Morgunblaðið - 01.02.1989, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚÁr’ 1989
7
Á myndinni eru f.v.: Unnur Stefánsdóttir, eiginkona Jóhanns Alex-
anderssonar, þá Jóhann, Þórður Sigurðsson, Jón Ragnarsson, Ásthild-
ur Torfadóttir, eiginkona Jóns, Guðný Róbertsdóttir, eiginkona
Kjartans Ragnarssonar, og loks Kjartan. Á myndina vantar Brynj-
ólf Bjarnason og skipstjórann, Örnólf Grétar Hálfdánarson.
Skipbrotsmenn hitt-
ust tuttugu árum efltir
giftusamlega björgun
Fjórir af sex mönnum sem björguðust naumlega en giftusamlega
er vélbáturinn Svanur IS 214 fórst fyrir réttum 20 árum, hittust á
Hótel Sögu á sunnudag og rifjuðu upp sameiginlega lífsreynslu sína.
„Við höfuni ekki sést öll þessi ár þótt ekki sé langt á milli okkar,“
sagði Jón Ragnarsson á Súðavík sem var einn skipbrotsmanna.
Jón sagði þetta hafa verið mikla
lífsreynslu og næstum tilviljun að
þeir félagar fundust á reki í gúm-
bát í aftakaveðri. „Við náðum sam-
bandi um talsstöð við vélbátinn
Sólrúnu, en loftnetsstöngin var
brotin, þannig að sambandið var
ekki gott. Það voru fleiri bátar að
leita, en skipsstjórinn á Sólrúnu,
Hálfdán Einarsson, gerði það jafn-
an, að í hvert sinn sem sambandið
dofnaði þá snéri hann við. Svo
heyrði hann allt í einu afar greini-
lega til okkar og þá fóru þeir á
Sólrúnu að líta í kringum bátinn
ögn betur. Þá vorum við alveg við
borðstokkinn hjá þeim.
Þeir gátu þó ekki tekið okkur inn
og við urðum að bíða í klukkutíma
enn eftir varðskipinu. Það mátti
ekki tæpara standa, því ég fór
síðastur úr gúmbátnum og um leið
slitnaði hann frá og sást ekki meir,“
sagði Jón.
Hlutafé Þörunga-
vinnslunnar aukið
HLUTAFÉ Þörungavinnslunnar í Reykhólasveit hefúr verið aukið
um 3 milljónir króna síðustu daga og er aukningin þá orðin um 6
milljónir síðan í fyrravor, hlutaféð er alls orðið 8 milljónir. A næst-
nnni vonast forráðamenn fyrirtækisins til þess að fá 4 milljónir til
viðbótar, en í fyrravor var samþykkt á hluthafafúndi að auka hlutaf-
éð í 22 mUljónir.
Benedikt Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Þörungavinnslunar
sagði, að hlutaijáraukningin væri
liður í að auka umsvif verksmiðj-
unnar, hún hefði framleitt 3500
tonn af þangmjöli á síðasta ári, sem
var 30 prósent aukning frá árinu
1987 þegar framleidd voru 2700
tonn. „Við höfum verið með vax-
andi sölu- og markaðsöflun og
framleitt upp í eftirspumina síðustu
árin. Við stefnum að því að auka
framleiðsluna á nýja árinu um 30
prósent, eða í 4500 tonn og gerum
okkur vonir um að geta selt það
magn,“ sagði Benedikt.
Nýja hlutaféð, 3 milljónir króna
er komið frá Byggðasjóði, Kaup-
félaginu og hreppnum, en Benedikt
vildi ekki segja hvaðan væntanlegar
4 milljónir kæmu að öðru leyti en
því að það kæmi úr ýmsum áttum
og fyrirtækið hefði m. a. leitað fyr-
ir sér erlendis.
Louísa M.
Ólafsdótt-
irlátin
Louísa Magnea Ólafsdóttir, org-
anisti í Ölfús- og Hveragerðis-
sóknum, lést á Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi þann 28. janúar
síðastliðinn, á 92. aldursári.
Louísa Magnea fæddist 12. desem-
ber árið 1891 að Sandfelli í Öræfum,
dóttir hjónanna séra Ólafs Magnús-
sonar, síðar prests að Amarbæli í
Ölfusi, og Lydiu Angeliku Lúðvíks-
dóttur Knudsen. Loufsa var organisti
við Kotstrandarsókn og síðar Hvera-
gerðissókn í 63 ár. Hún starfaði alla
tíð mikið að tónlistarmálum, einkum
kirkjusöng, og var sæmd Hinni
íslensku fálkaorðu fyrir störf sín að
tónlistarmálum árið 1974.
Louísa Magnea Ölafsdóttir.
GEíslPf
frá
MANFO
Ný sending
Herrafrakkarúr
CASHMEREULL,
einhnepptir og tvíhnepptir.
Glæsilegtúrval af
TWEED-frökkum
.með ogánbeltis.
Verð £rá kr.
11.950,-
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
r
Hvaða þættir valda því, að nú
er tímabært fyrir stjórnendur
fyrirtækja að kynna sér
ákvarðanakerfi?
(Decision Support Systems)
- Umhverfi og viðfangsefni í rekstri fyrirtækja
verða sífellt flóknari.
- Auknar kröfur um nákvæmar áætlanir og
útreikninga, t.d. frá lánastofnunum.
- Framfarir í tölvutækni, öflugar einkatölvur
og hágæða grafik, hafa opnað nýja mögu-
leika.
- Vaxandi umræða heiur verið um DSS er-
lendis. DSS er orð sem margir nota en
færri skilja.
Mikilvægt er því fyrir stjórnendur að fá kynningu á
þessum nýju möguleikum sem eru að bjóðast.
Eftirtaldir efnisþættir verða teknir fyrir á nám-
skeiðinu:
- Ákvarðanakerfi - skilgreining hugtaksins og
fræðilegur grunnur. Notkunarmöguleikar.
- Notkun töflureikna við viðfangsefni eins og
söluspár, greiðsluáætlanir, fjárfestingarút-
reikninga o.fl.
- Áætlanagerðarmál.
- Þekkingarkerfi (expert systems).
- Bestunarlíkön.
- Hermilíkön (simulation).
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað stjórnendum
og öðrum þeim, sem vilja kynna sér möguleika á
notkun tölva við ákvarðanatöku, áætlanagerð og
skipulagningu. Æskilegt er að þátttakendur hafi
vissa reynslu af notkun einkatölva og þekkingu á
töflureiknum.
Leiðbeinandi:
Páll Jensson prófessor við
verkfræðideild Háskóla
íslands.
Tími og staður:
7. og 8. febrúar
kl. 8.30-12.30
í Ánanaustum 15.