Morgunblaðið - 11.01.1989, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.01.1989, Qupperneq 1
48 SIÐURB 7. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sænsku gárlögin: Velferðarríkið í vanda takist ekki að auka framleiðni Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðaina. í FYRSTA sinn i 28 ár hefur sœnsk I firumvarp þar sem gert er ráð ríkisstjórn lagt fram Qárlaga- Svíþjóð: Fæðingar- orlofið 18 mánuðir Stokkhólmi. Reuter. Fæðingarorlofið er ekki meðal þess, sem verður fyrir niðurskurðarhnífiium í sænsku Qárlögunum. Eftir tvö ár geta foreldrar, bæði faðir og móðir, verið heima í hálft annað ár og ekki sinnt öðrum en barninu sinu á næstum full- um launum. í fjárlögunum, sem lögð voru fram í gær, er gert ráð fyrir, að fæðingarorlofið verði lengt úr níu mánuðum f 12 f júlí nk.; í 15 mánuði á næsta ári og í 18 árið 1991. Greiðir ríkið 90% þeirra launa, sem foreldramir fara á mis við og á nýbyijuðu fjárlagaári er fæðingarorlofs- kostnaðurinn áiætlaður rúmir 90 milljarðar fsl. kr. Bamabætur í Svíþjóð em nú um 4.400 fsl. kr. með hveiju bami á mánuði en auk þess er dagheimilis- og leikskólakostn- aður verulega niðurgreiddur. fyrir nokkrum tekjuafgangi. Nið- urstöðutölur Qárlaganna eru 375 mil\jarðar skr. Kjell-Olof Feldt fjármálaráðherra sagði þegar hann kynnti flárlögin, að ónóg framleiðni, vinnuaflsskortur og litill hagvöxtur væru þau vanda- mál, sem við væri að glima i efiia- hagslffinu. „Takist okkur ekki að auka fram- leiðni miðað við hveija vinnustund stendur velferðarríkið frammi fyrir alvarlegum vanda," sagði Feldt en í upplýsingum frá fjármálaráðuneyt- inu kemur fram, að framleiðniaukn- ing í einkageiranum hafi verið 3% á ári á síðasta áratug en ekki nema 1% lengst af þessum. Sé ríkisrekstur- inn talinn með verður myndin enn dekkri. Sagði Feldt, að meðal annars af þessum sökum hefði ekki verið gripið til meiri niðurskurðar í flárlög- unum eins og margir hefðu þó lagt til. Fyrst yrði að ráða bót á þeim kerfisvanda, sem héldi niðri fram- leiðni og framleiðslu. Á næsta flárlagaári er gert ráð fyrir, að laun ríkisstarfsmanna lækki í raun, hækki um minna en nemur verðbólgunni, og munu launaútgjöld ríkisins af þeim sökum lækka um hálft prósent. Síðast en ekki síst má geta þess, að Feldt sagði, að frá og með næstu áramótum yrðu afnumdar allar tak- markanir á gjaldeyrisverslun við er- lend ríki til samræmis við það, sem nú tíðkast almennt í Vestur-Evrópu. I tm im Reuter Snjómokstur undir suðrænni sól Þessi ávaxtasali í Líbanon mátti byrja gærdaginn með snjómokstri en að undanförnu hefur tíðin verið einstaklega köld í Miðausturlöndum. Hafa víða orðið miklar skaðar á jarðargróða og í ísrael eru nokkur dæmi þess, að böm hafi skaddast vegna ofkælingar. Reuter í gær var tekið til við að fiarlægja flak Boeing 737-þotunnar, sem fórst í Mið-Englandi á sunnudag. Eru nú alls 48 látnir af 126 mönn- um um borð en nokkrir þeirra, sem komust lífs af úr slysinu, eru enn þungt haldnir. Grænland: Gjaldþrota alþýðu- samband Kaupmannahöfii. Frá NJ. Bruun, frétta- rítara Morgunblaðsins. Grænlenska alþýðusamband- ið, SIK, er gjaldþrota með rúm- lega 160 milljónir isl. kr. á bak- inu. Hefur það hætt öllum launagreiðslum enda er Græn- landsbanki búinn að loka á það. Svona er nú komið vegna klofn- ings í sambandinu og vegna þess, að félögunum hefur fækkað mikið. Er þess heldur ekki krafist í Græn- landi, að launþegar séu í verka- lýðsfélögum. Þá kemur það líka til, að sambandið byggði sex skrif- stofubyggingar í Grænlandi til að annast fyrirhugaðar