Morgunblaðið - 03.02.1989, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1989
Fiskveiðasjóður frestar enn umsókn Samheija hf.:
Getum ekki farið fram
á traust samningsaðila
- segir Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri
Fiskveiðasjóður hefur enn
ekki afgreitt umsókn Samheija
um smíði nýs togara og óvíst er
hvenær umsóknin verður rædd
hjá sjóðnum. Búist hafði verið
við að umsóknin yrði afgreidd í
lok janúar, en af því varð ekki.
Málinu var einfaldlega frestað
hjá sjóðnum, að sögn Þorsteins
Más Baldvinssonar, fram-
kvæmdastjóra Samheija hf.
„Segja má að gangur alls þessa
máls sé að verða heldur furðulegur,
þó ekki sé sterkara að orði kveðið.
Nú eru liðnir tíu mánuðir síðan við
lentum í óhappinu með Þorstein
EA. Hann hefur legið skemmdur
við bryggju síðan og höfum við orð-
ið fyrir tapi vegna þeirrar tregðu,
sem virðist ríkja í opinbera geiran-
um,“ sagði Þorsteinn Már. „Við
óskuðum í vor eftir viðræðum við
Fiskveiðasjóð um okkar mál, en þá
var þeim hafnað alfarið þar sem
við höfðum ekki sótt um til sjóðsins
fyrir áramótin 1987-1988. I fram-
haldi af því ákváðum við að athuga
aðrar leiðir og fórum að kanna
möguleika á erlendri íjármögnun,
en til þess þurfum við svokallað
langlánaleyfi frá viðskiptaráðu-
neytinu og heimild til að veðsetja
skipið. Viðskiptaráðherra tjáði okk-
ur að hann skildi athuga málið að
uppfylltum vissum skilyrðum, sem
voru í því fólgin að fá veiðiheimild-
ir færðar frá Þorsteini EA yfir á
nýsmíðina. Sjávarútvegsráðuneytið
samþykkti strax yfirfærslu veiði-
heimildar. Þá ræddum við á ný við
viðskiptaráðherra og skrifuðum
honum bréf í framhaldi af því, en
þrátt fyrir að fjórir mánuðir séu
nú liðnir, hefur ráðuneytið ekki séð
sér fært um að svara," sagði Þor-
steinn Már.
„Málið datt hreinlega upp fyrir
þegar við náðum ekki svörum út
úr viðskiptaráðuneytinu og þá var
ákveðið að biðla til Fiskveiðasjóðs
á ný skömmu fyrir áramót. Við
erum með nýsmíðasamning í hönd-
unum við spænska aðila, en getum
ekki staðfest hann nema að fengnu
samþykki Fiskveiðasjóðs. Við höf-
um ekki lengur leyfi til að fara fram
á að erlendu samningsaðilamir
treysti okkur enda hafa þær vænt-
ingar, sem við höfum haft, aldrei
gengið eftir. í fyrsta lagi afgreiddi
viðskiptaráðuneytið málið aldrei frá
sér. í öðru lagi var okkur ekki heim-
ilt að staðfesta sanjninginn nema
að fenginni blessun Fiskveiðasjóðs,
ef við ætlum að fá fyrirgreiðslu úr
sjóðnum. Þeir menn, sem sitja við
Rekstur KEA 1988
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þorsteinn EA hefur legið mikið skemmdur við Torfunesbryggju í
rúma tíu mánuði, en togarinn lenti i ís við Reykjafjarðarál í marsmán-
uði á síðasta ári. Ekki þótti borga sig þá að gera við skipið, heldur
tók Samheiji hf. þá ákvörðun að fara út í nýsmíði, sem hvorki hef-
ur fengið stuðning viðskiptaráðuneytis né Fiskveiðasjóðs. Sjávarút-
vegsráðuneytið hefúr þó samþykkt nýsmíðina af sinni hálfú með því
að fáera veiðiheimild Þorsteins EA yfir á „væntanlega" nýsmíði.
