Morgunblaðið - 03.02.1989, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.02.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C Umsátursástand við Kabúl: Najibullah ætlar að silja áfram Kabúl. Peshewar. Reuter. AFGANSKIR skæruliðar gerðu eldflaugaárás á bílalest Sovétmanna á Salang-þjóðveginum, sem er eina opna leiðin frá Kabúl til Sovétríkj- anna, skömmu eftir að lestin lagði upp frá borginni á leið til sovésku landamæranna á miðvikudag. Onnur bilalest með sovéskum hermönnum á heimleið grófst undir snjóskriðu á svipuðum slóðum. eftir að brottflutningi sovésks herliðs lýkur 15. febrúar. Najibullah sagði að nægur herafli væri í landinu til að verjast árásum skæruliða og að sagan yrði að skera úr um hvort íhlutun Sovétmanna í Afganistan hefði verið mistök eður ei. Afganskir skæruliðar með bæki- stöðvar í Pakistan og íran eiga í innbyrðis deilum um framkvæmd ráðstefnu (Shura) sem ætlað er það verkefni að skipa bráðabirgðastjórn í Afganistan sem þeir ætla að taki við völdum þegar sovéski herinn verður á brott. Suður-Afríka: Sovétmenn sendu 15 flutningabíla til Afganistans með 360 eldflaugum á miðvikudag og þykir fátt benda til þess að sovésk stjómvöld láti af stuðningi við leppstjóm marxista í Kabúl. Najibullah, forseti Afganistans, lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær að stjóm hans myndi sitja áfram Varsjárbandalagið: Kulíkov læt- ur af starfi Reuter Sovéskir hermenn á skriðdreka sem fór fyrir sovéskri bílalest um Salang-þjóðveg norðan við Kabúl. Brottflutningur sovésks herliðs lrá Afganistan stendur nú sem hæst. Moskvu. Reuter. VIKTOR Kulíkov yfirhershöfð- ingi hefúr látið af störfúm sem æðsti yfirmaður herafla Varsjár- bandalagsins. Pjotr Lushev, 1. aðstoðarvarnarmálaráðherra Sov- étríkjanna, hefúr verið skipaður eftirmaður Kulfkovs, að sögn Tkss-fréttastofúnnar sovésku. Kulíkov hafði gegnt embætti yfir- manns Varsjárbandalagsheijanna frá árinu 1977. Eftirmaður hans, Lushev, er talinn náinn skoðanabróð- ir Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og hefur hann risið til metorða innan sovéska hersins með skjótum hætti í valdatíð Gorbatsjovs. Lushev var áður yfirmaður sovéska hersins í Austur-Þýskalandi og hefur verið 1. aðstoðarvamarmálaráðherra frá ár- inu 1986. Sovéskir og vestrænir stjómmála- skýrendur hafa búist við slíkum mannaskiptum innan sovéska hersins og tengja þeir þær boðuðum niður- skurði heraflans. P.W. Botha lætur af for- mennsku í Þjóðarflokknum Höfðaborg. Reuter. P.W. BOTHA, forseti Suður-Afríku, sagði af sér formennsku í gær í Þjóðarflokknum (NP) sem fer með völd í Suður-Afríku. Botha, sem varð fyrir vægu hjartaáfalli 18. janúar síðastliðinn, mun áfram gegna embætti forseta landsins. Frederik Willem de Klerk, menntamálaráð- herra, var kjörinn eftirmaður Botha á fúndi flokksforystunnar í gær. Talið var liklegt i gær að hann tæki við starfí forseta af Botha í september nk. Ölíklegt er talið að Botha sækist eftir endurkjöri sem forseti þegar kjörtímabil hans rennur út 3. sept- ember næstkomandi. Að sögn Cons Botha, talsmanns Þjóðarflokksins, er afar sennilegt að de Klerk taki við forsetaembættinu af Botha. Það kom á óvart þegar Botha greindi flokksforystunni frá ákvörð- un sinni bréflega í gær. Starfsmenn á skrifstofu hans kváðust ekki hafa haft hugmynd um að afsögn hans stæði fyrir dyrum og Con Botha sagði að bréfíð hefði komið öllum í opna skjöldu. De Klerk, sem er leiðtogi íhalds- samra afla innan Þjóðarflokksins, bar sigurorð af Barend du Plessis, fjármálaráðherra, í kosningu um eftirmann Botha, með 69 atkvæð- Reuter Frederik W. de Klerk Svlþjóð: JAS-þota ferst í lendingu Stokkhólmi. Frá Claes von Hofaten, fréttarítara Morgnnblaðsins. JAS39 Gripen-þotan í lendingu eftir fyrstu flugferð sína i desem- ber sl. EINA orrustuþota Svia af JAS- gerð fórst í lendingu í gær eftir æfingaflug við tilraunaflugvöll Saab-Scania skammt frá Linköp- ing. Þotur þessar voru hannaðar og smíðaðar með það fyrir aug- um, að þær yrðu burðarás sænska flughersins á næstu ára- tugum. Hefúr verið litið á JAS sem tákn um sænska tæknikunn- áttu, hagleik og hugvit. Flugvélin sem fórst fór fyrst á loft fyrir tveimur mánuðum og henni hefur síðan verið flogið sam- tals í