Morgunblaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
--------------------------------------------------------------------------------
Qttó N. Þorláksson RE aflahæsti togarinn;
Guðbjörg ÍS með
mesta aflaverðmætiö
- Aflaverðmæti írystiskipsins Akureyrarinnar EA 411,7
milljónir kr.
GUÐBJÖRG ÍS 46 var með mesta
aflaverðmæti ísfisktogaranna á
síðasta ári. Annar ísaQarðartog-
ari, Júlíus Geirmundsson ÍS 270,
var í öðru sæti. Akureyrin EA 10
var með mesta aflaverðmæti
frystitogaranna og Örvar HU 21
var í öðru sæti. Aflahæstur allra
var Ottó N. Þorláksson RE 203
en Akureyrin númer tvö. Breki
VE 61 var með hæsta meðal-
skiptaverðmæti á hvern úthalds-
dag hjá ísfísktogurunum og Örv-
ar hjá frystiskipunum.
I flokki minni skuttogaranna var
aflaverðmæti efstu skipa á síðasta
ári þannig, samkvæmt upplýsingum
Landssambands íslenskra útvegs-
manna: Guðbjörg 228,7 milljónir,
Júlíus Geirmundsson 200,1 milljón,
Bessi ÍS 183,8 milljónir, Sléttanes
ÍS 164,7 milljónir, Gullver NS 159,2
milljónir, Ottó N. Þorláksson RE
155,7 milljónir, Gyllir ÍS 155,5 millj-
ónir, Dagrún ÍS 153,3 milljónir og
Sturlaugur H. Böðvarsson AK 151,3
milljónir. Af þessum skipum, og
raunar yfir allan flotann, var Ottó
N. Þorláksson aflahæstur með 6.695
tonn, Guðbjörg var með 5.144 tonn,
Sturlaugur H. Böðvarsson með
4.954 tonn, Haraldur Böðvarsson
AK með 4.817 tonn, Júlíus Geir-
mundsson með 4.743 tonn og Gyllir
4.510. Breki VE var með mesta
meðalskiptaverðmæti á úthaldsdag,
563 þúsund krónur og Guðbjörg var
með 543 þúsund.
I flokki stærri skuttogaranna kom
Vigri RE 71 með mest verðmæti að
landi, 178,4 milljónir kr., Viðey RE
175,6 milljónir, Víðir HF með 172,3
milljónir og Ögri RE 169,4 milljónir.
Viðey veiddi mest þessara skipa,
4.562 tonn, Kaldbakur EA fékk
4.529 tonn, Víðir 4.386 tonn og
Harðbakur EA 4.235 tonn. Víðir var
með hæsta meðalskiptaverðmætið á
úthaldsdag, 408 þúsund krónur og
Viðey með 400 þúsund.
Hjá frystiskipunum var Akureyrin
EA með mesta aflann og mesta afla-
verðmætið, veiddi 6.134 tonn að
Otto N. Þorláksson
verðmæti 411,7 milljónir kr. Örvar
HU veiddi 6.012 tonn að verðmæti
401,7 milljónir kr. og í þriðja sætinu
var Venus HF með 4.868 tonn á 301
milljón kr. Meðalskipta verðmæti á
hvem úthaldsdag var 924 þúsund
krónur hjá Örvari en 908 þúsund
kr. hjá Akureyrinni.
Þórscafé
frumsýnir:
Sótt um leyfi
til áætlunar-
flugs til
Austurlanda
GUÐNI Þórðarson, oft kenndur
við ferðaskrifstofuna Sunnu, hef-
ur sótt um leyfi til áætlunarflugs
frá Japan til Evrópu um Keflavík
annars vegar og fi-á Evrópu til
Austurlanda Qær um Sameinuðu
arabísku furstadæmin hins vegar.
Hann segist hafa formlegt lend-
ingar- og umferðarleyfí frá Flug-
málastjóra í Sameinuðu fiirsta-
dæmunum. „Þegar svo torsótt
atvinnuréttindi liggja fyrir í
íslenskum höndum á ég ekki von
á öðru en íslensk stjórnvöld taki
þessu fagnandi.“ Umsóknin er nú
til meðferðar hjá samgönguráðu-
neyti en flugráð hefiir fjallað um
erindið og, að sögn Leifs Magnús-
sonar formanns þess, samþykkt
að mæla ekki með veitingu leyfis-
ins.
Guðni Þórðarson sagðist bjart-
sýnn á að fá leyfið þrátt fyrir um-
sögn Flugráðs. „Umsóknin byggist
á markaðskönnun, sem hefur verið
gerð, og umferðar- og lendingarleyf-
inu, sem gefur henni mikið viðskipta-
legt gildi," sagði Guðni. Hann sagði
að notað yrði almennt flugrekstrar-
leyfi Sunnu h/f en það tæki gildi
um leið og farartæki væri skráð á
vegum fryirtækisins.
Guðbjörg
Akureyrin
Gleði- og gáskadrottningin Elsa Lund ríður á vaðið og lætur gamminn geysa ásamt flokki valinkunnra
gleðimanna i skammdegissprengju ársins. Sérstakir gestir okkar heittelskuðu Elsu eru m.a. galsa-
bræðurnir Halli og Laddi; raftæknirinn og stuðgjafinn Skúli Amper Ohmarsson; Smári „sjarmör"
Sjutt, skóari; Magnús, bóndi, Valgerður Moller og Leifur óheppni.
Undir og yfir og allt um kring er svo stórsöngvarinn og feröagrinarinn Egill Ólafsson ásamt hinni
tón- og söngelsku hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar. Og síðast en ekki síst; gleðigjafinn Nadia
Banine. Stjórnandi og spennugjafi: Egill Eðvarðsson.
V Þriréttuö veislumáltiö aö hætti Elsu Lund. Húsiö opnar kl. 19.00.
y/ Boröapantanir daglega í simum 23333 og 23335. — Elsa: „Betra er aö grípa sima
og panta í tima svo að ekki þurfi aö híma úti í kulda og trekk meö mina".
V Sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld.
A
Enginn býður betur en Þórscafé í vetur.
i a 3.