Morgunblaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
17
Hagdeild Alþýðusambands íslands:
Verðlag hefiir hækkað
um 11% í launafrystingu
Rekstrarstaða Qölda heimila hefiir versnað mikið
VERÐLAG hefur hækkað um tæp 11% á tímabilinu júní 1987 til
febrúar 1988 eða á því tímabili sem laun hafa verið fryst og rekstr-
arstaða heimilanna hefur versnað að sama skapi, samkvæmt dæmum
sem hagdeild Alþýðusambands íslands hefur tekið saman. Miðað er
við áætlaða framfærsluvisitölu í febrúar og tekin hefur verið inn
helmingur 1,25% kauphækkunar, sem kemur 15. febrúar. Samkvæmt
dæmunum er nú svo komið að fjöldi heimila er farinn að ganga á
eiginfjárstöðu sína eða safna skuldum. Til viðbótar kaupmáttarskerð-
ingunni kemur að mörg heimili hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi
vegna styttri vinnutima.
Hagdeildin tekur tvö dæmi Ann-
ars vegar er um að ræða yfirborgað-
an járnsmið með óbreytta yfirvinnu
10 stundir og konu hans sem vinn-
ur hálfan daginn í verksmiðju. Sam-
tals tekjur þessarar fjölskyldu námu
tæpum 112 þúsund krónum undan-
fama mánuði. í júní síðastliðnum
nam afgangur þessarar fjölskyldu
af tekjum 7,8%, en var engin í jan-
úar og verður neikvæður um 1,3%
í febrúar.
Tókýó:
Línda kynnir Japön-
um íslenskan fisk
Hin fjölskyldan samanstendur af
' eiginmanni á hæsta taxta í mat-
vælaiðnaði og konu á hæsta taxta
afgreiðslufólks. Konan hefur einn
yfirvinnutíma í viku og karlinn hafði
átta yfirvinnutíma fram í septem-
ber, en enga eftir það. Heildartekj-
ur þessarar fjölskyldu voru tæp 101
þúsund í ágústmánuði en lækkuðu
niður í tæp 91 þúsund í september-
mánuði vegna þess að yfirvinnan
var tekin af. Staða þessarar fjöl-
skyldu er sýnu verri en hinnar
fyrri. Afgangur hennar í júní var
8,8% af tekjum, verður neikvæður
um 7,7% í september og 11,2% í
febrúar. Þá vantaði þessa fjölskyldu
rúmar tíu þúsund krónur upp á til
þess að endar næðu saman.
Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ,
sagði á blaðamannafundi þar sem
þessar niðurstöður voru kynntar,
að hagdeildin hefði tekið þessi dæmi
saman í framhaldi af því að fólk
hefði kvartað mikið yfir því að
meðaltölin sem sífellt væri notast
við gætu falið veruleikann. Fólk
Morgunblaðið/Bjarni
Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ.
kannaðist við sinn eigin hag og sæi
hans ekki merki í meðaltölunum.
a fundinum kom fram að til við-
bótar kaupmáttarýmuninni kæmi
samdráttur yfirvinnu, en margar
tekjulágar fjölskyldur byggðu tekj-
ur sínar að talsverðu leyti á henni.
Því þyrfti minkun yfirvinnu að hald-
ast í hendur við hækkun kauptaxta.
Ljóst væri að fólk, sem svona væri
komið fyrir, gæti ekki sætt sig við
óbreytt kaupmáttarstig, þó yfirlýs-
ingar ráðherra undanfarið hefðu
verið í aðra veru.
Vilja styrkja
minjasöfn
landsins
STJÓRN félagsins Minja og
sögu hefur sent formönnum
þingflokka bréf þar sem hún
hvetur alþingismenn og ríkis-
stjórn til þess að láta hluta af
tekjum ríkisins af hverri seldri
bjórflösku renna í sjóð til
styrkja minjasöfn landsins.
Með bréfinu vill stjóm félagsins
leggja áherslu á hve mikilvægu
hlutverki slík söfti gegna í menn-
ingarþjóðfélagi. Jafnframt er bent
á, hve framlög ríkis til slíkrar
starfsemi hafa verið af skomum
skammti.
Stjóm félagsins telur að nú
gefist einstakt tækifæri til að ráða
bót þar á.
(Fréttatilkynning)
Leiðréttíng
í viðtali við Þórhall Ásgeirsson
í Morgunblaðinu í gær, var farið
rangt með nafti dr. Odds Guð-
jónssonar, sem gegndi stöðu
ráðuneytisstjóra viðskiptaráðu-
neytisins um tíma í Qarveru Þór-
halls. Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökiun.