tæpar sex klukkustundir. Tilraunaflugmaðurinn í þessari ör- lagaríku ferð var þama í fyrsta sinn að reyna JAS; hann slasaðist illa en þó ekki lífshættulega. Lengi hefur verið deilt um JAS í Svíþjóð. Margir eru þeirrar skoð- unar, að ekki sé forsvaranlegt frá Qárhagslegum sjónarhóli að hefla smíði á hátæknilegri orrustuþotu, sem á að vera einni kynslóð á und- an öðrum og standast ýtrustu kröf- ur. Talið er að það kosti um 50 milljarða sænskra króna (400 millj- arða íslenskra króna) að fram- kvæma áætlunina um þoturnar. Tilraunaflugið í gær þar sem áhersla var lögð á að kanna elds- neytiskerfi vélarinnar var með eðli- legum hætti, þar til í lendingunni. Rétt í þann mund sem vélin snerti völlinn slóst annar vængurinn í brautina og þotan snarsnerist og fór nokkrar veltur. Myndatökusveit frá sænska sjónvarpinu var á vellinum og tók myndir af því, sem fyrir augu bar. Strax eftir slysið fór öryggisdeild Saab fram á, að fá fílmuna af- henta; hún var hins vegar sýnd síðdegis í sænska sjónvarpinu og dreift eins og öðru efni. um gegn 61. Pik Botha, utanríkis- ráðherra, og Chris Heunis, áætlun- arráðherra sem gegnir forsetaemb- ættinu í fjarveru Botha, lutu einnig í lægra haldi fyrir de Klerk í kosn- ingu flokksins í gær. Stjórnmála- skýrendur teljá að kjör hans kunni að eiga eftir að leiða til klofnings í flokknum. De Klerk er 63 ára lögfræðing- ur. Hann hefur verið leiðtogi Þjóð- arflokksins í héraðinu Transvaal, en stjómmálamenn þaðan hafa jafnan haft mikil áhrif í suður- afrískum stjórnmálum. De Klerk hóf afskipti af stjórnmálum á há- skólaárum sínum, var þá m.a. vara- forseti stúdentaráðs og ritstjóri skólablaðsins. Árið 1972 afþakkaði hann prófessorstöðu við háskólann sinn til þess að helga sig þingstörf- um, en það ár var hann kjörinn á þing. Sex árum seinna varð de Klerk ráðherra og gegndi hann ýmsum ráðherrastörfum þar til hann tók við menntamálaráðuneyt- inu árið 1985. Hann er sagður bók- hneigður en hefur um skeið verið yfirmaður ritskoðunar stjórnarinn- ar. Hann er tveggja barna faðir og leikur golf og tennis í tómstundum sínum. Bandaríkjaþing: Atkvæða- greiðslum um Tower fi*estað Washington. Reuter. SAM NUNN, öldungadeildarþing- maður demókrata og formaður hermálanefudar öldungadeildar Bandarikjaþings, sagði í gær að nefndin þyrfti frekari upplýsing- ar, áður en hún gæti tekið afstöðu til þess hvort John Tower er hæf- ur til að verða næsti vamarmála- ráðherra Bandarikjanna. John Wamer, forystumaður repúblík- ana í nefiidinni, sagði, að athuga þyrfti einstaka þætti nánar. Hittu nefiidarmenn fúlltrúa FBI, alrík- islögreglunnar, í gær. John Tower, sem er fyrrverandi öldungadeildarþingmaður, hefur set- ið fyrir svörum hjá nefndinni. Hann hefur meðal annars verið spurður í þaula um þátttöku sína í viðskiptalíf- inu og hvort um hagsmunaárekstur gæti verið að ræða fyrir hann í hinu nýja embætti. Sagðist hann mundu leggja sig allan fram um að komast hjá slíkum árekstrum, en Tower hef- ur meðal annars þegið iaun sem ráð- gjafí fyrirtækja, sem eiga viðskipti við Bandaríkjaher. Palme-málið: Nýgögn lögðfram Stokkhólmi. Reuter. MÁLSSÓKN gegn manni þeim sem er í haldi sænsku lögreglunnar, grunaður um morðið á Olaf Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, hefúr miðað nokkuð áfram, að þvi er sænski rikissak- sóknarinn, Anders Helins, sagði fyrir rétti í gær. Hér- aðsréttur í Stokkhólmi varð við beiðni ríkissaksóknarans um framlengingu gæslu- varðhalds hins grunaða í 10 daga. Réttarhöldin fóru fram fyrir luktum dyrum en starfsmenn réttarins sögðu að ríkissak- sóknarinn hefði lagt fram ný sönnunargögn sem renna frek- ari stoðum undir málssóknina. Hinn grunaði, sem á að baki langan afbrotaferil og var dæmdur fyrir að myrða ungl- ing með byssusting árið 1971, hefur í tvær vikur neitað allri samvinnu við lögregluna. Maðurinn, sem samkvæmt sænskum lögum má ekki nafn- greina, hefur neitað sakargift- um og vetjandi hans hefur tvisvar krafíst lausnar hans. Hann hefur viðurkennt að hafa verið á morðstað nóttina sem Palme var myrtur en kveðst whafa verið farinn heim áður en ódæðisverkið var unnið. Að sögn lögreglunnar hefur mað- urinn ekki fjarvistarsönnun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.