Minni bátinn, Þorlák Helga, keypti Samheiji á síðasta ári frá Siglu-
firði. Hann hefúr legið við hlið Þorsteins síðan kaupin fóru fram
og hafa togarar Samheija verið látnir veiða kvóta hans.
stjómvölinn, vita greinilega ekki á Þorsteini EA, ef vitað hefði verið
hvað tíminn getur skipt miklu fyrirfram hversu erfitt málið yrði í
máli.“ Þorsteinn Már sagði að framkvæmd. Viðgerð færi hinsveg-
líklega hefði verið farið út í viðgerð ar ekki fram héðan af.
Hljómsveitin „All Arounds" skemmtir Sjallagestum.
Alpakvöld í Sjallanum
Steftiir í 150 milljóna tap
- segir Valur Arnþórsson, sem lét afstarfi kaupfélagsstjóra um mánaðamótin
„STAÐA Kaupfélags Eyfirðinga er mjög sterk um þessar mundir.
Félagið stendur föstum fótum Qárhagslega með hlutfallslega meira
eigið fé heldur en mjög mörg fyrirtæki í landinu. Á undanfömum
ámm hefúr það nánast aldrei þurft að skila ársreikningi með halla-
rekstri til aðalfúndar. Til dæmis var rúmlega 50 milljóna króna
hagnaður af rekstrinum árið 1987 þegar mörg fyrirtæki i landinu
vora farin að tapa miklum Qármunum. Hinsvegar þegar kemur að
árinu 1988, ríður yfir okkur langversta rekstursár, sem við höfúm
séð áratugum saman og kannski það versta sem félagið heftir nokk-
ura tíma séð frá því á kreppuárunum upp úr 1930,“ sagði Valur
Arnþórsson í samtali við Morgunblaðið sl. miðvikudagskvöld. Þá
hafði hann látið af starfi kaupfélagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga
og hafið sitt nýja starf sem bankastjóri Landsbanka Islands.
Ferðaskrifstofa Reykjavikur í
samvinnu við Flugleiðir býður til
sérstakrar kynningar á vetrar-
ferðum um Alpana um helgina.
Svissneski kokkurinn Erwin Der-
ungs útbýr hlaðborð að hætti helstu
skíðahótela Alpanna. Tírolatríóið
„All Arounds", sem hingað kemur
frá Ölpunum, skemmtir gestum.
Útifatnaður fyrir vetraríþróttafólk
verður sýndur svo sem vélsleðabún-
ingar og skíðafatnaður. Vetrar-
íþróttatæki verða jafnframt sýnd
svo sem vélsleðar, skíði og skautar.
Þá flytja fegurðardrottningar Norð-
urlandanna eigin skemmtidagskrá,
sýna förðun og tísku, koma fram í
kvöldklæðnaði og sundbolum og
syngja. Auk þess luma þær á ýmsu
öðru sprelli, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Ólafi Laufdal hf. Akur-
eyrska hljómsveitin „Karakter"
leikur fyrir dansi til kl. 3.00.
Á virkum dögum á þessu tíma-
bili verður hljómsveitin „All Aro-
unds“ í kjallara Sjallans. Sjallinn
verður opnaður gestum kl. 19.30.
Miðaverð á Alpahátíðina með mat
er 2.800 krónur. Eftir fyrstu helg-
ina í febrúar verður Alpahátíðinni
fram haldið á Hótel Borg í
Reykjavík.
Valur sagði að á fyrstu níu mán-
uðum ársins hefðu brúttó-vaxtaút-
gjöld félagsins hækkað um 300
milljónir króna. „Mér sýnist allar
líkur benda til þess að reksturinn á
síðasta ári verði með mjög miklum
halla, allt að 150 milljónir kr.
Síðustu þrír mánuðimir vom mun
betri vegna vaxtalækkana í þjóð-
félaginu og býst ég jafnvel við að
félagið hafi þá verið komið yfir í
hagnaðarrekstur þannig að hallinn
verði einhveiju minni heldur en
fyrstu níu mánuðir ársins sýndu.“
Valur sagði að fjármagnskostn-
aður væri megin ástæða þessa
hallareksturs. „Sem betur fer bend-
ir allt til þess að félagið verði með
jákvæða ijármunamyndun þrátt
fyrir mikinn bókhaldslegan halla-
rekstur. Kaupfélag Eyfirðinga fór
sérstaklega illa út úr verkfalli versl-
unarmanna í maímánuði á síðasta
ári og í kjölfarið skall á yfirvinnu-
bann verslunarfólks allt sumarið.
