Morgunblaðið - 10.01.1989, Síða 37
>*..»■: .ivri.M i. 5 ■)./11.icií» (ioajfiíjíh
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
37
Það er skrýtið að setjast niður
og skrifa hinstu kveðju til góðs vin-
ar og félaga. Félaga sem er hrifinn
á burt í blóma lífsins. Anna sýndi
alltaf mikinn kjark og dugnað og
minnumst við hennar ætíð sem
góðrar manneskju. Hafsteini, ætt-
ingjum og vinum sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Með kærri kveðju.
Bekkjarsystkini í Fóstur-
skóla íslands.
Yndislegur samstarfsmaður og
kær vinkona, Anna Jóhannesdóttir,
fóstra, er látin.
Allar kvöddum við hana glaða
og hressa þann 30. desember sl.,
með bestu óskum um gleðilegt nýtt
ár og þakkir fyrir árið sem var að
kveðja.
Hún kom ekki aftur. Þann 3.
janúar á nýja árinu var hún dáin,
aðeins 25 ára gömul.
Það er erilsamt starf að vera
fóstra, en Onnu fórst það einstak-
lega vel úr hendi. Hún var frekar
veikbyggð að sjá og hæglát í um-
gengni, en samt hafði hún ótrúlega
gott lag á börnunum. Hún var svo
lagin við að ná þeim saman, föndra
með þeim, syngja o.s.frv. Enda voru
þau öll mjög hænd að Önnu og
þótti örugglega mjög vænt um
hana.
Hún var góður skipuleggjandi og
var óþreytandi í því að finna nýjar
leiðir til að gera starfið sem mest
skapandi og lifandi. Síðasta ferðin
sem hún fór érlendis í heimsókn til
vinkonu sinnar var einnig notuð til
kaupa á fagbókum. Þannig var hún
Anna síhugsandi um starfíð.
Við vissum allar að með henni
leyndist sá sjúkdómur er að lokum
leiddi hana til dauða á svo skjótan
hátt. Samt var hún alltaf glöð og
kát og hlífði sér aldrei, var alltaf að.
Að lokum viljum við samstarfs-
konur Önnu þakka henni hjartan-
lega fyrir þann tíma sem við feng-
um að vera henni samferða. Við
munum allar sakna hennar, og
fínnst okkur ótrúlegt að við skulum
ekki eiga eftir að sjá hana aftur.
Unnusta Önnu, Hafsteini, ömmu
hennar, föður og bróður sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Lovísa, Sólveig, Beta,
Svanbjörg og Eybjörg.
Dáinn, horfinn - harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynur yfír.
en ég veit að látinn lifir.
það er huggun harmi gep.
(J.H.)
Dáin. Það er ólýsanlegur sárs-
auki sem fylgir þessari hugsun,
þessum orðum. Við elskuðum hana
öll, ekki síst bömin, og söknuðurinn
verður mikill. Það var líka svo auð-
velt að elska hana, því hún var
bæði góð og yndisleg. Við kynnt-
umst henni þegar hún og Hafsteinn
hófu sitt samband fyrir 7 árum.
Þetta voru góð og gefandi ár, því
þótt Anna fengi heilablæðingu fyrir
tæpum 5 árum, náði hún sér aftur
með miklum dugnaði og kjarki, og
naut þá umhyggju og hjálpar Haf-
steins, eins og alltaf. Og þrátt fyrir
þessi veikindi og erfiðleika hóf hún
nám við Fósturskóla íslands og lauk
því með miklum sóma. Eftir það
vann hún á bamaheimili, sem var
henni mikils virði og veitti henni
mikla lífsfyllingu, því böm áttu hug
hennar og hjarta. Hún og Hafsteinn
vom einnig meðal stofnenda Heila-
verndar, og fylgdust vel með málum
þess félags. En svo, þegar lífíð virt-
ist brosa við þeim, á góðri stund
meðal ástvina, og þau óskuðu hvort
öðm gleðilegs árs, árs sem meðal
annars átti að bera með sér eigið
húsnæði og fyrirhugaða giftingu,
kom áfallið. Við skiljum þetta ekki
enn, við emm dofin. En við trúum
því að Anna sé með Guði og hafí
þar sæluvist með móður sinni, sem
hún missti svo ung. Við þökkum
henni samveruna og kveðjum hana
með trega. Fjölskyldu hennar send-
um við innilegar samúðarkveðjur
og þá sérstaklega ömmu hennar,
en milli þeirra vom sérstök tengsl.
