Morgunblaðið - 10.01.1989, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
„\>ess\ hér glalabi fjölskylduauéinum."
ást er..
12-30
. . . rétt orð á réttum stað.
TM Reg. U.S. Pat Off. — all nghts reserved
® 1988Los Angeles Times Syndicate
Með
morgimkaffínu
1155 tÆjle*
Finnst bragð af rottueitr-
inu í kaffi?
1141 , POLLUX
Ertu á sama máli um
mengunarhættuna?
HÖGNI HREKKVÍSI
/X-/7
„ PETTA ER i ryf?STA SIKINJ S&M BG HEVRI
KÖTT ©u'STRA."
iiiiiittiiiltiiiilliiií
Verð^ggmg^e^gengisvíðmíðun^1111^^^^^
Innlend verðtrygging er 25%
hærri en erlend á 5 árum
LANSKJARAVlSITALAN hefur
hækkað mun meira en gengi
samsettu gjaJdmiðilseininganna
SDR og ECU undanfarin ár, en
frA áramótum er heimilt að verð-
tryggja innlendar Qárskuldbind-
ingar með þeim. Lán sem tekið
hefur verið fyrir fimm árum með
lánskjaravisitðlu og skuidabréfa-
vöxtum væri i dag 25% hærra
en ián sem sama tima hefði verið
með SDR-viðmiðun og vöxtum.
Síðastliðin fimm ár hefur sölu-
gengi SDR til dæmis hækkað úr
30 kr. í 62 kr. eða um 106%. en
tæp þijú ár. Frá ársbyijun 1986
hefði einnar milljónar kr. lán með
lánskjaravísitölu og skuldabréfa-
vöxtum hækkað í 2.087 þúsund kr.
en ef lánið hefði verið tekið með
ECU-gengisviðmiðun og vöxtun
væri það í 1.750 þúsund krónum
og ( 1.860 þúsund kr. ef miðað er
við 2% álag á vexti. Innlenda verð-
tryggingin hækkar þetta lán því
um 19,2% meira en ECU-viðmiðun-
in án álags á vexti, en um 12,3%
með álagi.
Undanfama daga hefur verið
■iiHbaHta
Eyðslutór
Til Velvakanda.
I hugleiðingum mínum um nýliðna
jólaföstu kemur margt upp í hugann
og þykir sjálfsagt fleirum en mér
vera fyllilega tímabært að taka sam-
an hug sinn og endurmeta stöðu sína
í þeim darraðardansi sýndarmennsk-
unnar sem svo víða ríkir. En meðan
þjóðargjaldþrot forsætisráðherra
landsins hefur nálgast strendur ætt-
jarðarinnar líkt og hafísbreiða þá
dynur kliðmjúkur jólamarzinn í eyr-
um landsmanna þar sem taktföst
áætlun er gerð í síendurtekinni örv-
un á jólalegri gjafmildi okkar þar
sem allt gengur út á það að við sjáum
út sem flestar góðar gjafír fyrir
ættingja, vini og kunningja.
Og eftir því sem nær líður jólum
verður marzinn hraðari og sveiflan
dýpri og þegar gjaldmiðill heimilisins
er uppurinn löngu fýrir tímann, þá
mega menn ekki gefast upp og
hætta við svo búið heldur taka fram
platkortin sín, nei, afsakið, plast-
kortin vildi ég sagt hafa, svo allt
gangi í haginn fyrir jólalagasmiðum,
jólabókaskáldum og jólakaupmönn-
um svona rétt fyrir þjóðargjaldþrot
almúgans.
En lítið er gaman að dansa alvöru
jólagjafamarzinn ef ekki fýlgir hug-
ur máli og gjafirnar eiga að vera
dýrar í ár eftir því sem fjölmiðlarnir
segja og menn skyldu gleyma göml-
um lummum um kerti og spil, því
hver getur verið þekktur fyrir að
hugsa um budduna sína þegar slíkur
jólamarz er annarsvegar undir
stjömuskini auglýsingasmiða nútím-
ans og óvíst að mönnum bjóðist
annað eins í bráð og Húsnæðisstofn-
un verður jafnt og bankar og spari-
sjóðir að láta sér skiljast að menn
vilja fá að gera annað en að borga
niður endalaus lán árið út og inn
þar sem vextir og vísitölubætur gera
lánsupphæðir hærri og veglegri eftir
því sem oftar er greitt inná upphaf-
lega lánsupphæð.
