Morgunblaðið - 10.01.1989, Síða 39
. 11 u r i v t í \ t (r 1 r -1; c' rif' \ mr): jí« )\
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
Minning:
Albertína Jóhann
esdóttir í Botni
I dag fer fram frá Suðureyrar-
kirkju útför ömmu minnar, Al-
bertínu Jóhannesdóttur, sem andað-
ist þann 2. janúar sl.
Hún fæddist að Kvíanesi við
Súgandafjörð 19. september 1893
og giftist afa mínum, Guðna Þor-
leifssyni frá Norðureyri, árið 1914.
Þau voru fyrstu árin í húsmennsku
á Norðureyri og Suðureyrarmölum
en hófu síðar búskap að Kvíanesi
uns þau fluttu að Efri-Bæ í Botni
í Súgandafirði og bjuggu þar ti!
ársins 1945, en það ár fluttu þau
út á Suðureyri þótt þau 'flyttu sig
jafnan á sumrum inn í Botn og
nytjuðu þar jörðina. Albertína og
Guðni eignuðust 11 böm og eru 9
þeirra á lífi. Þau eru: Guðrún, sem
búsett er á Flateyri og gift var
Kjartani Sigurðssyni s'em látinn er
fyrir allmörgum ámm. Þau eignuð-
ust 6 böm. Þorleifur, búsettur á
Suðureyri, áður bóndi að Norður-
eyri við Súgandafjörð. Sambýlis-
kona hans er Marianne Jensen, frá
Suðurey í Færeyjum. Sveinn, bú-
settur í Reykjvík, kvæntur Sigríði
Finnbogadóttur frá Bolungarvík.
Þau eiga eina dóttur. Jóhannes,
búsettur í Reykjavík, kvæntur
Aldísi Jónu Ásmundsdóttur frá
Reykjavík. Þau eiga 5 böm. Guð-
mundur Amaldur, sem er ókvæntur
og hélt hús með forldrum sínum á
Suðureyri. Einar, búsettur á Suður-
eyri, kvæntur Guðnýju Guðnadóttur
og eiga þau 6 böm. Guðni Albert,
búsettur á Flateyri, kvæntur Stellu
Jónsdóttur. Þau eiga 3 böm. Gróa,
búsett í Reykjavík. Gift Páli Guð-
mundssyni frá Gmnnavík. Þau eiga
2 böm. María, búsett í Reykjavík,
gift Leifí Sigurðssyni frá Akranesi.
Þau eiga 2 böm. Þau tvö, sem lát-
in em, em: Sigurður, sem fórst með
togaranum Júlí, en hann var kvænt-
ur Sveinbjörgu Eyvindardóttur og
bjuggu þau á Akranesi, og Sólveig
Dalrós, sem lést aðeins 5 áragömul.
Þegar ég nú ætla að minnast
Albertínu, ömmu minnar, með fáum
orðum er mér vandi á höndum, því
minningamar þyrpast fram. Al-
bertína var viðkvæm, skapstór og
skarpgáfuð kona og ákaflega list-
hneigð. Síðustu árin var hún blind
en fram að níræðu vann hún að
ýmiss konar hannyrðum og er sumt
af því sern eftir hana liggur hrein
listaverk. Ég varðveiti enn nokkur
pör af vettlingum sem hún sendi
bömum mínum þegar hún var hátt
á níræðisaldri og eru þau einna
líkust því að hafa verið pijónuð með
títupijónum svo fínlega era þeir
vettlingar unnir og fagurlega
mynstraðir. Mér var alltaf mikið
undranarefni hvemig hún, óskóla-
gengin manneskjan, gat tekið
flóknar uppskriftir af heklumynstr-
um upp úr erlendum tímaritum og
oft var til hennar leitað um hjálp
ef vandasamt handverk þurfti að
vinna með heklunál. Það má nærri
Blómastofa
Fridjinns
Suðurlandsbraut 10
1C» Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,-eínnig um helgar.
Skreytingar við Öll tllefni.
Gjafavörur.
geta að ekki hefur gefist mikill tími
til þess konar dútls meðan hún var
að ala upp sinn stóra barnahóp en
mörg bama hennar hafa vakið á
sér athygli fyrir listfengi og vandað
handverk.
Samheldni þeirra systkina er ein-
stök og kemur m.a. fram í því að
þau hafa leitast við að láta ekkert
sumar svo hjá líða að þau komi
ekki við í Botni til að njóta sam-
vista hvert við annað og þó fyrst
og fremst að vera með ömmu.
Það hefur því iðulega þröngt
verið setinn bekkurinn og raunar
furðulegt hvemig alltaf var hægt
að bæta við gestum í þessu litla
húsi. Ég veit að við eigum á kom-
andi áram eftir að eiga þar góðar
samverastundir og þá mun andi
ömmu svífa þar yfir vötnum. Ég
minnist einstakrar frásagnargáfu
hennar sem krydduð var sterku
vestfirsku orðfæri og þeim fram-
burði sem sjaldheyrður er orðinn.