Elsku Hafsteinn, megi guð gefa
þér styrk til að standast þessa raun.
Nú legg ég augun aftur,
ó, guð, þinn náðarkraftur,
min veri vðm í nótt.
Æ virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Pabbi, systkinin og
fjölskyldur þeirra.
Okkur langar í örfáum orðum
að minnast vinkonu okkar, Önnu,
sem kvaddi þennan heim þriðjudag-
inn 3. janúar sl. þegar þessi hræði-.
legi sjúkdómur sem læknavísindin
ráða ekki enn við bankaði á dyr.
Þessi vinahópur sem hér um
ræðir kemur til af strákunum sem
em búnir að vera vinir frá æsku,
en við stelpurnar kynntumst í gegn-
um þá árið 1983. Og emm við öll
búin að vera miklir vinir síðan. Það
verður erfitt að venjast því þegar
svona stórt skað hefur verið höggv-
ið í hópinn okkar.
Alltaf var gott að koma til Haffa
og Önnu á Öldugötuna og hlýlegra
heimilislíf var ekki hægt að hugsa
sér.
Hún Anna var mikið fyrir böm,
enda var það það sem hún valdi sem
ævistarf.
Það er erfitt að kveðja svona
góðan vin en við þökkum fyrir að
hafa fengið að kynnast svona góðri
stelpu og það var ekki hægt að
hugsa sér betri vin.
Elsku Haffi okkar. Við sendum
þér og öðrum ættingjum og vinum
okkar dýpstu samúð.
Ef gengur ein með grátna brá
um grýttan lífsins veg,
þú ástvin átt. Hann er þér hjá
með orð svo guðdómleg.
Minn frið þér gef og gleði í sál
gef ei sem heimurinn
ef heyra vilt mitt heilagt mál
mér helga vilja þinn.
Kom sorgarbam, í bæn og trú
að bijósti frelsarans,
hann fyrirgefur, frelsar nú
ó flýr að krossi hans.
(G.S.Þ.)
yinahópurinn, Óla, Stjáni, -
Asdís, Boggi og Jón Ari.
Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöld til
lífeyrissjóða í áföngum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af öllum
launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur
gilda þó um iðgjaldagreiðslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á
mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal
ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem
svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma-
kaup hlutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við-
bættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að
viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
Hluti
starfsmanna:
1,0%
2,0%
3,0%
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur
með sama hætti 6%.
1987
1988
1989
Hluti
atvinnurekenda:
1,5%
3,0%
4,5%
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
Lsj. byggingamanna • Lsj.
Lsj. bygg.iðnaöarmanna í Hafnarf. • Lsj.
Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar • Lsj.
Lsj. Félags garðyrkjumanna • Lsj,
Lsj. framreiðslumanna • Lsj
Lsj. málm- og skipasmiða • Lsj
Lsj. matreiðslumanna • Lsj
Lsj. rafiðnaðarmanna • Lsj
Lsj. Sóknar • Lsj
verksmiðjufólks • Lsj
Vesturlands • Lsj
Bolungarvíkur • Lsj
Vestfirðinga • Lsj
verkamanna, Hvammstanga* Lsj
stéttarfélaga í Skagafirði • Lsj
Iðju á Akureyri • Lsj
Sameining, Akureyri • Lsj
trésmiða á Akureyri
Björg, Húsavík
Austurlands
Vestmanneyinga
Rangæinga
verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Suðurnesja
verkafólks í Grindavík
Hlífar og Framtíðarinnar