Vegna yfírvinnubannsins misstum
við stóran hluta af sumarverslun-
inni — ferðamannaversluninni, sem
við venjulega höfum haft.“
Bygging stórmarkaðar á Akur-
eyri á vegum KEA er eitt af þeim
stóru óleystu verkefnum, sem Valur
segist láta eftir sig. Byggingafram-
kvæmdir við stórmarkað KEA hóf-
ust á homi Tryggvabrautar og Gler-
árgötu í fyrra, en þeim var frestað
skömmu síðar þar sem ljóst var að
árið yrði félaginu mjög erfitt. Jafn-
framt segir Valur að nauðsynlegt
sé að efla hráefnisöflun fyrir sjávar-
útveginn, sérstaklega fyrir frysti-
hús KEA í Hrísey eftir að Snæfell-
inu var breytt í frystiskip, af illri
nauðsyn.
„Þegar ég fór frá, var búið að
ná þeim merka áfanga að stofna
sameiginlega dreifingarmiðstöð,
Samland, sem er í beinu framhaldi
af birgðastöð matvörudéildar
KEA,“ sagði Valur. Félögin þijú,
sem eru stofnendur Samlands eru
auk KEA, Kaupfélag Þingeyinga á
Húsavík og Kaupfélag Langnesinga
á Þórshöfn. Með þessari sameigin-
legu dreifingarmiðstöð og samstarfi
við verslunardeild SÍS, er gert ráð
fyrir að vömverð geti orðið hag-
stæðara en ella. Auk þessa em
kaupfélögin að ræða hugsanlegt
samstarf á öðmm sviðum eins og
t.d. í mjólkuriðnaði, slátmn, bók-
halds- og tölvumálum og fræðslu-
og félagsmálum.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
| tilboð — útboð |
Tilboð - fasteign
Óskað er eftir tilboðum í fasteignina Strand-
götu 22, Ólafsfirði. Áskilinn er réttur til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum ber að skila á skrifstofu baejar-
fógeta, Ólafsvegi 1, Ólafsfirði, fyrir 15. febrú-
ar nk.
Skiptaráðandinn í Ólafsfirði.
Útboð
Framkvæmdanefnd átaks um landgræðslu-
skóga 1990 býður út framleiðslu á birkiplönt-
um er verði afhentar vorið 1990.
Ákveðið er að heildarframleiðsla nemi a.m.k.
einni milljón plantna.
Útboðsgögn verða til afhendingar hjá Skóg-
ræktarfélagi íslands, Ránargötu 18, sími 18150.
Framkvæmdanefnd.
atvirmuhúsnæði
„Hús verslunarinnar“
Skrifstofuhúsnæði á 11. hæð í Húsi verslun-
arinnar er til leigu. Laust nú þegar.
Upplýsingar gefur Stefán H. Stefánsson á
skrifstofu Húss verslunarinnar í síma 84120.
íbúð með húsgögnum
Fræðsluskrifstofa Vestfjarðaumdæmis vill
taka á leigu íbúð með húsgögnum í fjóra
mánuði frá 1. mars nk. Helst sem næst
Kennaraháskóla íslands. Æskileg stærð 4-5
herb. Reglusemi og góðri umgengni heitið.
Upplýsingar gefur fræðslustjóri, Pétur
Bjarnason, í símum 94-3855 og 94-4684.
óskast keypt
Netaútbúnaður óskast
Upplýsingar í síma 93-61200.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf.
Einbýlishús til leigu
á fallegum stað með stórum garði, garð-
húsi, sauna og bílskúr. Parket á öllum gólf-
um. Leigist með eða án húsgagna í 2-3 ár.
Ársfyrirframgreiðsla. Einungis ábyggilegir
aðilar með meðmæli koma til greina.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Morgun-
blaðsins merkt: „Einbýlishús - 3196“ fyrir
10. febrúar.