Ég minnist þeirra búskaparhátta
liðinna alda sem varðveittir vora í
Botni allt fram yfír miðja öldina.
Þar var slegið með orfi á engjum,
heyið flutt heim á klakk og ær vora
þar í kvíum fram á 5. áratuginn.
Ég minnist þess líka að þessum
fomu vinnubrögðum fylgdi líka sú
hljóðláta samsömun við náttúra
landsins sem nú hefur flestum glat-
ast. Þar kippti hann afi minn silung-
um upp úr lækjum með beram
höndum, þar tók hún amma kollinn
sinn og mjaltafötuna og settist und-
ir kýmar eftir að hafa klórað þeim
bak við eyran og ávarpað þær með
nafni. Ég minnist þeirrar nýtni og
sparsemi sem allt gerði úr engu.
Þeirrar reglufestu og snyrti-
mennsku sem hafði hvern hlut
ævinlega á sínum stað og stað fyr-
ir hvem hlut. Þó skyldi enginn
skilja þessi orð þannig að hér hafi
lífið allt liðið fram í einhverskonar
áreynslulausri ijómalygnu. Því fór
fjarri. Hér vora unnin afreksverk.
I þessum örlitla bæ var stóram
bamahópi komið til manns við sár-
ari örbirgð og miskunnarlausara
strit en við sem lifum í dag getum
látið okkur til hugar koma. Tvo
syni sína urðu þau að láta frá sér
í fóstur, því þrátt fyrir þrotlaust
erfiði, spamað og útsjónarsemi varð
að létta á ómegðinni. Slík reynsla
skilur eftir sig sár sem jafnvel
tíminn getur ekki læknað þótt ævin
verði löng. í þessum þrengslum
varð það henni styrkur að hún varð-
veitti alla ævi bamatrú sína, svo
heila, heiða og efalausa trú um
persónulega nálægð guðdómsins að
ég hef ekki annars staðar kynnst
slíkri. Þær blessunaróskir og fyrir-
bænir sem fygldu mér og mínum
af hennar fundi alla tíð era sannar-
lega ígildi margra altarisgangna.
Verði henni að trú sinni á hún
vissulega góða heimvon í dag.
Sigríður Jóhannesdóttir
í dag verður amma mín, Al-
bertína Jóhannesdóttir, til grafar
borin. Hún lést í Sjúkrahúsi ísa-
fjarðar þann 2. janúar 1989, 95 ára
að aldri.
Hún fæddist 19. september 1893
að Hvíanesi við Súgandafjörð. Mest
af sínum búskap bjó hún ásamt
afa, Guðna J. Þorleifssyni sem lést
1. apríl 1970, að Botni í Súganda-
fírði, og varð þeim 11 barna auðið
og era 9 þeirra enn á lífi.
Þegar ég minnist ömmu þá er
svo margt sem þýtur í gegnum
hugann. Öll sumrin fyrir vestan,
fyrst í Botni og síðan á Suðureyri.
Ámma var með afbrigðum handlag-
in, það var sama hvort hún var að
pijóna úr eingirni, fallegu vettling-
ana og hosumar, hekla dúka eða
smíða úr íspinnatré, eldspýtum eða
eldspýtnastokkum. Eða þegar hún
gerði líkan af bænum sem hún ólst
upp í.
Þá var nú ekki síður fallegt það
sem hún gerði úr skeljum. Amma
var sú fallegasta amma og ömmu-
legasta sem til var í mínum augum.
Með silfurhvítt og liðað hár með
þykkar fléttur sem hún vafði um
höfuðið eins og geislabaug. Og þeg-
ar hún hló þá dillaði hún öll. Eða
þegar hún tók mann afsíðis til að
segja manni sögur eða sýna okkur
krökkunum eitthvað frá því í gamla
daga. Mér er minnisstæðust stundin
þegar mér hlotnaðist sá heiður að
klippa silfurgráu flétturnar af
henni, ég veit ekki hvor okkar var
taugaóstyrkari, ég eða hún. En
ekki varð hárið síður fallegt þegar
það lokkaðist allt upp í hnakkann.
Ég veit að þar sem amma er nú
þá líður henni vel, því amma var
mjög trúuð.
Ég þakka henni allar samvera-
stundirnar gegnum öll árin, og mig
langar að kveðja hana með sálmi
sem hún var vön að láta okkur fara
með áður en við fóram að sofa.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt
hafðu þar sess og sæti
signaði Jesús mæti.
(Höf. ókunnugur)
Sólveig Leifsdóttir
t
Eiginmaður minn,
GUNNARHANSSON,
er látinn.