Tókýó, frá Hirti Gíslasym, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÍSLENSKAR sjávarafurðir eru í sviðsljósinu í Japan þessa dag-
ana. í dag, föstudag, kynnir Linda Pétursdóttir, heimsfegurðar-
drotting, á annað þúsund japönskum heildsölum og veitingamönn-
um þijá sérunna sjávarrétti frá Icelandic Freesing Plants, dóttur-
fyrirtæki FH í Grimsby. í fyrramálið verða ýmsar ferskar fiskaf-
urðir frá íslandi seldar á fiskmarkaðnum i Tókýó og fulltrúar
Sölumiðstöðvar hraðftystihúsanna eru að reka smiðshöggið á
samning um sölu frystrar loðnu og loðnuhrogna tU japanskra
kaupenda.
Ingólfur Skúlason fram-
kvæmdastjóri Icelandic Freesing
Plants í Grimsby, sagði í samtali
við Morgunblaðið að hér væri um
að ræða mjög áhugavert verkefni
af hálfu fyrirtækisins, Japan væri
stór markaður og möguleikamir á
sölu þangað því miklir, takist vel
til. Ingólfur sagði að þær afurðir
sem kynntar væru að þessu sinni
væru fískihringur og mótuð flök
úr þorskblokk með sérstakri jap-
anskri brauðmylsnu.
Hann sagði ennfremur, að mjög
mikilvægt væri að hafa fegurstu
konu heims á sínum snærum, það
hefði þegar sýnt sig því áhugi jap-
anskra ijölmiðla væri mikill. Á
kynningunni í dag, sem haldin
verður í veislusölum eins af
stærstu hótelum Tókýó-borgar,
verða fulltrúar á annað þúsund
fyrirtækja, heildsalar og veitinga-
menn og sagði Ingólfur, að hann
vænti mikils af þessari kynningu.
Gylfi Þór Magnússon, einn af
framkvæmdastjórum SH, er hér
staddur til að semja um sölu á
loðnu og loðnuhrognum á yfír-
standandi vertíð og sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að samn-
ingagerð væri að ljúka. Þetta
væru að vanda umsvifamiklir og
flóknir samningar og hann gæti á
þessu stigi ekki sagt til um mögu-
legt verð og magn.
I dag verða seldar hér á mark-
aðnum ýmsar sérstakar sjávaraf-
urðir, sem komu til landsins með
bandaríska fragtflugfélaginu Fly-
ing Tigers. Þar má nefna lax,
rækju og þorsksvil, en afurðir sem
þessar eru mjög eftirsóttar hér og
er greitt hátt verð fyrir þær.
Icecom:
Tæki seld tíl Hjaltlands-
eyja fyrir 60 milljónir
GENGIÐ hefiir verið frá samn-
ingum milli íslenska fyrirtækis-
ins Icecom og fyrirtækisins SPP
á Hjaltlandseyjum um að
Icecom taki að sér að búa nýja
fiskvinnsluverksmiðju SPP
tækjum og búnaði. Samningur-
inn hljóðar upp á rúmar 60
milljónir króna.
SPP, eða Shetland Pelagic Proc-
essing, var stofnað fyrir um þrem-
ur árum í þeim tilgangi að reka
verksmiðju sem getur fryst og
unnið úr sild, makríl og öðrum
svipuðum tegundum.
Samningur Icecom og SPP
kveður á um að Icecom taki að
sér að búa fiskvinnsluhús SPP
þeim tækjum og búnaði sem þarf
til að vinna þessar tegundir. Einn-
ig mun ætlunin að vinna hrogn
úr síldinni, sem síðan verða seld
á Japansmarkað.
Að sögn Páls Gíslasonar, fram-
kvæmdastjóra Icecom, er samn-
ingurinn við SPP að upphæð 700
þúsund pund, eða um 61 milljón
króna. Reiknað er með að fisk-
vinnsluhúsið verði fullbúið um
mitt árið. „Þessi samningur er
árangur um tveggja ára stopulla
samningaviðræðna, sem skriður
komst á að nýju í október, þegar
þróunarsjóður Skota samþykkti að
leggja fram hlutafé," sagði Páll.
Páll kvað ánægjulegt að hafa
náð þessum samningi, en þar væri
að miklu leyti að þakka því að
fyrirtækinu Mega hf. í Kópavogi
hefði tekist að selja vinnslulínu í
frystihús á Hjaltlandseyjum fyrir
um þremur árum. Menn á eyjunum
hefðu verið mjög ánægðir með
vinnslulínuna og því óskað eftir
tilboði frá íslendingum i búnað
nýju verksmiðjunnar. Búnaður og
tæki héðan eru frá Sæplasti á
Dalvík, Mega í Kópavogi og Marel
í Reykjavík.
