Morgunblaðið - 10.01.1989, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
DIANE KEATON
og SAM SHEPARD í bestu
gamanmynd seinni tíma.
'StENöKUft TEXTI
8*ia»*iEisw5«s:
WMKT
vmm
mtmm
sm'ivsn
#j5ífíSiir«i(f
Mmit'rwm
A TgMcrS, AS 5
Kteáxmíwm
íbmmm
VÉLA-TENGI
7 1 2
Allar geröir
Öxull — í — öxul.
Öxull — í — flans.
Flans — í — flans.
Tengiö aldrei stál — í — stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring milli
tskja.
Allar stærðir fastar og frá-
tengjanlegar
SÖtuiiíteKyiDtuitr
j<§)(rQ©®©iTi)
Vesturgötu 16, sími 13280
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
PÉTURS STEFÁNSSONAR
frá Nöf.
Indriði Pótrursson,
Ólöf Pótursdóttir, Guðjón Jóhannsson,
Guðmundur Pétursson, Pálfna Bjarnadóttir,
Dýrleif Pétursdóttlr, Sveinn R. Björnsson,
Dröfn Pétursdóttir, Páll Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðýnda samúð og vinarhug við andlát og útför,
JÓNS KRISTJÁNSSONAR.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki Dvalarheimilisins Hlíðar
fyrir góða hjúkrun.
Guðrún Bjarnason,
Herbert Jónsson,
Lilly Andersen,
Baldur Jónsson,
Þorbjörg Bendtsen,
Magnea Jónsdóttir,
Hákon Bjarnason,
Petra S. Antonsdóttir,
Knud Andersen,
Ólöf Arngrímsdóttir,
Kristján Jónsson,
Aðalsteinn Kristinsson.
Músíkleikfimin
hefst mánudaginn l 6. janúar.
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir kon-
ur á öllum aldri. Byrjenda- og fram-
haldstímar. Kennsla fer fram í íjerótta-
húsi Melaskóla.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma
13022 um helgina og virka daga í
sama síma eftir kl. 15.
ÚTSALA
Andrés,
Skólavörðustíg 22a, sími 18250.
Anna Jóhannes-
dóttir - Minning
Fædd 27. október 1963
Dáin 3. janúar 1989
I dag kveðjum við góða vinkonu
okkar, Önnu Jóhannesdóttur, sem
lést að morgni 3. janúar. Anna var
fædd 27. október 1963, og var því
aðeins 25 ára er hún lést.
Við kynntumst Önnu fyrst þegar
við byijuðum allar saman í 7. bekk
í Hagaskóla. Það fór ekki mikið fyr-
ir Önnu Jó, eins og hún var alltaf
kölluð í okkar hópi. Hún var fíngerð
og hæglát stúlka og oftast var stutt
í fallega brosið hennar. Við urðum
fljótlega allar mjög góðar vinkonu'r
og þá kynntumst við betur þeim
mannkostum sem hún hafði að
geyma. Hún var ein þeirra sem allt-
af var í góðu skapi og sá alltaf já-
kvæðu hliðar málanna. Samvisku-
semi hafði hún í ríkum mæli, sem
skilaði sér meðal annars í góðum
námsárangri í skóla. Hún hallmælti
aldrei nokkrum manni og víst er að
þá umsögn er ekki hægt að gefa
mörgum svo sönn sé. Anna Jó ólst
upp á Öldugötunni hjá móðurömmu
sinni, Önnu Pálsdóttur, en Anna
missti móður sína mjög ung. Var
mjög gott samband á milli þeirra
og kom oft í ljós hversu vænt Önnu
þótti um ömmu sína. Anna gat verið
mjög ákveðin og hafði mikinn kraft
og seiglu, sem kom vel í ljós í veik-
indum hennar síðar.
Þær eru margar minningarnar
sem við eigum frá þessum árum og
tengjast Önnu Jó. Hún var mjög góð
í leikfími og öðrum íþróttum og allt-
af var hún tilbúin að hjálpa þeim
okkar sem aldrei komust yfír þennan
óyfírstíganlega hest eða gátu gert
ýmsar aðrar ámóta kúnstir sem hún
fór létt með. Við fórum allar í
danstíma hjá Heiðari og þá sýndi
það sig að Anna var afbragðsgóður
dansari. Á böllunum í Hagaskóla
kom afrakstur danstímanna í ljós.