En svo gerist það og eftir hádegi
aðfangadags fer gjaldþrotið að láta
hærra í eyrum og um kvöldmat hef-
ur orðið meiriháttar spennufall hjá
plastkortaþjóðinni norðan við stríð.
Eyðsluölvunin er á enda og plast-
húðaðir timburmenn taka við því
óvíst er um skilning bankatröllsins
í marmarahellinum á getu eða getu-
leysi hins skyndisnauða borgara og
þar sem hér var aðeins um hálfvöru
en ekki alvöru fyllerí að ræða þá er
ekki um að tala neina afvötnun eða
félagslega meðferð.
Menn verða því að sleikja sár sín
í einrúmi og gera sálu sinni að með-
taka alvarlega íhugun og stokka
spilin upp á ný ef vel á að fara.
Eyðlsufár það sem ríkt hefur með
þjóðinni og nú tók á sig jólalegan
blæ er sem betur fer ekki ólækn-
andi, en til þess að árangur náist
gilda sömu lögmál og hjá þeim sem
SAA hefur aðstoðað vegna ofneyslu
áfengis, menn þurfa að hafa vilja
til að breyta lífsháttum sínum.
Borgari
Yíkverji skrifar
Við íslendingar höfum ríka til-
hneigingu til að trúa á völvur!
Þeim tímaritum fjölgar stöðugt,
sem birta spádóma einhverrar völvu
um áramót. Fróðlegt er að lesa slíka
spádóma frá fyrri árum og bera
saman við það, sem raunverulega
gerðist. Annars er ósanngjamt að
tala bara um tímarit í þessu sam-
bandi. Ifyrir u.þ.b. tveimur áratug-
um birti Morgunblaðið reglulega
spádóma bandarískrar völvu, Dixon
að nafni, um það sem gerast mundi
á næstu árum. Víkverji hefur það
fyrir satt, að ritstjóra Morgunblaðs-
ins hafi orðið svo mikið um, þegar
sá spádómur Dixons reyndust tómt
bull eitt árið að Nixon mundi lifa
Watergate-málið af sem forseti, að
Dixon var rekin frá Morgunblaðinu!
Sumir segja, að Dixon hafi hrokkið
jafn mikið við. Og eitthvað hefur
hún föndrað minna við kúluna
s?ðan!
Hvað um það. Víkvetji tók sér
fyrir hendur að rýna í spádóma
völvu Vikunnar fyrir einu ári um
það, sem gerast mundi á árinu
1988. Hér á eftir verða birtar stutt-
ar tilvitnanir í umsögn völvu Vik-
unnar um væntanlega atburði árs-
ins 1988.
xxx
Valvan sagði hinn 28. desember
1987:“Ég vil bara segja ykkur
það strax, svo ég byrji á réttum
enda, að um leið og þessi ríkisstjórn
tók við völdum, sá ég fyrir mér ein-
hveija þá sterkustu ríkisstjóm, sem
hér hefur setið, sennilega allt frá
árinu 1944.
Ekki aðeins af því, að hún hefur
svo mikinn meirihluta á þingi, held-
ur einnig þrátt fyrir þennan meiri-
hluta, sem gefur henni möguleika
á að vera hvort tveggja í senn stjórn
og stjómarandstaða. Þingmenn
geta þannig skipzt í tvo eða fleiri
hópa, meðan umræður um mikilvæg
mál standa yfir og gefa stjóminni
þannig visst aðhald innanfrá, úr
röðum stuðningsmanna. Stjómar-
andstaðan er því að vissu leyti
óvirkari en áður var. Sterkustu
menn stjórnarinnar verða enn um
sinn flokksformennirnir þrír, Þor-
steinn Pálsson, Steingrímur Her-
mannsson og Jón Baldvin Hannib-
alsson.
Ég sé einnig fyrir mér aukna til-
trú fólks á Þorsteini Pálssyni og
mun það verða staðfest í skoðana-
könnun er líður nær vordögum.
Ráðherrar hans, þeir Birgir ísl. og
Friðrik Sophusson, sem munu verða
farsælir í störfum eiga ekki sízt
þátt í því að styrkja stöðu forsætis-
ráðherra og flokks hans í heild.