Kammertónleikar íslensku
hljómsveitarinnar í Gerðubergi
fSLENSKA hljómsveitin heldur
kammertónleika sunnudaginn 5.
febrúar í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi og hefjast þeir
klukkan 16.00. Þetta eru fyrstu
tónleikar af ellefu sem fyrir-
hugaðir eru á þessu starfsári
hljómsveitarinnar, hinu áttunda
í röðinni.
Samtök tónlistarmanna um ís-
lensku hljómsveitina, skipuð fjör-
utíu hljóðfæraleikurum, einsöngv-
urum og tónskáldum, hafa skipu-
lagt tónleikana, sem ýmist eru
söngtónleikar, kammertónleikar
eða hljómsveitartónleikar. Þeir
verða allir haldnir í Gerðubergi,
nánar tiltekið kllukkan 16.00 fyrsta
sunnudag hvers mánaðar frá og
með febrúar til desember. Samhliða
tónleikahaldinu hyggst íslenska
hljómsveitin standa að annarri
menningarstarfsemi í Gerðubergi
er kynnt verður jafnharðan.
Á tónleikunum á sunnudag koma
fram sjö hljófæraleikarar úr hljóm-
sveitinni, klarinettuleikaramir Jón
Aðalsteinn Þorgeirsson, Sigurður
I. Snorrason og Óskar'Ingólfsson,
auk' þeirra Þóru Fríðu Sæmunds-
Á ÁT mæm ^ v ■!
Jón Aðalsteinn Þor- Sigfurður 1. Snorrason ^eirsson
M | ■iB-l \ ; 5 ^wjij * ^|
Bjðrn Th. Árnason Þóra Fríða Sœmunds-
dóttir
dóttur píanóleikara og Gunnars
Gunnarssonar flautuleikara.
Fimmm tónverk eru á efnis-
skránni: Dúó fyrir klarinett og fag-
ott eftir Francic Poulenc, Sónata
fyrir klarinett og píanó einnig eftir
Francis Poulenc, Joueurs de flute
fyrir flautu og píanó eftir Albert
óskar Ing^Ibson Rúnar Vilbergason
Gunnar Gunnarsson
Roussel, Tríó fyrir tvö klarinett og
fagott eftir Francois Devienne og
loks Divertimento fyrir tvö klarinett
og fagott eftir Wolfgang Amadeus
Mozart.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn á meðan húsrúm leyfír.
Lúxemborg:
Lux-Viking festir kaup
á bílaleigunni Budget
Brussel, frá Kristófer M. Kristóferssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Bílaleigan Lux-Viking, sem er í eigu íslendinga í Lúxemborg,
hefur tekið við rekstri Budget-bílaleigunnar i Lúxemborg. Með
þessu fa viðskiptavinir Lux-Viking aðgang að tvö þúsund og þijú
hundruð þjónustustöðum i áttatíu og fimm löndum.
Lux-Viking-Budget fer með
umboð Budget-keðjunanr í Lúx-
emborg og fær aðgang að þjón-
ustustöðum fyrirtækisins um allan
heim. Að sögn Sigurðar Halldórs-
sonar, eins af eigendum bílaleig-
unnar, mun þetta breyta mjög
aðstöðu fyrirtækisins til að veita
viðskiptavinum góða þjónustu.
Mögulegt verður að leigja bíl í
túxemborg og skilja hann eftir
hvar sem er á meginlandi Elvrópu
í umsjá annarrar Budget-leigu. í
nafni Budget eru reknar tvö þús-
und og þijú hundruð bílaleigur í
áttatíu og fimm löndum.
Afgreiðsla fyrirtækisins hefur
jafnframt verið flutt á Findel flug-
völl og er í byggingu við hliðina
á flugstöðvarbyggingunni. Lux-
Viking var stofnað af nokkrum
íslendingum árið 1986 og leigði
út fimm bíla í fyrstu en á síðasta
sumri var fyrirtækið með rúmlega
þijú hundruð bíla á sínum snær-
um. Sigurður Halldórsson sagði
að engin breyting yrði á þeirri ein-
stæðu þjónustu fyrirtækisins að
öll samskipti við íslenska við-
skiptavini fara fram á íslensku og
sömuleiðis yrði áfram lögð áhersla
á að hafa öfluga bíla sem hentuðu
íslendingum vel í akstri á hrað-
brautum.