Þar var hún óþreytandi að miðla
öðrum af fæmi sinni, í þetta sinn
strákunum í bekknum, sem gátu
verið ótrúlega lengi að ná einföld-
ustu sporum að okkur fannst, en
þetta hafðist allt með þolinmæði
Ónnu Jó. Eins og allar aðrar stelpur
stofnuðum við okkar saumaklúbb og
var oft hlegið mikið og skrafað fram
eftir kvöldi. Við fórum í sumarbú-
staðaferðir á sumrin og afreksferðir
voru famar á skíðum á veturna.
Reiðhjólin vom óspart notuð. Já,
minningamar em margar og allar
em þær jafngóðar, sem tengjast
Önnu Jó.
Eftir útskrift úr Hagaskóla, skildu
leiðir. Anna Jó fór í Kvennaskólann
á uppeldis- og íþróttabraut og var
þá komin í nám tengdum sínum
helstu áhugamálum. Hún þjálfaði
jafnframt fímleika hjá KR og virtist
augljóst að íþróttir myndu skipa
stóran sess í framtíð hennar. Stúd-
entsprófí lauk Anna um jólin 1982
me_ð frábæmm árangri.
í gegnum fimleikana kynntist
Anna unnusta sínum, Hafsteini
Karlssjmi, vélstjóra, og var það
hennar mikla gæfa. Stofnuðu þau
heimili sitt í húsi ömmu hennar á
Öldugötunni. Þau vom mjög sam-
hent í einu og öllu og var Haffí
henni mikill styrkur í veikindum
hennar síðar.
Eftir stúdentspróf fór Anna að
vinna á bamaheimili og vom þá að
mótast hugmyndir hennar um að
fara í fósturnám. Um svipað leyti
varð hún alvarlega veik í kjölfar
heilablæðingar. Reyndist orsökin
vera hinn hræðilegi sjúkdómur arf-
geng heilablæðing. Með undraverð-
um viljastyrk komst hún til heilsu
og hélt ótrauð áfram. Hún innritað-
ist í Fosturskólann haustið 1984 og
lauk þaðan námi vorið 1987. Vann
hún síðan við fóstmstörf á dag-
heimili Landakots. Var hún mjög vel
liðin á vinnustað bæði af starfsfólki
og bömunum, sem hændust að
henni.
Anna og Haffi vom með mikil
framtíðaráform, og nýlega festu þau
kaup á raðhúsi í Hafnarfirði,
heimabæ Haffa. Framtíðin var björt.
En með nýju ári kvaddi fortíðin dyra.
Á nýársnótt fékk Anna heilablæð-
ingu. I þetta sinn var henni ekki
ætlað lengra líf.
Fréttin um andlát hennar kom
eins og reiðarslag yfir okkur, þrátt
fyrir vitneskju um sjúkdóminn sem
hún bar. Þótt við vitum að lífið og
dauðinn ferðist saman, þá er dauðinn
alltaf jafn sár og sérstaklega þegar
í hlut á ungt fólk. Á svona stundum
spyr maður sjálfan sig um tilgang
lífsins og hversu lífíð getur oft verið
miskunnarlaust og óskiljanlegt. En
þó okkur mannfólkinu reynist oft
erfítt að skilja hvers vegna ungt
fólk, sem ætti að eiga allt lífið fram-
undan, er hrifið burt, þá verðum við
að trúa því að það hafí einhvem til-
gang rétt eins og lífíð sjálft.
íilsku Haffi, Anna eldri og aðrir
aðstandendur, þótt sorgin sé sár og
söknuðurinn mikill þá er þó eitt sem
ekki verður frá ykkur tekið og það
em dýrmætar minningar um góða
stúlku. Eins og segir í orðum Spá-
mannsins:
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú græt-
ur vegna þess, sem var gleði þín.“
Blessuð sé minning Önnu Jóhann-
esdóttur.
Anna María, Auður, Elín
Vigdís, Lovísa og Þórunn.