Morgunblaðið - 03.02.1989, Side 33
em SA'Jíiasre e í.uoAarjT?.a,i aiSAjavíiiofioit ...........'_____________________ríí
■'TilöRGUNBLXÐrÐ'PÖ'STÚDAGÍJR 3. FÉBRÚAR 1989 %... 33
Minning:
Ingólfiir Guðmundsson
húsasmíðameistari
Þessi lífsskoðun varð lifandi í sálu
hennar eins og hverri lífsskoðun er
ætlað að vera.
Hún giftist Sigurði Þorsteinssyni
bifreiðarstjóra árið 1930. Hann var
öðlingsmaður sem óhætt var að
segja um að enga átti hann óvini.
Þau hjón áttu sér sameiginlegt
áhugamál þar sem spíritisminn var.
Heimili þeirra var löngum opið því
málefni til styrktar. Þó einkum eft-
ir að þau kynntust Hafsteini Björns-
syni miðli. Meðan hann var enn lítt
þekktur átti han víst athvarf með
fundi sína á heimili þeirra Sofflu
og Sigurðar. Rækilega er sagt frá
þessum fundum í bókum Elínborgar
Lárusdóttur sem hún skrifaði um
Hafstein Bjömsson og miðilsstörf
hans.
Þá hafði Soffla opið hús sitt fyr-
ir þá sem þurftu að finna lækninga-
miðilinn Einar Jonsson frá Einars-
stöðum. Hafsteinn Bjömsson og
vinir hans stofnuðu Sálarrannsókn-
arfélag Hafnarfjarðar. Soffla sat í
stjóm þess félags frá upphafi með-
an henni entist heilsa til þess að
mæta á fundum. Eldmóður hennar
og sannfæringarkraftur verður öll-
um minnisstæður sem í því félagi
hafa unnið. í hennar huga var sam-
bandið við hið yfímáttúrulega „mik-
ilvægasta málið í heimi" eins og
Einar H. Kvaran komst að orði.
Soffla varð vegna lífsskoðunar
sinnar mikill styrkur margra sem
urðu fyrir ástvinamissi. Bjargföst
trú hennar um að líf er að loknu
þessu varð mörgum hugarstyrking.
Hún gerði líka meira en að tala við
fólk í slíkum kringumstæðum. Hér
fyrr á ámm þegar blómabúðir vom
ekki til og öll aðstoð við jarðarfarir
á fmmstigi þá tók Soffía að sér að
skreyta líkkistur fyrir hvem sem
til hennar leitaði og gerði það af
smekkvísi sem henni var lagin, allt
án endurgjalds.
Hinn sívakandi áhugi Soffíu á
mannlegum kjömm varð til þess
að hún eignaðist vini af ólíku tagi.
Til dæmis gerðist hún velunnari og
hjálparhella Karmelsystra í svo
ríkum mæli að nafn hennar er skráð
í annála Karmelreglunnar í Hafnar-
firði. Soffía fann fljótt að þessar
útlendu konur höfðu til fárra að
leita um ýmis viðvik í daglegu lífi.
Soffla tók að sér ýmsar útréttingar
fyrir Karmelsystur og þau em ófá
sporin sem hún átti upp í Karm-
elklaustrið til aðstoðar og þau hjón
bæði ámm saman. Soffía lifði mest
alla æfi sína í Hafnarfírði. Hún var
minnug með afbrigðum og þeir sem
viidu fræðast um sögu bæjarins á
hennar tíð komu ekki að tómum
kofunum. Þar var rétt eins og hún
gleymdi aldrei neinu fólki sem hún
heyrði minnst á.
Þau Sigurður og Soffla byggðu
sér fallegt heimili á Skúlaskeiði 2
með vel hirtum garði sem Soffía
ræktaði af mikilli alúð. Og eins og
annað sem hún fékk áhuga á þá
kynnti hún sér garðrækt svo ræki-
lega að hún virtist þekkja allar
skrautplöntur með nöfnum hvar
sem að þeim var komið. Hún lifði
langa ævi og samferðamönnum fór
að fækka. Sigurður andaðist árið
1975. Það var mikill missir ekki
síst fyrir það að hennar eigin heilsu
var farið að hraka. Kveið hún mest
því að geta ekki búið í húsi sínu
eftir að hún var orðin ein. En þá
vildi henni til það lán að fá ná-
granna sem sýndu henni einstaka
hjálpsemi til dauðadags. Það voru
þau hjónin Margrét Burr og Hreinn
Bjamason. Soffía sagði undirritaðri
margt um þessi heiðurshjón sem
ásamt Guðlaugu Kristinsdóttur
ekkju Hafsteins Bjömssonar komu
Soffíu í stað þeirra systkina sem
hún átti aldrei, einmitt þegar henni
lá mest á.