atvinnuleysis- tryggingar landsstjómarinnar, sem síðan varð ekkert af þegar landssjóðurinn sjádfur var kominn á vonarvöl. Er nú hvorki hægt að leigja húsin né selja vegna þess hve þau em stór og dýr. Reyndi aiþýðusambandið að fá lands- stjómina til að bæta sér skaðann en af þvS hefur ekki orðið enn. Flugslysið í Englandi: Slökktu flugmennim- ir á röngum hreyfli? Stöðvuðu hægri hreyfílinn þótt eldurinn logaði í þeim vinstri Loughboroug’h, London. Daily Telegxaph. Reuter. ED Trimble, talsmaður rannsóknaraefhdar flugslysa í Bretlandi, sagði í gær, að engar vísbendingar um bilun eða eld i hægri hreyfli þotunn- ar, sem fórst á sunnudag, hefðu komið fram, en flugstjóri hennar sagðist 13 mínútum eftir flugtak þurfa að stöðva hreyfilinn vegna gangtruflana og titrings. Eidur kom hins vegar upp i vinstri hreyflin- um og virðist nú margt benda til, að flugmennirnir hafi stöðvað rang- an hreyfil. Á fréttamannfundi í gær sagði Trimble, að við rannsókn á hægri hreyflinum hefði ekkert komið í ljós, sem benti til vélarbilunar í honum en skömmu áður en flugvélin hrap- aði ákvað flugstjórinn að stöðva hann. Kom þetta einnig fram í um- ræðum á breska þinginu í gær og í fréttum breska útvarpsins, BBC. Er nú getum að þvi leitt, að slökkt hafi verið á röngum hreyfli. Farþegar þotunnar sögðust hafa séð eld í vinstra hreyfli skömmu eftir flugtak. Hann hefði slokknað en gosið upp að nýju stuttu áður en þotan brot- lenti við East Midlands-flugvöllinn, 150 km norður af London. Rann- sóknaraðilar hafa einnig staðfest að eldur hafi kviknað í vinstra hreyflin- um. Bandaríska flugmálastjómin hefur varað við flugi á þotum búnum sömu hreyflum og þota British Midland þegar lofthiti væri undir 10 gráðum á Celcius og loftraki mikill. Væri hætta á að hreyflamir stöðvuðust við aðstæður af því tagi, en þær voru fyrir hendi er Boeing 737-400- þota British Midland lagði upp í síðustu ferð sína. Fyrrum starfsmaður General Elec- tric í Bandaríkjunum, sem framleiddi hreyfla British Midland-þotunnar, kærði fyrirtækið í haust fyrir að láta ekki prófa búnað í hreyflana sem skyldi. Talsmaður General Electric sagði að bilun í umræddum búnaði ætti ekki að geta leitt til hreyfilstöðv- unar. Boeing-þota British Midland var splunkuný. Hún var notuð á feriuleið- inni milli Belfast á Norður-lrlandi og London. Var hún í sinni sjöundu ferð á þeirri leið á sunnudag er hún fórst. Álls komust 78 menn lífs af en margir þeirra eru stórslasaðir. Sjá „Vamað við flugi . . .“ og „Ekkert óeðlilegt . . .“ á bls. 18. Afghanistan: Brottför Sovét- manna frestað? Moskvu. Reuter. Sovétmenn skýrðu frá því í gær, að ekki væri víst, að þeir flyttu allt herliðið frá Afghanistan fyrir 16. febrúar eins og kveðið er á um í Genfarsamkomulaginu. Báru þeir þvi við, að ekki hefði tekist að semja um breiða samsteypustjóm i landinu. í væntanlegri stjóm. Vestrænir sendimenn í Kabúl segja, að ástandið í borginni fari dagversnandi. Vetur sé að ganga í garð ásamt vaxandi skorti á mörgum nauðsynjum enda hafa skæruliðar setið um borgina í marga mánuði. Hefur verið orðrómur á kreiki um að Qölskyldur núverandi ráðamanna séu famar að flýja land. „Það er of snemmt að ræða um fulla brottför frá Afghanistan,“ sagði Júlíj Vorontsov, sendiherra Sovét- manna í Kabúl, á fréttamannafundi í Moskvu. Síðustu daga hefur hann átt viðræður við fulltrúa ýmissa skæmliðasamtaka í Afghanistan en í þeim miðaði ekkert og vilja skæm- liðar ekki fallast á, að fulltrúar nú- verandi stjómvalda í Kabúl eigi sæti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.