Morgunblaðið - 05.02.1989, Side 12

Morgunblaðið - 05.02.1989, Side 12
12 C MORGIJNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1989 Svör úr spurningaskrám þjóðháttadeildar um daglegt líf Islendinga liggja nú fyrir og Morgunblaðið birtir í fjórum greinum sýnishorn úrsvörunum. III. grein Gestakomur Kristín Marja Baldursdóttir tók saman/myndir Ragnar Axelsson Mannagelt eða gestagelt var það nefnt þegar hundar geltu að gestum sem nálguðust bæinn. Þá var nú stundum farið að laga yfir rúmunum og sópa gólfið. Stúlk- umar sneru svuntunum og toguðu upp um sig sokkana, og karlmenn struku skeggið. Svo var snerpt á katlinum." Þetta eru orð sunnlenskrar konu, og víst er um það, að löngum hafa íslendingar ver- ið annálaðir fyrir gestrisni sína, enda frekar forvitnir að eðlisfari og alla tíð þótt fengur í að fá einhvern til frásagnar um atburði líðandi stundar. En menn létu sig ekki muna um að ganga úr rúmi fyrir gesti sína, og gera víst ekki enn. Mataráhöld voru notuð þegar presturinn, sýslumaðurinn eða fínni menn komu, en menn úr alþýðustétt notuðu vasahnífana sína. Venjan var að skila kveðjum strax annars var það kallað að éta ofan í kveðjumar. Afsökunarbeiðnir gengu á til skiptis, eins og t.d., „það er óþarfi að hafa fyrir mér, ég er ekki langt að rekinn", og húsbændur báðu gestina að fýrirgefa eða forláta viðurgjöminginn. Hér er stuttlega rakið hvernig fólk tók á móti gestum sínum. Vestfirðir Ekkert var nógu gott fyrir gestina, alls staðar tjaldað því besta sem til var í mat og drykk og öðrum viðurgjömingi. Gesta- stofur voru oft blámálaðar en nokkuð kald- ar. Oft gengu heimamenn úr rúmi fyrir gesti. Bestu áhöld vom notuð, silfurskeið og hnífapör. Gestirnir fengu hangikjöt og vindþurrkaðan og reyktan magaál, lunda- Austurland Búnaður vr fábrotinn í gestastofum, en þær vom til á stærri heimilum. Menn gengu bagga og sauðabringur. Púns var að jafn- aði boðið næturgestum áður en gengið var til sængur og jafnan í hófi notað. Ókurteisi þótti að bera fram barmafullt matarílát, gestaborð varð að vera (þá var ílátið ekki alveg fullt). Víða var gestum fært kaffið í rúmið að morgni og gjaman spurðir: Gastu nokkuð sofið? Þótt rúmið væri auðvitað það besta í húsinu. Þegar gestir þökkuðu góð- gjörðimar, sögðu húsbændur oftast: Fyrir- gefðu. Norðurland Gestastofur vom á betri bæjum, en oft ekki nema 3x3 álnir að stærð. Heimafólk gekk úr rúmi fyrir gesti og svaf þá gjaman í hlöðu ef að sumarlagi var. Helst fengu þeir hangikjöt, kjötsúpu og feitt sauðakjöt að snæða og notuð vom sérstök rósótt bollapör, og um 1890 var farið að nota hnífapör. Einstaka maður sagði þó með hógværð: „Ég hef nú hníf“, og brúkaði sinn eigin sjálfskeiðung. Brennivin var geymt handa gestum. Börn áttu ekki að blanda sér í umræður eða góna á gesti. Ókurteisi þótti ef helltist úr kaffibolla ofan á undirskál og einnig ef gesturinn hellti kaffinu á undirská- lina ef það var heitt. Ekki skyldi hella full- an bolla eða skál sem átti að bera gesti. Og þegar gestir þökkuðu fyrir sig, sögðu húsbændur: Forláttu. úr rúmum fyrir gesti og sváfu hjá öðmm. Gestir fengu súran mat, svið, lundabagga og bringukoll. Hnífapör vom til handa gest- um en oftar notuðu menn vasahnífa sína. Fátítt var að húsbændur borðuðu með gest- um og sú stúlka sem gekk um beina fýrir gesti átti að vera fálát. Annað þótti ekki hæfa. Eldri menn signdu sig áður en þeir byijuðu að borða. Piparmeyjar og ekkjur fóm oft í kynnisferðir til að fá tilbreytingu inn í lífið, var þá jafnan gist í 3 nætur sem kallaðar voru „gestanætur“. Húsbændur sögðu: Taktu það til góða, þegar gestir þökkuðu fyrir sig. Suðurland Menn tóku glaðir og kátir á móti öllum jafnt ríkum sem fátækum og vom fljótir til dyra. Gestastofur vom kaldar og settu kon- ur því oft flöskur eða blikkbrúsa með heitu vatni í rúmin. Gestir, sérstaklega útlending- ar, sváfu einnig oft í kirkjum væra þær við bæi. Þar sem gestanauð var mikil vom menn látnir sofa í hlöðum á sumrin og haust- in. Oft voru gestir milli 10 og 20 í einu þar sem bæir vom í þjóðbraut. Víða vom ekki til hnífapör, notuðu menn vasahnífa sína. Betri gestir fengu hangikjöt en aðrir það sama og heimilisfólkið. Húsbóndinn borðaði með heldri gestum. Eldra fólk Ias bæn og signdi sig. Skammtað var ríflega þannig að menn leifðu,' þó fengu gráðugustu menn aldrei nóg og sleiktu jafnvel innan ílátin með fingrum að síðustu. Haltu til góða, sögðu húsbændur þegar gestir höfðu þakkað fyrir sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.