Soffía andaðist á St. Jósepsspít-
ala í Hafnarfírði eftir þunga legu.
Þar naut hún þeirrar einstöku alúð-
ar hjúkrunarfólks og lækna sem
fylgja þessum ágæta spítala.
Og nú er hún horfin, þessi mikil-
fenglega og glæsilega kona sem
átti margt í fari sínu sem minnti á
fomkonur, sterk og heil, ógleyman-
legur vinur í gleði og sorg. Hún
trúði á lífíð eilífa sem hún fagnar
nú. Megi hún hvfla í friði og hið
eilífa ljós lýsa henni.
Sigurveig Guðmundsdóttir,
Hafnarfirði.
Fæddur 23. júní 1910
Dáinn 25. janúar 1989
Að kvöldi hins 25. janúar sl,
hringdi Hörtur, sonur Ingólfs, til
mín og tilkynnti mér andlát föður
síns. Hann hafði ætlað að sækja
föður sinn í kvöldmat þá fyrir
stuttu, en komið að honum látnum
í íbúð hans. Hjörtur sagðist hafa
haft samband við föður sinn kvöld-
ið áður, og þá hafí hann ekki kennt
sér neins meins. Mér kom andlát
Ingólfs á óvart. Hann hafði að vísu
skroppið á sjúkrahús í nokkra daga
fyrir jólin. Hann hafði þá aðeins
verið lasinn, en ekki veikur að því
er virtist.
Ég hefí haft meiri og minni kynni
af Ingólfí Guðmundssyni í 38 ár.
Árin 1950 til 1960 var Ingólfur
viðskiptamaður hjá Lámsi Jóhann-
essyni hrl., síðar hæstaréttardóm-
ara, en ég fulltrúi hjá Lárusi á sama
tíma. Frá 1960 var Ingólfur við-
skiptamaður minn að meira eða
minna leyti. Það liggur í augum
uppi, að margs er að minnast frá
svo löngum tíma. í þessu greinar-
komi verður aðeins drepið á örfá
atriði. Um athafnamanninn Ingólf
Guðmundsson væri hægt að skrifa
heila ritgerð, og þyrfti hún þó ekki
að vera jafn innantóm og sumar
æviminningar, sem jafnvel koma
út á bók.
Foreldrar Ingólfs voru hjónin
Guðmundur Kristjánsson og Ingi-
björg Ásmundsdóttir. Þau eignuð-
ust 12 böm. Auk þess ólu þau upp
að einhveiju leyti 2 fósturböm. Af
þessu er ljóst, að æskuheimili Ing-
ólfs var mannmargt, og mikinn
dugnað og útsjónarsemi hefur þurft
til að sjá fyrir svo stóm heimili á
atvinnuleysis- og krepputímum.
Foreldrar hans voru þekkt dugnað-
arfólk. Guðmundur var lengi báts-
maður á togumm, sem þá yar talin
þrælavinna. Þar sem heimilisfaðir-
inn var langtímunum saman á sjó,
hvfldi stjóm hins stóra heimilis á
húsmóðurinni. Eins og gefur að
skilja þurftu bömin snemma að
leggja hönd að verki. Þau bmgðust
vel við því. Hlutur Ingólfs lá ömgg-
lega ekki eftir. Hann var alla tíð
hörkuduglegur og útsjónarsamur
maður. Hann gerði talsverðar kröf-
ur á hendur öðram, en langmestar
kröfur gerði hann þó á hendur sjálf-
um sér alla tíð. Þannig sagði hann
að þetta ætti að vera. Þá færi margt
betur, heldur en reynslan sýnir dag-
lega.
Þótt Ingólfur þyrfti snemma að
fara daglega og bjarga sér, átti
hann góðar bemsku- og æskuminn-
ingar. Á þeim tíma eignaðist hann
nokkra góða kunningja eða vini,
sem hann sagði mér frá. Þessi
kunningsskapur hélst oft alla ævi,
enda var Ingólfur vinfastur maður,
en hann valdi sína vini. Hann vildi
geta treyst mönnum. Einn af þess-
um æskuvinum Ingólfs var þekktur
læknir hér í borg, sem nú er látinn.
