Morgunblaðið - 03.02.1989, Síða 7

Morgunblaðið - 03.02.1989, Síða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989 -------------------------------------------------------------------------------- Qttó N. Þorláksson RE aflahæsti togarinn; Guðbjörg ÍS með mesta aflaverðmætiö - Aflaverðmæti írystiskipsins Akureyrarinnar EA 411,7 milljónir kr. GUÐBJÖRG ÍS 46 var með mesta aflaverðmæti ísfisktogaranna á síðasta ári. Annar ísaQarðartog- ari, Júlíus Geirmundsson ÍS 270, var í öðru sæti. Akureyrin EA 10 var með mesta aflaverðmæti frystitogaranna og Örvar HU 21 var í öðru sæti. Aflahæstur allra var Ottó N. Þorláksson RE 203 en Akureyrin númer tvö. Breki VE 61 var með hæsta meðal- skiptaverðmæti á hvern úthalds- dag hjá ísfísktogurunum og Örv- ar hjá frystiskipunum. I flokki minni skuttogaranna var aflaverðmæti efstu skipa á síðasta ári þannig, samkvæmt upplýsingum Landssambands íslenskra útvegs- manna: Guðbjörg 228,7 milljónir, Júlíus Geirmundsson 200,1 milljón, Bessi ÍS 183,8 milljónir, Sléttanes ÍS 164,7 milljónir, Gullver NS 159,2 milljónir, Ottó N. Þorláksson RE 155,7 milljónir, Gyllir ÍS 155,5 millj- ónir, Dagrún ÍS 153,3 milljónir og Sturlaugur H. Böðvarsson AK 151,3 milljónir. Af þessum skipum, og raunar yfir allan flotann, var Ottó N. Þorláksson aflahæstur með 6.695 tonn, Guðbjörg var með 5.144 tonn, Sturlaugur H. Böðvarsson með 4.954 tonn, Haraldur Böðvarsson AK með 4.817 tonn, Júlíus Geir- mundsson með 4.743 tonn og Gyllir 4.510. Breki VE var með mesta meðalskiptaverðmæti á úthaldsdag, 563 þúsund krónur og Guðbjörg var með 543 þúsund. I flokki stærri skuttogaranna kom Vigri RE 71 með mest verðmæti að landi, 178,4 milljónir kr., Viðey RE 175,6 milljónir, Víðir HF með 172,3 milljónir og Ögri RE 169,4 milljónir. Viðey veiddi mest þessara skipa, 4.562 tonn, Kaldbakur EA fékk 4.529 tonn, Víðir 4.386 tonn og Harðbakur EA 4.235 tonn. Víðir var með hæsta meðalskiptaverðmætið á úthaldsdag, 408 þúsund krónur og Viðey með 400 þúsund. Hjá frystiskipunum var Akureyrin EA með mesta aflann og mesta afla- verðmætið, veiddi 6.134 tonn að Otto N. Þorláksson verðmæti 411,7 milljónir kr. Örvar HU veiddi 6.012 tonn að verðmæti 401,7 milljónir kr. og í þriðja sætinu var Venus HF með 4.868 tonn á 301 milljón kr. Meðalskipta verðmæti á hvem úthaldsdag var 924 þúsund krónur hjá Örvari en 908 þúsund kr. hjá Akureyrinni. Þórscafé frumsýnir: Sótt um leyfi til áætlunar- flugs til Austurlanda GUÐNI Þórðarson, oft kenndur við ferðaskrifstofuna Sunnu, hef- ur sótt um leyfi til áætlunarflugs frá Japan til Evrópu um Keflavík annars vegar og fi-á Evrópu til Austurlanda Qær um Sameinuðu arabísku furstadæmin hins vegar. Hann segist hafa formlegt lend- ingar- og umferðarleyfí frá Flug- málastjóra í Sameinuðu fiirsta- dæmunum. „Þegar svo torsótt atvinnuréttindi liggja fyrir í íslenskum höndum á ég ekki von á öðru en íslensk stjórnvöld taki þessu fagnandi.“ Umsóknin er nú til meðferðar hjá samgönguráðu- neyti en flugráð hefiir fjallað um erindið og, að sögn Leifs Magnús- sonar formanns þess, samþykkt að mæla ekki með veitingu leyfis- ins. Guðni Þórðarson sagðist bjart- sýnn á að fá leyfið þrátt fyrir um- sögn Flugráðs. „Umsóknin byggist á markaðskönnun, sem hefur verið gerð, og umferðar- og lendingarleyf- inu, sem gefur henni mikið viðskipta- legt gildi," sagði Guðni. Hann sagði að notað yrði almennt flugrekstrar- leyfi Sunnu h/f en það tæki gildi um leið og farartæki væri skráð á vegum fryirtækisins. Guðbjörg Akureyrin Gleði- og gáskadrottningin Elsa Lund ríður á vaðið og lætur gamminn geysa ásamt flokki valinkunnra gleðimanna i skammdegissprengju ársins. Sérstakir gestir okkar heittelskuðu Elsu eru m.a. galsa- bræðurnir Halli og Laddi; raftæknirinn og stuðgjafinn Skúli Amper Ohmarsson; Smári „sjarmör" Sjutt, skóari; Magnús, bóndi, Valgerður Moller og Leifur óheppni. Undir og yfir og allt um kring er svo stórsöngvarinn og feröagrinarinn Egill Ólafsson ásamt hinni tón- og söngelsku hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar. Og síðast en ekki síst; gleðigjafinn Nadia Banine. Stjórnandi og spennugjafi: Egill Eðvarðsson. V Þriréttuö veislumáltiö aö hætti Elsu Lund. Húsiö opnar kl. 19.00. y/ Boröapantanir daglega í simum 23333 og 23335. — Elsa: „Betra er aö grípa sima og panta í tima svo að ekki þurfi aö híma úti í kulda og trekk meö mina". V Sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld. A Enginn býður betur en Þórscafé í vetur. i a 3.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.