Morgunblaðið - 03.02.1989, Page 1
64 SIÐUR B/C
Umsátursástand við Kabúl:
Najibullah ætlar
að silja áfram
Kabúl. Peshewar. Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar gerðu eldflaugaárás á bílalest Sovétmanna á
Salang-þjóðveginum, sem er eina opna leiðin frá Kabúl til Sovétríkj-
anna, skömmu eftir að lestin lagði upp frá borginni á leið til sovésku
landamæranna á miðvikudag. Onnur bilalest með sovéskum hermönnum
á heimleið grófst undir snjóskriðu á svipuðum slóðum.
eftir að brottflutningi sovésks herliðs
lýkur 15. febrúar.
Najibullah sagði að nægur herafli
væri í landinu til að verjast árásum
skæruliða og að sagan yrði að skera
úr um hvort íhlutun Sovétmanna í
Afganistan hefði verið mistök eður
ei.
Afganskir skæruliðar með bæki-
stöðvar í Pakistan og íran eiga í
innbyrðis deilum um framkvæmd
ráðstefnu (Shura) sem ætlað er það
verkefni að skipa bráðabirgðastjórn
í Afganistan sem þeir ætla að taki
við völdum þegar sovéski herinn
verður á brott.
Suður-Afríka:
Sovétmenn sendu 15 flutningabíla
til Afganistans með 360 eldflaugum
á miðvikudag og þykir fátt benda til
þess að sovésk stjómvöld láti af
stuðningi við leppstjóm marxista í
Kabúl.
Najibullah, forseti Afganistans,
lýsti því yfir á blaðamannafundi í
gær að stjóm hans myndi sitja áfram
Varsjárbandalagið:
Kulíkov læt-
ur af starfi
Reuter
Sovéskir hermenn á skriðdreka sem fór fyrir sovéskri bílalest um
Salang-þjóðveg norðan við Kabúl. Brottflutningur sovésks herliðs
lrá Afganistan stendur nú sem hæst.
Moskvu. Reuter.
VIKTOR Kulíkov yfirhershöfð-
ingi hefúr látið af störfúm sem
æðsti yfirmaður herafla Varsjár-
bandalagsins. Pjotr Lushev, 1.
aðstoðarvarnarmálaráðherra Sov-
étríkjanna, hefúr verið skipaður
eftirmaður Kulfkovs, að sögn
Tkss-fréttastofúnnar sovésku.
Kulíkov hafði gegnt embætti yfir-
manns Varsjárbandalagsheijanna
frá árinu 1977. Eftirmaður hans,
Lushev, er talinn náinn skoðanabróð-
ir Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga
og hefur hann risið til metorða innan
sovéska hersins með skjótum hætti
í valdatíð Gorbatsjovs. Lushev var
áður yfirmaður sovéska hersins í
Austur-Þýskalandi og hefur verið 1.
aðstoðarvamarmálaráðherra frá ár-
inu 1986.
Sovéskir og vestrænir stjómmála-
skýrendur hafa búist við slíkum
mannaskiptum innan sovéska hersins
og tengja þeir þær boðuðum niður-
skurði heraflans.
P.W. Botha lætur af for-
mennsku í Þjóðarflokknum
Höfðaborg. Reuter.
P.W. BOTHA, forseti Suður-Afríku, sagði af sér formennsku í gær
í Þjóðarflokknum (NP) sem fer með völd í Suður-Afríku. Botha, sem
varð fyrir vægu hjartaáfalli 18. janúar síðastliðinn, mun áfram gegna
embætti forseta landsins. Frederik Willem de Klerk, menntamálaráð-
herra, var kjörinn eftirmaður Botha á fúndi flokksforystunnar í
gær. Talið var liklegt i gær að hann tæki við starfí forseta af Botha
í september nk.
Ölíklegt er talið að Botha sækist
eftir endurkjöri sem forseti þegar
kjörtímabil hans rennur út 3. sept-
ember næstkomandi. Að sögn Cons
Botha, talsmanns Þjóðarflokksins,
er afar sennilegt að de Klerk taki
við forsetaembættinu af Botha.
Það kom á óvart þegar Botha
greindi flokksforystunni frá ákvörð-
un sinni bréflega í gær. Starfsmenn
á skrifstofu hans kváðust ekki hafa
haft hugmynd um að afsögn hans
stæði fyrir dyrum og Con Botha
sagði að bréfíð hefði komið öllum
í opna skjöldu.
De Klerk, sem er leiðtogi íhalds-
samra afla innan Þjóðarflokksins,
bar sigurorð af Barend du Plessis,
fjármálaráðherra, í kosningu um
eftirmann Botha, með 69 atkvæð-
Reuter
Frederik W. de Klerk
Svlþjóð:
JAS-þota ferst í lendingu
Stokkhólmi. Frá Claes von Hofaten, fréttarítara Morgnnblaðsins.
JAS39 Gripen-þotan í lendingu eftir fyrstu flugferð sína i desem-
ber sl.
EINA orrustuþota Svia af JAS-
gerð fórst í lendingu í gær eftir
æfingaflug við tilraunaflugvöll
Saab-Scania skammt frá Linköp-
ing. Þotur þessar voru hannaðar
og smíðaðar með það fyrir aug-
um, að þær yrðu burðarás
sænska flughersins á næstu ára-
tugum. Hefúr verið litið á JAS
sem tákn um sænska tæknikunn-
áttu, hagleik og hugvit.
Flugvélin sem fórst fór fyrst á
loft fyrir tveimur mánuðum og
henni hefur síðan verið flogið sam-
tals í tæpar sex klukkustundir.