Fljótlega eftir fermingu fór Ing-
ólfur á togara. Það starf átti ekki
við hann. Hann hóf því ungur að
ámm nám í húsasmíðum hjá þekkt-
um húsasmíðameistara hér í borg,
Guðjóni Sæmundssyni. Hann fór
mörgum viðurkenningarorðum um
meistara sinn, þegar hann minntist
á hann. Ingólfur lauk sveinsprófí í
húsasmíðum 1932 og meistaraprófi
1935.
Þegar ég kynntist Ingólfí fyrst
var hann orðinn þekktur og át-
hafnasamur húsasmíðameistari hér
í borg. Hann byggði stór og smá
hús, aðallega íbúðarhús. Þótt hann
fengi oft góðar lóðir hjá Reykjavík-
urborg, þá háði lóðaskortur at-
hafnasemi hans mjög. Hann bætti
oft úr með því að kaupa lóðir og
byggja á þeim. Þannig tókst honum
að byggja nokkur hundmð íbúða.
Minnisvarðamir um athafnasemi
Ingólfs em víðsvegar hér í
Reykjavík, svo og á nokkmm stöð-
um úti á landi.
Oft var það, að Ingólfur var að
byggja í nýbyggingahverfum, stutt
frá öðmm byggingameisturam, og
byijuðu þá margir að byggja sam-
timis, þ.e. strax þegar lóðimar vom
byggingahæfar. Þá var stundum
nokkurt kapp í Ingólfi, að ekki
færi húsið hægar upp hjá honum,
heidur en hinum. Lagði hann þá
áherslu á, að þetta byggðist á verk-
hyggindum og góðum undirbúningi
verks. Hann lét hraðann ekki bitna
á gæðum verksins. Hann sagði með
réttu, að það borgaði sig ekki.
Undirritaður seldi marga tugi
íbúða fyrir Ingólf Guðmundsson.
Ingólfur komst vel frá viðskiptunum
við kaupendur sína. Ég minnist
þess ekki, að nokkm sinni hafi kom-
ið til málaferla út af gæðum íbúða
sem Ingólfur lét byggja og ég seldi.
Ingólfur stóð fast á sínum rétti í
sambándi við öll viðskipti, og lét
þar engan yfír sig ganga. Hinsveg-
ar vildi hann samkomulag og náði
því, þegar það var orðið sanngjamt
á báða bóga. Auk íbúðasölu vann
ég ýmis löfræðistörf fyrir Ingólf.
Hann lagði alla tíð mikla áherslu á
að hafa allt skýrt og ákveðið. Hann
vildi engin vafamál, sem skapa
vandamál. Ingólfur velktist ekki í
vafa um, hvað hann vildi og vildi
ekki. Svör hans vom skýr og af-
dráttarlaus. Gæfí hann loforð, var
hægt að treysta þeim. Ekki var
nauðsynlegt að fá þau skrifleg.
Þar sem Ingólfur var alinn upp
í Reykjavík gekk hann í góðan
bamaskóla, sem vom forréttindi á
þeim tíma. Að sjálfsögðu lauk hann
svo námi í iðnskóla. Auk þess afl-
aði hann sér menntunar eftir öðmm
leiðum. Ingólfur dvaldi í Vancouver
á vesturströnd Kanada á ámnum
1955 til 1957, ásamt eiginkonu
sinni og fjóram sonum. Þar stund-
aði hann iðn sína. Meistararéttindi
hans í trésmíðum vom viðurkennd
þar. Þegar hann lagði upp í þá ferð
hafði hann t.d. aflað sér staðgóðrar
þekkingar í ensku. Ingólfur minnt-
ist alla tíð dvalar sinnar í Kanada
með ánægju, og hafði frá mörgu
að segja þaðan. Þar eignaðist hann
góða kunningja, bæði meðal {slend-
inga og annarra þjóða manna. Ing-
ólfur hafði m.a. áhuga á ferðalögum
og veiðum.
