Morgunblaðið - 26.01.1989, Síða 56
SHttgmifrlafrito
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1989
VERÐ í IÍAUSASÖLU 70 KR.
RARIKvffl 11-12
prósent hækkun
vKæmi til viðbótar við hækkun Landsvirkjunar
Rafmagnsveitur rikisins munu fara fram á 11-12% hækkun gjald-
skrár sinnar 1. mars, til viðbótar við 60% af þeirri hækkun sem
stjórn Landsvirkjunar kann að ákveða á heildsöluverði raforku, að
sögn Kristjáns Jónassonar rafmagnsveitustjóra. Iðnaðarráðuneytinu
hefur verið skýrt frá þessu.
Kristján sagði ekki enn ljóst
hvemig afkoma stofnunarinnar
hefði verið á síðasta ári og vildi
engar tölur nefna í því sambandi.
„En hún er ekkert glæsileg," sagði
hann.
Að sögn Halldórs Jónatanssonar
forstjóra Landsvirkjunar hafa
gjaldskrármál verið til umræðu hjá
stjóm Landsvirkjunar að undan-
fömu en stjómin hefur enga
ákvörðun tekið enn sem komið er.
Næsti stjómarfundur verður seint
í næstu viku og þá mun enn koma
til umræðu hve mikið gjaldskrá
stofnunarinnar þurfi að hækka 1.
mars. Halldór Jónatansson sagði
engar tölur fyrirliggjandi um af-
komu Landsvirkjunar á síðasta ári.
‘Áburöarverksmiðja ríkisins:
Aburðarverð þarf
að hækka um 32%
- segir Hákon
Björnsson fram-
kvæmdasljóri
HÁKON Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri Áburðarverk-
smiðju ríkisins, telur að áburðar-
verð þurfí að hækka um 32%
miðað við núverandi forsendur.
Segir hann að enn hafí ekki ver-
ið lögð fram formleg beiðni um
hækkun áburðarverðs, en það
verði að öllum likindum gert í
byrjun næsta mánaðar.
„Við höfum dregið að leggja fram
Bólusett
gegn flensu
sem getur
valdíð heila-
himnubólgu
í VOR mun á vegum heilbrigð-
isyfírvalda hérlendis verða
hafín bólusetning ungbarna
nndir 18 mánaða aldri gegn
hemophilus-inflúensu. Þessi
inflúensa veldur meðal annars
heilahimnubólgu. ísland mun
verða fyrst vestrænna rílqa
tíl að nota þessa bólusetingu.
Ólafur ólafsson landlæknir
segir að undirbúningur þessa
máls sé nú i fullum gangi en
bóluefhið kemur frá
kanadiska lyQafyrirtækinu
Connaught Biosciences i Tor-
onto.
í Qárlögum þessa árs er gert
ráð fyrir fjárveitingu til þessa
verks, alls 7 milljónum króna.
Þessi upphæð mun aðeins þriðj-
ungur af því sem bóluefnið kost-
ar en þar sem ísland er fyrst ti!
að nota það náðust hagstæðir
samningar við framleiðendur.
í bandaríska blaðinu Wall
Street Journal er nýlega flallað
um þetta mál. Þar kemur fram
að ísland er fyrsta þjóðin í hópi
þróaðra ríkja til að bólusetja
böm undir 18 mánaða aldri gegn
heilahimnubólgu sem orsakast
af bakteríum.
beiðni um verðhækkun vegna þess
óróa sem verið hefur í gengismálum
undanfarið og óvissunnar sem því
hefur fylgt,“ segir Hákon. Hann
segir gengisbreytingar vega þyngst
þegar reiknað er út hver hækkun
á áburðarverði þurfí að vera, en
einnig vega launabreytingar þungt.
„Viðskipti með áburðarefni eru að
meginhluta til í dollurum og breyt-
ing á dollar er um 37% frá því í
janúar í fyrra, þegar síðasta verð-
breyting á áburði varð. Á sama
tímabili hafa launahækkanir verið
yfír 20%.“
Takmarkanir á birgðahaldi amm-
oníaks hafa haft í för með sér að
flutningskostnaður á ammoníaki
hefur tvöfaldast vegna þess hve lítið
magn er flutt til landsins í einu.
Nemur árlegur viðbótarkostnaður
um 12 milljónum króna að sögn
Hákons, en það er rúmlega 1% af
heildarveltu fyrirtækisins.
Hákon segir að minnkandi áburð-
amotkun hafí ekki mikil áhrif á
áburðarverð. „Samhliða því að
áburðamotkun hefur farið minnk-
andi hefur okkur tekist að vera með
ýmsar aðgerðir til að spoma við
auknum framleiðslukostnaði, en því
er ekki að neita að fasti kostnaður-
inn dreifíst á færri tonn og einhver
hækkun verður af þeim sökum,"
segir Hákon Bjömsson.
Morgunblaðið/RAX
Dauður fugl í fjörunni við Grindavík. í baksýn er skipið strandaða.
Dauðir fuglar finn-
ast við strandstað
Grindavik
NOKKUÐ hefur verið um að fíiglar hafi fundist dauðir í nánd
við strandstað Mariane Danielsen við Grindavík en mikið af olíu
lak úr skipinu um helgina. Fugladauðinn verður kannaður nánar
í dag.
