Alþýðublaðið - 22.10.1920, Side 1

Alþýðublaðið - 22.10.1920, Side 1
Gefið úí af A.lþýðwflokknum. 1920 Föstudaginn 22 október. 243 töiubl. jfftviaiinrekesiGr ðzniir hart. Hr. Sigurður Þórólfsson, sem liefir borgun frá auðmannaklíku þeirri sem gefur Morgunblaðið út, fyrir að leiða iýðinn í allan sann- *eika, með því að rita um alt milli himins og jarðar í blað þeirra, verður það óvart á í grein sem hann nefnir „Ójafnaðarmenn", að ieggja mjög þungan dóm á atvinnurekendur. Hér skal skýrt tekið fram, sð honum verður þetta á óvart, því vitanlega fær hr. Sigurður Þórólfs- son ekki borgun fyrir að segja það sem atvinnurekendum kemur íitiður að heyra. Tæki hann upp ^ því, mundu Morgunblaðseigend- ur ekki verða lengi á sér, að fá sér annan mann til þess að skrifa 4 blaðið; skrifa þann „sannleika* sem þe*r viija sjá þar. Hr. Sig. Þór. segir í áðurnefndri grein, að harm telji „það ójafn- ^ðarmenn, sem engan mun vilja gera á duglegum mönnum og lið- teskjum." Það er svo sem enginn vafi á því að Sigurður ætlar þarna að vega að verkamannaleiðtogun- Utn, sem hann segir að heimti að Öllum sé goldið sama kaup. En hvenær hafa verkamenn eða leið- *ögar þeirra gert þaðf Því er %’ótsvarað: Þeir hafa aldrei gert Þad. Verkamenn setja lágmarks■ ^erð á vinnukaup sitt, en það ^efir aldrei heyrat að þeir hefðu ^ móti því að atvinnurekendur ^°rguðu rnönnum hærra kaup en ^gmarkið. Lágmarkskaupið er tttiðað við það sem kaupið má Vera lægst, með öðrum orðum, ^iðað við það sem þeir eiga, sem ^instir eru verkrnenn aí þeim sem atvinnurekendur á annað borð vilja ^ka f vinnu. Hvers vegna er það þá að „dug- 'egir menn og liðleskjur “ (svo við ^otum orð hr. Sig. Þór.) vinna Vfirleitt fyrir sama kaup? Það er blátt áfrðm af því, að atvinnurek- endur tíma ekki að borga þeim duglega meira en hinum. Réttlæt- istilfinningin er ekki meiri en þetta. Það má því með sanni segja það, að hr. Sigurður Þórólfsson hafi hitt atvinnurekendur í hjarta- stað með spjóti því er hann skaut að „verkamannaleiðtogunum", og fer ekki ólíkt fyrir honum eins og fór fyrir öðrum þjóni auðvaldsins (fjandanum), þegar hann skaut spjótinu að englinum, en hitti ömmu sínal Og eins og fór í þetta sinn fyr- ir hr. Sig. Þór., fer oftast fyrir þeim sem íyrir borgun belgja sig út með heilagri reiði. En sú heilög reiði eða heilög vandlæting, sem á rót sína að rekja til fáfræðisfljótfærni og pen- ingaborgunar, hún er þeim sem sýnir hana sízt til sóma. Þegar skammdegið kemurvaknar lestrarþrá almennings, sem legið hefir í dvala yfir sumarið — mesta annatíma ársins. — Þá langar margt alþýðufólk til þess að stytta sér stundir roeð lestri bóka. Sumir kjósa sögur og skáldrit, aðrir fræðibækur. En allur almenningur hefir ekki eíni á því að kaupa sér það, sem hann helst vill lesa — sízt nú upp á síðkastið, þegar ekki er hægt að fá innfluttar bráð- nauðsynlegar bækur frá útlöndum og íslenzkar bækur eru mjög dýrar. Til þess að gera mönnum hægra fyrir, fyrst og fremst, hafa bóka- söfn verið stofnuð; þar á meðal iandsbókasafnið, svo nefnt, sem léttara mundi að kalla „Bóka- varðasafnið", eftir því fyrirkomu- lagi sem haft er nú á því. Þetta safn er, sem kunnugt er, eign landsins og kostað af þvf. Og þar sem alt það fé, er landið hefir með höndum, er komið frá al- menningi — engu síður þeim fá- tæku — væri eðlilegt og sjálfsagt að fyrirkomulagi safnins væri hag- að þannig, að bækurnar kæmu að sem mestum notum. En því e(f ekki að heilsa. Hér í blaðinu var fundið að því í fyrrahaust, og af engum mót- mælt, að nauðsyn bæri til að breyta útlánstíma safnsins og lestr- artímanum. Þetta mun ekki hafa fundið náð meðai þeirra háu herra er safninu stjórna, því enn situr svo að segja við hið sama; aðeins sú breyting gerð, að lestrarsalurinn er nú opinn frá kl. i—7 síðdegis daglega. Töluvert verra en áður var. Útlánstíminn kl, 1—3. Allir sjá, án þess að athuga þetta hið minsta, að þetta er ó- tækt og verður að breytast hið bráðasta. Mönnum er alment gert ófært að hagnýta sér safnið, bæði lestrarsalinn og bækur til útlána. Verkamenn, verzlunarmenn, iðnað- armenn og yfirleitt allir þeir, sem. störfum eru bundnir hjá öðrum, hafa varla nokkurt tækifæri til þess að fá bækur að láni á safn- inu, hvað þá að njóta bóka þeirra, sem aðeins eru lánaðar á lestrar- salinn. Ef vel ætti að vera, þyrfti lestr- arsalurinn að vera opinn ekki skemur en til kl. 10 síðd, alla daga vikunnar, og ekki sízt á sunnudögum, og útiánstími verður, einhverntfma í viku að minsta kosti, að vera á þeim tíma sem almenningur getur notið hans. Tregða hlutaðeigandi stjórnar á því, að kippa þessu í lag, er ó- skiljanleg og óverjandi msð öllu. Góð bókasöfn, með góðri stjórn, eru andlegum þroska þjóðarinnar lffsnauðsyn, en sé þeim illa og óviturlega stjórnað eru þau verra en ekkert bókasafn. /. 7 St. Mínerva heldur fund ann- að kvöld kl. 81/!.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.