Fyrir all-mörgum ámm reisti
Ingólfur sér parhús við Bjarkarholt
í Mosfellsbæ. Þar í grenndinni hitti
hann fyrir einn kennara sinna í
bamaskóla, sem hann hafði ekki
hitt í áratugi. Ingólfur bar mikla
virðingu fyrir þessum kennara
sínum og fór mörgum fögmm orð-
um um hann. Það hitti svo á, að á
æskudögum mínum hafði ég haft
mikil kynni af þessum sama manni
sem fyrsta skólastjóra Reykjanes-
skólans við Djúp um 10 ára skeið.
Ég tel þennan sama mann hiklaust
til velgjörðamanna minna.
Árið 1932 kvongaðist Ingólfur
Valgerði Guðrúnu Hjartardóttur
ættaðri úr Breiðaijarðareyjum og
grennd. Þau hjónin eignuðust 4
syni, sem upp komust og 2 böm
sem dóu ung. Synimir 4 em fyrir
löngu orðnir fulltfða fjölskyldu-
menn. Þeir heita: ívar, Pétur, Aðal-
steinn og Hjörtur. Valgerður andað-
ist í maí 1976. Ég þekkti Valgerði
lítið, en tel mig þó vita, að hún stóð
vel fyrir sínu. Hjónaband þeirra var
gott. Ingólfur bar alla tíð mikla
umhyggju fyrir velferð fjölskyldu
sinnar, og náði það einnig til bama-
bama hans. Hann ræddi þessi mál
oft við mig.
Ég þakka þessum ágæta við-
skiptamanni mínum samfylgdina í
tæp 40 ár. Honum var hægt að
treysta og hann gaumgæfði vand-
lega hveijum hann gæti treyst. Ég
veit, að Ingólf hefði langað til að
dveljast lengur með okkur hér í
jarðríkinu. Hann fylgdist af lifandi
áhuga með öllu, sem var að gerast,
bæði innanlands og erlendis. En það
tjáir ekki að deila- við dómarann.
Ég votta afkomendum og öðmm
ættingjum hans innilega samúð
mína. Ég óska honum velfamaðar
í nýjum heimi og þakka honum góð
kynni okkar hér í heimi.
Arni Stefánsson
t
Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR JAKOBSDÓTTUR
frá Galtafelli,
Lönguhlíð 3,
Reykjavfk,
fer fram frá Fossvogskapellu í dag, föstudaginn 3. febrúar kl.
13.30.
Jakob Albertsson, Elín Guðmundsdóttir,
Guðmundur Jakobsson, Anna Lilja Guðmundsdóttir,
Sigríður Jakobsdóttir, Albert Jakobsson,
Stefán Jökull Jakobsson.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar og afa,
PÁLS JÓHANNESSONAR,
Víðihvammi 24,
Kópavogi,
fer fram frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 4. febrúar
kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir.
Gestheiður Jónsdóttir,
Sigríður Pálsdóttlr Eikás, Leif Magne Eikás,
Grímkell Pálsson, Ástríður Bjarnadóttir,
Anna Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall vinar okkar,
SIGURÐAR FRIÐMANS ÞORVALDSSONAR.
Páll Ólafsson og fjölskylda,
Guðni Ólafsson og fjölskylda.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS SIGURÐSSONAR,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Kristjana Þorsteinsdóttir,
Gerður Ólafsdóttir, Magni Ingólfsson,
Rebekka Ólafsdóttir, Valdimar Sveinsson,
Sigriður Ólafsdóttir, Bjarni Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, bróður okkar og mágs,
JAKOBS BJARNASONAR,
Hlaðbrekku 21,
Kópavogi.
Hulda Jakobsdóttir,
Agnar Bjarnason, Kristrún Guðmundsdóttir,
Hallfríður Bjarnadóttir,
Ellen Bjarnadóttir, Guðmundur Sigurjónsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar og móður okkar,
ÞURÍÐAR ÁRNADÓTTUR,
Heiðagerði 7,
Akránesi.
Hallgrímur Matthíasson,
Þóra Elfsabet Hallgrimsdóttir,
Matthías Hallgrímsson,
Valdimar Hallgrímsson,
Auður Hallgrfmsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR ÓSKARSDÓTTUR,
Háteigsvegi 40,
Reykjavlk.
Axel Ó. Lárusson,
Inger Bjarkan,
Anna Bjarkan,
Kristín Bjarkan,
Jóna Bjarkan,
Sigurbjörg Axelsdóttir,
Jóhann E. Björnsson,
Bjarni Konráösson,
Gunnar Ingimundarson,
Páll Eiriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.