Morgunblaðið - 03.02.1989, Síða 12

Morgunblaðið - 03.02.1989, Síða 12
.^12. C3er aAuaas' MORGUNBLAÐIÐ I .8 H JílA AÐIÐ PO£ __UT30? ÖMAJiSiíyU.HCI! STUDAGUR 3. FEBRUAR 1989 - Skúli Alexandersson um umræðugrunn sjávarútvegsráðherra: Fyrsta skrefíð að auðlindaskatti á landsbyggðina og sjávarútveginn 150 þúsund tonna minni ársafli þorsks en 1950-60 Skúli Alexandersson, 4. þing- maður Vestlendinga, hefur gagnrýnt fiskveiðistefiiu sjávar- útvegsráðherra harðar en aðrir stjómarliðar. Gagnrýni hans á þennan þátt stjómarstefiiunnar hefur verið svo hörð, að sumum sfjómarliðum hefur þótt nóg um. En hver er afstaða Skúla Alex- anderssonar, nýjustu • tillagna sjávarútvegsráðherra um úreld- ingarsjóð o.fl. þætti fiskveiði- stefiiunnar? Hún kemur að hluta til fram í eftirfarandi viðtali. Er fiskiskipastóllinn of stór, sóknargeta hans of mikil, miðað við veiðiþol helztu nytjastofiia okkar? „Enginn fræðilegur útreikningur liggur fyrir um það að fiskiskipaflot- inn hafi verið of stór. Á síðustu árum skrapdagakerfisins kom það fyrir að sá afli sem leyft var að veiða náðist ekki. Aflasamdráttur áranna 1983 og 1984 átti fremur rætur í ytri áhrifum, eins og sjávarkulda og ónógri fæðuframleiðslu, en stærð fískiskipastólsins. Deila má um hver stærð flotans eigi að vera til að ná sem mestri hagkvæmni í veiðunum. í því sam- bandi þarf að skoða fleira en hugsan- legt afiamagn hvers skips. Til dæm- is verðmæti skipsins, gæði aflans og aflasamsetningu, nýtingu annarr- ar fjárfestingar og reyndar sitt hvað fleira." Hver er skoðun þin á tilraunum til að hamla gegn stækkun flotans með stjómvaldsaðgerðum? „Með lögum nr. 97/1985 um stjóm fiskveiða 1986-87 og með regluferð fyrir Fiskveiðasjóð um lánaflokka var mörkuð stefna um endumýjun flotans. Meginmarkmið reglugerðarinnar var að lánveitingar til nýsmíði, innflutings eða endur- bóta á fiskiskipum ykju ekki af- kastagetu flotans. Flestar þessar til- raunir hafa mistekizt, ekki sízt varð- andi síðast talda markmiðið. Þrátt fyrir úthlutun á einstakl- ingsbundnum og framseljanlegum veiðiheimildum hefur afkastageta flotans aukizt. Trúlega hefur hag- kvæmni við þorskveiðar minnkað töluvert á næstliðnum árum. Þar er ekki við flotastærðina að sakast, heldur það, hvem veg sótt hefur verið í stofninn. Þar hefur átt sér stað ótrúleg kraftasókn bæði báta og togara í ungfísk, sem hefur leitt til þess að á næstu ámm má gera ráð fyrir því, ef ekki verður breytt um veiði- aðferðir, að ársafli næstu ára verði innan við 300 þúsund tonn í stað 400 þúsund tonna og þar yfir, en þorskstofninn er talinn eiga að geta staðið undir þeirri meðal ársveiði. Hér breytir engu að mínu mati, hvort lög um stjóm fiskveiða hafa verið sett til lengri eða skemmri tíma í einu nema síður sé. Sú skipulags- breyting sem hefur átt sér stað hef- ur næstum öll verið í óhagkvæmni- sátt, það er að aflaheimildir skipa, sem aðallega hafa stundað veiðar á smáfiski (togarar), hafa verið aukn- ar. Sú þróun hefði máske orðið áleitnari ef gildistimi laga um stjóm fiskveiða hefði verið til lengri tíma en verið hefur." Þú hafiiar þá staðhæfingum um „umframaíkastagetu" fiskveiði- flotans? „Það er skrítin