Síðastliðið mánudagskvöld
lagði rannsóknarlögreglan í
Grindavík hald á allt áfengi og
tóbak um borð í skipinu. Innsigli
tollgæzlumanns hafði verið rofíð,
en samkvæmt áfengislögum ber
tollgæzlu að innsigla allt áfengi
og tóbak, sem er umfram eðlilega
neyzlu áhafnar.
Lagt var hald á 53 flöskur af
áfengi, 10 kassa af bjór og eitt-
hvað af tóbaki. Ekki var hægt að
fá uppgefíð, hvort eitthvað vant-
aði af áfengi, þar sem málið er
enn í rannsókn.
Sjópróf vegna strandsins verða
í Keflavík í dag.
FÓ
Fjórtán
ára fang-
elsi fyrir
manndráp
GUÐMUNDUR Sveinbjömsson, 21
árs gamall Reykvíkingur, hefur
verið dæmdur til 14 ára fangelsis-
vistar fyrir að hafa af ásetningi
orðið 25 ára gamalli konu að bana
á heimili hennar í Kópavogi, i sept-
embermánuði síðastliðnum.
Maðurinn játaði að hafa tekið kon-
una kverkataki, slegið hana með
krepptum hnefa og lagt þrívegis til
hennar meðvitundarlausrar með hnífí.
Sakbomingurinn var einn til frásagn-
ar um það sem gerðist og bar hann
því við að hann hefði sturlast.
Við ákvörðun refsingar tók dómar-
inn, Helgi I. Jónsson, tillit til þess
að ákærði sagði sjálfur til brots síns
skömmu eftir verknaðinn, ungs ald-
urs hans og þess að hann hafði ekki
áður orðið uppvís að refsiverðu at-
ferli af neinu tagi.
Sigldi á
bryggjunaá
Rauiarhöíh
Raufarhöfii.
ENSKA flutningaskipið Rollnes
sigldi á hafíiarbryggjuna á Rauf-
arhöfíi i gærmorgun með þeim
afleiðingum að stærðargat kom
á stefíii þess. Viðgerðarmenn frá
Húsavík hófu viðgerð á Rollnes
í gær og er búist við að bráða-
birgðaviðgerð Ijúki síðdegis.
Flutningskipið, sem er frá Lund-
únum, kom til Raufarhafnar til að
taka loðnumjöl hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins. Skipið var að leggjast
að bryggju þegar óhappið varð.
Talið er að það hafí verið á of mik-
illi ferð og að akkeri þess hafi ekki
fengið festu í botni eftir að það var
látið falla. Rollnes er stórt skip
miðað við aðstæður hér, 102 metrar
að lengd og um 5.000 lestir. Það
er með perustefni, þannig að hafn-
armannvirkin eru skemmd undir
sjávarmáli. Þegar skipið verður far-
ið verður fenginn kafari til að kanna
skemmdir á hafnarbryggjunni.
Byrjað var að lesta skipið í gær-
morgun en hér á það að taka rúm
1.300 tonn af mjöli. Helgi
Nýr vísitöhigruiinur kærð-
ur til Úrskurðarnefndar
Benedikt Davíðsson, formaður SAL, telur ekki grundvöll fyrir
viðræðum við ríkið um skuldabréfakaup lífeyrissjóða að óbreyttu
BALDUR Guðlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður, fór þess á leit í
gær við úrskurðamefnd um
verðtryggingu að hún úrskurði
hvort honum sé skylt að sæta því
að greiða af tilteknu skuldabréfí
í samræmi við hina nýju láns-
kjaravísitölu eða hinn nýja
gmndvöll hennar. Benedikt Dav-
íðsson, stjórnarformaður Sam-
bands almennra lífeyrissjóða,
segir að ekki sé grundvöllur fyr-
ir viðræðum um frekari kaup
lífeyrissjóðanna á skuldabréfum
ríkissjóðs fyrr en lausn hafi
fengist á deilunni um breyttan
grandvöll lánskjaravísitölunnar,
en viðræður um skuldabréfa-
kaup fyrir síðari hluta þessa árs
eiga að heQast í næsta mánuði.
Hann segir ennfremur að lífeyris-
sjóðir innan SAL geti ekki sætt sig
við að nýr grunnur lánskjaravísi-
tölunnar nái til eldri skuldbindinga
og verði ekki horfið frá þeirri af-
stöðu verði gripið til málshöfðunar.
Benedikt segist ekki hafa heyrt
í neinum, hvorki innan verkalýðs-
hreyfingar, atvinnurekenda, fyrir-
tækja né banka sem telji þama
eðlilega staðið að málum. Aðspurð-
ur hvort ekki yrði erfiðara að verð-
tryggja kjarasamninga eftir þessa
breytingu sagði hann að sér sýndist
þetta ekta víxlverkunarvísitala, eins
og forsætisráðherra hefði talað um
að þyrfti að forðast. „Það kann að
vera að með því að setja inn svona
vitlausa vísitölu sé verið að grafa
undan grunni þeirrar vísitölu sem
verið hefur. Þetta sé gert svona til
þess að styrkja það sjónarmið að
afnema beri allar vísitölur, þar sem
þetta verði svo hrópandi vitlaust í
framkvæmdinni," sagði Benedikt.
Sjá ennfremur fréttir og bréf
Baldurs Guðlaugssonar á
miðopnu.