Birgir ísl. Gunnarsson mun vekja
athygli fyrir snjalla og skjóta lausn
í viðkvæmu máli, sem upp kemur
á árinu í sambandi við framkvæmd
grunnskólalaganna. Iðnaðar- og
orkumál verða mjög í sviðsljósinu,
er líður fram á sumar og mun iðnað-
arráðherra senda hóp sérfræðinga
til tveggja heimsálfa með sérstakt
kynningarprógram er varðar upp-
byggingu á eftirsóttri aðstöðu hér
á landi og lýtur að velferð einstakl-
inga. Gæti verið í sambandi við
heilsuhæli eða annað, sem þeim
tengist, því þetta sé ég svo óljóst,
vegna hitauppstreymis í sýninni."
(!!)
XXX
Og enn heldur völva Vikunnar
áfram að lýsa stjómmálaþróun
ársins 1988:“Hjá Framsóknar-
flokknum eru talsverð umskipti
framundan. En þar nýtur formaður-
inn, Steingrímur, einnig traustra
vinnubragða ráðherranna, Halldórs
Asgrímssonar og Guðmundar
Bjarnasonar. Ég sé hins vegar
breytingar í þingliði þessa flokks á
árinu vegna uppstokkunar í emb-
ættum þeim, er Framsóknarmenn
ráða yfir. Valdsvið utanríkisráð-
herra mun aukast verulega með
nýbreytni í ráðuneyti hans og nýjum
verkefnum, sem varða kynningu á
íslenzkum útflutningsvörum og eft-
irlit með þeim. Sendiráð okkar er-
lendis munu verða betur nýtt en
áður á þessu sviði.
Ráðherrar Alþýðuflokksins munu
áfram verða mikið í sviðsljósinu,
embætta sinna vegna og ná nokk-
urri og varanlegri fótfestu, hver
fyrir sig, í viðamiklum málaflokk-
um. Ég get nefnt ykkur sem dæmi
að dómsmálaráðherra mun standa
að og koma í framkvæmd mikil-
vægri breytingu á umferðarlögum,
sem aímenningur mun fagna mjög.
Jóhanna Sigurðardóttir mun einnig
auka vinsældir sínar verulega á
árinu, þegar hún tekur af skarið
og breytir umdeildum ákvæðum í
húsnæðislögunum. Þetta gerir hún
milli þinga í sumar og leggur breyt-
ingu þessa fyrir Alþingi næsta
haust.
Formaður Alþýðuflokksins mun
heimsækja erlenda stofnun tengda
stjómun peningamála og koma það-
an með mikilvægar fréttir, sem
leiða til uppstokkunar á gjaldmiðli
okkar. Gæti verið um að ræða enn
eina gjaldmiðilsbreytingu t.d. eins
og gerð var hér síðast með því að
taka núll aftan af krónunni eða eitt-
hvað enn áhrifaríkara."
Það er hægt að halda áfram að
vitna í völvu Vikunnar til þess að
upplýsa fólk um hvað ekki gerðist
í stjómmálum á árinu 1988 en
Víkveiji lætur þetta nægjal.Snýr sér
heldur í lokin að “vísindum" og
völvunni.
XXX
Um þau málefni sagði völva
Vikunnar m.a. fyrir ári: „Við
munum verða blessunarlega laus
að miklu leyti við inflúenzur og
umgangspestar á komandi ári.“
Raunvemleikinn var sá, að vorið
1988 heijuðu hvorki meira né
minna en þtjár inflúenzutegundir á
þjóðina, sem er mjög sjaldgæft!
Þá sagði völvan: „Eitthvert gos
sé ég fyrir á Suðurlandi, þó verða
ekki af því mannskaðar, en Al-
mannavamir koma þar við sögu.“
Hvaða gos var það?!
Hvað segja menn að lokum um
þennan spádóm?!: „Baktería, sem
er náskyld þeirri er veldur sýfilis
(ekki eyðni) herjar í auknum mæli
á dýr og menn, bæði austan hafs
og vestan, þó meira í Ameríku. -
Smitberinn er örlítið skordýr, sem
finnur sér bólfestu í húðinni. Helzta
vöm manna verður sú, að vera ekki
fáklæddir, þar sem þetta skordýr
er útbreiddast. - Gætið því vel að
og veljið hreina sólbaðsstaði í sum-
ar og alls ekki í námunda við tijá-
gróður eða mýrlendi." (!!)
ScliðÉi
•IíMíÍÍUM'.