kenning þegar sagt er að umframafkastagetu fiski- skipaflotans sé beint að öðmm teg- undum en þorskinum. Hér er ekki um neina umframgetu að ræða held- ur aðeins sókn í aðra fiskistofna en þorskinn. Við vorum ekki að nýta neina umframgetu þegar hafín var stór- veiði á loðnu eða þegar stærstur hluti flotans var á sfldveiðum fyrir Norðurlandi yfir sumarmánuðina áður fyrr. Við vomm einfaldlega að nýta tiltæk fiskimið, hvort sem afl- PORSKAFLI AISLANDSMIÐUM 460 _ 1950-1989 (10 ára meðaltöl) 393 384 þús. tonn -400 362 ÁÆTL 300 ■”ti—300 200 ■100 1950-59 1960-69 1970-79 1980-89 1989 ÁætlaÖ fyrir 1988, 360 þús. tonn og 1989,300 þús. tonn. Heimild: Rit Hafr.st. nr. 14 og Teikniþjónustan s/f inn var rækja, grálúða, loðna eða sfld. Við megum þakka þeim sem höfðu forystu um og bjuggu að þeirri „um- framafkastagetu" sem til þurfti til að hefja veiðar á úthafsrækju, loðnu og grálúðu. Það var ekki áhugi stjómvalda sem ýtti því framtaki úr vör.“ En þarf ekki hamla gegn of- veiði þorsks? „Jú, jú, en þótt nú syrti ( álinn í sambandi við stofnstærð þorsksins er það ekkert líkt því sem var með Suðurlandssfldina um 1970. Þá sner- um við vöm í sókn. Ekki með því að eyðileggja fiskiskipaflotann, held- urí með því að stjóma og breyta veiðiháttum. Á svipaðan hátt þurfum við að bregðast við með þorskinn. Við eig- um ekki að gera okkur ánægð með fjórðungs skerðingu á þorskveiði vegna rangra veiðihátta. Við höfum ekki efni á fiskveiðistefnu sem viður- kennir slíka veiðiskerðingu sem stað- reynd, og sem færir þá framtíðarsýn fram sem rök fyrir úreldingu á fiski- skipastólnum. Við skulum hinsvegar gera okkur grein fyrir því að það er sitt hvað fleira en aukinn afli sem getur stuðl- að að betri nýtingu fjárfestingar í fiskiskipum, eins og ég vék fyrr að. Þau dæmi eru þó til þar sem hag- kvæmni vex með stærri veiðiheimild. Hin dæmin em þó örugglega fleiri — og eru reyndar hin almenna regla — að fyrst þarf að huga að bættri meðferð aflans og vinnslu, til að auka verðmæti hans, svo og að draga úr kraftasókn og minnka þar með veiðarfæra- og viðhaldskostnað. Hinir nýju frystitogarar eru og mjög dýr skip og vekja upp spuming- ar, bæði með þjóðhags- og byggða- sjónarmið í huga. Mörg dýr skip hafa bætzt í flotan, sem byggja af- komu sína, sum hver, á því að þeim takist að sölsa undir sig aflaheimild- ir. Með þessu er ekki verið auka hagkvæmni, síður en svo. Þessi dýru skip, frystitogarar meðtaldir, auka og sóknina í smáfískinn. Hver er þá afstaða þln til til- lagna sjávarútvegsráðherra um úreldingarsjóð fiskiskipa í tengsl- um við framtíðar-fiskveiðistefiiu? „Ef stjómvöld telja það skyldu sína að grípa til aðgerða til að draga úr stærð veiðiflotans, þurfa þau áður en til þeirra aðgerða kemur, að gera þjóðinni grein fyrir markmiðum, for- sendum og verklagi. Hvaða skipagerðir eiga að sæta takmörkunum af þessu tagi, að hvaða marki og á hve löngum tíma? Hver er óhagkvæmni eða hag- kvæmni hinna ýmsu veiðarfæra, t.d. við þorskveiðar? Hver er stefnu- mörkunin varðandi nýtingu hráefn- isins, hvemig má vinna hráefnið í sem verðmætasta söluvöru, hveming á að stýra þróun í fiskvinnslunni þann veg að hún gefi sem