bæjarins
á morgun, miðvikudag, til að taka
vörur — hey, fiskimjöl og plast-
kassa. Skipið heldur síðan austur á
land, þaðan til Þórshafnar í Færeyj-
um og áfram til Svíþjóðar.
\m m rfr'4
•r*-., j o ■ :
Morgunblaöið/Rúnar Þór Bjömsson
Fjörug þrettándagleði
Þrettándagleði Þórs fór fram á föstudaginn í
blíðskaparveðri. Stillt var og nokkurra stiga
frost — ákjósanlegasta veður, og fjölmenntu
Akureyringar að vanda á þessa árlegu kveðju-
stund jólahátíðarinnar á Akureyri á Þórsvellin-
um. Jólasveinar voru að sjálfsögðu á staðnum;
hér er Kjötkrókur á tali við nokkra þeirra Qöl-
mörgu krakka sem komu á svæðið.
Bæjarstjórn:
Sérframboð íbúa
norðan við Glerá?
NOKKRIR íbúar í Glerárhverfí á Akureyri hafa hug á að bjóða sér-
lista íbúa hverfísins fram til næstu bæjarstjórnarkosninga, eftir eitt
og hálft ár, vegna óánægju með ýmsa þjónustu í þessum bæjarhluta.
„Ymsir aðilar hafa haft samband
við íbúasamtökin og ég get staðfest
að það er vissulega hreyfing í gangi
í þá átt að bjóða fram ef þjónusta
lagast ekki í hverfinu," sagði Sveinn
Brynjólfsson, einn stjómarmanna
íbúasamtaka Síðuhverfís í samtali
við Morgunblaðinu. Hann lagði
áherslu á að það væru ekki íbúasam-
tökin sem slík sem væru að undirbúa
samtök eða stæðu á bak við hug-
mynd þessa en til þeirra hefði verið
leitað vegna málsins. Hugmyndin er
komin úr Síðuhverfí, en ef af verður
hyggjast viðkomandi höfða til íbúa
Glerárhverfis í heild vegna hugsan-
legs lista.
„Fólk er óánægt með þá þjónustu
sem boðið er upp á í hverfinu. Við
áttum fund með bæjaryfirvöldum í
júní í fyrra og fengum loforð um
að jákvætt yrði tekið á málinu,"
sagði Sveinn. Samtökin sendu á
sínum tíma frá sér ályktun þar sem
lýst var áhyggjum yfir því að í hverf-
inu væri hvorki apótek, pósthús,
heilsugæslustöð né bókasafn, svo
eitthvað sé nefnt. Sveinn sagði íbúa
hverfísins greinilega orðna þreytta
á að ekkert gerðist í þessum málum
— í sumar hefðu þeir bent á staði
þar sem viðkomandi starfsemi gæti
farið fram, „við bentum bæði á versl-
unarmiðstöðina Sunnuhlíð og kjall-
ara Glerárkirkju," sagði hann, en
síðan hefði lítið gerst.
Þess skal getið að á fundi bæjar-
ráðs Akureyrar 28. desember sl. var
samþykkt að vekja „athygli heil-
brigðisráðherra á athugasemdum,
sem borist hafa frá íbúum Síðuhverf-
is, um að þær tvær lyfjabúðir sem
eru á Akureyri séu báðar staðsettar
í Miðbænum. Bæjarráð tekur undir
þetta sjónarmið og hvetur ráðuneyt-
ið til þess að kanna þann möguleika
að bæta þjónustu við bæjarbúa með
úthlutun nýs lyfsöluleyfis eða stofn-
un útibús í öðrum bæjarhluta,“ eins
og segir í bókun bæjarráðs.
Sveinn Biynjólfsson sagði þessa
samþykkt bæjarráðs spor í réttaátt-
„'en mér finnst hálft ár þó ansi lang-
ur tími til að koma þessu saman.“
Hann sagði íbúa hverfísins bíða
spennta eftir framhaldinu — hvað
bæjarstjóm gerði.