Hulda Valtýsdóttir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
ÁlfaskelAI 39,
HafnafirAI,
lést í Sólvangi sunnudaginn 8. janúar.
Anna Pálsdóttir,
GuArún Pálsdóttlr,
Rúnar Pálsson,
Reynir Pálsson,
Elín Pálsdóttir, AAalstelnn ísaksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigursteinn Hubertsson,
Sigurgeir Jónasson,
Sif EiAsdóttir,
Minning:
Finnur V. Indriða-
son frá Skriðuseli
Fæddur 10. janúar 1889
Dáinn 30. júní 1979
Okkur langar að minnast afa okk-
ar sem hefði orðið 100 ára í dag,
en hann lést í Landspítalanum fyrir
10 árum. Afi fæddist að Hömrum í
Reykjadal, en tveggja ára fluttist
hann með foreldram sínum að Skrið-
useli í Aðaldal. Foreldrar afa vora
Indriði Kristjánsson og Dýrleif Guð-
mundsdóttir. Systkini afa vora Sigr-
ún er bjó í Grímsey, Anna er bjó í
Reykholti, Eiður er bjó í Hrísey, Elín
er bjó á Húsavík, Ingólfur er bjó á
Húsabakka og Laufey er dvaldi hin
síðari ár að Skjaldarvík, en þau era
öll látin. 14. júlí 1914 gekk afi að
eiga hana ömmu, Hallfríði Sigur-
bjömsdóttur frá Helgastöðum í
Reykjadal og eignuðust þau níu böm
er öll komust vel á legg. En þau
eru: Baldur, Indriði (lést 1968), Sigr-
ún, Dýrleif, Gestur, Éiður (lést 1986),
Anna Sigríður, Unnur og Haukur
(lést 1975). Afi tók við búi af foreldr-
um sínum og bjó öll sín búskaparár
að Skriðuseli.
Afa var margt til lista lagt og
hafði hann hendur þúsundþjalasmiðs.
Hvort sem það var að gera við klukk-
ur, smíða skeifur eða hús og allt þar
á milli. Afi tók alla vinnu sem gafst
með búskapnum enda var hann sér-
lega greiðvikinn við sveitunga sína.
Þau eru ekki fá íbúðar- og útihúsin
í dalnum sem afi hefir lagt hönd á.
Afi var mjög trúaður og lagði hann
mikla rækt við trúna sem sést best
á því að hann var meðhjálpari í Nes-
kirkju í Aðaldal í 25 ár og þótti hon-
um afar vænt um kirkjuna sína og
hugsaði hann vel um kirkjuna með
sinni smiðslagni. Afi missti ömmu
1943 og var þá yngsta bamið 10
ára. Öll böm afa fluttust suður með
áranum nema Indriði en þeir feðgar
héldu búi áfram allt þar til Indriði
lést 1968. Suttu eftir lát Indriða brá
afi búi og hélt til á sumrin fyrir norð-
an en hér fyrir sunnan á vetuma hjá
bömum sínum. Við hlökkuðum mikil
ósköp til að fá afa í heimsókn, svo
blíður og góður var hann ætíð við
okkur. Það geislaði mikil og ógley-
manleg hlýja frá honum. Afkomend-
ur afa eru 106.
Blessuð sé minning okkar elsku-
lega afa.
Jens Elíasson,
Sigurveig Gestsdóttir.
Þeir sem hefðu hug á að vera með
í byijun sumars að koma saman til
minningar um afa okkar era beðnir
að hafa samband við undirrituð.
t
Útför
HANNESAR JÓNS MARINÓS HANNESSONAR,
sem andaðist á vistheimlli Blóa bandsins, Viðinesi hinn 31. des-
ember sl. verður gerð frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 1 2. jan-
úar kl. 10.30.
Vinir hins lótna.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SKÚLI ODDLEIFSSON,
Vallargötu 19,
Keflavfk,
verður jarðsunginn fró Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 11. janúar
kl. 14.00.
RagnhelAur Skúladóttir,
MóeiAur Skúladóttir,
Kristrún Skúladóttlr,
Helgl Skúlason,
Ólafur Skúlason,
SaavarHelgason,
Björn Björnsson,
Þórlr Gelrmundsson,
Helga Bachmann,
Ebba SigurAardóttir,
barnabörn og langafabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar,
GUDJÓNU JAKOBSDÓTTUR,
Meðalholti 7.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jakob S. Þórarinsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
BRYNJARS SÖRENSEN,
Kringlumýri 9,
Akureyri.
Ruth Sörensen,
Dan Brynjarsson, Björk Guðmundsdóttir,
Elva B. Brynjarsdóttir, HörAur Lilliendahl,
Brynjar B. Brynjarsson, Ágúst Freyr Dansson.