mestan arð? Einnig má spytja, með hliðsjón af umræðu um þessi mál í seinni tíð: Hverjir eiga að njóta sameignar á veiðiheimildum? Að hvetju er stefnt um framtíðar eignarhald á flotanum. Og alls ekki er hægt að komast undan því að svara þeirri spumingu, hvort við ætlum að sætta okkur við framtíðar þorskafla um eða innan við 300 þúsund tonn á ári og að stór hluti hefðbundinna þorskfiski- miða verði ördeyða — eða hvort við eigum og þá hvemig að stefna að því að sækja um og yfir 400 þúsund tonna ársafla í þorskstofninn. Ég get ekki fellt mig við þá framt- íðarsýn að meðalársafli af þorski verði um og undir 300 þús. tonnum. Aðalþáttur fískveiðistefnunnar snýr að þorskveiðinni. Þar hefur veiði- stofhinn minnkað, eins og ég hefi áður sagt, þrátt fyrir mikla nýliðun í stofninum árin 1983, 1984 og 1985. Áratuginn 1950-60 var ársmeðal- aflinn af þorski á íslandsmiðum 460 þúsund tonn, 1960-70 390 þúsund tonn, 1970-80 380 þús. tonn og verð- ur 360 þús. tonn 1980-90. Þótt það verði 100 þúsund tonna minni árs- afli á yfírstandandi áratug en var árin 1950-60 og mörgum þyki nóg um, blasir enn verra ástand við. I ár miðast leyfí til þorskveiða við 285 þús. tonna afla (aflinn gæti orðið rúm 300 þús. tonn). Fiskirannsóknir benda til þess að ekki verði hægt að auka afla næstu árin. Þetta er mjög alvarleg staða fyrir útgerð og fiskvinnslu og þjóðar- búið. Mikilsvert er að um þessa stöðu verði rætt og menn geri sér grein fyrir ástandinu. Það em til ýmsar leiðir til að snúa stöðunni til betri vegar. Ég tel að aðalatriðið sé að minnka smáfiskaveiðina, bæta með- ferð aflans og auka verðmæti hans. En hvert er álit þitt á stærð fiskveiðiflotans? „Ég ætla ekki að slá fram fullyrð- ingum um það, hvort fiskiskipastóll- inn sé of stór eða of lítill. Sumir skipaflokkar virðast fyrirferðarmikl- ir á miðunum, aðrir jafnvel of litlir og sumir hættulega úreltir. Ég hafna allri umræðu um stærð og minnkun fiskiskipaflotans á þeim umræðugmnni sem sjávarútvegs- ráðuneytið heldur sig. Ég tel að sá málflutingur sé eingöngu til þess ætlaður að fá samþykkt fyrsta skref auðlindaskatts á landsbyggðina og sjávarútveginn. Þeirri skattheimtu snýzt ég gegn. Ný o g eldri lánskjaravísitala efbirBjörn Matthíasson Þeim til glöggvunar sem velta því fyrir sér hvemig nýr og eldri lánskjaravísitölugmndvöllur kemur út, hef ég gert eftirfarandi útreikn- ing sem nær allt aftur til ársins 1980. Tölur fyrir árin 1980-87 em meðaltöl en vísitölumar em sýndar mánaðarlega árið 1988. Báðar vísi- tölumar em settar á sömu tölu 1980, 164, sem var meðaltal eldri vísitölunnar það ár. Eftirfarandi tvö línurit sýna þró- un þessara tveggja vísitalna frá 1980. Höfíwdur er hagíræðingur við Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Björn Matthíasson 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988: jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Gamla vísitalan 164 249 373 669 895 1169 1457 1711 1913 1958 1968 1989 2020 2051 2154 2217 2254 2264 2272 2274 Nýja vísitalan 164 248 382 645 808 1073 1335 1626 1807 1838 1848 1868 1894 1924 2021 2100 2119 2125 2129 2135

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.