Tilraunaflugmaðurinn í þessari ör-
lagaríku ferð var þama í fyrsta
sinn að reyna JAS; hann slasaðist
illa en þó ekki lífshættulega.
Lengi hefur verið deilt um JAS
í Svíþjóð. Margir eru þeirrar skoð-
unar, að ekki sé forsvaranlegt frá
Qárhagslegum sjónarhóli að hefla
smíði á hátæknilegri orrustuþotu,
sem á að vera einni kynslóð á und-
an öðrum og standast ýtrustu kröf-
ur. Talið er að það kosti um 50
milljarða sænskra króna (400 millj-
arða íslenskra króna) að fram-
kvæma áætlunina um þoturnar.
Tilraunaflugið í gær þar sem
áhersla var lögð á að kanna elds-
neytiskerfi vélarinnar var með eðli-
legum hætti, þar til í lendingunni.
Rétt í þann mund sem vélin snerti
völlinn slóst annar vængurinn í
brautina og þotan snarsnerist og
fór nokkrar veltur.
Myndatökusveit frá sænska
sjónvarpinu var á vellinum og tók
myndir af því, sem fyrir augu bar.
Strax eftir slysið fór öryggisdeild
Saab fram á, að fá fílmuna af-
henta; hún var hins vegar sýnd
síðdegis í sænska sjónvarpinu og
dreift eins og öðru efni.
um gegn 61. Pik Botha, utanríkis-
ráðherra, og Chris Heunis, áætlun-
arráðherra sem gegnir forsetaemb-
ættinu í fjarveru Botha, lutu einnig
í lægra haldi fyrir de Klerk í kosn-
ingu flokksins í gær. Stjórnmála-
skýrendur teljá að kjör hans kunni
að eiga eftir að leiða til klofnings
í flokknum.
De Klerk er 63 ára lögfræðing-
ur. Hann hefur verið leiðtogi Þjóð-
arflokksins í héraðinu Transvaal,
en stjómmálamenn þaðan hafa
jafnan haft mikil áhrif í suður-
afrískum stjórnmálum. De Klerk
hóf afskipti af stjórnmálum á há-
skólaárum sínum, var þá m.a. vara-
forseti stúdentaráðs og ritstjóri
skólablaðsins. Árið 1972 afþakkaði
hann prófessorstöðu við háskólann
sinn til þess að helga sig þingstörf-
um, en það ár var hann kjörinn á
þing. Sex árum seinna varð de
Klerk ráðherra og gegndi hann
ýmsum ráðherrastörfum þar til
hann tók við menntamálaráðuneyt-
inu árið 1985. Hann er sagður bók-
hneigður en hefur um skeið verið
yfirmaður ritskoðunar stjórnarinn-
ar. Hann er tveggja barna faðir og
leikur golf og tennis í tómstundum
sínum.
Bandaríkjaþing:
Atkvæða-
greiðslum
um Tower
fi*estað
Washington. Reuter.
SAM NUNN, öldungadeildarþing-
maður demókrata og formaður
hermálanefudar öldungadeildar
Bandarikjaþings, sagði í gær að
nefndin þyrfti frekari upplýsing-
ar, áður en hún gæti tekið afstöðu
til þess hvort John Tower er hæf-
ur til að verða næsti vamarmála-
ráðherra Bandarikjanna. John
Wamer, forystumaður repúblík-
ana í nefiidinni, sagði, að athuga
þyrfti einstaka þætti nánar. Hittu
nefiidarmenn fúlltrúa FBI, alrík-
islögreglunnar, í gær.
John Tower, sem er fyrrverandi
öldungadeildarþingmaður, hefur set-
ið fyrir svörum hjá nefndinni. Hann
hefur meðal annars verið spurður í
þaula um þátttöku sína í viðskiptalíf-
inu og hvort um hagsmunaárekstur
gæti verið að ræða fyrir hann í hinu
nýja embætti. Sagðist hann mundu
leggja sig allan fram um að komast
hjá slíkum árekstrum, en Tower hef-
ur meðal annars þegið iaun sem ráð-
gjafí fyrirtækja, sem eiga viðskipti
við Bandaríkjaher.
Palme-málið:
Nýgögn
lögðfram
Stokkhólmi. Reuter.
MÁLSSÓKN gegn manni
þeim sem er í haldi sænsku
lögreglunnar, grunaður um
morðið á Olaf Palme, fyrrum
forsætisráðherra Svíþjóðar,
hefúr miðað nokkuð áfram,
að þvi er sænski rikissak-
sóknarinn, Anders Helins,
sagði fyrir rétti í gær. Hér-
aðsréttur í Stokkhólmi varð
við beiðni ríkissaksóknarans
um framlengingu gæslu-
varðhalds hins grunaða í 10
daga.
Réttarhöldin fóru fram fyrir
luktum dyrum en starfsmenn
réttarins sögðu að ríkissak-
sóknarinn hefði lagt fram ný
sönnunargögn sem renna frek-
ari stoðum undir málssóknina.
Hinn grunaði, sem á að baki
langan afbrotaferil og var
dæmdur fyrir að myrða ungl-
ing með byssusting árið 1971,
hefur í tvær vikur neitað allri
samvinnu við lögregluna.
Maðurinn, sem samkvæmt
sænskum lögum má ekki nafn-
greina, hefur neitað sakargift-
um og vetjandi hans hefur
tvisvar krafíst lausnar hans.
Hann hefur viðurkennt að hafa
verið á morðstað nóttina sem
Palme var myrtur en kveðst
whafa verið farinn heim áður
en ódæðisverkið var unnið. Að
sögn lögreglunnar hefur mað-
urinn ekki fjarvistarsönnun.